Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1993, Side 12
28
MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1993
Matur og kökur
Matreiðslubók:
Stóra kínverska
matreiðslubókin
Skjaldborg gefur út fyrir þessi jól
Stóru kínversku matreiðslubókina.
Bókin er erlend að uppruna, þýdd
af Friöjóni Ámasyni og að hluta til
unnin hér á landi. Setning og um-
brot ér í höndum forlagsins og
Prentmet sér um filmugerð. Bókin
er prentuð og innbundin í Singa-
pore.
Bókin er sannarlega stór því hún
er 304 blaðsíður. Efni hennar skipt-
ist í nokkra kafla; Súpur, Smáréttir
og forréttir, Fiskur og sjávarréttir,
Fuglaréttir, Meðlæti, Örbylgjurétt-
ir, Ábætisréttir og Orðskýringar.
Hver uppskrift tekur yfir opnu,
upptalning er öðrum megin og stór
htmynd til hliðar. Kínversk mat-
reiðsla á auknum vinsældum að
fagna hérlendis sem annars staðar.
Bókin býður upp á marga mögu-
leika fyrir áhugafólk í matargerð
sem vill prófa eitthvað nýtt. Upp-
skriftirnar hér á síðunni eru birtar
með leyfi forlagsins.
Gufusoðnar rækjur
fyrir fjóra
Þessi réttur inniheldur ferskar
rækjur með akúrkuhýði og er bor-
inn fram með sjávarréttasósu.
1 msk. fisksósa
1 msk. vatn
1 msk. vínedik
1 msk. sojasósa
2 tsk. sykur
10 smátt söxuð fersk myntulauf
1 saxaður skalotlaukur
salt og pipar
12 ferskar rækjur (nota þarf fleiri
ef þær eru smáar)
hýði af 1 lítilli agúrku, skorið í
lengjur
Blandið saman fisksósu, vatni,
vínediki, sojasósu, sykri, myntu,
skalotlauk og salti og pipar eftir
smekk. Hrærið vel saman og látið
standa í a.m.k. klukkustund.
Kryddið rækjumar með salti og
pipar rétt áður en borið er fram.
Vefjið agúrkuhýðinu utan um
rækjumar og sjóðið þær yfir gufu
í 5 mínútur.
Berið rækjumar fram sjóðandi
heitar með sósunni sem fyrst var
gerð.
Ábending: Ef akúrkuhýðið er ekki
nógu þjált í meðfómm er gott að
setja það í sjóðandi vatn í 3-5 sek-
úndur. Sósuna má gera rétt áður
en rétturinn er borinn fram en hún
verður mun bragðbetri ef hún er
látin standa um tíma áður.
Stökksteikt önd
Fyrir 4-6
Þessi réttur er hæfilegur sem aö-
alréttur fyrir fjóra eða sem forrétt-
ur fyrir sex manns.
2 kg kjöt af önd (eða gæs), tilbúið
til matreiöslu
4 msk. maltsykur eða síróp
2,5 dl vatn
12 vorlaukar, skornir í 5 cm ræmur
'h tsk. rauður matarlitur
2 msk. tómatmauk
ídýfa:
100 g sykur
4 msk. sætt baunamauk
2 msk. sesamolía
1 dl vatn
Þvoið öndina vel og þerrið með
hreinum klút. Losið skinnið frá
kjötinu með því að þræða fingurna
á milli frá hálsi og aftur eftir fuglin-
um. Þræðið pijón eða steikartein
gegnum fuglinn til að auðveldara
sé að halda á honum. Haldið önd-
inni yfir vaskinum og hellið sjóð-
Bananahálfmáni.
Stökksteikt önd.
andi heitu vatni yfir hann og þerrið
hann síðan með klút.
Leysið helming maltsykursins
upp í vatni. Látið öndina liggja á
grind yfir ofnskúffu og heliið syk-
urleginum varlega yfir allan fugl-
inn. Endurtakið þetta 3-4 sinnum.
Látið öndina síðan standa á köld-
um stað í 6-8 klukkustundir eða
yfir nótt þar til skinnið er orðið
þurrt.
Fjarlægið prjóninn og setjið önd-
ina á ofngrind. Hitið steikarofn í
200 gráður á Celsíus og steikið önd-
ina í 30 mínútur. Veltið henni við
á grindinni og steikiö á hinni hlið-
inni í 30 mínútur til viðbótar.
Leysið upp það sem eftir er af
maltsykrinum ásamt tómatmauk-
inu og bætið matarlitnum út í. Hell-
iö blöndunni yfir öndina og steikið
í 30 mínútur til viðbótar. Nú ætti
öndin að hafa fengið stökka rauð-
leita skorpu.
Hitið kínapönnu (wok) og setjið
hráefnið í ídýfuna á hana. Sjóðið í
3-4 mínútur þangað til allur sykur-
inn er uppleystur og vökvinn er
jafn. Berið fram í litlum skálum
með öndinni.
Takið skinnið af öndinni í hlut-
um. Skerið kjötið í sneiðar og gefið
skinnið með.
Banánahálfmáni
Þessi ábætisréttur er nokkuð
þurr og er gjaman borinn fram
með tei.
Deig:
100 g smjörlíki
450 g sigtað hveiti
salt á hnífsoddi
1,4 dl vatn
Fylling:
3 bananar
2 tsk. sykur
kanill á hnífsoddi
nokkrir dropar sítrónusafi
1 þeytt eggjarauða
Hnoðið saman smjörlíki, hveiti
og salti. Blandið vatninu smám
saman út í deigið og hnoðið vel um
leið. Leggið rakan klút yfir deigið
og látið það standa á köldum stað
í 30 mínútur.
Takið banana úr hýðinu og merj-
ið þá með gaffli. Bætið sykri, kaníl
og sítrónusafa saman við banana-
maukið og blandið vel saman.
Stráið hveiti á borðplötu, fletjið
deigið út og skerið út í litla hringi.
Skammtið bananfyllinguna á deig-
kringlumar og brjótið þær í hálf-
mána. Lokið brúnunum vel með
gaffli.
Penslið hálfmánana með þeyttri
eggjarauðu og gatið yfirborð þeirra
með gaffli. Bakið í ofni við 180 gráð-
ur á Celsíus í 20 mínútur þar til
hálfmánamir em orðnir ljósbrúnir
að ofan.
Gufusoðnar rækjur.