Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1993, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1993, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR14. APRÍL1993 17 hér Islandsmótið í handknattleik kvenna: Trallinn í Víkina - Víkingur meistari annað árið 1 röð eftir sigur á Stjömunni í gærkvöldi Víkingur varö í gærkvöldi Islands- meistari í 1. deild kvenna í hand- knattleik er liðið vann yfirburðasig- ur á Stjömunni í Garðabæ í fjórða leik Uðanna. Víkingur hafði einnig yfirburði í síðustu tveimur leikjum liðanna í úrsbtakeppninni, en Stjarn- an sigraði í fyrstu viðureigninni. „Bjóst ekki við svona stórum sigri“ „Ég átti jafnvel von á að þetta færi í fimm leiki en í annan stað bjóst ég ekki við svona stómm Víkingssigri. Eftir að við skoruðum sex mörk í röð í lok fyrri hálfleiks var aldrei spum- ing hvort Uðið sigraöi. Við hreinlega sprengdum Stjömuliðið," sagði Theodór Guðfinnsson, þjálfari Vík- ings, eftir sigurinn í gærkvöldi. Theodór tók við Uðinu sem meist- umm sl. sumar en þá hafði það orðiö fyrir mikilU blóðtöku, misst marga leikmenn úr meistaraUðinu. „Við höfum sýnt það að við erum með yfirburðaUð. Við erum langbesta Uð- ið í dag, það er engin spuming og það er stórkostlegt að hampa titlinum,“ sagði Theódór. Jafnt í byrjun en síðan skildi leiðir Leikurinn í gærkvöldi var í jafnvægi framan af og Uðin skiptust á að hafa forystu. Jafnt var, 5-5, en þá skildi leiðir. StjömuUðið missti hvem leik- manninn af öðrum af leikvelU með brottvísun, lengst af tvo í einu fyrir brot sem einnig gáfu vítaköst. Vík- ingsUðið notfærði sér aðstöðuna til hins ýtrasta og geröi sex mörk í röð, 5-11, og gerði út um leikinn í fyrri hálfleik. Staðan í hálfleik var 6-12. Miklir yfirburðir en því aldrei spenna VíkingsUðið hélt uppteknum hætti í síðari hálfleik, jók muninn jafnt og þétt úr sex mörkum í tíu, en níu mörk skildu þegar upp var staðið, 12-21. Leikurinn varð því aldrei spennandi og var það miður, þar sem fuUt hús áhorfenda var í Garðabæ í gærkvöldi. VíkingsUöið lék mjög vel í þessum leik, liðshefidin var sterk, hvergi veikan hlekk að finna, en ef taka ætti einn leikmann út úr þá er það Inga Lára Þórisdóttir, fyrirUði Uðs- ins, sem átti enn einn stórleikinn í úrsUtakeppninni. Allt á afturfótunum hjá Stjörnunni Hjá Stjömunni gekk flest á afturfót- unum eftir leikkafla sem gerði út- slagið, aldrei var möguleiki að jafna og hafði það sitt að segja. Nina Getsko markvörður og Ragnheiður Stephensen stóðu upp úr. Aðrar léku undir getu. Afar slakir dómarar leiksins vom þeir Guðjón L. Sigurðsson og Hákon Sigurjónsson. Mörk Stjömunnar: Ragnheiður Stephensen 4, Una Steinsdóttir 2, Guðný Gunnsteinsdóttir 2, Sigrún Másdóttir 2, Stefanía Guðjónsdóttir 1, Herdis Sigurbergsdóttir 1. Mörk Víkings: Inga Lára Þórisdótt- ir 8/5, HaUa María Helgadóttir 4, Valdis Birgisdóttir 3, Hanna Einars- dóttir 2, Svava Sigurðardóttir 2, El- ísabet Sveinsdóttir 1, Heiðrún Guð- mundsdóttir 