Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1993, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1993, Page 25
MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1993 25 Meiming H-moll messan Langholtskórinn hélt tónleika á fostudaginn langa ásamt Kammersveit Langholtskirkju. Einsöngvarar voru Ólöf Kolbrún Harðardóttir, sópran, Signý Sæmundsdóttir, sópran, Elsa Waage, alt, Michael Goldthorpe, te- nór, og Kristinn Sigmundsson, bassi. Konsertmeistari hljómsveitarinnar var Júlíana Elín Kjartansdóttir. Stjómandi var Jón Stefánsson. Á efnis- skránni var Messa í h-moll eftir Jóhann Sebastian Bach. í myndarlegri prentaðri efnisskrá tónleikanna var meðal annars að fmna ágæta ritgerð eftir stjómandann Jón Stefánsson, þar sem gerö er grein fyrir tilurð messunnar. Hún var samin á löngum tíma og var ekki lokiö fyrr en fáum árum fyrir dauða tónskáldsins. Margir telja h-moll messuna magnaðast af trúarlegum verkum meistarans og er þá ekki jafn- að til við neina smásmíði þar sem er Mattheusar passían, Jóhannesar Tónlist Finnur Torfi Stefánsson passían og Magnificat. Það er einkum í kóratriðunum sem Bach fer á sínum bestu kostum í h-moll messunni. Hugmyndaauðgin og tjáningar- krafturinn þar á sér vart hliðstteðu. Tónlistin gerir mjög miklar kröfur til kórsins um snerpu, hraða og nákvæmni. Stundum er sagt að hún minni meir að þessu leyti á hljóöfæratónlist en kórtónhst. Hvað sem því líöur hljómar hún frábærlega hjá góðum kór, sem hefur lagt á sig það erfiði sem því fylgir að ná fuhkomnu valdi á henni. Með þessu er ekki sagt að verkið skorti í öðrum atriðum sem heillað hafa unnendur verka Bachs í gegnum árin. Þama eru gullfallegar aríur og einleikskaflar, og hljómsveitin fær næg tækifæri til að sýna sínar bestu hliðar. Yfir öllu hvíhr trúareinlægni meistarans, sem þrátt fyrir alvörugefinn undirtón lýsir sér iðulega í glaðværð. Það er ekki lítið fyrirtæki að takast á hendur flutning þessa mikla verks. Langholtskórinn og Jón Stefánsson háfa öðlast töluveröa reynslu í flutningi stórra verka og flutningur þeirra á verkum Bachs er orðinn fastur liður í tónlistarlífi hér. Allt krefst þetta mikillar vinnu og ósér- hhfni og því ánægjulegra þegar vel tekst til eins og var á þessum tónleik- um.Einsöngvararnir áttu allir góðan dag og var þar engan veikan punkt að finna. Hljómsveitin stóð sig með prýði og margir einleikarar úr henn- ar röðum léku mjög fallega. Kórinn nýtti sér til fulls þau ríku tilefni sem tónhstin gaf til að hrífa áheyrendur með sér í algleymi Bachs. Þetta voru góðir tónleikar. Málmblásaratónleikar Tónleikar voru í Hafnarborg í Hafnarfirði á skirdag. Flytjendur voru sextán málmblásarar ásamt tveim slagverksmönnum. Stjómandi var Frank L. Battisti frá Bandaríkjunum. Á efnisskránni vom verk eftir G. Gabrieh, J. Wilbye, W. Rigger, J. Koetsier, K. Husa, R. Starer og W. Hart- ley. Hópurinn, sem þarna lék, er að meginstofni skipaður félögum úr Sinfó- níuhljómsveit íslands áscunt nokkmm kunnum blásumm til viðbótar. Má segja að þarna hafi verið á ferðinni landsliðið í málmblæstri, svo að notað sé tungutak sjónvarpsins. Þessi hópur hefur undanfarin ár haft þann sið aö bjóða upp á tónleika á skírdag og fengið góðar undirtektir. Má raunar segja að tónleikar af þessu tagi séu allt of sjaldan haldnir. Tórdist Finnur Torfi Stefánsson Þeir eru ómissandi hður í