Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1993, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1993, Side 3
 MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1993 3 Fjórða hæðin - - Margslungin og áhrifarík skáldsaga Fjórða hæðin eftir Kristján Kristjánsson er margslungin saga um mannleg samskipti og blekkingar minninganna, saga sem knýr lesandann áfram í leit að því sem undir býr. „Skáldsaga Kristjáns Kristjánssonar er ákaflega vel heppnuð. Mikil natni er lögð í persónusköpun bræðranna, málnotkunin ríkulega raunveruleg. Bréf bræðranna eru til að mynda frábærlega gerð. Frásagnartæknin er þaul- hugsuð og vel útfærð í alla staði þannig að útkoman verður átakamikil saga og listilega trúverðug lýsing þess tíma og staðar sem hún fjallar um.“ (Ólafur Haraldsson, Pressunni) — „... lýsingin er hrífandi dramatísk, myndræn og nákvæm, með áherslu á breytileikann." (Örn Ólafsson, DV) ÍÐUNN Falleg og áhrifamikil ástarsaga Ástin fiskanna eftir Steinunni Sigurðardóttur er fáguð og hárbeitt ástarsaga sem vakið hefur mikla athygli. „Ástin fiskanna er ljúfsár og tregafull saga um ást í meinum sem kviknar og brennur á elskendum ... úr verður óvenju sterkt og áhrifamikið verk.“ (Gísli Sigurðsson, DV) ..það er gaman að lesa þessa bók í annað sinn og jafnvel oftar og skoða dýpra í atburðarás og persónur, samskipti þeirra og athafnir... þar hefur Steinunn unnið stóran sigur með þessari sögu ..." (Ingunn Ásdísardóttir, Rás 1) „Ástin fiskanna er lítil bók, ofurfalleg og minnisstæð. Hún er I ákaflega vel skrifuð ... dálítið angurvær ástarsaga sem ég hef grun um að margar konur telji sig hafa lifað.... Verkið snart mig á þann veg að í huganum hóf ég það yfir stað og stund.“ (Kolbrún Bergþórsdóttir, Pressunni) IÐUNN Hafborg - Snjöll og trúverðug lýsing á veruleika sjómanns'ins Hafborg eftir Njörð P. Njarðvík er snjöll lýsing á Iífi og veruleika islenskra sjómanna á öld síðutogaranna; skáldsaga sem leiðir hvern landkrabba inn í hrollkaldan heim sjómannsins sem á hið kaldranalega haf að ævilöngum veruleika og lýsir á lifandi hátt * ’ gráglettnum samskiptum skipverjanna og baráttu mannskepnúhnár við náttúruöflin. |P jfyO „Samfélagið um borð verður einkar trúverðugt og sama máli gegnir um lýsingar á athöfnum skipsfélaganna í landi. ... athyglisverð lýsing á sérstökum þætti íslensks mannlífs, þætti sem hingað til hefur verið vanræktur í íslenskri sagnagerð." | FÁT |K IN j (Jón Þ. Þór, Tíminn) lLvLdlNÍN % f % f % f % f % r % r % r % f % f % f %

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.