Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1993, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1993, Qupperneq 17
16 FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 1993 FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 1993 25 Iþróttir Motocross íGrafarvogi Pjórða og síöasta umferð sum- arsins i motocrossi, sem gefur stig til íslandsmeistara, verður haldin á laugardaginn á svæði Fjölnis aö Dalhúsum 2 í Grafar- vogi. Keppt verður í opnum flokki crosshjóla og x flokki iéttra bif- hjóla. Búist er við hörkukeppni i efri sætunum í crossflokki þar sem menn eru mjög jafnir að stig- um. Brautin í Grafarvogi er fyrsta akstursíþróttabrautin á ís- landi sem er í þéttbýli og er hún með miklum og stórum stökkum, svokölluðum þvottabrettum. Keppt hefur verið í flokki léttra bifhjóla í sumar eftir 12 ára hlé. Keppnín hefst klukkan 16 og stendurtilklukkanl8. -GH Búnaðarbanka- mótiðíKópavogi Búnaðarbankinn í Kópavogi og frjálsíþróttadeild Breiðabliks hafa ákveöið að standa að frjáls- íþróttamóti fyrir böm á aldrinum 14 ára og yngrí í Kópavogí. Kepp- endum er skipt í flokka eftir kynj- um og aldri: 13-14 ára fædd 1979 og 1980.11-12 ára fædd 1981-1982. 9-10 ára fædd 1983-1984 og 7-8 ára fædd 1985-1986. Keppt verður í 60 m hlaupi, langstökki, kúluvarpi, boltakasti og 600 m hlaupi. Skrán- ing fer ffam á fóstudaginn í húsi Breiðabliks við sandgrasvöllinn milli kl. 20 og 22 í sima 641990 eöa á Kópavogsvelli á laugardaginn milli9ogl0. -GH Þjálfara- námskeiðhjáíSÍ Fræösluneínd ÍSÍ mun gangast fyrir tveimur þjálfaranámskeið- um í september í íþróttamiðstöð- inni í Laugardal. Grunnstig ÍSÍ (þjálfari barna og unglinga) hefst föstudaginn 10. september klukk- an 16 og lýkur sunnudaginn 12. september klukkan 16.30. A-stig ÍSI (þjálfari fulloröinna) verður 24., 25. og 26. september. Skráning og nánari upplýsingar eru á skrif- stofu ÍSÍ í síma 813377. -GH Púttmótí Keflavík Fyrir skömmu var haldiö hið árlega púttmót Umboðsskrifstofu Helga Hólm á púttvellinum í Keflavík. Leiknar voru 36 holur og voru úrslit þessi: 11 ára og yngri 14 keppendur l. Elmar J. Bjömsson...72 12-15 ára - 13 keppendur 1. EinarSnorrason......71 16-35 ára - 10 keppendur 1. Jóhann Júlíusson....70 36-50 ára -13 keppendtir l.OrriStefánsson.......68 51-60 ára 7 keppendur l.Helgi Hólm...........70 61-70 ára - 16 keppendur 1. Ingvar Oddsson......70 71-80 ára - 23 keppendur l.PéturKárason.........66 80 ára og eldri - 5 keppendur 1. Kristján Oddsson....69 -GH FH-ÍBV í kvöld leika FH og ÍBV í Get- raunadeildinni í knattspymu. Leikurinn átti upphaflega aö vera fyrir 8 dögum en var þá frestað vegna þess að Kyjamenn komust ekki til lands. Það má búast við baráttuleik á Kaplakrika þar sem mikið er í húfi fyrir bæði lið. FH-ingar betjast fyrir að halda 2. sæti deildarinnar sem gefur sæti í Evrópukeppni og Eyja- menn berjást um að halda sér í deildinni en þeir eru sem stendur í buliandi fallhættu. Leikur lið- anna fer fram á Kaplakrikavelli klukkan 18.30. -RR ítalska knattspyman af stað á sunnudaginn: Mörg félög sækja hart að AC