Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1993, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1993, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ1993 Fréttir Örtröð á Fiskmarkaði Tálknaflarðar: Þetta ævintýri er úti ef krókaleyfið verður afnumið - segir Helga Jónasdóttir sem rekur markaðinn ásamt manni sínum Helga Jónasdóttir virðir fyrir sér ísaðan þorsk á planinu fyri utan Fiskmark- að Tálknafjarðar sem hún rekur ásamt eiginmanni sínum. „Þetta ævintýri er úti ef krókaleyfiö verður afnumið," segir hún. DV-mynd hlh „Þó að mikið sé að gera núna yfir sumarmánuðina er ekki hægt að segja að viö rekum stórgróðafyrir- tæki. Þó topparnir komi á sumrin detta viðskiptin alveg niður á vet- urna, ná eiginlega núlli í janúar og febrúar. En hvað sem árstiðasveifl- um líöur þá er öruggt mál að þetta ævintýri er úti ef krókaleyfið veröur afnumið. Skakaramir hafa geysi- mikiö að segja fyrir alla staði þar sem bátar liggja bundnir af einni eða ann- arri ástæðu. Þeir fylla upp í götin,“ segir Helga Jónasdóttir sem stjómar Fiskmarkaði Tálknafjarðar ásamt eiginmanni sínum, Snæbirni Geir Viggóssyni. Fiskmarkaður Tálknaijarðar hóf starfsemi í ágúst 1991. Starfaði mark- aöurinn í tvo mánuði en hlé varð á starfseminni fram í maí í fyrra. Þau Helga og Snæbjörn höfðu rekið skipaafgreiðslu í eitt ár þegar fisk- markaðurinn varð til og em einnig með Flugleiðaafgreiðslu á sinni könnu. Keyptum ísvél og vildum byrja strax „Okkur datt í hug hvort ekki væri hægt að þjónusta bátana sem vildu landa hér og selja aflann annars stað- ar þar sem tilboðsverð gilti en ekki fast verð. Við fréttum af tölvuneti sem Fiskmarkaður Suðumesja var að koma á fót og fannst mjög sniöugt að tengjast því. Við afréðum þá að stofna fiskmarkaðinn, leigðum hús- næði við höfnina, keyptum ísvél og vildum byija strax vorið 1991. Þaö stóð hins vegar á því að Póstur og sími gæti tengt okkur og því byrjuð- um við ekki fyrr en í byijun ágúst. Þetta er mikill munur frá því sem var þar sem fiskinum er miðlaö beint frá seljendum og þeim þannig spöruð mikil fyrirhöfn," segir Helga. Mágur og svilkona Helgu eru með í fyrirtækinu en þau reka vöru- flutngamiðstöð og Olísþjónustu. Að fenginni reynslu, þar sem eru toppar og lægöir í rekstrinum, era þau að reyna að hagræða í rekstri. FTá maí til október í fyrra fóru 650 tonn um Fiskmarkað Tálknaíjarðar. Var mikið selt til ísafjarðar, Patreks- fjarðar og Bíldudals og fieiri staða. Þó rólegt sé á veturna er markaður- inn alltaf opinn. Það er selt en þau bíða ekki við símann. Hins vegar eru samgöngumar þá meira vandamál en á sumrin. „Samgöngumálin há okkur þar sem erfitt getur verið að koma fiski af svæðinu.“ Stór dagur Uppboðin fara fram í litlu skrif- stofuherbergi markaðarins þar sem kaupendur sitja nieð skilti til að bjóða og fylgjast með tilboðum af tölvuskjánum. Þegar blaðamaður heimsótti Fisk- markað Tálknafjarðar að kvöldi var verið að lesta 15 tonn um borð í vöru- flutningabíl sem var á vegum kaup- enda á Árskógsströnd. Þau hjón höfðu unnið fram á nótt kvöldið áður við að raða fiski í körin og ísa en þau leggja mjög mikið upp úr því að við- skiptavinuriim fái góða vöru. Skak- aramir höfðu verið að koma inn all- an eftirmiðdaginn með þokkalegan afla og sáu þau fram á aðra eins töm þá um kvöldið. Sagði Helga þetta sér- lega störan dag þar sem um 200 tonn voru á leið úr höfninni með skipi um nóttina, þar á meöal töluvert af laxi. Helga segist hafa óskaplega gaman af aö reka fiskmarkað en fannst að viðskiptin þyrftu að vera mun jafn- ari. Toppamir séu erfiðir vegan mik- ils vinnuálags. „Þetta er vertíðar- markaöur og maður verður að taka því,“segirhún. -hlh Tillögu um Tillögu meirihluta sjálfstæðis- manna í borgarstjóm um aö breyta rekstri Strætisvagna Reykjavikur í hlutafélag var vísað til formlegrar umsagnar stjómar SVR á borgar- ráösfundi á þriðjudag. Tillagan verð- Borgarráð: SVR vísað til stjórnar ur aftur tekin fyrir í borgarráði í næstu viku. „Á fundinum var lögð fram skýrsla sjálfstæðismanna sem er nokkurs konar úttekt á starfsemi SVR. Málið verður tekið aftur fyrir í borgarráði eftir viku en þangað til verður maður bara að