Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1993, Blaðsíða 36
F R E X T A
S l< O
I Ð
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyri( hvert frétta-
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast
3.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 632700
Frjálst,oháö dagblað
FIMMTUDAGUR 24. JUNI 1993.
Evrópumót 1 bridge:
Opinn flokkur
í góðri stöðu
’ Landslið íslands í opnum flokki
heldur áfram að standa sig vel, er í
þriðja sæti af 32 þátttökuþjóðum þeg-
ar 25 umferðum af 31 er lokið. í gær
tapaði liðið naumlega fyrir Evrópu-
meisturunum Frakka, 14-16, og fékk
síðan 18 stig fyrir yfirsetu. í leik
Frakka og Islendinga er óútkljáð
kæra sem gæti breytt leiknum í 15-15
jafntefli. Pólveijar hafa forystu í opn-
um flokki með 482,5 stig, Danir í öðru
sæti með 470, ísland 458, Noregur og
Holland 449 og Frakkland 442. í dag
er leikur gegn Pólveijum og síðan
koma 18 stig fyrir yfirsetu.
íslenska kvennalandsliðið hefur
átt slæmu gengi að fagna í síðustu
umferðum. I gær töpuðust báðir leik-
► ir sveitarinnar, sá fyrri 7-23 gegn
Búlgariu og síðari 1-25 gegn Svíþjóð.
íslenska kvennasveitin er í 9. sæti,
32 stigum frá 4. sætinu.
ísland er í 3. sæti af 6 í eldri flokki
á Norðurlandamóti yngri spilara í
Danmörku. Liðið tapaði illa, 7-23,
gegn Dönum í fimmtu umferð. Danir
hafa 107 stig, Norömenn 94 en íslend-
ingar 69 stig. Yngra liðið, sem átti
yfirsetu í gær, er í 2.-3. sæti ásamt
danska liðinu en þar er lið Noregs
meðgóðaforystu. IS
Fanginn gaf
sigfram
Fanginn, sem strauk af Litla-
Hrauni í fyrrinótt, bankaði upp á í
Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg
síðdegis í gær og gaf sig fram.
Grunur leikur á að fanginn hafi
brotist inn í fyrirtæki Alpan á Eyrar-
bakka. Þá er hann talinn hafa fengið
far með vörubíl áleiðis til Reykjavík-
ur og hann er einnig grunaður um
aðhafastoliðbílíölfusiígær. -pp
„Byssubófar" í
ávísanamisferli
Lögreglan í Keflavík hafði afskipti
af fimm piltum á aldrinum sextán til
átján ára í gær þar sem þeir voru að
reyna að framselja ávísanir úr stolnu
ávisanahefti. PUtarnir voru yfir-
heyrðir og í ljós kom að tveir þeirra
tóku þátt í árásinni á byssusala í
Kópavogi á föstudagskvöld.
Héraðsdómur Reykjavíkur úr-
skurðaði piltana tvo, ásamt þriöja
aðila, í gæsluvarðhald til 5. júlí fyrir
árásina en Hæstiréttur felldi þann
úrskurð úr gildi og var þeim sleppt
úr haldi á mánudag. Piltunum var
' svo aftur sleppt í gær eftir yfirheyrsl-
urlögreglu. -pp
LOKI
Fær bæjarstjórinn á Nesinu
þá atvinnuleysisþætur?
Seltjamames:
mm ■ ■» | ■■ ■ ■ jh»
memmmmm ndiciiiiii
segir Magnús Erlendsson, fyrrverandi forseti bæjarstjómar
„Ráðandi meirihluti bæjar-
stjóntar Selijarnamess er haldinn
alvarlegri sjálfseyðingarhvöt þar
sem meirihlutí íbúanna hafnaöi
alfarið allri byggð á þessu svæöi -
í hlutfallslega fjölmennustu skoð-
anakönnun sem gerð hefur verið.
Ég tel þetta því vera pólitiskt sjálfs-
morð meirihluta Sjálfstæðisflokks-
ins á Seltjamarnesi," segir Magnús
Erlendsson, fyrrverandi forseti
bæjarstjórnar á Seltjamarnesi, um
samþykki skipulagsnefndar bæjar-
ins að byggja íbúöarhúsnæði á
vestursvæðinu svokallaða, nærri
Nesstofu.
„Þessu máli er engan veginn lok-
ið vegna þess að allar líkur em á
að minjar frá landnámstíð og jafn-
vel frá því fyrir landnám finnist
þama í jörðu. Samkvæmt lögum
þarf að rannsaka svæðið áður en
framkvæmdir hefjast. Þá trúi ég
því ekki að nýr umhverfisráðherra
muni samþykkja aðalskipulag að
þessu svæði með byggingar i huga.
