Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1993, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1993, Blaðsíða 32
F R E T T Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjörn - Augiýsingar - Askrift - Dreifing: Sími MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1993. W Kjarasamningamir: Efasemdir í ríkisstjórn um tilboð Davíðs Stöðug fundarhöld voru í gær og fram á nótt milli aðila vinnumarkað- arins og ráðherra ríkisstjórnarinnar í kjarasamningaviðræðunum. Sam- komulag náðist ekki. Enn hefur eng- in lausn fundist í álversdeilunni. Af hálfu ASÍ hefur sú krafa verið sett fram að deilan verði leyst áður en nýr kjarasamningur verði gerður. Nýtt tilboð barst frá ríkisstjórninni í gærkvöldi sem þykir ásættanlegt. Fundað verður í miðstjórn ASÍ og innan VSÍ í dag um stöðuna. Fyrir utan lækkun matarskatts frá 1. nóvember er gert ráð fyrir hækkun skattleysismarka sem nemur 0,5 pró- senta kaupmáttaraukningu. Auk þess að úthluta aflaheimildum Ha- gráeðingarsjóðs án endurgjalds og að settir verði 2 milljarðar í verklegar framkvæmdir á þessu ári og því næsta. Samkvæmt heimildum DV er ekki einhugur innan ríkisstjórnarinnar um það tilboð sem Davíð Oddsson forsætisráðherra kynnti aðilum vinnumarkaðarins í gær. Til að mæta útgjaldaaukningunni er gert ráð fyrir að tekinn verði upp 10 pró- senta flatur skattur á fjármagn sem skilamun ríkissjóði allt að milljarði. Um þetta er ekki sátt innan Sjálf- stæðisílokks. Af hálfu krata þykir hins vegar sýnt að ekki takist að koma böndum yfir vexti aukist halli ríkissjóðs. Ljóst þykir að halda verði sérstakan ríkisstjórnarfund áður en endanlegra yfirlýsinga er að vænta fráríkisstjórninni. -kaa úr heimildum Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra sagði á aðalfundi íslenskra sjávarafurða hf. að þorskaflinn gæti orðið 230 þúsund tonn á þessu fisk- veiðiári. Ráðuneytið haföi ákveðið að aflinn skyldi vera 205 þúsund tonn og Hafrannsóknastofnun lagði til að hann yrði 190 þúsund. Ástæður meiri afla eru taldar veiðar smábáta, miili- færsla afla milli ára og tvöfóldun línu. „Það segir sig sjálft að það er baga- legt þegar veiðin fer fram úr heimild- um en ég vil ekki segja um hvort þetta hefur áhrif á tillögur okkar fyr- ir næsta tímabil," segir Jakob Jak- obsson, forstjóri Hafrannsóknastofn- unar. Hann segir tillögumar fyrir næsta ár munu hggja fyrir um mán- aðamótinmaí-júní. -Ari LOKI ,Þegar þú færð bréfið þá veistu hvaðégvil..." Ólafur G. um fullyrðmgar um þrýsting á Norræna kvikmyndasj óðinn: \ Ea hef ekki sknfað hetta bréf pviin ifi vi „Ég hef ekki skrifað þetta bréf og kem þar hvergi nærri. Tíminn þyrfti helst að birta þetta bréf meö undirskriftinni og þá ófalsað. Mér er alveg sama hvenær bréfið er dagsett. Það er hugsanlegt að ein- hverjum starfsmönnum í ráðu- neytinu detti i hug að skrifa bréf- það eru auðvitað skrifuð mörg bréf í ráðuneytinu án þess að þau séu borin undir ráðherra, drottinn minn dýri. En þetta bréf, ef skrifað hefur verið, hefur ekki verið borið undír mig. Timinn segir að ég hafi skrifað bréfxð en það er beinlinis rangt7“ sagöi Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra í samtali við DV í morgun. I