Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1993, Qupperneq 21
MÁNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1993
29
Menning
Atriði úr kvikmyndinni „Ungu Ameríkanarnir", i aðalhlutverkinu er Harvey Keitel sem hér sést í miðið.
Háskólabíó: Ungu Amerlkanamir: ★ ★ 1/2
Leikur við dauðann
Ástand breska kvikmyndaiönaðar-
ins hefur ekki verið sem best undanf-
arin ár. Eyjarskeggjar hafa alveg
snúið baki við eigin framleiðslu, sem
skiptist nánast eingöngu í tvær fylk-
ingar: sjónvarpsframleiddar myndir
frá raunsæismönnum eins og Ken
Loach, Mike Leigh og Terence Davies
eða myndir sem hreinlega eru hann-
aðar fyrir bandaríska listbíómarkað-
inn og óskarskapphlaupið (Merc-
hant-Ivory, Kenneth Brannagh).
Ný kynslóð ungra kvikmyndagerð-
armanna sker sig úr fyrmefndum
flokkum og freistar þess við þröngan
kost að framleiða myndir sem höfða
til meðal-áhorfandans, þess sem
gleypir í sig Hollywoodmyndir.
The Young Americans er ein af
þessum nýju myndum. Hún er svar
leikstjórans og handritshöfundarins
Danny Cannon við New Jack City,
smart glæpamynd með samfélags-
legu ívafi.
Harvey Keitel leikur ameríska
dóplöggu sem kemur til London til
aðstoðar við heimamenn sem skilja
ekkert í morðhrynu sem beinist að
gömlum ráðsettum glæpamönnum
borgarinnar. Keitel er fljótur að
tengja þetta samlanda sínum Frazer
(Viggo Mortensen), dópsala sem hef-
ur hrakist úr landi í leit að fengsælli
miðum. Ungir, fátækir og áhrifa-
gjarnir stórborgartáningar eru sem
leir í höndum Frazer sem notar þá
til að fremja voðaverkin meðan hann
Kvikmyndir
Gísli Einarsson
kemur sér fyrir í neðanjarðarhag-
kerfinu. Keitel beitir sömu brögðum
og ertir sér til aðstoöar ungan bar-
þjón (Craig Kelly), fyrst með því að
höfða til samvisku hans, seinna til
óæðri og sterkari tilfinninga.
Cannon getur verið ánægður með
frumburðinn, en það vantar dálítið
upp á að myndin verði eins marg-
þætt og alvörugefin glæpamynd eins
og hann ætlar sér. Myndin er einfald-
lega ofhlaðin efni. Cannon tekur fyr-
ir kyrislóðarbil breska glæpaheims-
ins, hvemig ástand hans er spegil-
mynd þess bandaríska, bara nokkr-
um árum á eftir og hve ólík löggæslu-
kerfi þeirra em. Það er líka heilmik-
il saga á bak við barþjóninn, kærustu
hans og fjölskyldu, Keitel á að baki
brostið hjónaband o.fl. o.fl. Mikið af
þessu efni er athyglisvert en myndin
líður fyrir það að Cannon getur ekki
tvinnað saman alla þætti svo gott
þyki. Jafnvel færustu handritshöf-
undar hefðu ekki verið öfundsverðir
að þurfa sjóða þetta allt saman í 100
mínútna pakka.
Leikhópurinn er upp til hópa yfir
meðallagi. Keitel er traustur en lát-
laus og það er nýliðinn Kelly sem
Þýskur Ijóðasongur
Tónleikar og ljóðalestur voru í Listasafni Siguijóns Ólafssonar í gær,
haldnir á vegum félagsins Germaníu og Goethes Institutes. Lesin voru
og sungin þýsk og íslensk ljóð. Amar Jónsson, leikari, sá um ljóðalestur.
Elsa Waage, alt, og Tómas Tómasson, bassi, sungu við undirleik Davíðs
Knowles, píanóleikara. Flutt vora ljóð eftir Johann Wolfgang von Goet-
he, Friedrich Schiller, Heinrich Heine, Bertolt Brecht, og ljóðaþýðingar
eftir Jón Helgason,. Helga Hálfdanarson, Magnús Ásgeirsson, Matthías
Jochumsson, Jónas Hallgrímsson, Steingrím Thorsteinsson, Benedikt
Gröndal, Hannes Hafstein, Halldór Laxness, Böðvar Guðmundsson og
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
Þorstein frá Hamri. Lög vom flutt eftir Johann Sebastian Bach, Franz
Schubert, Carl Friedrich Zelter, Robert Schumann og Kurt Weill.