1. -BL <ki von aratign nótsins" ir sé á forum en við verðum sterkar áfram,“ sagði Inga Lára ennfremur. „Kenni dómurunum um hvernig fór“ „Ég kenni dómurunum alfarið um hvemig fór í þessum leik. Staðan var 5-5 en síðan taka dómararnir sig til og við vorum tveimur færri aUt til leikhlés. Ég er ekki sáttur við brottvisanir þeirra. Eftir þennan leikkafla var leikurinn búinn," sagði Magnús Teitsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir leikinn. „Betra Uðið vann en við misstum af lestinni í öðrum leiknum. Þá vorum við þremur mörkum yfir og nokkrar mínút- ur eftir en töpuðum síðan með einu marki. VíkingsUðið er vel að sigrunum komið þegar á heildina er Utið en það var leiðinlegt að þetta skyldi ekki verða meira spennandi," sagöi Magnús. -BL Vikingsstúlkur fögnuðu íslandsmeistaratitlinum með viðeigandi hætti í Garðabæ í gærkvöldi. Víkingur er vel að þessum sigri kominn og ekki nokkur spurning að liðið hefur á að skipa besta kvennaliði landsins í dag. DV-myndir ÞÖK dinínótt: Magic á öguleika Portland-LA CUppers.....101- 99 Reggie Lewis skoraði 19 stig fyrir Boston gegn Indiana. Reggie Miller skoraði 24 stig fyrir Indiana. Cleveland marði sigur gegn Atlanta eftir tvær framlengingar. Nick Price skoraði 24 stig fyrir Cleveland og Brad Daugherty 17 stig og tók 17 fráköst. Kevin WilUs skor- aði 35 stig fyrir Atlanta og tók 25 fráköst. Dominique Wilkins var með 32 stig. New York Knicks vann 17. heimasigur sinn í röð gegn Washington. John Starks skoraði 19 stig fyrir Knicks og Harvey Grant var með 27 fyrir Washington. Terry Porter tryggði Portland sigur gegn LA CUppers með þriggja stiga körfu í blá- lokin. AUs skoraði Porter 25 stig og Cliff Robinson 20. Danny Manning skoraöi 23 stig fyrir CUppers. Hakeem Olqjuwon skoraði 29 stig fyrir Houston gegn Lakers og Houston er nær öruggt með sigur í Miðvesturriðlinum í fyrsta skipti síðan 1986. Vlade Divac skor- aðil9stigfyrirLakers. -SK EyjóHur ekki til Bandaríkjanna Eyjólfur Sverrisson. Eyjólfur Sverrisson hjá þýska fé- laginu Stuttgart gefur ekki kost á sér í ferð íslenska landsUðsins til Banda- ríkjanna en þjóðimar mætast í vin- áttulandsleik í Kalifomíu á laugar- daginn kemur. Ásgeir EUasson landsUðsþjálfari valdi í gærkvöldi Hörð Magnússon úr FH í stað Eyj- ólfs. Ein önnur breyting verður á upp- haflega hópnum sem heldur til Bandaríkjanna. Kristján Jónsson úr Fram getur ekki farið með liðinu til Bandaríkjanna vegna meiðsla í hné og var Andri Marteinsson úr FH val- inn í hans stað. LandsUðið heldur af landi brott síðdegis í dag. Birkir Kristinsson, markvörður Uðsins, úr Fram, meiddist í æfinga- búðum í Belgíu. Birkir stóð þó í marki Fram gegn belgíska Uðinu Ekeren í gærkvöldi en fer í læknis- skoðun fyrir hádegi í dag og kemur þá í ljós hvort hann verður í leik- hæfu ástandi gegn Bandaríkjamönn- um. -JKS/VS Guðni ræddi málin við Venables Guðni Bergsson átti í gær viðræð- ur við Terry Venables, fram- kvæmdastjóra Tottenham, um