tónlistarlífinu. Málmblásturshljóðfærin hafa upp á að bjóða mikla fjölbreytni í hljómi og tjáningu auk hinna þekktu sérkenna sinna, snerpu, birtu og styrks. Allt þetta fær því aðeins að njóta sín að hljóðfæraleikur og samþjálfun sé fyrsta flokks og til þess þarf að spila oft. Efnisskráin var fjölbreytt og að miklu leyti eftir núlifandi höfunda. Nýrri verkin vora flest undir meiri og minni nýklassískum áhrifum. Meðal þeirra sem hljómuðu einna fahegast má nefna Divertimento eftir Husa og Sinfóníu eftir Hartley. Bestu verkin vom þó hin elstu, Canzon septimi octavi toni eftir Gabrieh og Þrír madrigalar eftir Wilbye. Þarna nýtur sín til fuhs hin háþróaða fjölröddunarlist endurreisnartímans, út- færð með ríkri andagift og hárfínum smekk. í verki Gabriehs er hljóðfæra- leikurunum skipt í þrjá hópa umhverfis áheyrendur og skapar það sér- stök rýmisáhrif sem em óaðskhjanlegur hluti verksins. Flutningurinn var góður en ekki fullkominn. Margt hljómaði mjög fah- ega og heildin var góð þótt ónákvæmni spihti fyrir á stöku stað. Margir einstakhngar sýndu góð thþrif. Má þar m.a. nefna frábæran básúnuleik Odds Björnssonar í verki Hartleys. Stjómandinn sýndi gott vald og stjóm- aði af öryggi. Tilkynningar Áskirkja Samverustund fyrir foreldra ungra bama í dag kl. 10-12. 10-12 ára starf í safnaðarheimilinu í dag kl. 17. Dómkirkjan Hádegisbænir kl. 12.10. Léttur hádegis- verður á kirkjuloftinu á eftir. Opið hús fyrir eldri borgara í safnaöarheimilinu í dag kl. 13.30-16.30. Tekið í spil. Kaffiborð, söngur, spjall og helgistund. Háteigskirkja Kvöldbænir og fyrirbænir í dag kl. 18. Neskirkja Bænamessa kl. 18.20. Sr. Frank M. Hall- dórsson. Seltjarnarneskirkja Kyrrðarstund kl. 12. Söngur, altaris- ganga, fyrirbænir. Léttur hádegisverður í safhaðarheimilinu. Frístundahópurinn Hana-nú10ára í ár á Frístundahópurinn Hana-nú í Kópavogi 10 ára afmæli en nýlega kom út bréf um starfsemina fram á sumar. Þar kennir margra grasa að venju. Kleinukvöld verður í lok aprílmánaðar, farið verður í hölskylduferð á Ronju ræn- injadóttur, Púttklúbbur boðar mót sum- arsins, auglýst er uppákoma í Göngu- klúbbi og farið verður í ferð að Kirkju- bæjarklaustri yfir hvítasunnuhelgina. Lokapunktur vetrarstarfsins verður sá að farið verður í dagsferð á Njáluslóðir laugardaginn 17. apríl. Félagar hafa sett saman fjölbreytta samfellda dagskrá með söng og upplestri sem byggist á Brennu Njáls sögu. Dagskráin verður flutt í fé- lagsheimilinu í Goðalandi í Fljótshlíð kl. 16 laugardaginn 17. april og era allir vel- komnir. Kvenfélag Kópavogs Konukvöld verður í félagsheimili Kópa- vogs fimmtudaginn 15. apríl kl. 20. Gestur kvöldsins verður Heiðar Jónsson snyrtir. AUar konur velkomnar. Leikhús ÞJÓDLEIKHÚSIÐ Sími 11200 Stórasviðiðkl. 20.00. DANSAÐ Á HAUSTVÖKU eftir Brian Friel Sun. 18/4, næstsiðasta sýning, lau. 24/4, siðasta sýning. MY FAIR LADY söngleikur eftir Lerner og Loeve. Fös. 16/4, uppselt, lau. 17/4, uppselt, fim. 22/4, örfá sæti laus, fös. 23/4, uppselt. Ath. Sýningum lýkur i vor. MENNIN GARVERÐLAUN D V 1993 HAFIÐ effir Ölaf Hauk Símonarson. Á morgun, sun. 25/4. Ath. aðelns 2 sýningar eftir. DÝRIN í HÁLSASKÓGI effir Thorbjörn Egner. Sun. 18/4 ki. 14.00, uppselt, fim. 22/4 kl. 13.00, uppselt (ath. breyttan sýningar- tima), lau. 24/4 kl. 14.00, uppselt, sun. 25/4 kl. 14.00, uppselt. Litla sviðið kl. 20.30. STUND GAUPUNNAR eftir