Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1993, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1993
27
N Y
Maturogkökur
Tómatar eru góðir til nióursuðu.
Sultað
úrtóm-
ötum
Tómatar eru góðir í alls kyns nið-
ursuðu. Ef þeir fást ódýrir er upp-
lagt að sjóða niður einhvern slatta,
setja í krukkur og gefa vinum og
kunningjum.
Sinneps-
pikkles
Hægt er að gera pikklesinn úr
öörum grænmetistegundum en til-
teknar eru hér. Notið fremur hart
grænmeti en mjúkt.
250 g smágúrkur
240 g laukur
250 g gulrætur
250 g grænar baunir
250 g vaxbaunir
1 rauð paprika
1 haus blómkál
250 g smáir grænir tómatar
Saltlögur:
2 1 vatn
I dl salt
Edikslögur:
II edik
300 g sykur
3 msk. sinnepsduft
60 g hveiti (1 dl)
Hreinsið og skolið allt grænmet-
ið. Skerið agúrkur og gulrætur í
þunnar sneiðar og baunir í bita.
Skerið papriku í strimla. Hlutið
blómkáhð í hríslur og pikkið göt á
tómatana.
Sjóðið saltlöginn og látið hann
kólna. Helhð honum yfir grænmet-
ið og látið bíða á köldum stað yfir
nótt. Hellið saltleginum af og látið
renna vel af grænmetinu. Látið
suðuna koma upp á edikinu og
leggið gulrætur og baunir í og látið
sjóða 2-3 mínútur. Takið grænmet-
ið upp úr og setjið sykurinn saman
við edikið.
Blandið kryddi saman við hveitið
og hrærið upp með örhtlu af köldu
ediki. Hellið jafningnum út í sjóð-
andi edikslöginn. Sjóðið í 5 mínútur
og hrærið stöðugt í á meðan.
Setjið allt grænmetið í edikslög-
inn og látið suðuna koma upp. Tak-
ið pottinn af hitanum og setjið
pikklesinn í heit, sótthreinsuð glös
og lokið þeim strax. Geymið á köld-
um og dimmum stað.
Tómat- og
eplamarmelaði
1 kg vel þroskaðir tómatar
1 kg eph
1 stór sítróna
500-700 g sykur
sultuhleypir
Hreinsið og skohð tómata og eph.
Skerið í bita og fjarlægið kjama-
húsið úr eplunum og afhýðið. Skol-
ið sítrónuna, þurrkið og rífið börk-
inn fínt niður. Pressið safann úr
sítrónunni.
Hakkið eph og tómata eða mauk-
ið í matvinnsluvél en ekki of smátt.
Hellið í pott með sítrónuberki, sítr-
ónusafa og sykri og sjóðið í 10 mín-
útur.
Hleypið maukið eftir leiðbeining-
um á sultuhleypi. Sjóðið og fleytiö
froðu burt. Hellið í heitar, sótt-
hreinsaðar krukkur og lokið vel.
Geymiö á köldum og dimmum stað.
Matreiðslubók
þessi er gefin út
í tilefni af
35 ára afmæli
Osta- og
smjörsölunnar sf.
í þessa bók höfum við
valið úrval uppskrifta,
sem hafa verið marg-
reyndar í tilraunaeldhúsi
Osta- og smjörsölunnar.
Það er von okkar,
að sem flestir geti fundið
eitthvað við sitt hæfi.