Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1993, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1993, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR16. APRÍL1993 Utlönd LosAngeles: Hermenn og lög- reglafjölmenná götunum Yíirvöld í Los Angeles hafa skipað 600 þjóövarðliðum meö alvæpni á götur borgar- innar til aö að- stoðafjölmennt lögreglulið í baráttu viö ofbeldissfeggi þegar niðurstaða fæst í máli Rodneys King. Kviðdómendur hafa nú set- ið á rökstólum í sex daga án þess að komast að niðurstöðu um hvort sakfella skuli lögreglu- mennina sem börðu King til óbóta í fyrra. Búist er við óeirðum hver sem niöurstaðan verður. Fangelsifyrirad nauðga 9 stúlkum Sænski plötuútgefandinn BiUy Butt hefúr verið dæmdur til fjög- urra ára fangavistar fyrir að nauðga níu ungum stúlkum. Hann segir að stúlkurnar hafi sofið þjá sér sjálfviljugar. Stúlk- urnar sögðust hafa sængað með honum gegn ioforðum um plötu- samninga. Dómurinn taldi að Billy hefði notað sér aðstöóu sína sem útgefandi. Reuter og TT Stuttar fréttir Ræða meira um Bosniu Ákveðið er að kalla öryggisráð Sameinuðu þjóðanna saman í næstu viku til tveggja daga fúnd- ur um Bosníu. Þetta er gert til að svara gagnrýni á aö ffestað var að herða aðgerðir gegn Serb- um. Skothríð á Srebmica Bosníu-Serbar héldu í gær uppi stöðugri skothríö á íslamabæinn Srebmica í gær. Hjálparstofhanir segj a ástandið fara dagversnandi. Major á móti vopnasölu John Major, forsætisráðherra Breta, lýsö í gær andstööu sinni viö hugmyndir um að heimila sölu á vopnum tii íslama 1 Bosníu. Manndráp i Suður-Afríku Óaldarseggir myrtu tvo hvíta menn í Transkei í Suður-Afríku í gær. Síðustu daga hafa tugir manna faliið í óeiröum í kjölfar morðsins á Chris HanL Stríðsöxin ekfci grafin Bill CUnton Bandaríkjaforseti vill ekki enn sættast við Víet- nama og ræða mál stríðsfanga nema þeir gefl fúllnægjandi svör um afdrif hundraða hermanna. Á meðan verður stríösöxin ekki grafm. MálþófgegnClínton Repúblikanar á Bandaríkja- þingi hóta að beita málþófi til að stöðva hugmyndir Bill Clintons um að verja 16 miiljörðum dala í að skapa ný störf. Rfkisstjóm ísraels ætlar að fjórfalda ffamlög til þróúnar- starfs á hemumdu svæðunum. Sfjómin situr undir ámæli fyrir aö halda þeim í einangrun. Ráðuneytiílogum Bldur kom upp f utanríkisráðu- neytinu í Lagos í Nígeríu í gær. Fólk lokaöist inni en ekki er vitað um mannijón. Eldsupptök era Ókunn. Reuter Marita Petersen, lögmaður Færeyja, um dökka framtíð eyjanna: Sættumst nauðug á dönsku einokunina - getum eins lagt niður þing og landstjóm, segja andstæðingamir Jens Dalsgaard, DV, Færeyjum; „Við eigin engra annarra kosta völ en sættast á dönsku einokunina. Þaö er ekkert nýtt að bankarnir ráði at- vinulífinu hér. Nú verður það gert fyrir opnum tjöldum," segir Marita Petersen, lögmaöur Færeyja, um þau áform að stofna risafyrirtæki til að stjóma færeyskum sjávarútvegi. Nýjustu hugmyndir eru að hafa fyrirtækin tvö og láta annað sjá um fiskvinnslu en hitt um útgerðina. Richard Mickelsen, formaður fær- eyska fjárfestingasjóðsins, ræðir í Marita Petersen lögmaður. dag við landstjómarmenn um fram- hald málsins. Fjárfestingasjóðurinn er í eigu færeyskra banka sem síðan eru í danskri eigu. í fyrstu verða öll nema þrjú eða fjögur fyristihús sett undir nýja fyr- irtækið. Þau sem útundan verða geta ekki treyst á fyrirgreiðslu bankanna og munu því nauðug ganga inn í nýja fyrirtækið. Annfinn Kallsberg, formaður Fólkaflokksins, segir að þessi niður- staöa jafngildi því að landstjómin og þingið afsali sér öllum völdum. Hér eftir fari Richard Mickelsen í raun með stjóm landsins. Fólkaflokkurinn, sem stendur að landstjóminni með jafnaðarmönn- um, vill að sett verði lög sem banni einokun í sjávarútvegi. Jafnaðar- menn em á móti og segja að lög af þvi tagi séu tilgangslaus því bank- arnir eigi fyrirtækin