Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1993, Qupperneq 2
2
MIÐVIKUDAGUR12. MAÍ1993
Fréttir
Magnús Gunnarsson, formaður VSÍ, á aðalfundi sambandsins:
Enginn bati í augsýn
sem réttir af hallann
- verðum að láta okkur nægja fréttir af verulegum vaxtalækkunum erlendis
„Ég sagöi hér áöan að áætlaður
halli atvinnulífsins væri samkvæmt
mati Þjóðhagsstofnunar um 8 millj-
arðar króna miðað við núverandi
aðstæður. Ljóst er að enginn sá bati
er í augsýn sem réttir af allan þennan
halla,“ sagði Magnús Gunnarsson,
formaður Vinnuveitendasambands-
ins, meðal annars í ræðu sinni á aðal-
fundi VSÍ í gær.
Reiðarslag
Magnús kom víða viö í ræðu sinni
og ræddi um hið alvarlega ástand í
atvinnumálunum og erfiða stöðu fyr-
irtækjanna. Hann sagði samdrátt í
sjávarafla eina af aðalorsökum nú-
verandi þrenginga í atvinnulífmu.
Það hefði verið reiðarslag þegar
fiskifræðingar birtu niðurstöður sín-
ar í fyrra. Þvi hefði fylgt ráðgjöf um
40 prósent samdrátt þorskafla. Það
hefði verið reiöarslag. En þetta hefði
verið nauðsynlegt til að byggja
þorskstofninn upp aftur. Hann sagði
að í því efni mætti enga áhættu taka.
Að vinna gegn sjálfum sér
Magnús sagði að versnandi afkomu
atvinnulífsins fylgdu gjaldþrot fjölda
fyrirtækja, ekki síst í sjávarútvegi.
Skuldir þessara fyrirtækja væru eign
lánardrottnanna, banka og lána-
sjóða, tryggingafélaga, olíufélaga og
annarra þjónustufyrirtækja. Vegna
tapaðra krafna héldu bankamir uppi
gríðarlega háum vöxtmn. Háir vextir
væru hins vegar vís leiö til að auka
hallarekstur skuldugra fyrirtækja.
Því væri ástæða til að spyrja hvort
varnarviðbúnaður banka og lána-
sjóða væri ekki að vinna gegn hags-
munum þeirra sjálfra.
Þungavigtarmenn á aðalfundi VSÍ í gær. Olafur Daviðsson ráðuneytisstjóri, Magnús Gunnarsson, formaður VSÍ,
Kjartan Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, og Davíð Oddsson forsætisráðherra.
DV-mynd BG
Þá ræddi hann frekar um vaxta-
málin og sagði sorglega lítinn árang-
ur hafa náðst í að lækka vexti. „Og
við verðum að láta okkur nægja frétt-
ir erlendis frá um verulegar vaxta-
lækkanir," sagði Magnús.
Unnið var gegn ríkisstjórnar-
pakkanum
Varöandi kjarasamningana rakti
Magnús gang mála í þeim allt frá því
að aðilar vinnumarkaðarins hófu
viðræður í haust. Hann sagöi að and-
staða stjómarþingmanna og áhrif
mikilla embættismanna hefðu átt
stóran þátt í því að ekkert varð úr
samningum um ríkisstjómarpakk-
ann svokallaöa. Samstaðan hefði
brostið þess vegna.
Loks nefndi Magnús eina atvinnu-
grein sem nú blómstrar. Það era eft-
irlits- og skoðunarstöðvar hvers kon-
ar. Atvinnulífið greiði til þeirra
meira en milljarð króna á þessu ári.
Einnig sagði hann að ekkert bólaöi á
hagræðingu hjá bönkunum.
„Það er heldur ekki þeirra fólk sem
missir vinnunarþað eru ekki opin-
berir starfsmenn. Þaö er fólkið í fyr-
irtækjum á almennum vinnumark-
aði sem hefur verið að missa vinnuna
þessa síðustu mánuöi. Okkur viröist
sem atvinnuleysi meðal félaga í ASÍ
sé á milli 8 og 9 prósent en á sama
tima er atvinnuleysi opinberra
starfsmanna innan við 1,5 prósent,“
sagði Magnús Gunnarsson.
