Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1993, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1993, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 1993 Útlönd Jeltsínvill nýja stjómarskrá Boris Jeltsín, forseti Rússlands, vill að kallað verði saman sér- stakt ráð til að semja nýja stjóm- arskrá íyrir Rússland. Jeltsín sagði f gær á fundi í Kreml að í sljórnarskrár- ráðinu ættu aö vera fulltrúar allra 88 svæða og lýðvelda Rússlands. Það ætti aö koma saman þann 5. júní og ljúka verki sínu í lok sama mánaðar. Verk ráðsins væri fyrst og fremst að binda enda á valda- baráttuna í Rússlandi. „Þið og engir aðrir ættuð að vinna aö stjórnarskránni og koma henni í lög,“ sagði Jeltsín við leiötoga svæðanna. Hann gerði einnig Ijóst að hann teldi ekki þörf á aö þingið skipti sér afgangimáli. Reuter Stuttarfréttir Rússarsegjanei Rússar notuðu sér neitunarvald sitt í Öryggisráði SÞ í fyrsta sinn í níu ár. Voru þeir ekki sammála tillögu Breta um fjármögnun frið- argæslusveitanna á Kýpur. íslamar reknir frá Mostar Bosníu-Serbar ráku hundruð íslama út úr borginni Mostar og settu þá í fangabuðir. BosníavillSÞút Haris Silajdzic, utanríkisráð- herra Bosníu, vill að starfsmenn SÞ fari frá Bosníu þvi nærvera þeirra kæmi í veg fyrir að hern- aðaraðgerðirnar yrðu hertar. Milosevicvillfrið Slobodan Milosevic, forseti Serbíu, vill að haldið verði sam- serbneskt þing til aö fá Bosníu- Serba til að fallast á alþjóðlegar tillögur um friö í Bosníu. EB bíðurekki EB hefur neitað þeirri fullyrð- ingu Bandarikjanna að banda- menn þeirra hafx viljað bíða með ákvarðanir um Bosníu þar til eft- ir kosningar Bosníu-Serba um miðjan mánuöínn. Arabar drepnir Sendinefhd frá Sameinuðu þjóðunum hefur fullyrt að Palest- Snuarabar á hemumdu svæöun- um í ísrael séu drepnir og þeim misþyrmt þrátt fyrir aö sljómar- skipti hafi oröiö í landinu. 204 dóu í eldsvodanum Nú er ljóst að 204 fórust í elds- voðanum sem varð í leikfanga- verksmiðjunni í Tælandi. Haföi starfsfólkið veriö læst inni til að koma í veg fyrir hnupl. Herstöðvar i N-Kóreu Öryggisráð SÞ hefur samþykkti aö fara þessá leit við N-Kóreubúa aö þeir leyfi sendinefnd aö skoða herstöðvarsínar. Reuter Norðmenn fá ekki stuðning Finna og Dana í hvalveiðiráðinu: Ekkert leyniskjal um fylgi við hvalveiðar - segir fulltrúi 1 danska utanríkisráðuneytinu Norðmenn geta ekki reiknað með stuðningi nágranna sinna á Norður- löndum við óskir sínar um að hefja aftur hvalveiðar í ábataskyni. Hen- rik Fischer, fulltrúi í danska utanrík- isráðuneytinu, vísar á bug orörómi um tilvist leyniskjals þar sem lýst sé yfir stuðningi við Norðmenn. „Það er hreint og klárt bull að til séu einhver leyniskjöl. Norðurlöndin hafa að sjálfsögðu rætt hvalveiðar í norðurhöfum en við höfum ekki nefnt nein lönd þar sem við getum stutt að hvalveiöar verði teknar upp að nýju,“ segir Fischer sem situr árs- fund Alþjóða hvalveiðiráösins í Ky- oto í Japan. Sirpa Pietikáinen, umhverfísmála- Japanskir stuðningsmenn hvalveiða láta í sér heyra i Kyoto. Simamynd Reuter ráðherra Finnlands, vísaði í gær á bug fréttum um aö Finnar ætluöu aö styöja hvalveiðar Norðmanna. Ráðherrann sagði að Finnar settu sig upp á móti öllum tillögum um að leyfa hvalveiðar í ábataskyni. „Finnar eru einnig andvígir hval- veiðum í visindaskyni sem