forsíðufrétt Timans í dag er full- yrt að Ólafur hafi á síðasta ári þrýst á stjórn Norræna kvikmyndasjóðs- ins um að veita Hrafni Gunnlaugs- syni styrk vegna kvikmyndar hans Hin helgu vé. Hann hafi sent stjórn- arformanni sjóösins bréf, dagsett 29: október,; „með ótvíræðum for- tölum um að veíta Hrafni“ flár- styrk. „Viö höfum aldrei fyrr orðið fyrir þrýstingi svo háttsetts manns,“ Þetta er haft eftir forstjóra sjóðs- ins, kvikmyndaframleiðandanum Bengt Forslund. Hrafn sótti um styrk upp á rúmlega 2 milijónir sænskra króna. Á fyrri hluta síð- asta árs varð síðan ljóst, að sögn Hrafns í DV nýlega, að sjóðurinn væri tóinur. í Tímanum i dag er sagt að 16. desember hafi Norræni sjóðurinn ákveðiö að veita Hrafni sty’rk upp á 1 milljón sænskra króna. Tínunn segir bréf menntamála ráðherra hafa verið 3 biaðsíður að lengd, ritað á sænsku. Þar er eftir- farandi tilvitnun: „Vér álítum að sjóðurinn, með tilliti til atburða- rásarínnar sem rakin er að framan, sé siðferðilega skuldbundinn til aö efna gefin loforð." Ólafur sagðist ekki kannast við að ráðuneytið, hvorki fyrr né síðar, skilfi bréf með hliðstæðum tilmæl- um og greinir hér að framan. „Ég þekki þetta mál, það er ekkert nýtt fyrir mér. Ég vissi að Hrafni voru gefin fyrírheit. En aö ég hafi sett ofan í við stjórn sjóðsins er af og frá,“ sagði Ólafur. Ráðherra sagði Hrafn ekki hafa leimö eftir sinni aðstoð. Um þróun máls Hrafns að und- anförnu, á meðan ráöherra hefur dvalist erlendis, sagði Ólafur: „Mér fmnst þessi umræða dæmalaus lág- kúra.“ Um höfnun RíkisendurskiKðunar um rannsókn á málefnum Hrafhs sagði Ólafur: „Mér finnst sjálfsagt að Ríkisend- urskoðun fari ofan i þessi mál. Ég mun ræða við Hrafn á eftir. Ég get beðið um þetta og mun gera það efHrafh óskarþess," sagði mennta- málaráðherra. -Ó'Fl' HákonÞH: Með 60 millj- óna rækjufarm Hákon ÞH lagðist að bryggju í Reykjavíkurhöfn í morgun með 120 tonn af stórri og myndarlegri rækju sem veiddist á Dohrnbanka. Verð- mæti aflans mun vera um 60 milljón- ir króna en ríflega 70 prósent hans verða seld til Japans og Evrópu. Hákon var 24 daga í þessum túr og hljóðið gott í mönnum. Rækja hefur ekki veiðst á Dohrnbanka síðan í fyrra en nú munu um 20 bátar vera þar á rækjuveiðum. -hlh Grindavík: Grunur um ikveikju Hún Berglind litla Guðmundsdóttir skrapp í sveitina að Vorsabæ á Skeiðum um páskana til að skoða geitur og kiðlinga sem þar eru. Kiðlingurinn á myndinni er aðeins nokkurra daga gamall og þykir greinilega gott að láta Berglindi klappa sér. DV-mynd EJ Flest virðist benda til þess að brot- ist hafi verið inn og síðan kveikt í þegar sölutuminn Stjaman í Grinda- vík brann að morgni annars í pásk- um. Rannsóknarlögregla ríkisins vinnur að tæknirannsókn vegna brunans en rannsókn er annars í höndum lögreglunnar í Grindavík. -hlh Veðriðámorgun: Víða skúrir Vestanlands verður vestlæg átt, kaldi og skúrir eða slydduél sunnan til en él norðan til. Skúr- ir verða suðaustanlands en norð- anlands veröur skýjaö með köfl- um og úrkomulítið. Hiti 0-6 stig. Veðrið í dag er á bls. 28 ORYGGI - I A(;.MHNNSKA 1.ANDSSAMBAND ÍSL. RAFVERKTAKA TVOFALDUR1. vinningur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.