Milan Knattspyrnuvertíðin á Ítalíu hefst af fullri alvöm á sunnudaginn en þá verður flautað til leiks í einni sterk- ustu deildakeppni heims í knatt- spyrnu, 1. deildinni á Ítalíu. Nokkuð hefur verið um breytingar hjá félög- unum frá síðasta keppnistímabili en þá fógnuðu leikmenn AC Milan meistaratitlinum annað árið í röð eftir að hafa haft umtalsverða yfir- burði. í fyrsta sinn í 6 ár byrjar AC Milan keppnistímabilið án Hollendinganna þriggja, Marcos van Basten, Franks Rijkard og Ruuds Gullitt. Basten er ekki búinn að ná sér eftir uppskurð sem hann gekkst undir í sumar á ökkla, Rijkard er genginn til liðs við sitt gamla félag, Ajax í Hollandi, og Gullitt mun leika með Sampdoria á Ítalíu í vetur. Þessir þrír leikmenn hafa verið burðarásar í liði Milan undanfarin ár og brotthvarf þeirra Rijkards og Gullitts mun óneitanlega veikja þetta geysisterka lið. Silvio Berlusconi, eigandi AC Milan, hefur ekki dáið ráðalaus og fyrir þetta keppnistímabil hefur hann keypt átta leikmenn fyrir 13 milljónir dollara eða sem svarar rúmlega 900 milljónum íslenskra króna. í þessum pakka eru Daninn Brian Laudrup, sem kemur frá Fior- entina, rximenski sóknarmaðurinn Florin Raducioiu frá Brescia, mark- vörðurinn Mario Ielpo, sem lék með Cagliari, varnarmaðurirm Christian Panucci, sem keyptur var frá Genoa, Alessandro Orlando vamarmaður, sem kemur frá Udinese, Christian Lantignotti núðjumaður, sem keypt- ur var frá Udinese, auk þess senx Angelo Carbone núðvallarleikmaður snýr til baka eftir að hafa verið lán- aður til Bari og síðar Napoli. Sparksérfræðingar á Ítalíu er þeirrar skoðunar að baráttan um meistaratitilinn eigi eftir að verða geysihörð í vetur. Inter Milan, sem varð í öðm sæti á síðasta keppnis- tímabili, hefur keypt tvo hollenska landsliðsmenn, þá Dennis Bergkamp og Wim Jonk, og eru líklegir til af- reka. Sampdoria hefur fengið til liðs við sig tvo frábæra knattspymumenn, þá Ruud Gullitt og David Platt, og með þessa siúllinga innanborðs gætu þeir hæglega blandað sér í hóp efstu liða. Enski landsliðsmaðurirm Des Walker hefur hins vegar yfirgefið herbúðir Sampdoria og leikur nú með Sheflield Wednesday. Parma, sem tryggði sér sigur í UEFA-keppninni og þótti vera með besta liðið á Ítalíu seinni hluta móts- ins, ætlar sér stóra hluti og hefur meðal annars fengið Gianfranco Zola frá Napoli til liðs við sig. Lið Juventus verður öragglega meö í baráttunni en félagiö hefur þó misst tvo sterka leikmenn, þá David Platt og framherjann Perluigi Cas- erachi, frá því í fyrra. Lið Roma hefur gengið illa síðustu árin og menn þar á bæ vona að með tilkomu markahróksins Abels Balbo, sem skoraði 21 mark fyrir Udinese í fyrra, verði liðið í toppbaráttunni en þar er nýr þjálfari við völdin, Carlo Mazzone sem kom liði Cagliari í Evr- ópukeppni á síðasta keppnistímabili. Þá má ekki gleyma liði Torino. Þar era helstu breytingar þær að keyptir hafa verið Króatinn Robert Jarni, varnarmaður sem kemur frá Bari, framherjinn Marco Osio frá Parma, Enzo Francescoli, framherji sem lék með Cagliari, og markvöröurinn Giovanni Galli sem