Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1993, Blaðsíða 12
12
Spumingin
MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1993
Hvað borðar þú á
jólunum?
Kristján Jóhannsson: Ég borða
svínahamborgarhrygg.
Jóhannes Ágúst Stefánsson: Ég
borða hangikjöt og uppstúf.
Árni Reynisson: Ég borða svínasteik.
Ólína Elísabet Garðarsdóttir: Kjúkl-
ing.
Pálmi F. Guðmundsson: Ég borða
einhverja gæs.
Bjöm Ingvarsson: Hangikjöt og upp-
stúf.
Lesendur
Virðisaukaskattur á ferðaþjónustu:
Falboðinn í söl
um Alþingis
Farþegar geta áfram flogió án virðisaukaskatts. Meö hækkandi sól hækka
svo flugfargjöldin - að mati bréfritara.
Guðmundur Kristjánsson skrifar:
Það er óhugnanlegt til þess að vita
að þingmenn þjóðarinnar virðast
vera komnir niður á það plan sem
við segjum að sé til staðar í hinum
svokölluðu bananalýðveldum og
hneykslumst mjög á. - Hinn umdeildi
virðisaukaskattur, sem boðaöur var
á ferðaþjónustu, er nú orðinn bitbein
þingmanna og er falboðinn í sölum
Alþingis. Síðast hinn 18. des. (sl.
laugardag) birtist frétt um að í gangi
væri tilboð á Alþingi frá fjármálaráð-
herra til stjómarandstöðunnar þess
efnis að huga mætti að niðurfellingu
virðisaukaskatts á flugfargjöld, feng-
ist sfjómarandstaðan til þess að flýta
fyrir jólafríi þingmanna.
Þeim sem þessa frétt lásu hefúr
eflaust komið í hug að svo mikið
lægi við að komast í jólaleyfi að vel
mætti fóma einhveijum af tekjum
ríkisins og lægi þá beinast við að fella
niður virðisaukaskatt að hluta til.
Ekki viröist það hafa dugað því fram-
sóknarmenn neituðu tilboðinu og sit-
ur því þingið allt fram undir jól. En
hvað með það? Em ekki þingmenn á
launum allan desembermánuð og er
þeim vandara um en okkur hinum
að vinna til jóla?
En aftur aö virðisaukaskattinum í
ferðaþjónustu. Ég segi fyrir mitt
leyti: Því ætti þessi atvinnugrein að
vera undanskilin virðisaukaskatti
fremur en aðrar? Jú, segja lands-
byggðarþingmenn, vegna þess að
annars hækka flugfargjöldin, og
ferðaþjónusta yrði þá í uppnámi.
Virðisaukaskattur á gistingu kemur
Jóhann Oddur Gíslason skrifar:
Þegar nálgast hin mikla hátíð Ijóss-
ins blasir við nöturleg staðreynd.
Ungar íslenskar mæður, og hugsan-
lega feður einnig, með böm sín leita
aðstoðar hjá Mæðrastyrksnefnd og
öðmm aðilum til að aö geta haldið
sér og sínum hátíð.
Svo heyrir maður einstaka spek-
inga beija sér á bijóst er þeir em
inntir álits á ósköpunum og segja
sem svo að við þurfum nú ekki aö
kvarta, ástandiö hér sé nú ekki svo
Stefán Stefánsson skrifar:
Það er ekki einleikið í þessu þjóðfé-
lagi að það skuli oftast vera þeir bet-
ur settu sem ríöa á vaðið og eyði-
leggja fyrir þeim lægst launuðu í
þjóðfélaginu. Ef það era ekki iðnað-
armenn sem efna til verkfalla em
það opinberir starfsmenn, en báðir
þessir þjóðfélagshópar hafa gegnum
árin notið einna bestu lífskjara sem
hér má vænta. - Sá fyrri vegna sér-
staks fyrirkomulags á launakerfi
þeirra sem lengi var og er e.t.v. enn
byggt á uppmælingu. Hinn hópurinn,
opinberir starfsmenn, vegna öryggis
þeirra í starfi sem lengst af hefur
verið langt umfram aðra launþega.