Per Olov Enquist. Á morgun, örfá sæti taus, lau. 17/4, lau. 24/4, sun.25/4. Ekki er unnt að hleypa gestum i salinn eftir að sýnlng hefst. Smiöaverkstæðið kl. 20.00. STRÆTI eftir Jim Cartwright. í kvöld, uppselt, fös. 16/4, uppselt, sun. 18/4, uppselt, miö. 21/4, uppselt, fim. 22/4, uppselt, fös. 23/4, uppselt, lau. 24/4 kl. 15.00 (ath. breyttan sýningartima), sun. 25/4 kl. 15.00 (ath. breyttan sýningartima). Örfáar sýnlngar eftir. Ath. aö sýningin er ekki við hæfi barna. Ekki er unnt að hleypa gestum i sallnn eftir að sýning hefst. Ósóttar pantanlr seldar daglega. Aðgöngumlðar greiðist viku fyrir sýningu ellaseldiröðrum. Miöasala Þjóðleikhússins er opin alla daga nema mánudaga frá 13-18 og fram aö sýningu sýningardaga. Miðapantanir frá kl. 10 virka daga i sima 11200. Greiðslukortaþj. -Græna linan 996160. LEIKHÚSLÍNAN 991015. Þjóðlelkhúslð -góða skemmtun. Miðstöð fólks í atvinnuleit Lækjargötu 14. Opið mánudaga til fóstu- daga kl. 14-17. í dag, 14. apríl, kl. 15 mun Dögg Pálsdóttir, skrifstofustjóri í heil- brigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, ræöa um frumvarp til laga um breytingar á lögum um Atvmnuleysistryggingasjóð. Fimmtudaginn 15. apríl kl. 15 mun Gunn- ar Sigurðsson, fulltrúi í félagsmálaráðu- neytinu ræða um vinnumiðlun. Föstu- daginn 16. apríl kl. 15 verður skemmti- dagskrá. Þýðendakvöld á Fógetanum Fimmta þýðendakvöldið í vetur verður á Háalofti Fógetans fimmtudaginn 15. apríl kl. 20.30.. Kvöldiö verður helgað ljóðum frá fyrri tíð. Eftirtaldir þýðendur lesa úr eigin þýðingum: Helgi Hálfdanarson, Karl Guðmundsson, Kristján Ámason og Óskar Ingimarsson. Að lokum les Helga Bachmann úr þýðingum Þorsteins Gylfa- sonar. Fé safnað til landgræðslumála Um nokkurt skeið hefur á vegum Rotary á íslandi starfað umhverfisnefnd sem hefur það m.a. að markmiði að safna fé til landgræðslumála. Alls hefur safnast tæp ein milljón króna meðal Rotary fé- laga og hefur Landgræðslunni verið af- hent fé þetta til uppgræðslu á Haukadals- heiði. Uppgræðslusvæðið verður auð- kermt Rotary hreyfingunni. Myndin sýn- ir Áma Gestsson, formann umhverfis- nefndar, afhenda Sveini Runólfssyni landgræðslustjóra ávisun fyrir upphæð- inni. LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR Stóra svlölö: RONJA RÆNINGJADÓTTIR eftir Astrid Lindgren Tónlist:Sebastlan. Lau. 17/4, uppselt, sun. 18/4, fáein sæti laus, lau. 24/4, sun. 25/4. ATH. Sýnlngum lýkur um mánaðamótln apríl/mai. Miðaverö kr. 1.100, sama verö fyrlr böm og fuílorðna. Skemmtilegar gjafir: Ronju-gjafakort, Ronju-bolir o.fl. Stóra svlð kl. 20.00. BLÓÐBRÆÐUR Söngleikur eftir Willy Russell. Fös. 16/4, mlð. 21 /4, fös. 23/4. FÁAR SÝNINGAR EFTIR. TARTUFFE ensk leikgerð á verki Moliére. 8. sýn. fim. 15/4, brún kort gilda, lau. 17/4, örfá sætl laus, lau. 24/4. Coppelía. íslenski dansflokkurinn. Uppsetning: Eva Evdokimova. Sunnud. 18/4, fimmtud. 22/4, sunnud. 25/4. Lítla sviðkl. 20.00. DAUÐINN OG STÚLKAN eftir Ariel Dorfman Fim. 15/4, fáeln sæti laus, fös. 16/4, fáeln sætl laus, lau. 17/4, miö. 21/4, fös. 23/4. GJAFAKORT, GJAFAKORT ÖÐRUVÍSIOG SKEMMTILEG GJÖF! Miðasalan er opin alla daga frá kl. 14-20 nema mánudaga frá kl. 13-17. Miðapantanir i síma 680680 alia virka dagafrákl. 