Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1993, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ1993
13
Neytendur
iissm wmsoaÆKnn
er að sofa á ekta rúmdýnu
sem passar hæð þinni og pyngd
Húsgagnabölllii
BILDSHÖFÐA 20 - 112 REYKJAVIK - SÍMI 91-681199
SIMINNHJA OKKUR ER 91-68 11 99
Á meðal þess sem finna má á tilboðsverði hjá stórmörkuðunum er kjöt, kaffi, skór og jarðarber, svo að eitthvað
sé nefnt.
Sértilboð og afsláttur:
Fjölbreytt úrval af
vörum á tilboði
smáauglýsingin!
Stórverslanimar bjóöa upp á mik-
iö og fjölbreytt vöruúrval á tilboðs-
verði að þessu sinni.
Kjöt og fiskur
Á helgartilboði hjá Kjöti og fiski í
Mjódd er lasagne á 620 krónur kílóið,
nautagúllas á 760 krónur kílóið og
maískom, 284 g, á 29 krónur. Þá er
Prik mýkingarefni, alls íjórir lítrar,
einnig á tilboði á 286 krónur, Krakus
jarðarber, 820 g, á 99 krónur og Brig-
itte kaffisíur, 80 stk. (nr. 4), á 79 krón-
ur. Ef keypt em 100 stk. af Brigitte
kaffisíum (nr. 2), fást þær á sama
verði og 80 stk. eða 79 krónur.
Kjöt og fiskur er einnig með til-
boðsvegg þar sem 10-15 tegundir af
mat- og hreinlætisvörum era á til-
boðsverði. Þá eru föst tilboð í gangi
í hverri viku. Ýsuflök eru á tilboðs-
veröi á mánudögum, kjötfars á
þriðjudögum, saltkjöt á miðvikudög-
um og á fimmtudögum era 10-15 teg-
updir af grænmeti á lækkuðu verði.
Mikligarður
Tilboðin í Miklagarði gilda frá
flmmtudegi til laugardags og jafnvel
lengur.
Á sértilboði er úrbeinaður svína-
hnakki á 940 krónur kílóið, beikon í
sneiðum á 899 krónur kílóið og beik-
on í heilu á 699 krónur kílóið. Þá er
rýmingarsala á skóm frá 99 krónum.
Minster bleyjur (40 stk.) á ungböm
era á 199 krónur.
Þess má geta að í Miklagarði er
veittur 3% staðgreiðsluafsláttur af
öllum vöram.
Bónus
Tilboðin í Bónusi gilda frá fimmtu-
degi til laugardags.
Bónus býður upp á 18 Júmbó egg
og 400 g af beikoni á samtals 479 krón-
ur á meðan birgðir endast. Þá eru
alls 50 kíló af hrísgrjónum á 1.997
krónur (39,94 krónur kílóið), Cadbur-
ys finger kex á 97 krónur og frosin
smábrauð (fín og gróf), 15 stk., á 179
krónur. Einnig era eldhúsrúllur á
tilboðsverði, 4 stk., á 123 krónur og
Prik mýkir, 5 htrar, á 249 krónur.
Fjarðarkaup
Tilboðin í Fjarðarkaupum í Hafnar-
firði gilda þar til í næstu viku og sum
ef til vill lengur.
Kílóið af rauðum eplum er á 94
krónur, Libero bleyjur fyrir stelpur,
32 stk., (7-15 kíló), á 797 krónur og
grænn aspas, 495 g, á 95 krónur. Þá
er súkkulaðisíróp á 186 krónur, kíló-
ið af Ki wi á 95 krónur og Londonlamb
á 899 krónur kílóið.
Lesendaþjónusta
Ásta R. Jóhannesdóttir, deildar-
stjóri í félagsmála- og upplýsinga-
deild Tryggingastofnunar ríkisins,
svarar spurningum lesenda á Neyt-
endasíðu DV.
Hægt er að senda spurningar í bréfi
til Neytendasíðu DV, Þverholti 11,
105 Reykjavík, eða í símbréfi í síma
632999.
Á mánudagsmorgnum, milh kl. 10
og 12, er tekið við spurningum í síma
632700. Svar mun birtast í næstu viku
eða eins fljótt og auðið er.
Vinsamlegast hafið spumingamar
stuttar og hnitmiðaðar.
Taktu þátt í leitinni að „týndu
smáauglýsingunni “ í þœtti Ivars
Guðmundssonar á milli 2 & 4 alla
virka daga.
Með DV við höndina getur þú tekið
þátt í leiknum og átt von á að vinna
DV-derhúfu, mánaðaráskrift að DV
eða jafnvel ársáskrift að DV.
Á milli klukkan 2 og 4 velur Ivar
Guðmundsson einhverja
smáauglýsingu af handahófi og
gefur svo hlustendum kost á að
finna hana í blaðinu.
Hringdu í síma 6 70 957 og
freistaðu gæfunnar. Allir þeir sem
ná í gegn, hvort sem þeir hitta á
réttu auglýsinguna eða ekki, fá DV-
derhúfu.
Leitin að „týndu
smáauglýsingunni “ stendur frá 10.
- 21. maí. Þann 21. drögum við svo
út einn af vinningshöfunum og
hlýtur hann ársáskrift að DV.
FM#957
Brauðostur
15%
LÆKKUN!
VERÐ NU:
679 kr.
kílóið.
VERÐ AÐUR:
ÞU SPARAR:
kílóið.
120 kr.
á hvert kíló.
OSTAOG
SMJÖRSALAN SF