En svo era þaö sjómennimir. Þeir
hafa verið ein tekjuhæsta starfsstétt-
in, auk mikilla ffíðinda í sköttum og
aðbúnaði (fatnaði o.fl.). Sjómenn
hafa sannanlega notið góðs af þeim
afla sem veiðst hefur og oft ekki þurft
DVáskilursérrétt
tilaðstytta
aðsend lesendabréf.
vist engu í uppnám, svo hátt er gisti-
verð fyrir að engu nemur þótt það
hækki um svo sem 14%. En hér er
ekki allt sem sýnist. - Líklega er til-
boðið um niðurfellingu virðisauka-
skatts af flugfargjöldum ekki af góð-
semi einni sett fram. Líklegra er að
hér sé um þrýsting að ræða frá sam-
steypunni sem sér um mannflutn-
inga íslendinga innanlands sem til
og frá landinu.
Máhð er einfaldlega þaö að hefði
virðisaukaskattur veriö settur á
slæmt. Það sé nú t.d. mun verra ann-
ars staðar á Norðurlöndunum. -
Þetta er svar hins ráðþrota. - Hvað
hjálpar það þeim hér í nauðum að
hafa einhvem samanburð til að
horfa á?
Einhvem veginn finnst manni fara
fremur lítið fyrir málum sem þessum
í allri umræðunni og maður fær á
tilfinninguna að þeir sem um þessi
mál eiga að fjalla skammist sín fyrir
getuleysið og vilji helst ekki vita af
því hversu ástandið er í raun slæmt.
nema örfáa daga til þess að ná mán-
aðarlaunum sem almennir launþeg-
ar í landi láta sig ekki dreyma um
fyrr né síðar. Nú hefúr þessi stétt
boðaö verkfall sem af sumum er að
vísu talið ólöglegt. Þeir hóta viðsemj-
endum sínum viðræðushtum verði
leitað til Félagsdóms um réttmæti
verkfallsboðunar.
Það virðist ekki skipta sjómenn
neinu þótt heilu atvinnugreinamar
kynnu að hrynja í kjölfarið og þús-
undir manna verði atvinnulausar.
flugfargjöld nú hefði varla verið
stætt á því að hækka gjöldin aftur
undir vorið. Með því að láta undan
þrýstingnum og fella niður skattinn
á flugferðir nú, reynist auöveldara
aö hækka flugfargjöld um svo sem
14% næsta vor. Um þetta verða þing-
menn svo innilega sammála að engu
tali tekur og samtryggingin á Alþingi
gengur sinn vana gang. - En það var
leitt þetta með niðurskurðinn á jóla-
leyfinu.
Sjálfúr er ég atvinnulaus. Það er í
sjálfu sér hverjum manni næg lífs-
reynsla. En ég er þakklátur fyrir það
sem að mér er rétt. Ég lofa Guð fyrir
að ég er ekki með böm á framfæri
af því sem ég fæ því fyrst og fremst
kemur ástand sem- þetta niður á
bömum. - Vonandi tekst stjómvöld-
um og öðrum ráðamönnum að snúa
bökum saman á komandi ári og ráða
bót á þessu ört vaxandi meini.
Óbilgimi sjómanna er þvilík að ekk-
ert liggur beinna við en stjómvöld
láti setja lög á þá komi til verkfalls.
Þeim hefur verið beitt á fleiri stéttir
hér á landi og oft af minna tilefni,
svo sem á flugfreyjur og flugmenn.
Maður trúir því ekki að ríkissfjómin
láti það afskiptalaust ef til verkfalls
sjómanna kemur og því fyrr sem
ráðamenn gera þá fyrirætlan heyrin-
kunna þeim mun fastar stendur al-
menningur að baki þeirri ákvörðun.
Gisli óskarsson skrifan
íslenskar útgerðir færa nú sjáv-
arfang í jijóðarbúið af erlendum
miðum. Utgerðiraar eru nú þegar
búnar aö vinna okkur vissan rétt
í Smugunni og ætluðu að gera þaö
einnig á Svalbarðasvæðinu þar
sem Norömenn eiga alls ekki
þann rétt sem þeir látast eiga.
