Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1993, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1993, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR14. APRÍL1993 5 Fréttir Fjölgun smábáta á tímabilinu 1983 til 1992: Sex milljarða fjárfesting Tvíhöfðanefnd áætlar aö fjárfest- ing í smábátum hafi aUs numið hátt í sex milljörðum króna á tímabilinu 1983 fil 1992. Á þessu tímabili voru teknir í notkun 876 nýir smábátar undir 10 brúttólestum. Skráðir smá- bátar í dag eru tæplega tvö þúsund. Hina miklu fjölgun smábáta má að - afla tæplega 14 prósent af heildarþorskafla landsmanna mati nefndarinnar skýra með upp- töku kvótakerfisins 1984. Þá voru lagðar hömlur á veiðar allra skipa nema báta imdir 10 lestum. Þannig fjölgaði smábátum um 79 prósent á einungis sex árum og urðu flestir 2.023 árið 1990. Á árinu 1991 voru reistar skorður við fjölgun smábáta þannig að til að nýr bátur gæti hafið veiðar varð að taka annan bát úr rekstri í staðinn. Sama ár var að auki settur kvóti á alla báta frá 6 til 10 lestir. Þetta tvennt hefur orðið til þess að smábát- um hefur fækkað lítillega undanfar- in misseri. Samfara fjölgun bátanna hefur hlutdeild þeirra í heildarafla lands- manna aukist jafnt og þétt. Þanmg var þorskafli smábáta tæplega 13 þúsund tonn árið 1982 envar orðinn 48 þúsund tonn árið 1990. Nokkuð dró úr afla smábátanna þegar kvóti var settur á báta stærri en sex lestir. Á fiskveiðiárinu 1991 til 1992 var þorskaflinn 38 þúsund tonn. Til samanburðar má geta að hlut- deild smábáta í heildarþorskafla ís- lendinga var 3,3 prósent árið 1982 en 13,8 prósent á síðasta fiskveiðiári. -kaa P.S. Pantaðu hana íkvöld, ■ #’ m * m a morgun! i s l a \ v I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.