Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1993, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1993, Side 6
6 MÁNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1993 Fréttir DV Nýr kjarasamningur borgarstarfsmanna imdirritaður 1 gær: Erum þokkalega ánægð með niðurstöðuna - segir Sjöfn Ingólfsdottir, formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar „Efnislega er þessi samningur eins og þeir kjarasamningar sem geröir hafa veriö í þjóöfélaginu. Auðvitaö hefðum við viljað ríða feitari hesti frá viðræðunum en um það var ekki að ræða. Við erum þokkalega ánægð með niðurstöðuna og munum beita okkur fyrir því að samningurinn verði samþykktur í félaginu," segir Sjöfn Ingólfsdóttir, formaður Starfs- mannafélags Reykjavíkurborgar. Starfsmannafélag Reykjavíkur- borgar gekk í gær frá kjarasamningi við samninganefnd borgarinnar. Samkvæmt samningnum eru á þriðja þúsund starfsmönnum Reykjavíkurborgar tryggðar launa- uppbætur í desember og júlí og lág- launabætur eins og á almenna vinnumarkaöinum. Akvæði er um að samningsaðilar meti forsendur samningsins í maí. Samningurinn gildir út næsta ár verði hann sam- þykktur í atkvæðagreiðslu í byrjun desember. Sjöfn segir að í viðræðunum hafi gefist tækifæri til að ræða ýmis mál sem snerta starfsmenn Reykjavíkur- borgar sérstaklega þó samningurinn kveði ekki á um þau mál. Undanfam- ir kjarasamningar hafi verið gerðir í stóru samfloti við önnur félög án beinna viðræðna við yfirmenn borg- arinnar. „Þessar viðræður voru okkur mjög mikils viröi. Þama áttum við mögu- leika á aö ræða okkar innri mál. Við erum mjög ánægö með þessar beinu viðræður,“ segir Sjöfn. -kaa Starfsmannafélag ríkisstofnana: Kjarasamningur undnitaður Borgarstarfsmenn undirrituðu i gær nýjan kjarasamning við Reykjavíkurborg. Undirritunin fór fram í Ráðhúsinu en atkvæðagreiðsla um samninginn verður í byrjun desember. A myndinni sitja við samningaborðið þau Jón G. Kristjánsson, starfsmannastjóri Reykjavíkurborgar, Gunnar Eydal, skrifstofustjóri Reykjavíkurborgar, Sjöfn Ing- ótfsdóttir, formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og Ása Clausen, ritari félagsins. DV-mynd JAK Rlkisstjómin lýsir yfir vilja til samstarfs við BSRB: Skapaði jarðveg fyrir gerð kjarasamninga - segir Ögmundur Jónasson, formaður BSRB „Þetta er mjög mikilvæg yfirlýsing af hálfu ríkisstjórnarinnar og ég hef ekki nokkra ástæðu til annars en að taka hana alvarlega. Yfirlýsingin er ekki bara mikilvæg fyrir okkur sem vinnum hjá því opinbera heldur fyrir alla þá sem njóta opinberrar þjón- ustu. Þetta er loforð um breytt vinnu- brögö þar sem samstarf komi í stað tilskipana. Ég lít svo á að með þessu hafi skapast jarðvegur til að ganga frá nýjum kjarasamningum," segir Ögmundur Jónasson, formaður BSRB. Friðrik Sophusson fjármálaráð- herra sendi í gærfrá sér yfirlýsingu fyrir hönd ríkisstjómarinnar um bætt samskipti við BSRB. Yfirlýsing- in er árangur viðræðna milh forystu BSRB og ríkisstjómarinnar sem efnt var til eftir bandalagsráðstefnu BSRB þann 20 nóvember síðastlið- inn. Búist er við að á grundvelli þess- arar yfirlýsingar muni öll aðildarfé- lög BSRB ganga frá gerð kjarasamn- inga við ríki og sveitarfélög. I yfirlýsingunni er tekið undir þá skoöun BSRB að mikilvægt sé að samráö sé haft um þær breytingar og nýskipan í ríkisrekstri sem stjóm- völd ákveða, til dæmis varðandi einkavæðingu. Fram kemur að fjár- málaráðherra er reiðubúinn að koma á fót sérstökum samráðsvett- vangi fjármálaráðuneytis og opin- berra starfsmanna. I yfirlýsingunni segir meðal armars að fjármálaráöuneytið stefni aö því að leggja fram frumvarp um starf- semi lífeyrissjóða á yfirstandandi þingi. Að auki sé stefnt aö frekari breytingum á lögum um Láfeyrissjóð starfsmanna ríkisins og aöra opin- bera sjóði. Því er lýst yfir að fjár- málaráðuneytið sé reiðubúið til þess að taka upp samvinnu og samráð við BSRB og önnur hagsmunasamtök