kemur frá Na- poli. Torino hefur hins vegar misst belgíska landsliðsmanninn Enzo Scifo til Monaco, framherjann Casa- grande til Flamengo og varnarmann- inn Pasquale Bruno til Fiorentina. Þessi listi er engan veginn tæmandi og lið eins og Lazio og Cagliari gætu allt eins gert þessum félögum, sem áður eru nefnd, skráveifu. Yfirburðir AC Milan hafa verið miklir undan- farin tvö ár en nú þykjast menn sjá að veldi þeirra verði ógnað og að leik- menn liðsins þurfi að minnsta kosti að hafa mikið fyrir því að verja titil- inn. -GH Nýju leikmennirnir átta sem leika með AC Milan á næsta tjmabili. IÞROTTAFELAGIÐ LEIKNIR óskar eftir að ráða knattspyrnuþjálfara fyrir meistaraflokk nk. keppnistímabil. Umsóknir leggist inn á auglýsingadeild DV, merkt „Leiknir". ISLAIUD - USA 31. ÁGÚST KL. 20:00 Starfandi dómarar og aðrir nxeð gild aðgangskort fá afhenta aðgöngumiða á leikinn á Laugardalsvelli, þriðjudaginn 31. ágúst kl. 11:00 - 18:00. ATH! MIÐAR VERÐA EKKIAFHENTIR FYRIR UTAN PENNAN TÍMA. Aðilar utan af landi, með gild aðgangskort, geta hringt á skrifstofu KSÍ þriðjudaginn 31. ágúst kl. 08:00 - 12:00 og látið taka frá fyrir sig miða sem síðan verða afhentir samkvæmt nánara samkomulagi. OpnaSparisjóðs- mótiðígolfi Opna Sparisjóösmótiö í golfi veröur hald- ið á laugardaginn hjá Golfklúbbnum Keih í Hafnarfiröi. Keppnisfyrirkomu- lagið er 18 holna höggleikur og veröa veitt glæsileg verölaim í formi vöruút- tekta fyrir efstu sætin með og án forgjaf- ar og þá eru vöraúttektir fyrir að verða næst holu á 6., 9. og 16. braut og á 18. braut í tveimur höggum. Þá fær heppinn keppandi óvæntan glaðrting í mótslok verði hann á staðnum. Ræst verður út frá klukkan 8 og er skráning í síma 653360. -GH Dregið í bikarnum í gær var dregið í 2. umferð enska deilda- bikarsins. Englandsmeistarar Manchest- er United drógust gegn Þorvaldi Örlygs- syni og félögum í Stoke. Arsenal, bikar- meistaramir frá í vor, dróst gegn Hudd- ersfield. Wrexham - Nott. Forest, WBA - Chelsea, Fulham - Liverpool, Sunder- land - Leeds, Coventry - Wycombe, Blackbum - Boumemouth, Bamsley - Peterboro, West Ham - Chesterfield, Lincoln - Everton, Hereford - Wimble- don, Crystal Palace - Charlton, Bum- ley - Tottenham, Huddersfield - Arsenal, Swansea - Oldham, Bolton - Sheff. Wed., Bamet - QPR, Southampton - Shrews- bury, Stoke-Man. Utd., Man. City- Reading/Northampton, Birmingham - Aston VUla, Blackpool - Sheff. Utd., Middlesboro - Brighton, Grimsby - Hart- lepool, Swindoon - Wolves, Tranmere- Oxford, Rotherham-Portsmouth, Leic- ester - Rochdale, Watford - Millwall, Ex- eter - Derby, Bradford - Norwich, Ipswich - Cambridge. -RR Iþróttir Þórður Guðjónsson skorar fyrir Skagamenn í gærkvöldi og Víkingar koma ekki við vörnum. A innfelldu myndinni mótmæla Vikingar ákvörðun Kára Gunnlaugsson- ar dómara og ekki í eina skiptið í leiknum. Kári dæmdi mjög illa og allir sem nálægt leiknum komu voru viti sinu fjær af vonsku. DV-myndir GS Hreinn skrípaleikur - öruggur sigur Skagamanna gegn Víkingi, 1-3, eftir að Víkingur komst yfir, 1-0 „Það var mikil harka í