Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1993, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1993, Page 25
FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 1993 33 Tilkyimingar Hjónaband Þann 29. maí voru gefin saman í hjóna- band í Ólafsvikurkirkju af sr. Friðriki J. Hjartar Olga Guðrún Gunnarsdóttir og Jens Brynjólfsson. Þau eru til heim- ilis að Túnbrekku 15, Ólafsvík. Ljósm. Ljósmst. Mynd. Þann 7. júlí voru gefin saman í hjónaband í Bústaðakirkju af sr. Pálma Matthías- syni Helga Helgadóttir og Júlíus Jón- asson. Heimili þeirra er á Spáni. Ljósm. Sigr. Bachmann. Þann 10. júlí voru gefm saman í hjóna- band í Bústaðakirkju af sr. Pálma Matthí- assyni Guðlaug Gísladóttir og Theó- dór Sveinjónsson. Þau eru til heimilis að Unufelli 5, Reykjavik. Ljósm. Jóh. Long Fyrirlestur Norðurlönd og umheimurinn í dag, fóstudag, kl. 17.00 heldur Godelieve Laureys prófessor fyrirlestur í fundarsal Norræna hússins. Hann nefnist „Hur ser omvárlden pá Norden". Fyrirlesturinn verður á sænsku. Samband ungra framsóknar- manna heldur ráðstefnu á morgun, laugardag- inn 28. ágúst, í íþróttamiðstöðinni á Laug- arvatni, þar sem sveitarstjómarmál og sameining sveitarfélaga verða í brenni- deph. Allar nánari upplýsingar em veitt- ar á skrifstofu samtakanna í síma 91- 624480 (Anna) eða hjá Sigurði Sigurðs- syni, formanni SUF, í síma 97-11480 (kl. 9-18). Félag eldri borgara í Kópa- vogi Félagsvist verður spiluð í félagsmiöstöð- inni Gjábakka, Fannborg 8, Kópavogi, í kvöld, fostudagskvöld, kl. 20.00. Húsið öllum opið. Félag eldri borgara í Reykja- vík Göngu-Hrólfar fara frá Risinu kl. 10.00 á morgun, laugardag. Leikfélagið Snúður og Snælda heldur félagsfund miöviku- daginn 1. sept. kl. 15.00 í Risinu, Hverfis- götu 105. Rætt verður um vetrarstarfið og næsta leikrit. Nýir félagar velkomnir. Mánudaginn 30. ágúst kl. 15.00 er félögum boðið að sjá kvikmyndina Ekkjuklúbbur- inn í Sambíóunum, Árbakka 8. Að- göngumiöar afgreiddir á skrifstofu FEB, Hverfisgötu 105. Vistfræði þorsks Mánudaginn 30. ágúst kl. 20.30 mun kana- díski fiskifræðingurinn dr. Edward A. Trippel, sem starfar hjá kanadísku Fiski- og hafrannsóknarstofmminni, halda op- inberan fyrirlestur á vegum Liffræðifé- lags íslands í Háskóla íslands, stofu 101 í Odda. Titill fyrirlestursins er: „Vöxtur og hæfni tveggja ólíkra kanadískra fiski- tegunda, þorsks og ferkvatnsfisksins Cat- ostomus commersoni (Growth and fit- ness in two contrasting Canadian fishes and environments)". Fyrirlesturinn er á ensku og öllum opinn. Ferðafélag íslands Á morgun, laugardaginn 28. ágúst, kl. 8.00 verður farin dagsferð að Álftavatni (við Fjallabaksleið syðri). Ekið um Emstrur að skálum FÍ viö Álftavatn og til baka um Rangárbotna. Litast um við Álftavatn - mikil náttúrufegurð. Verð kr. 3.000 (hálft gjald f. 7-15 ára). Hönnun prentgripa Iðntæknistofnim og Prenttæknistofnun halda námstefnu í útlitshönnun prent- gripa fostudaginn 3. september nk. Stjórnandi og fyrirlesari námstefnunnar verður Bandaríkjamaðurinn Jan V. White sem er einn virtasti og eftirsóttasti fyrirlesari í heiminum á þessu sviði. Námstefnan höfðar til allra þeirra er fást við útgáfu og hönnun prentgapa. White mun fj alla um hvemig megi beita hönnun í prentuðu máh til aö grípa athygli les- enda og leiða þá í gegnum efnið. Nám- stefnan verður haldin á Holiday Inn og fer fram á ensku en dreift verður náms- gögnum á íslensku sem unnin hafa verið upp úr kennsluefni Whites. Þátttöku- fjöldi er takmarkaður viö 50 manns og ber þátttakendum að tilkynna sig í síma 687000 eða 680740. Þátttökugjald er 12.000 kr. Fjérir söngvarar á Hótel Sögu Undanfamar tvær vikur hefur hljómsveitin Gleöigjafarnir skemmt á Hótel Sögu við frábærar undirtekt- ir, enda er dagskráin fjölbreytt og vinsæl. Söngvarar með hljómsveit- inni eru þau André Bachmann, Bjarni Arason og Móeiður Júníus- dóttir. Um helgina bætist enn einn söngvari í hópinn, engin önnur en Ellý Vilhjálms. Þar eru því komnir fjórir söngvarar með mislangan feril að baki og efnisval þeirra skarast svo aö um