Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1993, Blaðsíða 18
18
FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1993
íþróttir
Peter Beardsley gekk I gær tíl
liðs víð Newcastíe fýrir helgina.
Beardsley, sem lelkið hefur með
Everton að undanförnu, Jék áður
með Newcastie. Kaupverðið var
ein og hálf milJUón punda. Kevin
Keegan, stjóri Newcastle, er einn-
ig á eftir rússneska framherjan-
um Sergei Yuran frá Benfica og
er tilbúinn að borga aðra eins
upphæö fyrir hann.
Forráðamenn WBA hafa ákveð-
ið að kæra Tottenham opinber-
lega fyrir að ráða Ossie Ardíles
framkvæmdasijóra félagsins. Ar-
diles var ráðinn stjóri Tottenham
um síöustu helgi og fór þá allt í
háaloft hjá forráðamönnum Al-
bion sem töldu sig hafa verið
svikna. „Ardiles var búinn að
ganga frá samningi viö okkur en
hann sveik okkur og fór tíl Tott-
enham. Þetta er eins og að fá
hníf í bakið," sagði Trevor Sum-
mers, formaður WBA, en Ardiles
hafði komið liðinm upp í 1. deild
og var mjög vinsæll hjá stuön-
ingsmönnumliðsins. Stjórn WBA
fer með máliö fyrir rétt og vill fá
milljón pund í sárabætur fyrir.
CooperogCollyniore
tSIForest
Nottíngiiam Forest kcypti í
fyrradag varnarmanninn Colin
Cooper frá Millwall fyrir eina og
hálfa milljón punda. Forest hélt
buddunni opinni þvi í gær keypti
liðið Stan Collymore frá Sout-
hend fyrir 2 milijónh- punda. Þá
er Forest einnig á eftir Lee Chap-
man frá Leeds, en hann mun vera
á leiö frá félagi sínu. Stuart Pe-
arce, fyrírliöi Forest, hefur
ákveðiö að vera kyrr hjá félaginu
en Forest hefur sett stefnuna á
að endurheimta úrvalsdeildar-
sætí sitt.
IVUVJiraill
Úlfamir hafa sett stefhuna á
úrvalsdeildina næsta vetur og fé-
lagiö hefur þegar pungað út hátt
í tveimur milljónum punda í nýja
leikmenn. Úlfamir keyptu Geoff
Thomas frá Crystal Palaœ á dög-
unum fyrir 800 þúsund pund og
í fyrradag keypti liðið David
Kelly írá Newcastle fyrir 700 þús-
und pund.
fá Flowers
Kenny Dalglish, stjóri Black-
bum, vill fá Tim Flowers, mark-
vörð Southampton og enska
landshðsins, til Blackbum. Flow-
ers lék með enska landsliðinu á
dögunum gegn Þjóðverjum og
Brasilíumönnum og þótti standa
sig mjög vel. Dalglish er tilbúinn
aö borga 2 milljónir punda fyrir
Flowers og er talið líklegt aö So-
uthampton takl boöinu. Dalglish
hefur einnig augastað á Paul
Bemard frá Oidham og Bob Tayl-
or hjá WBA.
Schmeichei vill
Peter Schmeichel, markverði
Manchester Uniteed og danska
landsliðsins, hefur verið boðinn
lífstfðarsamningur þjá United.
Þessi snjalli danski markvörður
segist þó ekki tilbúinn að ganga
að samningnum errnþá en miklir
peningar em i boði. Schmeichel
er sem stendur með fjögurra ára
samning sem talinn er vera upp
á milijón pund þarrnig að ekki
ættí að fara illa um Danaxm.
-RR
1. delld kverrna í knattspymu:
Stjörnustúlkur
íbanastuði
- unnu goðan sigur á Skaganum
Fimmta umferð 1. deiidar kvenna
fór fram í gærkvöldi. Aðeins þrír
leikir vora leiknir en Valsstúlkur
þurftu ekki að fara til Eyja þar sem
IBV hefur dregið lið sitt úr keppni.
í Garðabænum fengu Stjömustúlk-
ur ÍA í heimsókn. Stjaman sýndi
loksins sitt rétta andht eftir slaka
byrjun og sigraði örugglega, 5-2. Sig-
urinn hefði hæglega getað orðið
stærri en frábær markvarsla Sigfríð-
ar Sophusdóttur í marki ÍA kom í
veg fyrir það. Skagaliðið var ekki að
leika sinn besta leik og vilja þær
sennilega gleyma þessum leik sem
fyrst. Jónína Víglundsdóttir og Sig-
fríður Sophusdóttir vom bestar í hði
ÍA. Stjömustúlkur léku vel og var
sigur þeirra aldrei í hættu. Guðný
Guðnadóttir var best hjá Stjörnunni.