opinberra starfsmanna og við sveit- arfélög um þessi mál. Ennfremur lýsir fjármálaráðherra yfir vilja til samstarfs um hert skattaeftirlit og fleiri mál sem ekki tengjast beint kja- rasamningum. -kaa Veðrið á landinu næstu daga „Það eru alls konar lægðir að koma. Á morgun erum við í lægð- armiðju og það er svona sunnan- og suðvestanátt og líklega skúrir og slydduél vestanlands en meira og minna úrkomulaust annars staðar á landinu. Lægðin verður ennþá yfir Vestfjörðunum á miðvikudag og þá verður nokkuö ákveðin suðvestan- og vestanátt viö suðurströndina og norðaustanátt norðanlands og vest- an,“ segir Gunnar Hvammdal, veð- urfræðingur hjá Veðurstofunni, um veðrið næstu daga. -GRS „Launakjör fólks í dag eru of lág og þessi samningur gerir mig ekki glaða. Það var hins vegar ekki um annað að ræða en skrifa undir," sagði Sigríður Kristinsdóttir, formaður Starfsmannafélags ríkisstofnana, í gærkvöldi eftir að hafa skrifað undir nýjan kjarasamning við ríkið. Samningaviðræðumar stóðu yfir í allan gærdag í húsakynnum ríkis- sáttasemjara og lauk ekki fyrr en seint í gærkvöldi. Samningurinn tryggir um 4.700 félagsmönnum starfsmannafélagsins samsvarandi launabætur og samið var um á al- menna vinnumarkaðinum. Allsherj- aratkvæðagreiðsla fer fram innan félagsins um samninginn í byrjun næsta mánaðar. Að sögn Sigríðar liðkaði yfirlýsing fjármálaráðherra um samráð við BSRB fyrir gerð samningsins. Við undirritun samningsins lét hún bóka að Starfsmannafélag ríkisins væri reiðubúið að endurskoða kjarasamn- inginn með það fyrir augum að tryggja láglaunafólki kjarabætur með öðrum hætti en lækkun viröis- aukaskatts á matvæh. -kaa Kratar á Suöumesjum: Byggðastof nun gagn> rýnd harkalega Úttekt Byggðastofnunar á ástandi atvinnumála á Vestfjörðum sætti harðri gagnrýni á haustfundi Sambands alþýðuflokksfélaga sem haldinn var um helgina. Fundar- menn lýstu furðu sinni á þeirri ósk Byggðastofnunar að ríkissjóður legöi hundruö mhljóna króna í óafturkræfan styrk tíl Vestfjarða. í ályktun fundarins er þess krafist að fram fari trúverðug og hlutlaus úttekt á ástandi atvinnuhfsins á landinu öllu áður en ríkisstjórnin hefst annað að í málinu. Á fundinum var bent á að Vest- firðingar hafi átt því láni aö fagna að hafa haft fuha atvinnu á undanf- örnum áratugum. Hvergi sé at- vinnuleysið minna og ráða hafi þurft fjölda útlendinga Ul starfa þar. Á Suðumesjum sé hins vegar 3,4 prósenta atvinnuleysi. Hlutverk Byggðastofnunar sé aö gæta hags- muna þjóðarinnar ahrar en ekki hths brots hennar. „Undanfarin ár hefur stór hluti ráðstöfunarflár Byggðastofnunar gengið th atvinnulífsins á Vest- flörðum og ljóst er að atvinnuvandi Vestfirðinga, jafnt og annarra, verður ekki eingöngu leystur með fiárframlögum úr opinberum sjóð- um,“ segir meðal annars í ályktun fundarins. -kaa Foreldrasamtökln: Gróft ofbeldi fer vaxandi „Það var ansi margt sem kom út úr þessari ráðstefnu. Menn voru al- veg sammála um það að ofbeldi og sértaklega gróft ofbeldi heföi farið vaxandi. Það er kannski erfitt að finna sambærhega mæhngar en það virðist vera að það sé síst minna hér en í nágrannalöndunum," segir Ei- ríkur Ingólfsson, formaöur Foreldra- samtakanna, en um helgina héldu samtökin ásamt Heimdalh og Æsku- lýðssambandi kirkjunnar í Reykja- víkurprófastsdæmum ráðstefnu um ofbeldi í íslensku þjóðfélagi. „Ýmsar skýringar eru á því og eina af þeim telja menn vera fiölmiðla. Svo er líka það að almennur agi virðing fyrir reglum sé ekki nó mikh: Þá er t.d. talaö um það að 7E af öhum þessum alvarlegu hkan meiðingum verða eftir miðnætti þá eiga nú þessir krakkar að ve komnir heim,“ segir Eiríkur og bæ við að ef virðing væri borin fyi þessum reglum væri kannski ha að afstýra mjög miklu af þessu. Hai sagöi ennfremur að enginn einn að gætí tekið sig th og unnið í málii heldur þyrftí að samræma starf fii margra aðha. -GRS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.