10-12. Greiðslukortaþjónusta - Faxnúmer 680383. Leikhúslínan, simi 991015. Aögöngumiðar óskast sóttir þrem dögum fyrir sýn. Leikfélag Reykjavíkur - Borgarleikhús. Tórúeikar Djass dúó á Háskóla- tónleikum Síðustu háskólatónleikar vetrarins verða haldnir í dag, miðvikudag, kl. 12.30 í Norræna húsinu. Fram koma Sigurður Flosason saxófónleikari og Kjartan Valdimarsson píanóleikari. Þeir munu leika djasstónlist eftir Keith Jarett, Ric- hie Beirach, Thelonious Monk og sjálfa sig á baríton saxófón og píanó. Tónleik- amir verða háffrar klukkustundar lang- ir. Tapaðfundið Leðurveski tapaðist Brúnt leðurveski tapaðist í Grafarvogi á sunnudagskvöldið sl. Finnandi vinsam- legast hringi í síma 10974. Námskeið Söngnámskeið Ágústa Ágústsdóttir heldur söngnám- skeið í skóla Estherar H. Guðmundsdótt- ur „Söngsmiðjunni" í Listhúsinu, Laug- ardal (bak við Ásmundarsafn). Nám- skeiðið hefst með fyrirlestri fimmtudag- inn 15. apríl kl. 20.30 í sal Listhússins. Kennsla hefst kl. 13 dagana 16.-18. apríl og lýkur með tónleikum á sama stað sunnudaginn 18. apríl kl. 17. Fullbókað er á námskeiöið en þeir sem vildu hlýða á kennsluna eru velkomnir. Símanúmer námskeiðsins er 682455. Leikfélag Akureyrar ^LÍBihuvbl&k&xx Óperetta Tónlist Johann Strauss Föstud. 16.4. kl. 20.30. Örfá sæti laus. Laugard. 17.4. kl. 20.30. Uppselt. Sunnud. 18.4. kl. 17.00. Miðvikud. 21.4. kl. 20.30. Föstud. 23.4. kl. 20.30. Laugard. 24.4. kl. 20.30. Föstud. 30.4. kl. 20.30. Laugard. 1.5. kl. 20.30. Miðasala er í Samkomuhúsinu, Hafnarstræti 57, alla virka daga kl. 14 til 18 og sýningardaga fram að sýn- ingu. Síms vari fyrir miðapantanir allan sólarhringinn. Greiðslukortaþjónusta. Simi I miðasölu: (96)24073. ÍSLENSKA ÓPERAN __iiiii óardasfurstyíijan eftir Emmerich Kálmán. Föstudaglnn 16. april ki. 20.00. úrfá sæti laus. Laugardaginn 17. april kl. 20.00. úrfá sæti laus. Föstudaginn 23. april kl. 20.00. Laugardaglnn 24. april kl. 20.00. Sýningum fer fækkandi. Miðasalan er opin frá kl. 15.00-19.00 daglega en til kl. 20.00 sýningardaga. SÍM111475. GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA. LEIKHÚSLÍNAN 99-1015. Fundir Giktarfélag Islands heldur fræðslufund um veflagikt (fib- romyalgi) fimmtudagskvöldið 15. apríl kl. 20.30 í A sal Hótel Sögu. Erindi flytja Árni Geirsson gigtlæknir og Sigrún Bald- ursdóttir sjúkraþjálfari. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir og aðgangur ókeyp- is. Fyrirlestrar Opinber fyrirlestur Fimmtudaginn 15. apríl mun dr. Kristin Bjömsdóttir flytja opinberan fyrirlestur á vegum námsbrautar í hjúkrunarfræði og Rannsóknastofu í kvennafræðum við Háskóla íslands. Fyrirlesturinn nefnist „Sjálfsskilningur íslenskra hjúkrunar- kvenna á tuttugustu öldlnni: Orðræða og völd“. í honum íjallar Kristín um mótun hugmynda um hjúkrunarstarfið á íslandi í Ijósi þeirra breytinga sem orðið hafa á heilbrigðiskerfinu á tuttugustu öldinni. í greiningu sinni beitir Kristín m.a. kenn- ingum úr kvennafræðum og skoðar hjúkrunarstarfið í ljósi þess að það hefur verið kvennastarf. Butlertvímenning- urB.Reykjavíkur Miövikudaginn 14. apríl hefst 6 kvölda Butlertvímenningskeppm hj á Bridgefélagi Reykjavíkur. Hún verð- ur spiluð sex næstu miðvikudags- kvöld og lýkur þann 19. maí. Keppn- in er reiknuð út á tölvu og skráning í hana er hjá BSÍ í síma 689360. Butl- ertvímenningurinn er tilvalinn vett- vangur fyrir pör til að koma sér í form fyrir íslandsmótið í tvímenn- ingi 22.-25. apríl. -ÍS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.