Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1993, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1993, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 1993 11 pv_______________________Meiming í leit að Grími Marinó Myxidlist Ólafur Engilbertsson húsið næstu helgi á eftir svo að gestaflaumurinn geti nú örugglega ekki um frjálst höfuð strokið þegar hann stingur sér inn næst. Veðrun? Undirritaður leit sem sagt inn í Perluna nýver- ið og var ætlunin aö skoða þar auglýsta sýningu Gríms Marinós Steindórssonar. En það tók góða stund að finna þau verk sem þarna áttu að vera til sýnis því flest voru þau hulin íþróttavegg- spjöldum, hinum ýmsu flíkum sem körfubolta- stjömur þurfa nauðsynlega á að halda sem og auglýsingum. Það verður að segjast eins og er að svona tiltæki eru að sjáifsögðu mikil van- virða við þann listamann sem þama hefur aug- lýst sýningu, hvort sem sýningin er á hans veg- um eða staðarins. Sýningu sína nefnir Grímur Marinó „Veðrun" og má mikið vera ef verk hans hafa ekki „veðrast" mikið af öllum uppá- komum staðarins þegar sýningunni lýkur um komandi helgi. Annars eru myndirnar óvenju margar á sýningunni, flestar unnar þannig að minnir við fyrstu sýn á strangflatastíl en skreytigildið er greinilega ofarlega í huga lista- mannsins og virka þær fyrir bragðið flestar hverjar ofhiaðnar. Þar fyrir utan er myndheim- ur Gríms Marinós ekki fjarri margtuggðum klisjum listasögunnar. Hann á þó til ljóðræna og persónulega taug sem birtist fyrst og fremst í blæbrigðaríku samspili málmáferða og allt að þvi bernskri myndmótun. Vísindasafn? Það er þó ekki hægt annað en að velta sýning- arstaðnum fyrir sér fremur en auglýstri sýningu þegar haldið er á málum eins og fyrr greinir. Perluna hefur einfaldlega skort bæði markmið og leiðir frá upphafi. Menningarmálanefnd Reykjavíkur heföi að sjálfsögðu átt að hafa yfir sýningum í húsinu að segja fyrst á annað borð var farið að halda þar listsýningar. En að mínu viti ætti Perlan mikiu fremur að hýsa vísinda- safn þar sem kynna mætti nýjustu uppgötvanir í vísindum og tækni, t.d. að tilstuðlan Iðntækni- stofnunar eða Háskóla íslands. Víða erlendis eru slík söfn afar vinsæl hjá ungum sem öldnum og væri þar með hægt að hafa heildarstefnu fyrir húsið án þess þó að eiga á hættu aö vissir aldurshópar hætti að líta þar inn eða að þaö minni á viðvaningslegan sirkus sérsinna brask- ara eins og það gerir að mínu mati í dag. Og þá væri heldur ekki sú hætta fyrir hendi að eitt markmiðið kæfi annað eins og reyndin er því miður að þessu sinni. Perlan í Öskjuhlíð er um margt einkennilegt fyrirhæri. Fyrir það fýrsta er tilgangur bygging- arinnar ekki skýr. Ennfremur virðist stjórnun hússins í algerum lamasessi. Þar er hrúgað inn flóamörkuðum og bösurum, íþróttasýningmn og listsýningum, vörukynningum og „óvæntum uppákomum", öllu á sama tíma og öllu hrært saman. Þannig mátar fólk fot, tekur heljarstökk, bragðar á nýjustu ídýfunni og leitar að myndl- ist á bak við körfuboltaklæðnaði, allt svo að segja á sama fermetranum. Það kemur að vísu fyrir að einungis sumt af því ofantalda er til staðar en þá er bara gert enn betur næst og söluborðum og básum beinlínis staflaö inn í ____________________________________________________Sviðsljós Sextugur fangavörður Guömunda Jónína Helgadóttir um í SEM-salinn á Sléttuveginum. barnið er mörgum kunnugt fyrir for- þýðubandalagsins.Þáhefurhúnver- fangavörður varð sextug á dögunum Fjölmenni árnaði Guðmundu heilla mennsku í Starfsmannafélagi Sókn- ið varaformaður Landssambands ogafþví tilefni bauð hún til sín gest- á þessum tímamótum en afmælis- ar og sem varaborgarfulltrúi Al- Búseta síðustu árin. KÚPLINGAR SKEIFUNN111 • Sl'MI 67 97 97 v J HAFNARSTRÆTI OPIÐ TIL 2330 I i Afmælisbarnið ásamt móður sinni og börnum. F.v. Davið, Bergljót, Bergljót Bjarnadóttir, Guðmunda, Mar- ia og Ragnheiöur. Rokktónleikar í Hinu húsinu Unglingamir þurfa ekki að sitja aldurshóp voru rokktónleikar • í útíns, og féll hljóðfæraleikur þeirra aðgerðalausir þótt skólamir hafi Hinu húsinu. Þar komu fram tvær og söngur í góðan jarðveg hjá við- gefið frí um páskana. Á meðal þess af efnilegustu hljómsveitum lands- stöddum. sem boðið var upp á fyrir þennan ins, Lipstick Lovers og Synir Rasp- Strákarnir í Lipstick Lovers i miklum ham. Gerður Birgisdóttir, Hjördis Árnadóttir og Edda Ótt- DV-myndir JAK arsdóttir voru á tónleikunum. Til sölu VW Transporter 1984 dísil, ekinn 30.000 á vél með öllum hugsanlegum aukahlutum. Bíllinn er sem nýr að utan og innan. Upplýsingar í símum 814060 og 681200

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.