hvort eð er. Ósætti er því mikið í stjórninni en samt litlar líkur á stjórnarshtum því báðir flokkamir óttast afhroð í kosn- ingum. Stjómin er mjög óvinsæl og er sökuð um að hafa komið efna- hagnum í þrot. Mikið öngþveiti ríkti í verslunarmiðstöðinni eftir að sprengjan sprakk. Tugir manna þurftu að komast á sjúkrahús hið bráðasta. Hér má sjá lögreglumann reyna að hafa uppi á sjúkrabil á sprengjustaðnum. Símamynd Reuter Fimmtán drepnir og 100 særöir í sprengjutilræði í Kólombíu: Verslunarmiðstöð í rúst Ókunnir sprengjumenn lögðu fjöl- sótta verslunarmiðstöð í Bogota í Kólombíu í rúst í gær með öflugri spmgju í bíl. í það minnsta 15 menn létu lífið og um eitt hundrað særð- ust. Lögreglan kennir eiturlyfjabar- óninum Pablo Escobar um tilræöið en enginn hefur lýst ábyrgð á hendur sér. Sprengjunni var greinilega ætlað að granda sem flestum. Margt fjöl- skyldufólk var í bygginguni þegar sprengjan sprakk og em böm meðal þeirra sem létu lífið. Forseti landsins sendi þegar frá sér tilkynningu þar sem hann fordæmdi þetta voðaverk og hét því að herða baráttuna gegn hryðjuverkamönnum. Aðkoman í verslunarmiðstöðina var hroðaleg eftir tilræðið. Slasað fólk lá á víð og dreif og neyðaróp heyröust frá fólki sem lá fast undir braki eða hafði fengið í sig glerbrot. Reuter Mikið hneyksli við blóðgjafir á bamasjúkrahúsi 1 Toronto 1 Kanada: Norðmenn út- varpafránorð- urpólnum Útvarpsstöðin Radio 1 í Osló áformar að senda út útvarpsþátt frá norðurpólnum í lok aprO. Þátturinn verður þriggja klukku- stunda langur ef veður lofar og tækjabúnaður stenst frostið. Út- varpað veröur á stuttbylgju og þátturinn kemur til með að nást um nánast allan heim, að því er Leshe Goldsach, einn þáttagerð- armannanna, segir. Útsendingin er liður í 10 ára afmæli útvarps- stöðvarinnar en ekki er vitaö hvaða efni verður tekið til um- fjöllunar í þættinum. Clintonborgaði of litlaskatta Bill Clinton Bandaríkja- forseti og Hillary kona hans hafa sent skattyf- irvöldum þar í landi ávísun upp á fjögur þúsund doll- ara. Greiðslcin er vegna rukkunar sem forsetahjónin fengu fyrir að. hafa greitt of lága skatta í fyrra. Dýrtaðhenda rusliísjóinn Skipafélagið Princess Cruises, sem kallar sig Ástarbátinn, hefur verið dæmt til að greiða hálfa milljón dollara í skaðabætur fyrir að henda rash í sjóinn. í málinu var lagt fram myndband sem sönnunargagn en það hafði einn farþega um borð í skipi félagsins tekið undan ströndum Flórída. Á myndbandinu sést hvar meðlimir sldpshafnarinnar henda tuttugu plastpokum fullum af msli fyrir borð. Reuter Gáfu 1700 börnum eyðnismitað blóð Sautján hundruð kanadísk böm, sem eiga það sameiginlegt að hafa legið á bamasjúkrahúsi í Toronto í byijun síðasta áratugar, eiga von á bréfi frá fyrmefndri stofnun en í þvi segir að viðtakandinn sé hugsanlega smitaður eyðniveirunni. Nú þegar er vitað um tugi manna úr þessum hópi sem era smitaðir en óttast er að þeir séu miklu fleiri. Flestir þeirra sem þegar hafa greinst með sjúkdóminn gengust undir hjartaaðgerð. Læknirinn Susan King, sem er jafnframt talsmaður spítalans, segir að einungis tíundi hluti hópsins fái bréf til að byrja með. Afskaplega erf- itt sé aö koma þessum upplýsingum á framfæri og stofnunin hafi í raun ekkert til að byggja á enda sé hér um fáheyrt tilfelli að ræða. Af viðbrögðum þeirra sem fá bréfið verði síöan ákveðiö í framhaldinu hvemig best sé að standa að skila- boðunum til þeirra sem eftir era. Sjúkrahúsið hefúr legið á þessum upplýsingum um nokkum tíma en stofnunin hóf að skima blóö áriö 1985. Þeir sem fengu blóðgjöf fyrir þann tíma era hins vegar taldir í mikilli hættu og þeir era eindregið hvattir til aö mæta í eyðnipróf hjá stofnuninni eða hafa samband við lækninn sinn. Flestir úr þessum hópi era orðnir kynþroska í dag og all- margirhafaeignastböm. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.