uppfylla ekki skilyrði sem hvalveiðiráðið set- ur,“ sagði Pietikainen. Tækninefnd hvalveiðiráðsins sam- þykkti í gær með þrettán atkvæðum gegn átta tillögu Frakka um að friða alla hvali sunnan 40. gráðu suðlægr- ar breiddar. Tíu lönd sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. Niðurstaða þessi þykir benda til aö tillaga Frakkanna nái ekki tilskild- um þremur fjóröu hlutum atkvæða þegar kosið verðúr um hana á sjálf- um aðalfundi ráðsins á morgun. Meðal þeirra sem sátu hjá voru lönd sem eru þekkt fyrir verndunarsjón- armið sín en töldu tillögu Frakka ótímabæra. Pólitískar deilur vegna þessa máls hafa þegar tafið þingstörf um einn dag. Tillaga Frakka hefur vakið gremju innan samtaka japanskra sjómanna og hvalveiðimanna. Mörg hundruð mótmælendur frá samtökum þessum hafa staðið við inngang ráðstefnu- hallarinnar meö mótmælaspjöld þar sem þess er krafist að Frakkar segi sig úr hvalveiðiráðinu. Ritzau, FNB og NTB Þegar auglýsingaspjald þetta var sett upp i Melbourne í Astralíu heyrðist ekki orð um misrétti kynjanna eða annað í þeim dúr. Fyrirsætan er hinn 17 ára gamli Vadim Dale og er auglýsingin fyrir nærbuxur sem kallaðar hafa verið boxarabuxur. Á spjaldinu stendur eitthvað á þessa leið: „Á hverjum degi ætti maður að missa niður um sig buxurnar, líta niður og brosa." Símamynd Reuter Schwarzkopf á móti af námi hommabanns Norman Schwarzkopf, yfirmaður herafla bandamanna í Persaflóa- stríðinu, sagði við yfirheyrslu í öld- ungadeild Bandaríkjaþings í gær að hann væri andvígur þvi að aflétta banni við hommum innan hersins þar sem það mundi grafa undan aga. Skoðanir hershöfðingjans fyrrver- andi gætu haft töluverð áhrif á þing- menn og á umræðuna um homma í hernum þar sem hann er maður vin- sæll eftir sigurinn í Persaflóastríð- inu. Reuter Norman Schwarzkopf hershöfðingi. Símamynd Reuter Meira fé varið til eyðni- rannsókna í Afríku Afríski þróunarbankinn áformar að veita háar fjárhæðir til að hægt sé að beijast gegn eyðnifaraldrin- um í Afríku. Afríski þróunarbankinn hélt eins dags fund um eyðni og þróun í gær og þar var þessi tilkynning gefin út. Síðar í vikunm verður málið nánar rætt á ársþingi bankans í höfuðborg Fílabeinsstrandarinnar, Abidjan. Að sögn embættismanna liggur enn ekki fyrir hvaða verkefni verða fjármögnuð af bankanum, hvort það verða lán eða styrkir eða hvaða deild innan bankans muni leggja til fjármagnið. Varaforseti bankans, Ferhat Lou- nes, sagði að bankinn hefði þegar veitt styrk til að hægt væri að koma upp rannsóknarstofu í höfuðborg Zaire, Kinshasa, og fjármagn til að bæta tækjaaðstöðu í blóðbönkum í Togo og á Fílabeinsströndinni. Eyðnisjúkdómurinn heriar nú á milljónir Afríkubúa í blóma lífsins. Sjúkdómurinn hefur farið mjög illa með fjárhag heimilanna. Reuter Fiug: Múnchen — 19.900,- m. öiiu 19. mar Flogið heim frá Luxembourg eða Frankfurt. Hámarksdvöl 1. mán. Nánari upplýsingar: J i * Sainviniiiilerliir-Laiulsi/ii Reykjavik: Austurstræti 12 • S. 91 - 69 10 10 • Innanlandsferðir S. 91 - 6910 70 • Símbréf 91 - 2 77 96 / 69 10 95 • Telex 2241 Hótel Söflu við Hagatorg • S. 91 - 62 22 77 • Símbréf 91 - 62 24 60 Akurayri: Ráðhústorgi 1 • S. 96 - 27 200 • Simbréf96 -1 1Ó 35 KefUvfl^; Hafnarflötu 35 • S. 92 - 13 400 • Símbréf 92 -1 34 90

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.