Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1993, Blaðsíða 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 30. NÖVEMBER 1993
Utlönd
Þrír öryggisverðir Michaels Jacksons reknir fyrir hnýsni:
Sáu myndir af
berum börnum
- verðimir hafa lýst lifnaðinum hjá Jackson í sjónvarpsviðtali
Stórpopparinn Michael Jackson
hefur rekið fimm öryggisverði úr
þjónustu sinni vegna þess að þeir
gerðust of hnýsnir um einkahagi
hans.
Öryggisverðirnir sögðust í sjón-
varpsviðtali hafa fundið myndir af
berUm börnum í íbúð Jacksons. Þá
sögðu þeir að næturlíf hefði oft verið
fjörugt hjá honum og þá böm verið
viðstödd.
Þessar uppljóstranir koma sér afar
illa fyrir Jackson. Búið er að hafna
kröfu um að máli á hendur honum
fyrir kynferðis-
lega misnotkun
á 13 ára dreng
verði yísað frá.
Verður poppar-
inn að koma
fyrir rétt um
leiö og hann
sleppur úr með-
ferð vegna of-
neyslu verkjalyfja.
Framburður öryggisvarðanna
veikir stöðu Jacksons og þeir hafa
bitið höfuðið af skömminni með því
Michael
son.
Jack-
að kæra hann fyrir ólöglegan brott-
rekstur úr vinnu. Nokkur hiti er því
hlaupinn í mál Jacksons eftir að
hann hvarf sjónum manna og fór í
meðferðina.
Jackson á auk þessa í útistöðum
við myndatökumann sem var í þjón-
ustu hans. Jacksons segir að töku-
maðurinn hafi selt myndir af sér í
leyfileysi og krefst bóta. Lögmaður
Jacksons segir þó að fresta verði öll-
um málarekstri fyrst um sinn vegna
krankleika síns manns til líkama og
sálar. Reuter
Finnski jólasveinninn Heikki Martikainen brá sér til Japans nú fyrir jólin og heilsaöi þar upp á ungan samúræja.
Japanski stríðsmaðurinn hefur nú svipuðu hlutverki að gegna og sveinki. í Japan er að finna marga helstu og
dyggustu aðdáendur hins finnska sveinka. Simamynd Reuter
Nýjar upplýsingar úr dagbók stjömuhórunnar Heidi Fleiss:
Hver nótt hjá dóttur Peters
Sellers kostaði 400 þúsund
„Ég geri ráð fyrir að nafn mitt hafi
átt stóran þátt í hvað ég gat verðlagt
mig hátt,“ ságði Veronica Sellers,
dóttir leikaranna Peters Sellers og
Britt Ekland, í viðtali sem birtist í
Bretlandi um helgina.
Hún hefur nú viðurkennt að hafa
stundað vændi á vegum Heidi Fleiss
í Hollywood og krafist jafnvirði 400
þúsunda íslenskra króna fyrir nótt-
ina. Starfsemin hjá Heidi Fleiss var
stöðvuð fyrr á árinu og vöktu upp-
ljóstranir hennar um vændi í Holly-
wood mikla athygli.
Þá þegar var Veronica Sellers orð-
uð við vændið en bæði hún og Heidi
báru af sér sakir og sögðust aðeins
hafa ieigt íbúð saman. Nú er hins
vegar ljóst af dagbókum Heidi að hún
hafði Veronicu í þjónustu sinni og
seldi hana dýrt. Að sögn voru þaö
einkum ríkir arabar sem hrifust af
Veronica Sellers notaði sér frægð-
ina tll að græða á vændi.
dóttur eins frægasta gamanleikara
kvikmyndasögunnar.
Eftir að vændið hjá Heidi Fleiss
komst í hámæli höfðu menn einkum
hug á að vita hvort frægir karlleikar-
ar í Hollywood hefðu verið meðal
fastra viðskipavina. Langaði því
marga til að vita hvaöa nöfn væru í
svartri minnisbók Heidi. Nú bendir
flest til að hórumamman Heidi hafi
einkum haft fé af auðmönnum sem
vildu njóta einhvers af hinu ljúfa lífi
í Hollywood.
Veronica viðurkenndi berum orð-
um í áðumefndu viðtali að hún hefði
verið vændiskona hjá Heidi Fleiss.
Hún sagði að sig hefði vantað pen-
inga enda hefði hún aðeins fengið
jafnvirði 60 þúsund íslenskra króna
í arf eftir foöur sinn. Þá hefði stjúp-
inn Rod Stewart verið mjög naumur
á fé meöan hann og Britt Ekland
voru í hjónabandi. Veronica hafi því
aðeins haft af frægu nafni að státa
en engum peningum.
GATTveraað
fallaátíma
Edouard
Balladur, for-
sætisráðherra
Frakklands,
segir í viðtali
við bandaríska
blaðið Was-
iúngton Post i
dag að Frakkar
séu n.iðubúnir að gefa eftir í
deilumálunum sem tefja fyrir
nýjum GATT-samningi en tíminn
sé að renna út.
Balladur hvetur stjórn Clintons
Bandaríkjaforseta til að breyta
afstöðu sinni til viöræðnanna tii
að koma til móts viö nýjan sveigj-
anleika Frakka í deilunni um nið-
urgreiðslur landbúnaöarvara.
Franski ráðherrann segir að
samningamenn Bandaríkjanna
og Evrópubandalagsins verði að
ná drögum aö samkomulagi t
þessari viku. Ríkisstjórnir land-
axrna gætu þá farið yfir sam-
komulagið áður en lokafrestur-
inn rennur út 15. desember.
