Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1993, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1993, Blaðsíða 27
FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ1993 39 dv Smáauglýsingar - Sími 632700 Helluleggjum innkeyrslur, bílastæði og stíga með eða ón snjóbræðslu. Áralöng reynsla. Gerum verðtilboð. Stefán, sími 91-813767. Mold - mold, mjög góð, heimkeyrð, til sölu, annast einnig 'alla jarðvinnu, útvega fyllingarefni. Upplýsingar í síma 91-668181 eða 985-34690, Jón. Túnþökur. Vélskornar túnþökur ávallt fyrirliggjandi. Bjöm R. Einarsson, símar 91-666086 eða 91-20856. *Úði, garðaúðun. Úði. Örugg þjónusta í 20 ár. Brandur Gíslas., skrúðgarðameistari. Sími 91-32999 eftir hádegi. Úrvals gróðurmold og húsdýraáburður, heimkeyrt. Höfum einnig gröfur og vörubíla í jarðvegsskipti, jarðvegsbor og vökvabrotfleyg. S. 44752/985-21663. Túnþökur. Góðar túnþökur til sölu. Túnverk, túnþökusala Gylfa, sími 91-656692. Úðun gegn maðki, lús, fíflum og öðru illgresi. J.F. Garðyrkjuþjónusta, símar 91-38570 og 684934. ■ Til bygginga Einnotað mótatimbur til sölu: sökkulstoðir, uppistöður og l"x6". Uppl. í símum 91-641039 og 985-35970. Rúm og kojur, stærðir 160x70 cm, 170x70, 180x70 cm, 190x70 og 200x80. Smíðum eftir máli ef óskað er. Bama- rúm með færanlegum botni. Uppl. ó Laugarásvegi 4a, sími 91-811346 Til sölu 1 stk. ný sólstofa úr timbri með rennihurð að framan, fullmáluð og glerjuð, gönguhurð ó hlið, hægra meg- in, þak fylgir ekki. Breidd 3,62, dýpt 2,00, hæð við vegg 2,20. Verð 240 þús. Mjög vönduð. Uppl. í síma 91-641644 milli kl. 9 og 17 virka daga. ■ Verslun ■ Húsaviðgerðir Gerum upp hús, utan sem innan. Járn- klæðningar, þakviðg., spmnguviðg., gler, gluggar, steyptar þakrennur. Vanir og vandvirkir. S. 24504/643049. ■ Sveit Krakkar -foreldrar. Sumardvalarheim- ilið, Kjamholtum, Bisk., 31. maí til 28. ágúst. Reiðnámskeið, íþróttir, ferð- ir, sund, kvöldvökur. 6-12 ára þöm. Bókanir á þeim dagafjöl. sem hentar. Stórlækkað verð, raðgr. S. 98-68998. ■ Ferðaþjónusta Er aö gefa út auglýsingabækling sem kemur út í Þýskalandi og víðar, og ber yfirskriftina „Hestaferðir á ís- landi, og/eða dvöl á ferðaþjón- ustubæ“. Þeir sem hafa slíkan rekstur og hefðu áhuga á að auglýsa í þessum bæklingi, vinsamlegast hafið skiiflega samband. Birgitte Edelhoff - Wawer, Grunstr. 48, B-4710 Lontzen, Belgien. Sími: (Belgía) 87-882641. ■ Dulspeki - heilun Spámióillinn. Gordon Burkert er kominn. M.a. fortíð, framtíð og persónulestur. Túlk- ur á staðnum. Uppl. í síma 91-668370. ■ Heilsa Appelsinuhúð? Aukakiló? Vöðvabólga? Triihform. Orkuleysi? Vítamínskort- ur? Exem? Balansering. Heilsuval, Barónsstíg 20, s. 626275 og 11275. ■ Veisluþjónusta Bátsferð - Útigrill - Viðey. Veitingaskálinn Viðeyjamaust er til- valinn til mannamóta. Bjóðum veit- ingar til hópa á hóflegu verði. Spari- fötin óþörf. Símar 621934 og 28470. ■ Tilsölu Timaritið Húsfreyjan, sumarblaðið, er komið út. Margar fróðlegar og skemmtilegar greinar um ýmis efni. Matreiðsluþáttur með uppskriftum að auðveldum, fljótlegum og góðum sum- arréttum. Fjölbreyttar uppskriftir að sýrðum gúrkum og öðru meðlæti. I handavinnuþættinum er meðal ann- ars snið að þægilegri bíltösku undir dót bama og fullorðinná í sumarferða- laginu. Árgjaldið er kr. 1790 og fá nýir kaupendur 3 eldri sumarblöð í kaupbæti. Áskriftarsími er 17Q44. Tímaritið