Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1993, Side 9
MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1993
25
Matur og kökur
-ómissandi í jólaundirbúningniim
Smákökubakstur fyrir jól er ein af
þessum hefðum sem seint verða
aflagðar. Það er misjafnt hvað hver
og einn leggur upp úr smáköku-
bakstrinum, sumir baka þrettán
sortir, aðrir þrjár eöa allt þar á
milli. Hér eru nokkrar uppskriftir
að klassískum smákökum sem
gengið hafa mann fram af manni.
Kanilstjömur
200 g flórsykur
300 g möndlur
2 eggjahvítm-
'A msk. sítrónusafi
1 msk. kanfil
Stífþeytið eggjahvítumar, setjið
þá flórsykurinn saman við og
hrærið áfram í 10 mínútur. Setjið
möndlur, kanil og sítrónusafa sam-
an við. Látið deigið standa og að-
eins þoma. Fletjið deigið út og haf-
ið það 1 cm þkkt. Mótið stjörnur
og látið þær þorna yfir nótt. Bakið
við 150° í ca 12 mínútur. Þekið með
glassúr, ef vill.
Súkkulaði-
makkarónur
200 g sykur
200 g hakkaðar heslihnétur
3 kúfaðar matskeiðar kakómalt
4 eggjahvítur
50 g sykur
Blandið saman 200 g af sykri,
heslihnetum og súkkulaðidufti.
Blandið eggjahvítunum saman við,
einni í einu og hnoðið. Setjið að
lokum 50 g af sykri saman við rétt
áður en kökurnar bakast. Mótið
toppa með teskeiðum. Bakið við
180° í 15-0 mínútur.
Bökunarpappír
nauðsynlegur
Bökunarpappír er nauðsynlegur
þegar verið er að baka smákökur.
Þá þarf ekki að þvo plötumar á
milli og smyrja. Þeir sem eiga blást-
ursofn þurfa ekki að eiga nema 2-
plötur (steikargrindina má líka
nota ef bökunarpappír er notaður)
því meðan einn skammturinn er
að bakast má raða á bökunarpapp-
ír, jafnstóran plötunum. Takið þá
pappírinn með bökuðu kökunum
af plötunni og setjið pappír með
óbökuðum kökum á og inn í ofn.
Þá er hægt að fara í það að taka
bökuðu kökurnar af. Pappírinn
endist í nokkur skipti svo það er
óþarfi að bmðla með hann.
Hnoðað og flatt
Það er töluvert erfitt og reynir á
axlir að hnoða í margar sortir.
Fljótlegast er að nota nógu stóran
bala eða fat til að hnoða í. Þá er
borðiö hreint og minni hætta á að
hveiti eða sykur sáldrist um öll
gólf. Setjið fatið svo á lægra borð
en venjulegt vinnuborð og hnoðið
af krafti. Langbest er að hnoða í
allar sortimar á einu kvöldi, setja
deigið í plast og geyma í kæli til
næsta dags. Þá fer sá dagur bara í
baksturinn.
Kókoshringir
250 g hveiti
250 g smjör
250 g kókosmjöl
250 g sykur
1 egg
Hrærið öllui efninu saman. Mótið
hringi, t.d. í hakkavél. Bakið í miðj-
um ofni þar til kökumar em ljós-
brúnar.
Smákökur með
hnetum
og súkkulaói
190 g smjörlíki
170 g sykur
170 g púðursykur
2 egg
340 g hveiti
1 tsk. salt
1 tsk. sódaduft
1 bolli valhnetukjarnar
l'Á bolli súkkulaðibitar
Hrærið öllu nema valhnetum og
súkkulaði vandlega saman. Bland-
ið svo valhnetukjömunum og
súkkulaðinu saman við deigið.
Smyrjið ofnplötuna með smjörlíki
og setjiö deigð á plöfima með te-
skeið. Bakið í 6-10 mínútur við
185°C.
Heslihnetukökur
1 dl hakkaðar heslihnetur
Vá tsk. vanillusykur
100 g hveiti
100 g smjör eða smjörlíki
heilar heslihnetur til skrauts
Blandið öllu saman nema heilu
heslihnetunum. Hnoðið vel, mótið
litlar kúlur og þrýstið létt á hverja
og stingið að lokum heilli hnetu
ofan á. Bakið við 150-175° í ca 10
mínútur.
Þegar á að baka glæsilega tertu til hátíðar-
brigða, búa til smákökur fýrir jólin eða töfra
fram dýrlegan eftirrétt á jólaborðið er Síríus
Konsúm suðusúkkulaði ómissandi.
I uppskriftabæklingum Nóa Síríus,
„Bragðsnilld" og „Hafa skal það sem betur
bragðast", eru margar leiðir að gleðilegri hátíð.
Gleðilegjól.
iraai
SaÁ.sti
iirinn
Merkið tryggir
Sfrfn* •r-j*1
^ "f Pr. ~ O
V A