Stjómvöld okkar vildu ekki
standa að baki útgerðunum. Sjá v-
arútvegsráðherra lokaði Smug-
unni fram að áramótum. - Já,
áramótum. - Skyldi hann sjá í dag
að þaö var röng ákvörðun? Um
svípað leyti og ráðherra var að
loka hólfinu í Smugunni var
spakmæii dagsins i DV eitthvað
á þessa leið: „Það þarf oft meiri
kjark til að skipta um skoðun en
halda henni.“ Eg vona að sjávar-
útvegsráðherra vakni. Ekki er
komið aö áramótum ennþá.
Sjónvarpið:
Endursýndjól!
ívar hringdi:
Ég horfði á kynningu jóladag-
skrár Sjónvarpsins sl. sunnu-
dagskvöld. Ekki fór mikið fyrir
fjölbreytninni í þeirri kynningu;
mest endurtekiö efúi, annaðhvort
frá síöustu jólum, einhvern tíma
þar á milli eða enn eldra efni. Því
kynnir Sjónvarpiö ekki einfald-
lega: Endursýnum síðustu jóla-
dagskrá? Þetta er nú orðið svo
ömurlegt hjá Sjónvarpinu aö það
er ekki furða þótt krafan verði
sífellt háværari um afhám
skylduáskriftar. - Enda komnir í
gang undirskriftalistar meðal
fólks um þessa kröfu.
Enginverðlækk-
unvegnaGATT
Sæmundur hringdi:
Mikiö er af þvi látið að tolla-
lækkanir vegna GATT-samning-
anna nýtist okkur betur ætla
mátti. Varðandi innflutning hing-
að er þessu hins vegar ekki til aö
dreifa. Að visu em sérákvæði i
samningum að því er varðar viö-
skipti með landbúnaðarvömr en
tollum geta íslendingar beitt eftir
sem áður og þeim mun óspart
verða beitt hér ef ég þekki okkar
stjómendur rétt. Viö eigum því
ekki von á miklum breytingum
til lægra verðlags hér frekar en
fyrri daginn.
Tímiim:
Úrtröllahöndum
Ægir Geirdal skrifar:
Þann stutta tíma sem óvinir
dagblaðsins Tfmans réðu yflr
honum í nafni félagshyggjunnar
er best lýst með málshættinum
„Sjaldan launar kálfur ofeldið,“
Og gott er Tíminn er nú laus úr
tröllahöndum. Þau launráð voru
brugguð að undirlagi kommún-
ista að sölsa undir sig málgagn
ffamsóknarmanna sem aö virö-
ingu stendur fyllilega jafhfætis
Morgunblaðinu og DV. Ennþá
vantar talsvert upp á að Tíminn
nái þeim í útbreiðslu en þaö
stendur tfl bóta. Þetta vissu
kommúnistamir og eftir að hafa
gengið af Þjóðviljanum dauðum
og engin von um upprisu breiddu
þeir yfir sig félagshyggjugæruna
og gengu á fúnd Tlmans 1 von um
athvarf.
Þakkirillbóksala
Jóhann hringdi:
Ég vil koma á framfæri þakk-
læti til bóksalanna fyrir að sýna
þá tillitssemi að hætta að auglýSa
bækur í sjónvarpi fyrir jólin.
Þessar auglýsingar hafa verið hin
mesta plága og engum komið að
notum, ég hugsa síst bóksölum.
Helst hafa það veriö höfundarnir
sjálflr sera hafa fengið eitthvert
kikk úr því að heyra sig nefnda
á nafn í auglýsingunum. - En sem
sé; miklu fargi af oss létt.
Erum við ráðþrota í neyðinni?
Lög verði sett á sjómenn
Bréfritari segir sjómenn vera eina tekjuhæstu starfsstéttina auk fríðinda í
sköttum og aðbúnaði.
i