fram- tíð sína hjá félaginu. Samningur Guðna rennur út í vor. „Við Venables ræddum máUn lítil- lega í gær en ákváðum síðan að ræða málin niður í kjölinn eftir ferð ís- lenska landsUðsins til Bandaríkj- anna. Það kom þó fram í máU fram- kvæmdastjórans á fundinum að Tottenham er reiðubúið að bjóða mér samning sem yrði þó aldrei lengri en tfi eins árs. Hiim valkostminn í stöð- unni er sá að koma heim og leika á íslandi í sumar og sjá síðan hvemig málin standa í haust,“ sagði Guðni Bergsson í samtaU við DV í gær- kvöldi. Guðni kemur til íslands í dag ásamt Þorvaldi Örlygssyni hjá Nottingham Forest og saman halda þeir félagar meö íslenska landsUðinu til Banda- ríkjanna síðdegis. -JKS íþróttir medHvöt Serbneskur markvörður, Cor- an Dujakovic, er kominn til Hvat- ar á Blönduósi og leikur væntan- lega meö Uðinu í 4. deildinni í knattspyrau í sumar. Dujakovic þýska Uðinu Bamberg en áður með Celik Zenica í Júgóslavíu. Áður stóö til að landi hans, Drag- an Matin, kæmi til Blönduóss en ekkert varð af því. iiArAiia* aItItS V%rl Vilf ^IVWI meðLeiftri Nú er nokkuð ljóst að Serbinn Goran Barjaktarevic, sem lék með Leiftri í 2. deildinni í knatt- spyrnu siðasta sumar, kemur ekki aftur til ÓlafsfjarðarUðsins. Hann hefur leikiö í Marokkó í vetur og verður líklega áfram þar. Leiftur hefur hins vegar fengiö Sindra Bjarnason frá Val á Reyðarfirði í hópinn. -VS IRvanntvoí 2. deildar Uö ÍR í knattspymu dvaldi í æfingabúðum í Hannover í Þýskalandi fyrir páskana og lék þar tvo leiki. ÍR vann varaUð 2. deildar Uðs Hannover, 5-2, og skoruöu Bragi Bjömsson 2, Þorri Ólafsson 2 og Pétur Bjarnason mörkin. Síðan unnu ÍR-ingar 3. defidar Uðiö SV Armenia, 2-0, með mörkura Braga og Þorra. HKvanntvo HK, sem leikur í 3. deUd, var í æfingabúðum í Zandvoort í Hol- iandi um svipað leyti, lék einnig tvo leUíi og vann báða. Fyrst van n HK sigur á varaUði 1. deildar Uðs- ins HaarJem og skoruðu Ejub Purisevic og Jóhann H. Ólafssön mörkin. Síðan vaiin HK 3. deildar Uð Zandvoort, 2-1, meö mörkum frá Porisevic og Helga Kolviðs- svm. Mótfyrir l.flokká Helgi Jónsson, DV, Óln£s&rdi: Knattspyrnudeiid Leifturs stendur fyrir móti hjá 1 flokki i knattspyrnu í sumar. Mótið fer fram á öllu Norðurlandi og þátt- tökuUð verða Leiftur, l»ór, KA, Dalvik, TindastóU og Völsungur. SpUuö verður tvöfóld umferð, heima og heiman. í 1. flolcks Uö- unum eru varamenn í meistara- flokki og yngri leikmenn, og gefst þeira því kjörið tækifæri til að spreyta sig og afla sér dýrraætrar reynslu. Mótið byrjar strax í júní og stendur fram ettir öUu sumri. Hið árlega víðavangshlaup Aft- ureldingar fer fram laugardaginn 17. aprfl og hefst klukkan 14. Hlaupið verður frá VarmárvelU í Mosfellsbæ. Keppt verður í fimm aldursliópum karla og kvenna, 10 óra og yngri, 11-14 ára, 15-18 og eru vegalengdimar frá 0,9 km upp i 8 krn. Skráning fer íram á keppnisstað klukkan 13. Nánari upplýsingar eru 667748.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.