Fyrirkomulag á þessum tónleikum var að Arnar Jónsson las íslenska
þýðingu ljóös sem síöan var sungið á þýsku. Þarna vom flutt ýmis kunn-
ustu ljóð hinna mestu skáldjöfra á þýska tungu og sungin við tónlist
þýskra tónskálda sem ekki finnst samjöfnuður við. Ljóðasöngur stendur
hvergi eins djúpum rótum og í Þýskalandi. Þótt hvert ljóð og lag á þessum
tónleikum sé alþjóðlega virt og elskað gullkorn hefði mátt vinna margar
slíkar dagskrár með þýsku efni jafngóðar. Það var hins vegar gaman að
sjá hve ágætar flestar íslensku þýðingarnar vom og hve sambærilegar
þær virtust vera um stíl og andagift við frumljóðin.
Kvæðalestur Amars Jónssonar var skemmtilega lífrænn en um leið
hófsamur og komst þar allt vel til skila. Mörgum lék forvitni á að heyra
í hinum unga og upprennandi bassasöngvara Tómasi Tómassynl sem
miklar vonir em bundnar við. Tómas brást þeim í engu og söng eins og
engill. Meðal þeirra laga þar sem Tómas fór mjög á kostum má nefna
Álfakónginn og Tvífarann eftir Schubert. Það má mikið vera ef þessi
ungi maður á ekki eftir aö gera garöinn frægan fyrr eða síðar. Elsa Waage
átti einnig mjög góðan dag á þessum tónleikum. Söngur hennar var mjög
vandaður og þrunginn tilfinningalegri hlýju. Kom það m.a. vel fram í
lögum Weills við Ijóð Brechts í lok tónleikanna. Píanóleikur Knowles var
yfirleitt góður en þó hefði hann mátt hafa meira vald í Álfakónginum og
í lögum Weills. Húsfyllir var á tónleikunum og undirtektir áheyrenda
góðar.
vekur mesta eftirtekt sem leynivopn
Keitel. Rafmagnað samband þeirra
hefði átt að vera þungamiðja mynd-
arinnar.
Tæknilega séö er Cannon með allt
á tæm og meira en það og ég er viss
um að Hollywood sé þegar farin aö
banka upp á hjá honum.
The Young Americans (Bresk - 1993) 103
min.
Handrit: Danny Cannon, David Hilton.
Leikstjórn: Cannon.
Leikarar: Harvey Keitel, lan Gien (Mo-
untains of the Moon), John Wood (Lady-
hawke, Wargames), Terence Rigby, Keith
Allen, Craig Kelly, Thandie Newton, Viggo
Mortensen (Indian Runner).
Metamucil
Það er hægðarleikur
... að koma meltingunni í
lag með þeim náttúrulegu
efnum sem eru í
„Metamucil“.
Sérfræðingar mæla með
Metamucil freyðidufti,
í skammtabréfum,
sem leysist upp í vatni
eða ávaxtasafa.
Fæst í öllum apótekum.
ff 1 LYF HF.
Fyrirtæki og félagasamtök
í Reykjavík
Styrkir
tU nýrra viðfangsefna
Atvinnumálancfnd Reykjavíkur
lýsir hér meö eftir hugmyndum
um ný viðfangscfni fyrirtækja og
félagasamtaka í borginni
með vísan til reglna nr. 31/1993
um úthlutun styrkja
úr Atvinnuleysistryggingasjóði.
Til að verkefnið teljist styrkhæft þarf
það að vera:
Skýrt afmarkað og tímabundið
(ekki til lengri tíma en 6 mánaða)
Nýtt viðfangsefni
Unnið af fólki af atvinnuleysisskrá
í Reykjavík. Þeir sem lengst hafa
verið á atvinnuleysisskrá hafa
forgang að starfi við verkefnið.
Styrkhæf verkefni yrðu unnin á
vegum umsækjenda en á ábyrgð
Reykjavíkurborgar.
Fjárhæð styrks yrði jafnhá þeim
atvinnuleysisbótum, er ella hefðu
verið greiddar þeim einstaklingum,
sem falla af atvinnuleysisskrá vegna
þátttöku í verkefninu.
Umsóknir skulu sendar borgar-
hagfræðingi, Ráðhúsi Reykjavíkur,
fyrir 7. desember næstkomandi.
Atvinnumálanefnd
Reykjavíkur