Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1993, Side 4
20
MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1993
Maturogkökur
Jólasælgæti
Súkkulaðihúðaður appelsinubörkur er ódýrt sælgæti.
Jólin eru hátíð fjölskyldunnar og
ekkert er skemmtilegra en að sam-
einast við konfektgerð. Best er að
velja uppskriftimar með tilliti til
þarfa og getu ailra fjölskyldumeð-
lima. Heimalagað sælgæti þarf ekki
að vera dýrt og það er smekkleg
vinargjöf þegar búið er aö pakka
því í fallega skreytta krukku.
Súkkulaðihúðaður
appelsínubörkur
Þessi uppskrift er fremur ódýr
og einföld en nýstárleg.
100 g appelsínubörkur
200 g sykur, 100 g suðusúkkulaði
1 tsk. parafinvax (fæst í lyfjabúð-
um)
Hreinsið hvítu himnuna innan úr
berkinum og vigtið svo 100 grömm.
Skerið börkinn í ræmur. Leggið í
kalt vatn yfir nótt.
Sjóðið þá appelsínubörk og sykur
saman í potti við miðlungshita þar
til vökvinn hefur gufað upp. Hrær-
ið varlega í á meðan. Sjóðið síðan
á hærri hita þar til appelsínubörk-
urinn verður stökkur líkt og steikt-
ur laukur.
Dreifið úr ræmunum á ohubor-
inn pappír eða plötu.
Bræðið súkkuiaði og parafínvax-
ið saman yfir vatnsbaði. Dýfið þá
appelsínuræmunum ofan í og látið
storkna. Geymist í þéttu boxi.
Núggatbitar
ca 50 stk.
250 g núggat
125 g súkkulaði, ljóst eða dökkt
100 g möndlur
Hitið ofninn í 200”. Afhýöiö möndl-
umar og skerið í femt. Setjið á
bökunarplötu og bakiö þar tO þær
em guUnar. Bræöið núggat og
súkkulaði yfir vatnsbaði. Blandið
ristuðum möndlum saman við.
Skiptið blöndunni í lítil álform.
Látið standa á köldum stað og
geymið í loftþéttum boxum.
Marengsbitar
ca 80 stk.
5 dl sykur
örlítið salt
1 tsk. edik
1 dl Ijóst síróp
1 dl vatn
3 eggjahvítur
150 g hakkaðar heslihnetur
Blandið saman sykri, salti, ediki,
sírópi og vatni í pott. Sjóðið í u.þ.b.
15 mínútur. Stífþeytið eggjahvít-
umar. HeUið sykurleginum saman
við eggjahvítumar. Þeytið vel í 5
mínútur þar til massinn er orðinn
þykkur og seigur. Hrærið hnetun-
um saman við en geymið slatta til
skreytingar.
Skiptið í lítíl álform og stráið
„ hnetum yfir. Látið stífna á köldum
stað og geymið í þéttu boxi.
Makkarónubitar
500 g kransakökumassi
80 g sykur
2 eggjahvítur
100 g suðusúkkulaði
Rífiö kransakökumassann og
hrærið saman við sykur og eggja-
hvítu. Setjið í toppum á bökunar-
plötu klædda bökunarpappír og
bakið við 200” í 8 til 10 mínútur þar
tU bitamir eru ljósgullnir. Kæhð
og þekið botnana með súkkulaöi.
Látið stífna og geymið.
Púnsbollur
ca. 20 stk.
100 g suðusúkkulaði
1 msk. smjör
1 eggjarauða
300 g flórsykur
1 tsk. rommessens
1 'h msk. mjólk
súkkulaðigrjón eða skrautsykur
Bræðið smjör og suðusúkkulaði í
potti. Hrærið eggjarauðunni saman
við ásamt flórsykri, rommessens
og mjólk. Mótið kúlur og veltið upp
úr súkkulaðigijónum (brúnurn
skrautsykri). Geymið í kæh meðan
kúlumar em að storkna svo að þær
haldi sér. Geymist á köldum stað
og undir þéttu loki.
Mokkanúggat
300 g núggat
100 g suðusúkkulaði
'A msk. kaffi, sterkt
1 tsk. smjör
1 msk. koníak
kökuskraut
Bræðið súkkulaöið yfir vatnsbaði.
Hrærið smjöri, kaffi og koníaki
. saman við. Smyijið súkkulaðinu
ofan á núggatstykkin. Dýfið
súkkuiaðihUöinni í skrautsykur og
skerið síðan í bita. Geymið í vel
lokuðu íláti.
Hnetubitar
175 g salthnetur
350 g sykur
4 msk. kalt vatn
3 msk. síróp
25 g snfiör
Hitið ofninn í 150”. SkoUð saltið af
hnetunum. Þurrkið þær vel og
dreifið úr þeim á bökunarplötu.
Ristið þær í ofninum við 200” í 15
mínútur og snúið einu sinni til
tvisvar.
Hitið sykur, vatn og síróp þar til
sykurinn er bráðinn. Setjið þá
smjöriö saman við og sjóðið þar til
karameUan er seig. (Prófið með þvi
aö setja nokkra dropa í kalt vatn.
Þegar hægt er að móta úr þeim
kúlu er sykurmassinn nægilega
soðinn).
Takið þá pottinn af hellunni og
hrærið hnetunum snöggt og vel
saman við. HeUið leginum á oUu-
boma plötu og dreifið úr honum.
Látið storkna.
Skerið eða brjótið í bita þegar
karameUan er nærri fullhörðnuð.
Geymið undir þéttu loki.
Koníakstoppar
200 g marsípan
koníak eftir smekk
kokteilber
100 g suðusúkkulaði
1 tsk. parafínvax
flórsykur ef þarf
Utaður skrautsykur
Hnoðið koníakið í marsípaniö þar
til bragðið er eins og ykkur Ukar.
Bætið flórsykri saman við ef
marsípanið er of Unt. Setjið kUpu
af marsípani utan um kokteUber
og mótið kúlur.
Bræðið súkkulaði og parafínvax
yfir vatnsbaði. Dýfið kúlunum í
súkkulaðið og því næst í skraut-
sykurinn. KæUð og geymið vel og
gjaman í seUófanpappír.
Krókantkúlur
25-30 stk.
150 g gróft hafrakex,
50 g smjör
1- 2 msk. kakó
rifinn börkur af einni appelsínu
2- 3 msk. appelsínusafi
hnetumulningar
V
Myljiö kexið mjög fint niður í mat-
vinnsluvél. Blandið mjúku smjöri,
kakói og appelsínuberki saman við.
Hrærið appelsínusafanum saman
við. Geymið deigið á köldum stað
þar tíl það storknar. Mótið kúlur
og veltið þeim upp úr hnetumuln-
ingnum. Pakkið inn í seUófanpapp-
ír og geymið á köldum stað.
Sveskjukonfekt
200 g marsípan
250 g sveskjur
1 eggjahvíta
2 msk. romm
200 g suðusúkkulaði
2 tsk. parafínvax
litaður skrautsykur
Rífið marsípanið gróft niður. Hakk-
ið sveskjurnar. Blandið saman
marsípani, sveskjum, eggjahvítu
og rommi. Setjið í htið álform.
Bræðið súkkulaði og parafínvax
saman yfir vatnsbaði. Smyijið
súkkuiaði á topp hvers bita og
skreytið með skrautsykri. Geymist
á köldum stað.