Það er komin viljayfirlýsing frá
ráðandi meirihluta sjálfstæðis-
manna og hún 'er nógu alvarleg
fyrir stöðu flokksins í þessu bæjar-
félagi," segir Magnús.
„Eg yrði hissa ef meirihlutinn
héldist hér að vori og ég yrði ekki
hissa ef bæjarstjóri færi í atvinnu-
leit að loknum kosningum. Þannig
er staðan í bænum í dag. Þeir sem
ráöa em dregnir til ábyrgöar og í
þessu tilfelli era þaö sjálfstæðis-
menn sem em hér í ráðandi meiri-
hluta. Það er nógu slæmt ef Sigur-
geir bæjarstjóri ætlar að leiða
flokkinn til glötunar með þessari
ákvörðun," segir hann.
-GHS
HafnarQörður:
IngvarViktorsson
nýr bæjarstjóri
Talið er að aljt að þúsund manns hafi tekið þátt í fyrsta Jónsmessuhlaupinu sem fór fram í bliðviðri i Laugardalnum
í gærkvöldi. Áhugasamir hlauparar og heilsuræktarfólk lét það ekki aftra sér að taka þátt i hlaupinu þótt klukkan
væri ellefu að kvöldi þegar það hófst. Eftir hlaupið notfærðu margir sér að Laugardalslaugin var opin og var þröng
á þingi í heitu pottunum. Myndin er tekin þegar hlaupararnir voru að leggja af stað frá Sundlaugavegi.
DV-mynd ÞÖK
Tillaga fulltrúa Alþýðuflokksins í
bæjarstjóm Hafnarfiarðar og vara-
manna þeirra um að Ingvar Viktors-
son taki við af Guðmundi Áma Stef-
ánssyni bæjarstjóra var samþykkt
með lófataki á fundi með fulltrúaráði
alþýðuflokksfélaganna í Hafnarfirði
í gærkvöld.
„Ég mun halda uppi því merki sem
við kratar í Hafnarfirði höfum haldið
á lofti undanfarin ár en ég geri mér
alveg ljóslega grein fyrir því að ég fer
ekki í skóna hans Guðmundar. Það
væri glapræði af mér að reyna það,“
segir Ingvar Viktorsson.
Ákveðið var á fundi bæjarfulltrúa
og varamanna þeirra í fyrrakvöld að
gera tillögu um Ingvar sem bæjar-
stjóra eftir að ljóst varð aö Tryggvi
Harðarson drægi sig til baka „af holl-
ustu við flokkinn", samkvæmt heim-
ildum DV.
Ingvar Viktorsson tekur formlega
við embætti 1. júlí. -GHS
Hvassar umræður um vestursvæði Seltjamarness
Rannveig verður
þingflokksformaður
„Það var athyglisvert að þeir lögðu
ekki fram til samþykktar fundargerð
skipulagsnefndar á fundi bæjar-
stjórnar í gærkvöldi. Það kom öllum
á óvart nema þeim sem réðu þama.
Samþykkt skipulagsnefndar var ekki
formlega til umræðu en við komum
inn á þetta mál og það spunnust
nokkuö hvassar umræður um það,“
segir Guðrún K. Þorbergsdóttir, bæj-
arfulltrúi á Selfiarnamesi.
Næsti bæjarstjómarfundur verður í
lok júlí en á þriðjudaginn verður arki-
tekt boðaður á fund skipulagsnefndar
og honum falið að vinna tillögu að aðal-
skipulagi samkvæmt samþykkt skipu-
lagsnefndar um 24 hús á vestursvæð-
inuviðNesstofu. -GHS
Rannveig Guðmundsdóttir, þing-
maður Alþýðuflokks, tók þá ákvörð-
un í gær að taka boöi um að gerast
þingflokksformaður flokksins.
Ákvörðunina tók hún eftir að hafa
nýtt sér umhugsunarfrest eftir að
hafa tapað kosningu í embætti um-
hverfisráðherra. -bjb
Veðrið á morgun:
Hlýjast á
Norðurlandi
Á morgun verður allhvöss aust-
læg átt sunnanlands og rigning
allra syðst. Um landið norðanvert
verður suðaustan kaldi eða stinn-
ingskaldi og skýjað að mestu.
Hlýjast verður um 17 stiga hiti
norðan til en sunnanlands verður
hiti nálægt 11 stigum.
Veðrið í dag er á bls. 44
LANDSSAMBAND
ÍSI.. KAKVKRKTAKA
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
4
4
4
.. antafaniiövikudöguin
i