Guðný Guðnadóttir skoraði tvö
mörk fyrir Stjömuna, Elísabet
Sveinsdóttir, Rósa D. Jónsdóttir og
Laufey Sigurðardóttir eitt mark
hver. Margrét Ákadóttir og Jónína
Víglundsdóttir skomðu mörk ÍA.
KR í sterkri stöðu á toppnum
KR-stúlkur héldu styrkri stöðu sinni
á toppi deildarinnar með sigri á ÍBA
í Frostaskjóli. KR-ingar komu sterk-
ar til leiks, léku frábærlega í fyrri
hálfleik og skoraðu þá Helena Ólafs-
dóttir og Hrafnhildur Gunnlaugs-
dóttir sitt markið hvor. í síðari hálf-
leik slökuðu þær aðeins á, þó án þess
að ÍBA næði að skapa sér nein færi
og einni mínútu fyrir leikslok bætti
Guðlaug Jónsdóttir þriðja markinu
við eftir góðan undirbúning Helenu
Ólafsdóttur.
Blikasigur gegn Þrótti
Breiðabliksstúlkur áttu ekki í mikl-
um vandræðum með Þrótt í Kópa-
voginum og sigmðu, 4-0. Eftir aðeins
fimm mínútna leik höfðu Blikamir
skorað tvívegis og var sigur þeirra
aldrei í hættu eftir það. Kristrún L.
Daðadóttir, Lára Ásbergsdóttir,
Margrét R. Ólafsdóttir og Katrín
Jónsdóttir skomðu mörk UBK.
-ih
Óánægja með úrsögn ÍBV:
„Mjög slæmt fyrir
kvennaboltann“
- segir Ama Steinsen, þjálfari KR
Mikil óánægja ríkir meðal for-
svarsmanna og leikmanna í 1. deild
kvenna eftir að ÍBV tilkynnti að
búið væri að draga meistaraflokk
kvenna úr keppni. Ákvörðun Eyja-
manna kemur nokkuð á óvart þar
sem þær komu sterkari til leiks í
1. deildinni eftir sameiningu Eyjal-
iðanna tveggja.
„Þetta er mjög slæmt fyrir
kvennaboltann í heild,“ sagði Arna
Steinsen, þjálfari KR, í samtali við
DV. „Ég skil þó þessa afstöðu
þeirra, þær em með ungt lið og það
er mikil pressa á þeim. Ég hélt þó
aö þær myndu halda áfram, þaö
hefur sýnt sig í sumar að strákarn-
ir geta líka tapað með tveggja stafa
tölu. Þessi ákvöröun raskar öllu
mótinu, viö í KR eigum t.d. aðeins
einn leik á íjögurra vikna kafla
vegna þessa og það er sennilega svo
með öll hðin í deildinni. Manni
finnst samt eins og þær hefðu getað
séð þetta fyrir,“ sagði Arna Steins-
en.
Bergþóra Sigmundsdóttir, sem á
sæti í meistaraflokksráði Stjöm-
unnar, tók í sama streng og Ama.
„Maður skilur þær að mörgu leyti
en þetta er mjög slæmt. Við verðum
að gera okkur grein fyrir því að
þetta er 1. deild og þar eiga hlutir
eins og þessir ekki að koma fyrir,“
sagði Bergþóra Sigmundsdóttir.
-ih
Bikarkeppni kvenna:
Blikar fá Val
- í 8-liða úrslitunum
„Ég segi það ekki, það hefði verið
betra að fá eitthvert annað lið,“ sagði
Ásta B. Gunnlaugsdóttir, leikmaður
Breiðabliks, eftir að ljóst varð að
Breiðablik fær Valsstúlkur í heim-
sókn í átta liða úrshtum bikarkeppni
kvenna.
„Þetta verður erfitt en við emm
ekki óvanar því að lenda á móti þeim.
Við mætum þeim í deildinni á laugar-
daginn og það gerir þetta erfiðara.
Þær eru til alls líklegar og hafa vaxið
með hveijum leik. Svo hljóta þær að
vera góðar fyrst þær vhma KR.“
„Þetta er allt í lagi, ágætt að fá
þær. Við tókum KR í fyrstu umferð-
inni, það var erfitt en gaman og ég á
von á því að það verði eins gegn
Breiðabiiki. Viö eigum þær tvisvar í
röð, fyrst í deildinni og svo í bikam-
um þannig aö þetta verður erfitt, en
viö ætlum okkur alla leið,“ sagði
Erla Sigurbjartsdóttir, leikmaður
Vals.