þessum leik eins og við var að búast. Þetta var mjög grófur leikur og dómarinn hafði engin tök á honum,“ sagði Sigurður Jónsson Skagamaður eftir að íslandsmeistarar ÍA höfðu unnið öruggan sigur á Víkingi í leik hðanna í Getraunadeildinni á Valbjamarvelli í gærkvöldi. Lokatölur 1-3 eftir að Víkingur haíði haft forystu í leikhléi, 1-0. Sigurður var í leikbanni í gærkvöldi. Atli Helgason skoraði úr aukaspyrnu fyrir Víking í fyrri hálíleik en í þeim síðari skoraði Þórður Guðjónsson tví- vegis og Haraldur Ingólfsson þriðja markið. Skagamenn fengu tækifæri til að bæta við mörkum en Guðmundur Hreiðarsson, markvörður Víkings, kom í veg fyrir það með góðri markvörslu. Allt vitlaust frá byrjun Leikur liðanna í gærkvöldi var hreint dæmalaus. Kári Gunnlaugsson dómari missti öll tök á honum strax í byrjun og leikmenn og þjálfarar liöanna rifust hver í kapp við annan. Þjálfarar liðanna meira að segja innbyrðis og skeytasend- ingar þeirra voru athyglisverðar, svo ekki sé meira sagt. Knattspyman varð að aukaatriði. Frammistaða dómarans var fyrir neð- an allar hellur og það verður að segjast eins og er að Kári Gunnlaugsson er alls ekki fær um að dæma í 1. deild. Það verður að gera eitthvað í málunum. Ef leikmenn sýna ekki nægilega getu hjá þjálfurum er þeim skipt út af eða þeir komast ekki í lið. Það sama á að gera við dómara sem ekki valda hlutverki sínu. Það sem virðist hins vegar vanta hjá dómurum er aðhald - nefnd eða dómstóll sem refsar mönnum sem ekki standa sig og verðlaunar þá sem standa sig vel. Ef menn gera eins rækilega í buxurnar og dómarinn í gærkvöldi á að gefa honum hvíld frá dómgæslu í 1. deild en ekki láta viðkomandi halda áfram að dæma eins og ekkert hafi ískorist. Það er alvarlegt mál þegar dómarar hreinlega eyðileggja leik eftir leik í 1. deild. En þrátt fyrir að dómgæslan sé svo hroðcdega léleg sem í gærkvöldi verða leikmenn og þjálfarar að reyna að halda ró sinrn þó það sé skiljanlega erfitt í leikjum eins og í gærkvöldi. Dómarinn gerði aragrúa mistaka í leiknum. Yfirferð og staðsetningar voru lélegar, hann tók seint eftir aðgerðum línuvarða, allar ákvarðaiúr mjög tilvilj- anakendar, byrjaði alltof seint að gefa leikmönnum spjöld, sem varð til þess að leikurinn fór út í hreina vitleysu og skrípaleik, lét stöðug hróp þjálfara og svmrðingar sem vind um eyru þjóta og er þá fátt eitt talið. Nóg um dómgæsluna og vonandi fer þessu að linna. Knattspyraumenn og áhorfendur eiga betra skilið. Víkingar héldu í við meistarana í fyrri hálfleik en eftir að Thomas Jawozek var vikið af leikvelli á 63. mínútu skoruðu Skaga- mexm tvívegis og í gærkvöldi tryggðu þeir sér endanlega íslandsmeistaratitil- inn. -SK Vikingur Akranes (1)1 (0)3 1-0. Atli Helgason á 39. mín. 1-1. Þórður Guðjónsson á 51. mín. 1-2. Þórður Guðjónsson á 71. mín. 1-3. Haraldur Ingólfsson á 90. min. Lið ÍA: Kristján (1), Lúkas (2), Sturlaugur (1), Theódór (1), Ólaf- ur A. (2), Þórður (2), Alexander (1) (Pálmi 88. mín.) (1), Sigur- steinn Gíslason (2), Bibercic (1) (Brandur 73. mín.) (1), Ólafur (1), Haraldur (2). Lið Víkings: Guðmundur (2), Kristinn (1) (Lárus á 73. mín. (1)), Björn (1), Jaworek (1), Stefán (1), Marteinn (Einar Örn á 80. mín) (1), Guðmundur G. (1), Guðmund- ur S. (1), Atli (2), Hólmsteinn (2), Hörður (1). Gul spjöld: Jaworek, Stefán, Atli í Víkingi og Sturlaugur, The- ódór, Ólafur A. og Bibercic í ÍA. Rautt spjald: Thomas Jaworek, Víkingi á 63. mín. Dómari: Kári Gunnlaugsson: Afspyrnuslakur. Áhorfendur: Um 400. Aðstæður: Erfiðar. Mikið rok. Gríðarlegur áhugi Það er gríðarlegur áhugi fyrir úrslitaleik ÍA og ÍBK í Mjólkurbikarkeppninni í knattspymu sem fram fer á Laugardalsvelli klukkan 14 á sunnudaginn. A Akra- nesi höfðu í gærkvöldi selst tæplega 1000 miðar í forsölu, en það er algjört met að sögn forráðamanna ÍA, og i Keflavík var búið að selja um 500 miða. Þessi úrslitaleikur verður sá 34. í rööinni. Skagamenn leika nú til úrslita 114. sinn en fimm sinnum hafa þeir íagnað sigri, síðast árið 1986. Kefivíkingar leika til úrslita í 6. sinn en þeir hafa einu sinni orðið bikarmeistarar. Það var árið 1975 þegar þeir lögðu einmitt Skagamenn að velJi, 1-0. Guöjón Þórðarson, þjálfari ÍA, segist reikna með hörkuleik. Hann segir að staða ÍA-líösins í Getraunadeildinni gefi þeim ekkert forskot í þennan bikarúrslitaleik enda spilist svona leikir allt öðruvísi. Tveir leikmenn Skagaliösins eru tæpir vegna meiðsla, að sögn Guðjóns, en þeir Alexander Högnason og Þórður Guðjónsson meidd- ust báðir gegn Víkingi í gær. Kjartan Másson, þjálfari ÍBK, tók í sama streng og Guðjón og sagði að ógerningur væri að spá fyrir um úrslit leiksins. Hann segir að leikurinn verði raikil upplifun fyrir leikmenn sína og að þeir muni örugglega leggja sig alla fram enda muni það ekki veita af gegn jafhsterku liði og ÍA. Allir leikmenn IBK eru heilir. wm ' H & IHfll ÁiH Kvartmíla: Síðastakeppnin Keppnistímabili akstursíþrótta- manna er óðum að ljúka og verður síðasta kvartmílukeppni sumars- ins, „Níels puplic-house“ kvart- mílan, haldin á kvartmilubraut- inni við Straumsvík á laugardag- inn og hefst hún kl. 14. Keppt verður í sjö flokkum sem eru mjög fjölbreyttir. Þar verður allt frá kraftmiklum sérsmíðuðum kvartmílubílum niður í venjulegar skellinöörur. Allir keppendur eiga það þó sameiginlegt að ná. eins miklum krafti úr tækjum sínum og mögulegt er. Kvartmílan er ein þeirra fáu íþróttagreina sem ekki er hægt að stunda í rigningu og verður keppninni frestað ef blautt verður. Þó ætti fólk að hafa þaö í huga að þótt rigni í Reykjavík get- ur verið þurrt á kvartmílubraut- inni. -Ása Jóa Botnmn Unglingalandsliðið i körfuknatt- ieik tapaði naumlega fyrir Úkra- ínuraönnum, 84-97, í milliriðli Evrópumótsins i Þýskalandi i gær. íslenska liðið haföi yfir í upphafi, 21-7, en Úkraínumenn jöfnuðu skömmu fyrir hlé, 31-31. í ielk- hléinu höfðu þeir yflr, 36-37. í síð- ari háifleik sigu þeir fram úr, 60-65 og 78-86, þegar fjórar mín. voru til leiksloka. Þá datt botninn úr leik íslenska liðsins sem tapaði með 13 stiga mnn eins og fyn- segir. Stig ísléhska liðsins: Helgi Guð- finnsson 36, Ólafur Ormsson 25, Hafsteinn Lúðvíksson 7, Amþór Bfrgisson 