Fátækir Svíar
hafaekkiefniá
nýjumfötum
Nærri gögm* hundruð þúsund
Svíar hafa ekki efni á að kaupa
sér ný föt og verða að gera sér
notuð aö góðu. Álíka margir sjá
ekki dagblað á hverjum degi. Lít-
iil hópur kemst ekki til tanniækn-
is einu sinni á ári vegna auraleys-
is. En þeir eru næstum því ein
miiljón Svíarnir sem hafa ekki
ráð á vikuferð í sumarleyfinu.
Þétta kemur fram í könnun á
vegum félagsfræðistofhunarinn-
ar í Umeá þar sem reynt var að
komast að því hvaða lífsgæði
Svíar teldu nauðsynleg. Efst á
lista voru heilsugæsla, simi,
heimilistrygging og matur að
minnsta kosti einu sinni á dag.
Konur í buxum
sendarheimí
Svasílandi
Utanríkisráðuneytið í Afríku-
ríkinu Svasílandi hefur tekið upp
á því að senda þær konur heim
sem þangað koma í buxum. Ráða-
menn segja að þær verði að klæða
sig í pils ef þær vfija að embættis-
menn sinni þeim.
Philemon Dlamini ráðuneytis-
stjóri staðfesti í gær að buxna-
banninu væri framfylgt afstarfs-
mönnum gestamóttöku ráðu- i
neytisins en hann vildi ekki tjá
sig úra ástæður þessa.
Arafatfarinnog
andar léttara
Yasser Ara-
fat, leiðtogi
Frelsissamtaka
Palestínu, PLO,
er farinn frá
Danmörku og
getur lögregla
landsins þá
loksins and-
að léttara. Arafat og fyigdarliö
hans flugu burt í einkaþotu sinni
í gærkvöidi.
Lögreglan var á nálum i rúman
sólarhring við að gæta PLO leið-
togans og var raikill fjöldi lög-
regluþjóna, bæðii og án einkenn-
isbúnings, kallaöur til
Arafat heimsótti danska þingið
í gær, ræddi við Niels Helveg
Petersen utanríkisráöhcrra,
Helle Degn, ráðherra þróunar-
mála og Poul Nyrup Rasmussen
forsætisráðherra auk þess sem
hann hehnsótti Margréti drottn-
ingu I Amalíuborg.
TT, Reuter, Ritzau
Cosbygagnrýnir
blökkumenn
Bandaríski
skemratíkraft-
uríxm BiB
Cosby segir að
imynd blökku-
mannaíbanda-
rísku sjónvarpi
hafi Iitið breyst
og aö enn sé lit-
ið á þá sera „lifandi skríparaynd-
ir“.
„Þeir sem búa þetta til aka
frambjá blökkumannabyggðum
og sjá hórmangarann, eitursal-
ann og gökustrákana. Þeir sjá
aldrei móðurína og fóðurimi uppi
á lofti sem leggja hart aö sér af
því að þeir vilja ekki sjá þau,“
segir Cosby í viðtah i nýjasta
tölublaði Newsweek. Og hann
segir að svartir höfundar láti líka
svona frá sér fara.
Vantreysfa bæði
blaðamönnum
ográðhemim
Almenningur á Bretlandi
treystir blaðamönnum jafn lítið
ráöherrum í ríkisstjórninni til að
segja sannleikann, að því er segir
í skoðanakönnun sem birtist í
blaðinu Times í gær.
Læknar og kennarar eru hins
vegar þær starfstéttir sem Bretar
treysta hvað best en næst á eftir
koma prestar og aörir kirkjunnar
menn.
Að sögn Times hefur mesta
breytingin oröið á traústi al-
mennings til blaðamanna en að-
eins tíu prósent aöspurðra telja
þá segja sér sannleikann. Þeir
vermdu neðsta sætið með ráð-
herrum.
Geislamenguð-
um ef num stolið
íLitháen
Viktor Sjevaldín, forstjóri Igna-
lina kjarnorkuversins í Litháen,
óttast að starfsmenn sínir hafi
stolið geislavirkum efnum úr
verinu. Að sögn danska blaðsins
Berlingske Tidende i gær hefur
sjö metra langt málmrör með
geislavirku eldsneyti horfið.
Jann Sjursen, orkuráöherra
Danmerkur, sagði í Litháen um
helgina að ioka ætti kjamorku-
verinu þar sem öryggiseftirliti
þar væri ábótavant.
Hann sagöi að í tveggja tíma
heimsókn í verið heiði hann feng-
ið í sig jafn mikla bakgrunns-
geislun og merrn fá á tveimur
dögum viö eðlilegar aðstæöur.
Litháar fá um áttatíu prósent
raforku sinnar frá Ignalina og
þeir hafa ekki efni á að loka því.
Auken sakaður
umaðblekkja
Svend Au-
ken, umhverf-
isráöhema
Danmerkur,
hefur verið
sakaður um að-
gefa þingheimi
villandi upp-
lýsingar og
skýla sér á bak við Evrópubanda-
lagið vegna ákvörðunar um að
staðsetja umhverfisstofnun EB í
Kaupmannaliöfn. .
Flokksbræöur Aukens í jafnað-
armannaflokknum, stjórnarand-
staðan og atvinnurekendur eru
æfareiöir yfir þvi að Risö skyldi
ekki hafa orðið fyrir valinu en
þar er mikil sérfræðiþekking í
umhverfismálum samankomin.
Auken neitaði því í þinginu að
gengið yrði framhjá Risö.
Reutcr, Ritzau