Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1993, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1993, Qupperneq 8
8 Neytendur FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1993 I>V DV kannar verd á matvöru: Bónus með lægsta verðið - getur munað allt að helmingi Að þessu sinni geröi neytendasíða DV verðkönnun á hinum ýmsu vöru- flokkum. Borin voru saman sömu vörumerki í öllum verslununum og í tilviki þar sem þau voru ekki til (plastpokar nr. 4 í Bónusi) var þeim sleppt. Ekki var lagt mat á gæði ýsu- flakanna. Könnunin fór fram í Fjarðarkaup- um, Hagkaupi og í Bónusi og voru eftirfarandi vörur kannaðar: kók- flaska (2 ltr.), Nektar appelsínusafi frá Sól (1 ltr.), Ora maískorn (430 g), River hrísgijón (1361 g), ófrosin ýsuflök (1 kg), Honing spaghetti (500 g), Kornax hveiti (2 kg), bréf af perlu- geri (11,8 g), matvælapokar nr.4, Camembert ostur og rækjuostur. Bónus kom að þessu sinni langbest út úr könnuninni því þar voru allar vörumar ódýrari en hjá hinum. Gat þar munað frá 4-47%, eða allt að helmingi verðsins. Ótrúlegur verðmunur á spaghetti Verðmimurinn á spaghetti kom einna mest á óvart en þar kostaöi pakkinn frá 53 og upp í 78 krónur. Bónus var með lægsta verðið en Fjarðarkaup það hæsta. Verðmunur- inn er 47%. Hagkaup selur pakkann á 62 krón- ur og er meðalverðið því 64 krónur pakkinn. Verðmunur á plastpokum reyndist vera 18%. Þar kostaði pakkinn 159 krónur í Hagkaupi en 188 krónur í Fjarðarkaupi. Bónus átti ekki þessa tegund plastpoka tfl. Meðalverð var 174 krónur pakkinn. Verðmunurinn á spaghetti reyndist einna mestur, eða 47% á milli verslana. Af þeim vörum, sem kannaðar voru, reyndist Bónus bjóða lægsta verðið í öllum tilvikum. Hrísgrjón 35% ódýrari í Bónusi Pakkinn af River hrísgrjónum get- ur kostaö frá 155 krónum og upp í Vara Fjarðark. Bónus Hagkaup 21. kók 138 127 149 appelsínusafi 81 73 83 maískorn 94 88 94 hrísgrjón 209 155 168 ýsuflök 465 420 449 spaghetti 78 53 62 hveiti 69 65 69 perluger 22 16 18 plastpokar 188 X 159 camembert 232 195 232 rækjuostur 148 138 148 209 krónur. í Bónusi kostar hann 155 krónur, í Hagkaupi 168 krónur en í Fjarðarkaupum 209 krónur. Munur á hæsta og lægsta verði er 35%. Svipað verð var á ORA maískomi en þar var einungis 7% verðmunur á milli verslana. Dósin kostaði 88 krónur í Bónusi en 94 krónur í Hag- kaupi og Fiarðarkaupum. Meðal- verðið er 92 krónur dósin. 17% verðmunur á kóki Tveggja lítra kókflöskur reyndust ódýrastar í Bónusi en þar vom þær 17% ódýrari en í Hagkaupi þar sem þær vora dýrastar. Flaskan kostar 127 krónur í Bón- usi, 138 krónur í Fjarðarkaupum og 149 krónur í Hagkaupi. Það munar því 22 krónum á flösku þar sem hún er dýrust og ódýrust. Meðalverðið var 138 krónur flaskan. Einnig var tíu króna verðmunur á lítrafemu af appelsínunektar þar sem hún var dýmst og ódýmst, eða 14% verðmunur. Feman kostaði 73 krónur í Bónusi þar sem hún var ódýmst, 81 krónu í Fjarðarkaupum og 83 krónur í Hagkaupi þar sem hún var dýmst. Meðalverðið var 79 krón- ur. Bréf af perlugeri er ódýrast í Bón- usi þar sem það kostar 16 krónur, þá í Hagkaupi þar sem það kostar 18 krónur en dýrast í Fjarðarkaupum þar sem það kostar 22 krónur. Meðal- verðið er því 19 krónur en verðmun- urinn er einungis 4%. Ýsuflökin misdýr Gæði ýsuflakanna vom ekki metin. Þau reyndust ódýrust í Bónusi, á 420 krónur kílóið, þá í Hagkaupi þar sem kílóið kostaði 449 krónur og vom þau dýmst í Fjarðarkaupum en þar kost- aði kílóið 465 krónur. Meðalverðið var 445 krónur og verðmunurinn 11%. Lítill verðmunur var á hveitinu, eða einungis 6%. Það var ódýrast 1 Bónusi á 65 krónur pakkinn en kost- aði 69 krónur í hinum verslununum tveimur. Meðalverðið var tæpar 68 krónur. Camembert ódýr í Bónusi Camembert kostaði það sama í Hagkaupi og í Fjarðarkaupum, 232 krónur stykkið, en var 37 krónum ódýrari í Bónusi, seldur á 195 krónur stykkið. Meðalverðið var 220 krónur og verðmunurinn 19 af hundraði. Minni munur var á verðinu á rækjuosti, einungis 7%. Hann kost- aði 148 krónur í Hagkaupi og Fiarð- arkaupum en 138 krónur í Bónusi. Meðalverðið var því 145 krónur. -ingo 465 kr. 420 kr. Hæst Lægst 73 kr. Hæst Lægst 15-20% AFSLATTUR AF DÝNUM í SÝNINGARSAL JTJ 209 kr Amerísk rúm 78 kr. 53 kr. Hæst Lægst 155 kr. Hæst Lægst Mest seldu rúmin í Bandaríkjunum. Hágæða dýnur í mörgum verðflokkum. Marco Húsgagnaverslun, Langholtsvegi 111, sími 680690. Opið virka daga frá kl. 10-18. 149 kr. a Q. 127 kr 88 kr v. 5 D> <o Hæst Lægst Hæst Lægst____

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.