5, Friðrik Stefánsson 5, Ómar Sigmarsson 2, Gunnar Ein- arsson 2 og Bergur Emilsson 2. -BL Wegerle í hópnum gegn íslandi Roy Wegerle, miðvallarleik- maður Coventry, er meðal leik- manna í landsliðshópi Bndaríkj- anna sem leikur gegn íslenska landsliðinu á Laugardalsvelli á þriðjudaginn. Wegerle hefur skorað grimmt í fyrstu leikjum Coventry í ensku úrvalsdeildinni. Bandaríska liðið er nú í æfingabúðum í Kaliforníu qg býr sig þar undir leikinn gegn íslandi og leik gegn Noregi 8. september. -BL afturtilSixers Philadelphia ’76ers í NBA-deild- inni hefurfest kaup á míðherjan- um gamalreynda, Moses Malone. Kappinn, sem orðinn er 38 ára gamall, er ekki ókunnugur í her- búðum Sixers. Hann var ein skærasta stjama iiðsins fyrir réttum 10 árum er liðiö varð NBA-meistari. Hann var síðan seldur frá félaginu 1986. í ein- hverri umdeildustu sölu í manna minnum. Síðan þá hefur jafnt og þétt sigið á ógæfuhliðina hjá fé- laginu sem nú er eitt það lakasta í deildinni. Ekki er Malone ætlað að verða á ný stjama hjá félaginu heldur mun hlutverk hans verða að keima nýliðanum Shawn Bradley, sem er 2,30 m á hæö, réttu miðherjahreyfingarnar og þá grimmd sem þarf til að standa sig. Þá mun Malone verða vara- maður fyrir Bradley. GilKamtíl NJ Nets Armon Gilliam, sem lék með Sixers á síðasta keppnistíroabili, hefur gert samning við New Jers- ey Nets en Gilliam var ásamt mörgum öðrum leikmönnum settur á sölulista til að fjármagna kaupin á Shawn Bradley. TomChambers fórtílUtahJazz Samningur Tom Chambers við Phoenix Suns rann út í vor og kappinn hefur nú gengið til liðs við Utah Jazz. Syfjaði Eric Eric „Sleepy" Floyd, bakvörður Houston Rockets, hefur fært sig um set imxan Texasfylkis. Hann hefur gert eins árs samning við San Antonio Spurs. Spurs héfur einnig samið við bakvörðinn Chris Whitney. Dallas Marericks, botnlið NBS- deíldarínnar á síðasta keppnis- tímabili, hefur keypt framherj- ann Ron „Popeye" Jones og gert við hann eins árs samning sem má framlengja. afturtil Rockets Calvin Murphy, sem rekinn var úr starfi hjá Houston Rockets fyr- ir nokkru, hefur nú verið ráðinn aftur til starfa hjá félaginu. Murphy gegndi starfi upplýs- ingafulltrúa og þjálfara með sér- stök verkefni. Hann var fyrrum leikmaöur liðsins, sá þekktasti í sögu félagsins. Rockets hefur samið við leikmenmna sem vald- ir voru í háskólavalinu í vor en þeir eru bákvöröurinn Sarn Cass- ell, framherjinn Richard Petr- uska og miðherjimi Eric Riley. EdwardsviðAtíanta Atlanta Hawks hefur náð sam- komulagi við nýliðann sem það valdi íýrstan í liáskólavalinu. Hann hcitir Doug Edwards og lék með Florida State háskólanum. Fyrir sex ára samning fær Edw- ards í sinn hlut um 80 milljónir ísl. kr. Cleveland Cavaliers og fyrsti valkostur þeirra í háskólavalinu, framherjinn Chris Mills. hafi komist að samkomulagi. Mills lék áður með Arizona háskóla. Gamla þriggja stiga purnpan Craig Hodges, sem síðast lék með Chicago Bulls í NBA-deildinni, mun leika með Clear Cantu í ít- ölsku úrvalsdeildinniívetur. -BL

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.