munar. André Bachmann syngur þægiiega standarda frá blómaárum poppsins. Bjarni Arason kynnir lög af væntan- legri sólóplötu sinni, þeirri fyrstu, auk þess sem hann syngur alþekkta slagara og lög Elvis Presley eins og honum er einum lagið. Elly Vil- hjálms syngur mörg af sínum þekkt- ustu lögum auk spænskra laga og annarrar gulltónlistar og þá mun Móeiður Júníusdóttir meðal annars syngja stríðsáramúsík og Parísarlög. Auk þessa verða Módelsamtökin með undirfatasýningu á vegum verslunarinnar Conny við Eiöistorg. Veiðivon Annar stærsti lax sumarsins úr Hvítá: 26,5 punda úr Stóra-Ármóti „Það var gaman að fá þennan nýgengna lax, baráttan stóð yfir í 20 mínútur," sagði Sverrir Einars- son á Selfossi í gærkvöldi. Sverrir Einarsson, handbolta- maður í Selfosshðinu, veiddi þann stóra í Stóra-Ármóti í Hvítá í fyrra- dag. Þetta er annar stærsti lax sum- arins en áður hafði veiðst 27 punda lax í Svalbarðsá í Þistilfirði. Fiskur Sverris var 26,5 pund og veiddist á tóbý. „Ég fékk eitt annað högg en ég sá leginn lax þama og hann var ekki minni en þessi sem ég veiddi. Ég held að hann hafi bara verið stærri,“ sagði Sverrir er við náðum sambandi við hann í gærkvöldi, stuttu eftir æfingu hjá Selfosshð- inu. -G.Bender Hofsá í Vopnafirði: 1400. laxinn veiddist í gær „1400. laxinn veiddist í dag og síð- asta vika hefur gefið 300 laxa. Tveir þeir stærstu voru 20 punda,“ sagði Eiríkur Sveinsson á Akureyri í gærkveldi. „Á silungasvæðinu í Hofsá hafa veiðst 20 laxar og hehmikið af bleikjum. Sunnudalsáinhefur gefið 17 laxa en á sama tíma í fyrra vom komnir úr henni 150 laxar. Stein- grímur J. Sigfússon og félagar voru í Selá og veiddu 21 lax í þrjá daga. Björgólfur Jóhannsson veiddi 21 punds fisk, þann stærsta úr ánni til þessa. Fnjóská í Fnjóskadal hef- ur gefið 300 laxa og sá stærsti er 21 pund,“ sagði Eiríkur í lokin. -G. Bender Sverrir Einarsson, handboltamaður meö Selfossliðinu, með annan stærsta lax sumarins úr Stóra-Ármóti í Hvitá en fiskurinn var 26,5 pund. Stórlaxinn kominn á þurrt en eins sést á myndinni var hann nýgenginn. DV-myndir G „Norðurá nær ekki tvö þús- und löxum nema rigni - segir Jón Gunnar Borgþórsson Það styttist í að hætt verði að veiða í fyrstu veiðiánum, Norðurá, Þverá og Laxá á Ásum, á þessu sumri. A mánudaginn er síðasti veiðidagurinn í þeim. „Mér sýnist á þessi stundu að við náum ekki 2000 löxum nema það rigni verulega síðustu daga sem veiðin er. Núna em komnir 1925 laxar og það em fáir dagar eftir,“ sagði Jón Gunnar Borgþórsson, framkvæmdastjóri Stangaveiðifé- lags Reykjavíkur, í gærkveldi. „Gljúfurá í Borgarfirði hefur gef- ið 135 laxa. í Hítará á Mýrum hafa veiðst 220 laxar á aðalsvæðinu en kringum 20 á svæði tvö í Hítará. Eitthvað hefur veiðst af shungi þar. Snæfoksstaðir í Hvítá hafa gefið 62 laxa. Mér sýnist að í Stóm- Laxá í Hreppum hafði veiðst kring- um 260 laxar og svæði eitt og tvö hafa gefið best, 145 laxa,“ sagði Jón Gunnar. í gærdag vom komnir 93 laxar í Brynjudalsá í Hvalfirði og er „Það eru nokkir laxar í Bárðar- fossi en þeir eru tegir,“ sögðu veiðimenn við fossinn í gærdag. Þeir veiddu með maðki en höfðu ekki fengið neitt þegar okkur bar að garði. DV-mynd G. Bender stærsti laxinn 15 pund. Theódór Friðbjömsson veiddi þann stærsta í ánni í Kerinu. En Kerið hefur gefið langbest í sumar. Það em komnir 45 laxar á fluguna í ánni en það er mjög gott og rauð franses hefur gefið best. Veiðimenn, sem voru við veiðar í Brynjudalsá í gærdag, sögðu að htið væri af fiski í ánni en einn og einn lax væri á sveimi í Bárðar- fossi. 87 laxar úr Dunká „Við vorum að koma úr Dunká og veiddum fióra laxa, sá stærsti hjá okkur var 12 pund,“ sagði Jón Karl Ólafsson en hann var að koma úr Dunká á Skógarströnd í gærdag við flórða mann. „Þar hafa veiðst 87 laxar og stærsti laxinn er 20 pund. Við sáum ekki mikið af fiski í ánni en það var eitthvað í henni,“ sagði Jón Karl ennfremur. -G. Bender Allt í veiðiferðina NÝJUNGAR í BEITU SEM REYNAST VEL LAUGAVEGI 178, SIMAR 16770 - 814455, FAX 813751

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.