Húsfreyjan. Glæsilegir sumarjakkar og -kápur i ferðalagið, vinnuna o.fl., o.fl. Fjölbreytt úrval. Gott verð. Póst- sendum. Opið á laugardögum til 16. Topphúsið, Laugavegi 21, s. 25580. ■ Vagnar - kerrur Dráttarbelsli - Kerrur Dráttabeisli, kerrur. Framleiðum allar gerðir af kerrum og vögnum. Dráttarbeisli á allar teg. bíla. Áratuga reynsla. Allir hlutir í kermr og vagna. Ódýrar hestakermr og sturtuvagnar á lager. Veljum íslenskt. Verið velkomin í sýningarsal okkar. Víkurvagnar, s. 684911, Síðumúla 19. Ódýri tjaldvagninn. Fmmsýnum ódýran og vandaðan, 4ra manna fjölskylduvagn, með fortjaldi, sem kemur mjög á óvart, verð aðeins kr. 269.800 stgr., takmarkað magn. Verið velkomin í sýningarsal okkar. Víkurvagnar, Síðumúla 19, s. 684911. ■ Sumarbústaðir Veljum islenskt. Arinofnar í þremur gerðum. Smíðum einnig eldhólf, hlið og leiktæki. Vélsmiðjan Gneisti hfi, Smiðjuvegi 4E, Kópav., s. 677144, fax 677146. Opið 7.30-17, föstud. 7.30-16. ■ Vinnuvelar Mjög lítið notaður veghefill (aðeins 1.442 klst.), Aveling Barford, Super 400 6x6 WD-vél: V8 Perkins, sjálfsk. (serial no: MG 5062), m/tönn framan og tönnum fyrir upprif. Lítur út sem nýr. Hagstætt verð miðað við staðgr. Hafið samb. v/DV, s. 632700. H-1613. _______________________Aímæli Kristrún Hreiðarsdóttir Kristrún Hreiðarsdóttir, forstöðu- kona íbúða aldraðra, Furugerði 1, Furugerði 1, Reykjavík, er sjötug í dag. Starfsferill Kristrún nam við Húsmæðraskól- ann í Reykjavík 1942-43 og tók kenn- arapróf 1945. Hún var forfallakenn- ari við Breiöagerðisskóla í Reykja- vík 1966 og starfaði einnig nokkur ár á barnaheimilum Sumargjafar. Hún kom að félagsstarfi aldraðra og starfaði að því hjá Reykjavíkur- borg frá 1951 til 1984. Allt frá 1984 hefur hún veitt íbúðum aldraðra að Furugerði 1 forstöðu. Kristrún hefur setið í stjórn Kirkjukórasambands íslands og Kirkjukórasambands Reykjavíkur- prófastdæmis. Hún var formaður Kvenfélags Grensássóknar í alls 14 ár. Þá átti Kristrún sæti í stjórn sóknarnefndar Grensássóknar í nokkurár. Fjölskylda Kristrún giftist 1.12.1945 Magnúsi Pálssyni, f. 16.9.1922, d. 10.7.1984, járnsmíðameistara. Hann var sonur Páls Magnússonar járnsmíðameist- ara og Gúðlinnu Einarsdótttur konu hans. Börn Kristrúnar og Magnúsar eru: Helga, húsfreyja að Hreims- stöðum í Hjaltastaöaþinghá; Guð- finna, húsfreyja í Bolungarvík; Sig- ríður Vilborg, húsfreyja í Grundar- hverfi, Kjalarnesi; Páll, verkamaður íReykjavík. Systkini Kristrúnar eru Sigur- björg, f. 15. mars 1925, húsmóðir í Hrunamannahreppi, Gunnfríður, f. 6. janúar 1932, húsmóðir á Akur- eyri, Sigurður Hreiðar, f. 28. mars. 1938, ritstjóri Úrvals. Foreldar Kristrúnar voru Hreiðar Gottskálksson, b. á Hulduhólum í Mosfelissveit, f. 9. mars 1896, d. 27. júní 1975, og kona hans, Helga Sigur- dís Bjömsdóttir, f. 4. nóvember 1898, d. 26. ágúst 1972. Ætt Hreiðar var sonur Gottskálks, b. á Vatnshóh í Landeyjum og síðar formanns í Vestmannaeyjum, Hreiöarssonar, b. í Stóru-Hildisey, Hreiðarssonar, b. í Skarðsseli, Hreiðarssonar, b. í Galtalæk, Helga- sonar, b. í Klofa, Jónssonar, b. í Stóraklofa, Bjamasonar, prests í Fellsmúla, Helgasonar. Móðir Helga í Klofa var Hildur Högnadóttir, lögréttumanns á Laug- arvatni, Björnssonar, bróður Sigríð- ar, móður Finns Jónssonar biskups. Móðir Hreiðars var Sigurbjörg Sig- urðardóttir, b. í Hvammi undir Eyjafjöllum, Sigurðarsonar, og