Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1993, Qupperneq 3
MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1993
19
Ferðir
Hitinn sprettur fram í leir við bakka og í botni. Þarna fer maður í ókeypis
leirbað.
Nýjar og heillandi leiðir að „opnast":
Náttúruundur
norðan
Vatnajökuls
- ógleymanlegt aevintýri að busla í mátulega heitu vatni í Víti
Signin Björgvinsdóttir, DV, Egflsstöðum;
Stöðugt eru að opnast nýjar og
heillandi leiðir um landið. Nú í sum-
ar verður efnt til ferða um hálendið
norðan Vatnajökuls. Þar eru mörg
stórkostleg náttúruundur sem sum
hver eru fáum kunn. Má þar nefna
hin hrikalegu Hafrahvammagljúfur
í Jökulsá á Dal og Laugarvelli þar
sem hægt er að fara í heita sturtu sem
náttúran sjálf hefur útbúið.
Tröllahellir og heitur foss
Það er Philip Volger, menntaskóla-
kennari og leiðsögumaður á Egils-
stöðum, sem býður upp á sætaferðir
um þetta svæði. Hann fer frá Egils-
stöðum alla fimmtudaga. Þann dag
verður ekið inn að Vatnajökli suður
af Snæfelli og gist í skála við Snæfell
fyrstu nótt. Þaðan er ekið í Hrafn-
kelsdal um söguslóðir Hrafnkelssögu
og norður yfir Jökulsá hjá Brú.
Á þessum slóðum eru sumarhagar
hreindýranna og er víst að hægt
verður að sjá stórar hjarðir þeirra á
beit. Frá Brú er ekið suður Brúar-
öræfi að Hafrahvammagljúfrum. Þar
hefur Jökla grafið hrikaleg gljúfur
sem eru um tveggja km löng og allt
að 200 metra djúp. Þar verður skoð-
aður Magnahellir, en þjóðsagan segir
að smalinn Magni hafi þar komist í
kynni við tröllskessu. Skammt vest-
ur af eru Laugarvellir. Þar sprettm-
heitt vatn úr jörð og lítill volgur læk-
ur myndar fjögurra metra háan foss
sem er hin ákjósanlegasta sturta. Er
það líklega einsdæmi í veröldinni.
Torfbærinn á heiðinni
Frá Laugarvöllum er ekið að Sæ-
nautaseli þar sem gerður var upp
gamall bær frá því byggð var nokkur
á Jökuldalsheiði á fyrstu áratugum
aldarinnar. Bærinn var gerður upp
á sl. sumri og var Auðunn Einarsson
aðalhvatamaður þess en Jökuldælir
sáu um og kostuöu framkvæmdina
með dyggri aðstoð Sveins Einarsson-
ar, hleðslumeistara á Egilsstöðum.
Nú í sumar er verið að ganga frá
bænum að innan og gera brú yfir lít-
inn læk til að auðvelda aðkomu. Er
hún eftirlíking af gamalli brú sem
gerð var á Jöklu fyrir bílaöld. Frá
Sænautaseli verður ekið út á þjóðveg
1 og gist í Jökuldal (Skjöldólfsstöð-
um) næstu nótt.
Rétt við Öskju er gígurinn Víti. í
honum er gruggugt vatn en mátu-
lega heitt til baða. Það er ógleyman-
legt ævintýri að busla í Víti.
íbaðíVíti
Að morgni þriðja dags verður hald-
ið inn Jökuldal (efra dal), vestur Þrí-
hymingsleið og yfir Jökulsá á Fjöll-
um við Upptyppinga og þaðan liggur
leiðin vestur í Öskju en komið verður
við í Drekagili þar sem hægt er að
sjá bólstraberg sem myndast við gos
undir jökli.
Öskjuvatn er sem kunnugt er
dýpsta vatn hér á landi. Rétt við vatn-
ið er gígurinn Víti. Þar varð mikið
sprengigos 1875 sem lagði efstu byggð
á Jökuldal í eyði tímabundið vegna
öskufalls. Gígurinn er 150 metrar í
þvermál við efri brún og 60 m á dýpt.
Vatn er í botninum, gruggugt en
mátulega heitt til baða og er það
ógleymanlegt ævintýrí að busla þar
í iðrum jarðar. Þar sprettur hitinn
fram í leir við bakka og í botni og
er þá líka hægt að fara í ókeypis leir-
bað.
Þetta Víti verður erfitt að yfirgefa
en hafist það liggur leiðin í Herðu-
breiðarhndir þar sem litið verður á
kofarústir Fjalla-Eyvindar og gróður
og fuglalíf við lindimar. Þetta kvöld
verður svo haldið til Mývatns þar
sem feröinni lýkur. Þaðan verður
lagt upp að morgni sunnudags sömu
leið til baka með nýja farþega austur
að Egilsstöðum.
7 i—
í ferðalagið
• Farangursbox og grindur, buröarbogar, festingar og læsing-
ar, bögglabönd, skíða-/veiðistangabogar.
• Ljós, glitaugu og tengi fyrir aftanívagninn og hjólhýsið.
• Tjöld og ýmis viðleguútbúnaður.
FERÐAST ÞUINNAN
ÍSUMART
Peking 150 m. fortjaldi
8.900.- stgr.
9.400.- m. greiðslukorti
S MANNAtjaW Lapbnd
2SVEFNPOKAR hftestar-5°
32Lkæft>ox ABtíánumpakka
4 MANNA Peking 180
2SVEFNPOKAR Nkesar -50
Akíeinumpakka
opið laugardag kl. 10-16
sunnudagkl. 13-16
Einlitirfrá 1.900 - Þykkri frá 2.990.-
TJALDASÝNING TJALOSTÓLAR KÆLISOX
ALLA DAGA FRÁ KR. 990.- Á ÚTSÖLU
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS
...þar sem ferðalagið byrjar!
SEGLAGERÐIN
ÆGIR
SVEFNPOKAR 5
FRÁ KR. 3.990.-