-S.dór
Hitabylgja gekk yfir Austurland á mánudag, 10. maí, og komst hitinn vel
yfir 20 stig um miðjan daginn. Á Fáskrúðsfirði tóku menn fram grillin og
um kvöldmatarleytið mátti viða sjá reyk úr görðum. Þessi fjölskyida naut
veðurblíðunnar en þegar myndin var tekin var sólin farin aö lækka á himn-
inum. DV-mynd Ægir Kristinsson, Fáskrúðsfirði
Sjálfstæöismenn á Seltjamamesi:
Fráleitt að auka
völd landbúnaðar
„Það er allra hagur og mikilvægur
þáttur í baráttu þjóðarinnar við
minnkandi hagsæld að allra leiða
verði leitað að ná meiri hagkvæmni
í íslenskum þjóðarbúskap þannig að
lífskjör geti batnað og er EES-samn-
ingurinn skref í þá átt. Erlend sam-
keppni við innlenda framleiðendur,
byggð á jafnréttisgrunni, getur aldrei
orðið nema til þess að lækka vöm-
verð, auka hagsæld neytenda og inn-
lendra framleiðenda, bænda sem
annarra," segir í ályktun frá fulltrúa-
ráði sjálfstæðisfélaganna á Seltjam-
amesi.
Fulltrúaráðið hefur skorað á ríkis-
stjórnina og þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins að vinna að framgangi eðh-
legra viðskiptahátta. Breyta þurfi
gildandi búvörulögum þannig að þau
standi ekki í vegi fyrir eðlilegri sam-
keppni iðnaðarvara sem nota land-
búnaðarafurðir sem hráefni.
„Forræði verðjöfnunarkerfisins
hefur verið í höndum fjármálaráöu-
neytisins í samræmi við lög um tolla.
Ekki em hagrænar eða íagalegar for-
sendur til aö breyta þessu fyrir-
komulagi og fráleitt að auka völd
landbúnaðarins á þessu sviði,“ segir
í ályktun ráðsins. -kaa
Davíð Oddsson forsætisráöherra:
Gengi krón-
unnar er ekki
rangt skráð
- raungengi hennar hefur lækkað aö undanfómu
Davið Oddsson forsætisráðherra
sagði á aðalfundi Vinnuveitenda-
sambandsins í gær að raungengi
krónunnar hefði lækkað að undan-
fómu. Verðlags- og launaþróun hér
gæfi alls ekki til kynna að gengi
krónunnar væri rangt skráð. Hann
sagði viðskiptahalla fara minnkandi
og aö það styrkti stöðu gengisins.
Hann sagöi að ekki yrði fram hjá
því horft að sjávarútvegurinn hefði
farið óvarlega í fjárfestingum á und-
anförnum árum. Hann væri því gríð-
arlega skuldugur og illa búinn til að
takast á við vanda af því tagi sem
hann hefði lent í upp á síðkastið.
Hann sagði sjávarútveginn þurfa
stöðugleika.
„Hvort sem mönnum líkar það bet-
ur eða verr er stöðugt gengi lykilatr-
iði í þeim efnum. Gengislækkun til
bjargar jafn skuldugri grein og sjáv-
arútvegurinn íslenski er í dag er
hrein hrossalækning, ef hún er þá
nokkur lækning, þegar raungengiö
er jafn lágt og það er um þessar
rnundir," sagði Davíð Oddsson.
Hann ræddi um þá dýfu sem tekin
var með niðurskurði á sjávarafla í
fyrra. Sjávarútvegsfyrirtækin engd-
ust sundur og saman vegna þess.
„Menn geta ímyndað sér hvar við
stæðum ef dýfan hefði verið stærri
og menn geta ímyndað sér hvar við
munum standa ef við neyöumst til á
næstunni aö hafa þá dýfu stærri,"
sagði Davíð.
Hann sagði að vegna þess að fjár-
magnsmarkaðurinn íslenski væri
svo lítill og ófullkominn gæti hann
ekki mætt mikilli fjárþörf hins opin-
bera, eins og annars staðar gerðist.
„Af þessum ástæöum ekki síst
haldast raunvextir háir,“ sagði Dav-
íð.