konu hans, Dýrfinnu Kolbeinsdótt- ur, b. í Suðurkoti í Krísuvík, Jóns- sonar. Helga var dóttir Björns, b. og al- þingismanns í Grafarholti, Bjamar- sonar, b. í Vatnsholti í Skorradal, Eyvindssonar. Móðir Björns í Graf- arholti var Sólveig, systir Árna, langafa Björns Th. Björnssonar Ust- fræðings. Sólveig var dóttir Björns, prests á Þingvöllum, Pálssonar, prests á ÞingvöUum, bróður Jóns, skálds og prests á Bægisá, Þorláks- sonar. Móðir Björns Pálssonar var Sigríður Stefánsdóttir, prests á Breiðabólstaö, Högnasonar, „prestafoður“ Sigurðssonar. Móðir Helgu var Kristrún Eyj- ólfsdóttir, b. á Stuðlum í Reyðar- firði, Þorsteinssonar, bróður Þor- bjargar, langömmu Arnþórs, fóður Vals, bankastjóra og stjórnarfor- manns SÍS. Móðir Eyjólfs var Frey- gerður Eyjólfsdóttir Isfeldts, skyggna, trésmiðs á Syðra-Fjalli, Ásmundssonar. Móðir Kristrúnar var Guðrún, langamma HaUgríms, fóður Geirs forsætisráðUerra og seðlabanka- stjóra. Guðrún var einnig lang- amma Páls Stefánssonar, auglýs- ingastjóra DV. Guðrún var systir Páls á Sléttu, afa Páls, afa Kjartans Gunnarssonar, framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins, og Harðar Ein- arssonar, framkvæmdastjóra Fijálsrar fiölmiðlunar. Guðrún var dóttir Jóns silfursmiðs á Sléttu, hálfbróður Sveins, læknis og nátt- úrufræðings, Pálssonar. Kristrún tekur á móti gestum á miUi kl. 15.00-18.00 laugardaginn 26. júní n.k. í safnaðarheimili Áskirkju. Smáauglýsingar - Sími 632700 Þverholti 11 ■ Bátar ■ Bílar tíl sölu ■ Jeppar Quicksilver gúmmibátar, 4 stærðir. Mercury utanborðsmótorar. Fjöldi stærða á lager. Vélorka hfi, Granda- garði 3, Reykjavík, sími 91-621222. ■ Ferðalög ÍSLENSKT HÓTEL l LÚXEMBORG Við erum í Móseldalnum, mitt á milli Findelflugvallar í Lúx og Trier í Þýskalandi. Gestum ekið til og frá flugvelli endurgjaldslaust ef óskað er. Verð: 2 m. herb. m/morgunv. 2.600 bfr. (ath. verðið er f. 2). 15% afsl. ef dvalið er 3 nætur eða lengur, 20% afsl. ef dvalið er 7 nætur eða lengur. Hotel Le Roi Dagobert, 32Rue De Tréves, 6793 Grevenmacher, Luxembourg, sími: (352)75717, fax: (352)758792. ■ Ýmislegt Síðasta skráning i Jónsmessumiluna fer fram í félagsheimilinu Bíldshöfða 14,24.6., kl. 10-15 og 20-23. Kvartmílu- klúbburinn, sími 674530 og 674590. Til sölu Ford Econoline XL '91, 6 cyl., sjálfskiptur, álfelgur, 33" dekk, útvíkkun á brettum, rafdrifinn svefn- bekkur, ekinn 15. þús. km. Verð 1.950 þús. Upplýsingar í síma 91-641403 eða 91-686815 eftir kl. 19. Dodge Ram pallbill (Mitsubishi L-200), 4x4, sjálfskiptur, vél 2,6, 4 cyl., með 3ja boga grind (2 bogar lausir) til að flytja allt að 6 metra langt efni á toppnum. Verð 550 þús. Upplýsingar í síma 91-688790. Góður ferðabill. Toyota Hilux, árg. ’80, 5 manna, vökvastýri, gott kram. Verð 390.000. Til sölu og sýnis á Bílasölu Matthíasar, símar 91-624900 og 24540. heimurj íáskrift Til sölu Range Rover, árg. '80. Upplýsingar í síma 91-672058 e.kl. 19. \\\m\\v\m\\v SMÁAUGLÝSINGADEILD OPIÐ: Virka daga frá kl. 9-22, laugardaga frákl. 9-16, sunnudaga frá kl. 18-22. ATH.! Smáauglýsing í helgar- blað DV verður að berast okkur fyrir kl. 17 á föstudag. Þverholti 11-105 Reykjavík Sími 91-632700 Bréfasími 91 -632727 Græni síminn: 99-6272 LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRAÐA A VALDA ÞÉR SKAÐA! das°*™

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.