lesa skýrsluna og sjá á hverju tillagan er byggð,“ segir Guðrún Ög- mundsdóttir, fulltrúi Kvennalistans í borgarráöi. -GHS V í dag mælir Dagfari Fjármálaráðherra lofar sköttum Ríkisstjórnin situr nú og reynir að beija í íjárlagagat næsta árs sem getur orðið allt að átján milljaröar króna. Fjármálaráðherra segist stefna að því að gatiö verði ekki nema átta milljarðar. Hann er bjartsýnn á að það takist, einkum vegna þess að hann á uppi í er- minni ýmsa möguleika til skatt- lagningar sem ekki hafa verið reyndir áður. Það verður að segja ríkisstjóm- inni og fjármálaráðherra til hróss að skattar hafa ekki verið hækkað- ir á landsmönnum í tíð þessarar ríkisstjómar. Skattar hafa að vísu hækkað um sex eða sjö milljarða króna en það em skattar sem hafa komið á móti skattalækkunum ýmiss konar og þess vegna hafa skattar ekki hækkað. Þetta veldur því að ríkisstjómin hefur látið það ógert að leggja á margs konar skatta, sem auðvelt væri að leggja á, en af tillitsseini við skattborgara og vegna heitstrenginga ráðherr- anna em margar ónýttar skattaá- lögur fyrir hendi. Fjármálaráðherra ætlar að nýta sér þessar leiðir. Hann segir að rík- isstjómin hafi aldrei útilokað skattlagningu fyrirtækja og hann minnir á að búiö sé að samþykkja fjármagnsskatt og eins eigi eftir að brúa þá skatta sem hafa verið lækkaðir og valdiö tekjutapi hjá ríkissjóði. Fjármálaráðherra hefur þess vegna marga möguleika á hendi án þess að þurfa að hækka skattana sem stafar af því aö skatt- ar hækka ekki meðan skattar hafa lækkað á móti. Á það má minna í þessu sam- bandi að aðstöðugjöld voru afnum- in í fyrra til að létta undir með fyr- irtækjarekstri. Nú er komið að þvi að leggja nýjan skatt á fyrirtækin í stað aðstööugjaldsins og þá getur ríkisstjórnin réttilega bent á, aö skattar á fyrirtæki hækki þótt nýir skattar komi til vegna þess að nýr skattur er í stað gamla skattsins sem var aflagöur. Ljóst er að fyrirtækin í landinu hafa notið góðs af niðurfellingu aðstöðugjaldsins og þess vegna em þau betur í stakk búin til að mæta skattahækkun án þess að finna fyr- ir því. Sömuleiðis er ljóst að skatt- greiðendur hafa notið góðs af því að skattar hafa ekki veriö hækkaö- ir í tíö þessarar ríkisstjómar og þegar harðnar á dalnum hjá ríkis- sjóði er eðlilegt aö almenningur taki þátt í þeim erfiðleikum í nýjum sköttum. Þeir skattar eru í sam- ræmi við þá stefnu ríkisstjómar- innar að hækka ekki skatta vegna þess að skattar hafa lækkað á móti. Þetta sést með því einfalda reikn- ingsdæmi að reikna út að skattar hækka ekki þótt þeir hækki vegna þess að það hefur enginn hækkun orðiö ffam að þessu. Bæði forsætisráðherra og fjár- málaráðherra hafa þá stefnu að skattar skuli ekki hækka. Við þetta hefur verið staðið þótt menn hafi verið að sýna fram á að skattar hafi hækkað. En þá gleymist sú staöreynd að aörir skattar hafa lækkað á móti og það er af þeim sökum sem báðir ráðherrarnir hafa aldrei útilokað nýjar skattaá- lögur eða hærri skatta. Þetta er mikilvægt að kjósendur viti enda stendur metnaður allra stjóm- málamanna til þess að orð þeirra standi. Með því að hækka skatta til að lækka fjárlagagatið úr átján millj- örðum niöur 'í átta milljarða eru ráðherramir að efna loforð sín með því að hækka skatta á móti þeim sköttum sem hafa verið lækkaðir. Skattarnir standa í stað sem er frá- bær árangur í erfiðu árferði. Al- menningur í landinu hefur orðið fyrir verulegum búsifjum, ríkis- sjóður er rekinn með bullandi halla og gatið á fjárlögunum stækkar og stækkar. En samt tekst ríkisstjórn- inni að láta skattana standa í stað og meira að segja hækka þá án þess að hækka þá. Þetta er stór- kostleg sijóm og fullkomleg ábyrg- ir ráðherrar og svo er fólk að kvarta og kvíða skattahækkunum rétt eins og ráðherrarnir séu að gera því eitthvað! Við getum beðið róleg eftir skattahækkununum sem fjármála- ráðherra hefur boðað í trausti þess að sú skattahækkun er ekki skatta- hækkun þótt hún sýnist skatta- hækkun á skattseðlinum. Þetta verða skattar sem einhver hafði áöur borgað og við borgum í stað- inn fyrir þá! Það er engin skatta- hækkun eins og allir sjá. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.