Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1993, Side 15
MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1993
31
dv Maturogkökur
Hvitlauksostahræra er góð með bakaðri kartöflu.
Matreiðslubók:
Ostalyst 2
Á þrjátíu ára afmæli Osta- og
smjörsölunnar árið 1988 var gefin út
matreiðslubókin Ostalyst. Það
reyndist gífurlega vinsæl bók og hef-
ur hún selst í yfir 25 þúsund eintök-
um. Því var ákveðið að minnast 35
ára afmæhs Osta- og smjörsölunnar
með útgáfu bókarinnar Ostalyst 2.
Sem fyrr er það Dómhildur Sigfús-
dóttir hússtjómarkennari sem hefur
veg og vanda af útgáfu bókarinnar.
Allt hráefni er fáanlegt hér á landi
og hafa uppskriftirnar verið marg-
reyndar í tilraunaeldhúsi Osta- og
smjörsölunnar.
Guðmundur Ingólfsson í ímynd
hefur tekið allar ljósmyndir í bókina
en uppsetningu annaðist Auglýs-
ingastofan Örkin. Uppsetning og
myndir eru mjög glæsilegar.
Bókin skiptist í kafla um soð, sósur
og sultur, súpur, pasta, salöt, forrétti
og smárétti, fisk, meðlæti, kjöt,
ábæti, skreytingar og pinnamat. Að
lokum er kafli með hagnýtum upp-
lýsingum.
Með leyfi frá Osta- og smjörsölunni
birtast hér nokkrar uppskriftir úr
þessari nýju bók.
Hvítlauksostahræra
250 g fetaostur, muhnn
'A bolli majonsósa
1 hvítlauksgeiri, pressaður
14 tsk. maijoram
% tsk. dill
'4 tsk. basil
14 tsk. timían
375 g rjómaostur
Setjið allt í blandara þar til hræran
er létt og samfelld. Setjið í skál og
kælið í a.m.k. 2 klst. Geymist í kæli
í viku. Berið fram með kexi eða
sprautið í toppa á kex. Berið fram
með bökuðum kartöflum. Hægt er
að þynna hræruna og bera fram sem
ídýfu.
Lambahryggur
Provencale
Fyrir sex
Lambahryggur sagaður eftir endi-
löngu. Áætiið 2-3 rif á mann. Látið
saga hryggjarbeinið á milli rifjanna.
salt og nýmalaður pipar
Perur Belle Helene.
Lambahryggur Provencale.
14 bolli ókrydduð brauðmylsna
4-5 msk. steinselja
1 laukiu-, saxaður
2 hvítiauksrif, söxuð
100 g smjör-
Hitið ofninn í 200°. Nuddið salti og
pipar á kjötið. Bindið kjötið upp á 2-3
stöðum þvert yfir ef þarf. Setjið kjöt-
ið í ofnskúffu og steikið í 30 mín.
Penslið yfir kjötið með fitunni í
skúffunni eða með smjöri 2-3 sinnum
meðan á steikingu stendur. Blandið
saman steinsefju, brauðmylsnu, lauk
og hvítiauk og blandið í brætt smjör-
ið. Takið kjötið út úr ofninum. Takið
böndin af kjötinu. Þrýstið fylling-
unni á kjötið, ef þarf má bleyta fyll-
inguna örlítið meö fitu úr skúffunni.
Steikið kjötið áfram í 10-15 mín. Lát-
ið kjötið standa í 10 mínútur áöur en
það er skoriö í sneiðar á milli rifj-
anna. Skeriö varlega svo aö fyllingin
detti ekki af. Berið fram með soðnum
kartöflum.
Perur Belle Helene
Fyrir sex
14 bolli sykur
2 boUar vatn
rifið hýði og saft úr 1 sítrónu
2 vanillustangir
6 perur, vel þroskaðar
Sósa:
120 g suðusúkkulaði
14 bolli rjómi
2 msk. smjör
1 msk. romm
Afhýöið þerumar en látið stöngul-
inn vera eftir. Penslið sítrónusafa
yfir perumar. Raðið þeim í pott. Lát-
ið þær standa. Hitið vatn og sykur í
öðram potti þar til sykurinn hefur
leyst upp. Bætið sítrónuhýði og van-
illustöng út í. Sjóðið í 5 mín. Hellið
vökvanum yfir perarnar, bætið
meiri vökva í ef þarf til að fljóti yfir
perurnar. Látið krauma við vægan
hita í 10-15 mínútur. Dragið úr hitan-
um. Látiö perumar standa í sírópinu
þar til þær era volgar. Látið leka vel
af þeim. Kælið.
Sósa: Hitið saman súkkulaði,
rjóma og sipjör þar til það er bráðið.
Bragðbætiö með rommi eða öðra
víni. Setjið peru (og ís ef vill) á disk
og hellið volgri sósunni yfir perum-
ar. Berið strax fram.
FJALLALAMB HF.
Símar 96-52140 og 96-52163, Kópaskeri
Hólsfjallahangikjöt
Ósvikið íslenskt bragð
íslenskur Hagfiskur býður þér
í sannkaUaða sjávarréttaveislu
um hátíðamar.
Pakki 1.
2 kg. úthafsrækja (stór)
1 kg. humar
1,5 kg. hörpudiskur
Rétt verð 5.285,-.
Hátíðarverð 4.125,--
Pakki 2.
4 kg. úthafsrækja (stór)
2 kg. humar
2 kg. hörpudiskur
Rétt verð 9250,-.
Hátíðarverð 7.290,-.
Ath. hægt er að breyta pökkunum að vild.
Pökkum í frostheldar umbúðir og komum í flug útum heim og hvert á land sem er.
Ekki má gleyma Þorláksmessuskötunni og saltfisknum.
Pantið tímanlega
Sími 677040
ÍSLENSKUR
HAGFISKUR
E) - hagur heimilanna
VISA
Vesturþýskar alvöruhrærivelar
á br®sandi verði! 21.590,- stgr.
RflUL
Lokuð skál -
engar slettur
Hræra - þeyta - hnoða - mixa - sjeika -
mauka - mylja - hakka - móta - mala - rífa -
sneiða - skilja - pressa - og fara létt með þaðí
Qóð kjör!
iFanix
^Hátúni 6a - Sími 24420
Raftækjaúrval
Hæg bílastæði!