Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1993, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1993, Side 22
30 MÁNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1993 Sviðsljós I hringiðu helgarinnar Gyöa Björk Hilmarsdóttir, tor- stöðumaöur félags-, upplýsinga- og menningamiðstöðvar nýbúa, er hér ásamt þeim Sylviu Rut Putt- ha, Sarukarn Janthasen og Sonjai Sirimekha sem dönsuðu taílenska dansa fyrir þá sem sóttu Loykra- tong hátíðina á laugardagskvöld. Lára Margrét Ragnarsdóttir for- maður Íslensk-ameríska félagsins er hér ásamt nýju sendiherrahjón- um Bandaríkjanna á íslandi, Park- er Borg og konu hans önnu Borg, en fyrsta opinbera verkefni þeirra var að vera gestgjafar á þakkar- gjörðarmáltíð í Perlunni á föstu- dag. Oddur Þorri Viðarsson, 7 ára, var með mömmu sinni, Ingu Láru Birgisdóttur, á Bókmenntavöku Rithöfundasambands íslands í Ráðhúsinu á föstudagskvöld. Þeg- ar að umfjöllun um barnabækur lauk og fullorðinsbækurnar tóku við, sneri Oddur sér að því að lesa Oliver Twist. Borghildur Sverrisdóttir stóð uppi sem íslandsmeistari í karaoke þegar úrslitakeppnin fór fram á föstudag. Hún bræddi hjörtu dóm- nefndarinnar með laginu Somew- here out there úr teiknimyndinni An American Tail. í verðlaun fékk hún hundrað þúsund krónur og 10 tíma í hljóðveri. Ásta Guðrún Sigurðardóttir er hér ásamt manni sinum Árna ísaks- syni veiðimálastjóra sem átti fimmtugsafmæli á föstudag. Þau hjónin héldu upp á það ásamt stór- um hópi vina og ættingja. | Séra Guðmundur Óskar Ólafsson átti sextugsafmæli á fimmtudag. Hann er hér ásamt fjölskyldunni, Páli Vilhjálmssyni, Guðmundi Óskari Pálssyni, konu sinni Ingi- björgu Hannesdóttur og dóttur Guðbjörgu R. Guðmundsdóttur. Fjölskylda Garðars Cortes var ekki langt undan þegar hann hélt sína fyrstu Ijóðatónleika í nærri tíu ár í Gerðubergi um helgina. Frá vinstri Garðar Thór Cortes, unn- usta hans Bylgja Hrönn Björns- dóttir og Nanna María Cortes. Jón Magnússon og ísak Sigur- geirsson hittust í fimmtugsafmæli sonar ísaks, Áma veiðimálastjóra á föstudag. Krakkarnir í Hjallaskóla í Kópavogi voru orðin svolítið þreyttir þegar DV kom til þeirra á laugardag enda voru þeir þá búnir að vera að læra i 30 tíma. Námsmaraþonið héldu þeir til að safna sér fyrir utanlandsferð til Danmerkur næsta vor og um leið undirbjuggu þeir sig betur undir jólaprófin sem eru á næstunni. Rita Bach og stöllur hennar í Ullarselinu á Hvanneyri spunnu ull og sýndu íslenskt handverk í Kringlunni um helgina. Rokkurinn vakti mikla athygli vegfarenda enda ekki margar konur sem kunna að spinna í dag. Steingerður Daníelsdóttir, Ingveld- ur Sævarsdóttir, Valgerður Ás- mundsdóttir og Júlíana Tryggva- dóttir starfa allar í bókaverslunum og voru að kynna sér jólabókaút- gáfu Máls og menningar á föstu- dagskvöld. Nú eru flestir farnir að telja dagana til jóla og hafinn er mikill annatimi hjá verslunarfólki og þá ekki sist starfsfólki bóka- verslana. A Loykratong hátíðinni, sem hald- in var í miðstöð nýbúa á laugar- dagskvöld, voru að sjálfsögðu dansaðir taílenskir dansar sem eru mjög ólíkir íslensku þjóðdöns- unum. Bæði eru búningarnir fín- legri og litríkari en þeir íslensku og hreyfingarnar byggjast miklu meira á fínlegum handahreyfing- um. CGEIIWOINjlÐlUIH VALTÝSSON (GElRMlUlklÐBR EF EINHVER KANN TOKIN A SVEIFLUTÆKNINNI PÁ ER ÞAÐ GEIRMUNDUR OG HANS FUÁLPARKOKKAR GEIRMUNDI TIL AÐSTOÐAR Á ÞESSARI FRÁB/ERU PLÖTU ERU M.A. HELGA MÖLLER. ARI JÓNSSON. GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR. SIGRÚN EVA ÁRMANNSDÓTTIR OG GUÐLAUG ÓLAFSDÓTTIR OHm 'EAGINAESSCOIN CÓMÁR ftMMUR (G'Á'rm'PEF ÁPESSUM DISKI ER SKÖPUÐ STEMNING FJÖLSKYLDUSKEMMTUNAR Á AÐVENTU PAR SEM ÝMSIR GESTIR KOMA FRAM EFTIR ÁRANGURSRÍKA LEIT AÐ GÁTTAPEFI SEM HEFUR VERIÐ TÝNDURí MARARDALí HENGLINUM í 20 ÁR JAPIS BRAUTARHOLTI & K-RINGLUNNI ©IMI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.