Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1993, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1993, Blaðsíða 32
FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 1993. Banaslys Rúmlega fertugur maður lést þegar jeppi sem hann var farþegi í valt nið- ur í gil á Jökuldal. Tveir aðrir menn, ökumaður og farþegi, voru í bílnum og voru þeir fluttir til læknis en fengu að fara heim að lokinni læknis- skoðun. Lögreglunni á Egilsstöðum var til- kynnt um atburðinn snemma í gær- morgun og virðist slysið hafa átt sér stað fyrr um morguninn. Bíllinn virðist hafa oltið niður í 40-50 m djúpt gil og maðurinn kast- astútúrbflnum. -pp geymslu grun- aðir um innbrot Lögreglan í Reykjavík handtók í nótt þrjá pilta á aldrinum 18-20 ára grunaða um innbrot í Esjuskálann á Kjalarnesi. Brotist var inn í skálann fyrr um nóttina en mjög öflugt þjófavamar- kerfi er þar og því náðu þjófarnir ekki að stela neinu. Lögreglan hand- tók í framhaldi piltana þrjá sem vora á ferð í bíl. Þeir hafa allir ítrekað komið við sögu lögreglu. Þeir hafa neitað aðild að innbrotinu en verða yfirheyrðir frekar í dag. -ból Akureyri: Tveir sviptir ökuleyfi Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Tveir ökumenn voru teknir á mikl- um hraða á Glerárgötu á Akureyri í nótt. Bifreiðar þeirra beggja mældust á 94 km hraða þar sem hámarks- hraði er 50 km. Ökumennirnir munu báðir verða boðaðir á fund sýslumanns í dag og munu þar þurfa að horfa á eftir öku- skírteinum sínum. Hraðakstur hefur færst verulega í vöxt að undanförnu, enda árvisst aö menn gerist djarfari við bensíngjöfina með hækkandi sól á vorin. ísafjörður: Stúlka fyrir bíl Stúlka um tvítugt varð fyrir bíl á ísafirði um hádegisbilið i gær. Stúlkan haföi lagt bíl sínum við Túngötu og hljóp yfir hana og í veg fyrir ánnan bíl. Hún var flutt á sjúkrahús og var tahð að hún hefði mjaömagrindarbrotnað og hlotið einhveija höfuðáverka. -ból LOKI Samningaviðræðurnar virðast hafa fest á bláþræðinum! Ekkert handfast og allt svffandi „Það eru mikil þyngsli í mönnum vegna yfirlýsingar ríkisstjórnar- innar og uppstytta í viðræðunum um sinn. Það var sameiginleg nið- urstaða að bíða með frekari viö- ræður. Við fáum miklu minna út úr matarskattinum en við gerðum ráð fyrir en reiknað var með niður- greiðslum á móti. í yfirlýsingu um heilbrigðismál er ekkert handfast og varðandi vextina er allt svif- andi. Það segir hvergi að vextimir muni lækka. Við viljum fá mun ákveðnari stefnu af hálfu ríkis- stjóraarinnar en fram kemur í þessari yfiriýsingu," sagði Guð- mundurÞ. Jónsson, formaöur Iðju, í samtali við DV í morgun. Samningaviðræöum var hætt í Karphúsinu á fjórða tímanum í nótt og verða aÚar samningavið- ræður í salti fram yfir helgi. Yfir- lýsing rikisstjórnarinnar í tengsl- um við gerð kjarasamninga, sem barst samningamönnum snemma í gærkvöldi, var rædd ítarlega í gær- kvöldi og nótt og þaö hljóö í mönn- um að henni yrði haíhaö. Töluverð óánægja er með ýmsa þætti yfirlýs- ingarinnar, þar á meðal um matar- skatt, heilbrigðismál og vaxtamál. í 13 liða yfirlýsingu rikisstjórnar- innar segir meðal annars að hún muni stuðla að áframhaldandi lækkun vaxta og lánsfjárþörf hin" opinbera takmörkuð eins og kostur er. A þessu ári verði útgjöld ríkis- sjóðs til atvinnuskapandi aðgeröa aukin um 1.000 milljónir og 1.000 milljónum varið til nýfram- kvæmda og viðhalds 1994. í at- vinnumálum er íjallað um endur- skipulagningu kynmngar á is- lenskum vörum erlendis, stofnmi frísvæðis, fjárfestingu fyrirtækja erlendis, auknar rannsóknir í fisk- eldi, aukin viðskipti við erlend skip og nýtingu umframorku lands- manna. Þá segist ríkisstjórnin ætla að greiða tímabundiö niður verð tiltekinna búvara svo að jafngildi lækkun virðisaukaskatts í 14 pró- sent. Viröisaukaskattur á matvæl- um lækki í 14 prósent um áramót og verðí lækkunin að hluta fjár- mögnuð með skatti á fjármagns- tekjur. Vörugjald á sementi, steypu og öðrum byggingavörum verði fellt niður nú þegar og óseldar afla- heimildir Hagræðingarsjóðs gefn- ar. Þá verða undirbúnar aögeröir til aö kostnaður vegna lyfja og læknishjálpar verði fólki ekki of- vdða. Ixiks er fjallað um undirbún- ing aukins skattaeftirlits. -hlh Jesús gekk á vatninu og það gerðu MR-ingar með óbeinum hætti i gær í tilefni „dimmíssionar" í skólanum. Athæf- ið vakti mikla athygli en inni i kúlunni er maður sem gengur þannig að kúlan veltur áfram. DV-mynd ÞÖK Veðrið á morgun: Norðan- áhlaup Það er búist viö nokkuð hvassri norðanátt á morgun með snjó- komu eða éljum um landið norð- anvert en syðra verður þurrt og skýjað með köflum. Frost verður 1-4 stig nema við Suður- og Suð- austurströndina Veðrið í dag er á bls. 36 Afskorin blóm: Halldór stöðvaði innflutn- inginn Halldór Blöndal landbúnaðarráð- herra beitti ráðherravaldi til að stöðva innflutning á afskornum blómum í gær en þá átti að hefjast frjáls innflutningur á fimm tegund- um afskorinna blóma f hálfan mán- uð. Jón Baldvin Hannibalsson utanrík- isráðherra sagði í DV í gær að frjáls innflutningur afskorinna blóma hæf- ist í samræmi við samkomulag sem gert var við Spánveija um frjálsan innflutning á blómum án tolla og magntakmarkana frá 1. desember til 1. maí. Svo reyndist þó ekki. Ekki náðist í Halldór Blöndal vegna þessamálsímorgun. -GHS ÖRVGGI - FAGMKNNSKA LANDSSAMBAND ÍSL. RAFVERKTAKA TVOFALDUR1. vinmngur O T I E F Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Augiýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 632700

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.