Hann sagði bankana hafa verið aö
gera upp við fortíðina. Fortíðarvanda
sjóöanna greiddu menn með sköttum
en bankanna með miklum vaxta-
mun. Hann mundi verða viðvarandi
hér á næstu misserum. Bankamir
væm að taka til hjá sér og vitneskja
um það geröi mönnum léttbærara
að una tímabundnum vaxtamun.
-S.dór
Hannes G. Sigurösson:
Skapa þarf 20
þúsund nýstörf
tilaldamóta
„Um aldamót er svo komið að fram-
boð vinnuafls er 160 þúsund manns
en eftírspurn 137 þúsund manns og
því 23 þúsund manns án atvinnu sem
nemur 14 prósent atvinnuleysi,"
sagði Hannes G. Sigurðsson, aðstoð-
arframkvæmdastjóri VSÍ, meðal
annars í ræðu sinni á aðalfundi VSÍ
í gær. Hannes fjallaði um vinnu-
markað og hagvöxt næstu 7 árin.
Hann sagöi aö mannfjöldaspá gerði
ráð fyrir að íslendingum fjölgaði um
20 þúsund manns til aldamóta. í
vinnualdurshópnum, 16 til 74 ára,
mun fjölga um 15 þúsund manns.
Hann gerir ráð fyrir að 80 prósent
fólks á vinnualdri sækist eftir at-
vinnu en það eru 12 þúsund manns.
Ef sú tala er lögð saman við fjölda
atvinnulausra nú þurfa aö verða til
20 þúsund ný störf til aldamóta ef
eyða á atvinnuleysinu. Þetta er sami
starfafjöldi og nú er í iðnaöi, að fisk-
vinnslu meðtalinni.
Þá hefur Hannes gert spá til alda-
móta um þróun atvinnulífsins. Hann
kallar hana svartsýnisspá. Sam-
kvæmt henni verður 23 þúsund
manns atvinnulaus um aldamót eða
14 prósent atvinnuleysi.
Hann gerir líka bjartsýnisspá og
gerir þá ráð fyrir að allt það besta
gangi upp. Það myndi geta leitt til
þess að hér yrði ekki atvinnuleysi.
Hann segir að þessi bjartsýnisspá
muni ekki leiða til bættra lífskjara
sem neinu nemur. Afrakstur hennar
muni fara til að eyða viðskiptahalla
og til að fjármagna aukinn opinberan
rekstur. „ ,.
-S.dor
Stuttarfréttir
VSÍ hefur nú í smíðum starfs-
reglur varðandi val, hæfni og
starfsskyldur þeirra manna sem
kosnir era til setu í sfjómum lif-
eyrissjóöa.
Lóranstöð endurbyggð
Halldór Blöndal samgönguráö-
herra lagði til við ríkissfjórnina
i gær að lóranstöðin á Gufuskál-
um á Snæfellsnesi yrði endur-
byggð. 'fil þessa hefur bandaríska
strandsgæslan flármagnaö rekst-
ur stöðvarinnar en mun hætta
þvi í lok næsta árs. Mbl. greinir
frá þessu.
samtals 107 lagafrumvörp á nýaf-
stöðnu þingi. Alls voru lögð fram
216 lagafrumvöi-p á þeim 177
þingfundum sem haldnir voru.
Börn án máltiða
Eínungis 11,2% barna njóta
skólamáltiða í grunnskólum en
að auki fá 14,7% léttan málsverð.
Engar máltíðir eru veittar í
Reykjavík. Af 210 grunnskólum
landsins eru 109 einsetnir.
ReyklausSPRON
Frá næstu áramótum verður
SPRON reyklaus vinnustaður.
Stjórnendur sparisjóðsins hafa
emnig ákveöið að greiða fyrir
reglubundna krabbameinsleit
hjá starfsfólkinu.
Dýraraaðlifa
Framfærsluvísitalan hækkaði
utn 0,2% í apríl. Á síðustu 12
mánuðum var verðbólgan 3,6%.
Doktorforsetí
Vigdis Finnbogadóttir, forseti
Islands, verður gerð að heiðurs-
doktor viö háskólann í Þránd-
heimi næstkomandi laugardag.
Samkvæmt frétt Mbl. mun hún
ekkimætaástaðinn. -kaa