Sjö liö í fjórðungsúrslitum
Aðeins sjö lið em eftir í bikarkeppn-
inni en ÍBV, sem dró hð sitt út úr
keppni í 1. deild kvenna, fær ekki að
taka þátt í bikarkeppninni. Dráttur-
inn í átta hða úrslitum bikarkeppn-
innar fór þannig að Höttur fær Dal-
vík í heimsókn, ÍA fær ÍBA og
Breiöablik fær Val, Stjömustúlkur
sitja hjá og koma inn aftur í undan-
úrshtum en þær slógu Reyni, Sand-
geröi, út í fyrstu umferö.
-ih
Framarar fagna Helga Sigurðssyni sem skoraði fyrsta mark leiksins úr vitaspyri
nú langneðstir í Getraunadeildinni og hafa enn ekki unnið leik.
Enn tapa Víkingar í Getrauna
Vafasöm
- þegar Framarar sigruðu Víkinga, 4-1
, ,Það var greinilegt á Víkingum að
þeir ætluöu ekki að tapa stórt. Þeir fengu
skell í síðasta leik og vom núna mjög
fastir fyrir í vörninni og börðust vel. Aðal-
málið hjá okkur var að sigra og fyrst bar-
áttan var í lagi þá uppskára menn eftir
því,“ sagði Kristinn R. Jónsson, fyrirliði
Fram, eftir að liðið hafði sigrað Víkinga,
4-1, í Getraunadeildinni í Laugardal í
gærkvöldi. Kristinn haföi tvær ástæður til
að fagna því auk þess að sigra í leiknum
hélt hann upp á 29 ára afmælið sitt í gær.
Leikurinn var ekki mikið fyrir augað
þrátt fyrir mörkin fimm, sem hefðu allt
eins getað orðið fleiri. Tvö af mörkum
Fram vom skoruð úr vítaspymum sem
voru af ódýrari gerðinni en Guðmundur
Stefán Maríasson dómari dæmdi þær báð-
ar eftir bendingar frá línuvörðum sínum.
Framarar skoraðu eina mark fyrri hálf-
leiks og kom það á 14. mínútu. Valdimar
Kristófersson var felldur á mörkum víta-
teigshnu en hvort brotið var raunverulega
innan eða utan teigs er erfitt um að dæma.
Helgi Sigurðsson skoraði út vítaspym-
850 hlupu Jón<
Pantene miðnæturhlaupið fór fram á
Jónsmessu, í gærkvöldi. AUs tóku 850
þátt í hlaupinu. í 10 km hlaupi sigraði
Sigmar Gunnarsson í karlaflokki á 31,57
mín. Annar varð Jóhann Ingibergsson á
32,19 mín. og þriðji varð Daníel Guð-
Fram (1) 4
Víkingur (0) 1
1- 0 Helgi Sígurðsson (v.) (14.)
2- 0 Ríkharöur Daöason (56.)
3- 0 Ágúst Ólafsson (58.)
3-1 Guðnrandur Steinsson (60.)
4 1 Helgi Sigui-ðsson (v.) (76.)
Liö Fram: Birkir (2), Helgi B. (1),
Sævar (1), Jón(l), Ágúst (2), Krist-
inn R. (2), Steinar (1), Ríkharður
(2) (Þorbjöm (1) 77.), Ingólfur (1),
Valdimar (I) (Guðmundur G. (1)
62.), Helgi S. (1).
Lið Víkings: Guömundur (2),
Hðrður (t), Kristinn (1), Bjöm (1),
Lárús (1), Olafur(i) (Sveinbjöm (1)
72.), Amar (1), Guðmundur G. (1),
Atli (2), Hólmsteinn (2) (Trausti (1)
59.), Guömundur S. (1).
_ Gul spjöld: Ríkharður (Fram),
Óiafur, Hörður (Vík.).
Rauö spjöld: Engin.
Dómari: Guömundnr Stefán
Maríasson.varí slæmum málum.
Áhorfendur: 769.
Aöstæöur: Kvöldsól, biíöa og
góöur völlur.
Staðan i Getraunadeildinni
Akranes.... 5 4 0 1 19-5 12
Valur...... 5 3 0 2 11-6 9
Fram....... 6 3 0 3 13 -12 9
Þór........ 5 3 0 2 5-5 9
Keflavík... 5 3 0 2 8-11 9
FH........ 5 2 2 1 11—8 8
KR......... 5 2 1 2 12-7 7
Fylkir..... 5 2 0 3 5-9 6
ÍBV........ 5 1 2 2 7-8 5
vikíngur... 6 0 1 5 6-26 1