Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1993, Blaðsíða 33
MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1993
33
dv Sviðsljós
Sjálfstæð
og örugg
Jodie Foster hefur ekki leikið í
kvikmynd í næstum ár en eftir að
tökum á Somersby lauk ákvað hún
að taka sér ársfrí og hugsa um
sjálfa sig.
Hún hefur þó ekki verið langt frá
kvikmyndunum því hún hefur nýtt
tímann til að koma fótuni undir
kvikmyndafyrirtæki sitt, Egg Pict-
ures. Jodie er ein af fáum sem er
fædd og uppalin í Hollywood, svo'
hún segir að það hafi aldrei komið
neitt annað en kvikmyndir til
greina sem framtíðarstarf.
Allt frá því hún lék í Taxi Driver,
þegar hún var þrettán ára, hefur
hún ekki átt í erfiðleikum með að
fá tilboð. Þeir sem hafa ráðið hana
hafa heldur ekki séð eftir því þar
sem hún leggur sig alla fram og
skilar góðum árangri.
Sú vinna hefur skilað henni
tvennum óskarsverðlaunum, ann-
ars vegar fyrir The Accused og svo
Silence of the Lamb. Það eru aðeins
tvær aðrar konur sem hafa náð
þessum árangri, en þær eru Kat-
harine Hepbum og Bette Davis.
Það svo aldrei að vita nema Jodie
eigi eftir að verða fyrst til að fá
þriöja óskarinn.
Jodie hefði ekkert á móti því að
fá þann óskar fyrir leikstjóm, en
gagnrýnendur töldu henni hafa
tekist vel upp með frumraun sína,
Litle Man Tate. Margir áttu jafnveí
von á að hún yrði útnefnd fyrir
hana, en svo varð ekki. Jodie segir
að það hafi svo sem ekki komið sér
á óvart þvi enn sem komið er hafi
engin kona hlotið slíka útnefningu.
Eftir að hafa unnið tvenn óskars-
verðlaun er Jodie talin ein „verð-
mætasta" leikkonan í Hollywood.
En þrátt fyrir það sést það ekki á
því hvernig hún býr því hún býr
alein í htlu húsi. Hún segist sjá sjálf
um aht sem við kemur heimiJis-
haldinu enda sé henni iha við þegar
fólk sé að þvælast heima hjá henni,
þangað fái bara hennar nánustu
vinir að koma.
Jodie Foster er búin að ná ótrúlega góðum árangri þrátt fyrir ungan
aldur og eftir þvi sem kunnugir segja þá á hún lika framtíðina fyrir sér
í leikstjórastólnum.
Tilkyimingar
Samband ísl. kristni-
boðsfélaga
þiggur með þökkum notuð frímerki, ís-
lensk og útlend, og selur til ágóða fyrir
starf sitt í Eþíópíu og Kenýa. Best er að
fá frímerkt umslögin, ellegar frímerkin
atklippt með 5 cm spásíu. Tekið er á
móti frímerkjum á skrifstofunni við
Holtaveg (húsi KFUM gegnt Langholts-
skóla), pósthóf 4060, 124 Rvik.
Hljómdiskurfrá
Samkór Kópavogs
Út er kominn hljómdiskurinn „Heyrum
söng“ með Samkór Kópavogs. Á diskin-
um er að fmna bæði íslensk og erlend lög.
Opið lengur í
Kringlunni
Fram til jóla verða verslanir og veitinga-
staðir í Kringlunni með opið lengur en
venjulega. Opið frá kl. 10-22 í dag og á
morgun. Á aðfangadag er opið kl. 9-12.
Ný gæltidýraverslun
Ný ’ gæludýraverslun, Gæludýrahúsið,
hefur verið opnuð að Fákafeni 9, Reykja-
vík. Þar er að fá mikið úrval af dýnun
og vörum fyrir dýr. 15% kynningaraf-
sláttur er af öllum vörum verslunarinnar
til 1. janúar. Eigendur verslunarinnar
eru Henry Berg Guðmundsson og Guð-
mundur Sævar Jónsson.
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágr.
Allt félagsstarf fellur niður í Risinu til
3. janúar. Skrifstofa félagsins er lokuð á
sama tima. Dansað í Goðheimum 2. jan-
úar. Opið hús í Risinu 3. jan.
Tímarit Máls
og menningar
Fjórða hefti Máls og menningar er komið
út. Efni þess er veglegt og fjölbreytt að
vanda. Ritstjóri TMM er Friðrik Rafns-
son. Tímaritið er 112 bls.
„Jólin koma með
jólasöngvum“
Út er komin jólaplatan „Jólin koma með
jólasöngvum" sem inniheldur ný og göm-
ul jólalög. Þessi skemmtilega jólaplata er
gefrn út af Þorvaldi Geirssyni.
Jólasveininn minn
Út er komið myndbandið Jólasveinninn
minn. Þar segir Stekkjastaur sögur og
syngur með bömunum.
Lítil jólasýning
Vinnustofa Signðar Ásgeirsdóttur í
Hafnarhúsinu við Tryggvagötu er opin
gestum og gangandi fram til jóla. Auk
Sigríðar eiga verk á vinnustofunni þau
Kristbergur Pétursson, Ólafur Lámsson,
Sigríður Sigurjónsdóttir. og Harpa
Bjömsdóttir. Sýningin er opin kl. 13.30-
18.30 alla daga fram til jóla og eru verkin
á sýningunni til sölu.
Nýjar bækur
Vatnið gengur í svefni
Út er komin ljóðabókin Vatnið gengur í
svefni eftir Birgi Svan Símonarson. Bók-
in fæst í helstu bókabúðum á höfuðborg-
arsvæðinu, en hana má líka að panta hjá
höfundi í síma 91-53774.
Islensk hljóðkerfisfræði
Málvísindastofnun Háskóla íslands hef-
ur gefið út ritið íslensk hljóðkerfisfræði
(96 bls.) eftir Eirík Rögnvaldsson dósent.
Það er einkum ætlað til kennslu á há-
skólastigi en er þó öðrum þræði fræðirit,
og styðst að talsverðu leyti við sjálfstæð-
ar rannsóknir höfundar. Ritið er fáanlegt
í öllum helstu bókabúðum en einnig er
hægt að panta það hjá stofnuninni í síma
694408.
50 úrvals ís-
lensk dægurlög
Félag tónskálda og textahöfunda hefur
sent frá sér nýtt nótnahefti með 50 ís-
lenskum dægurlögum sem notið hafa
vinsælda undanfarin ár. Um 40 höfundar
eiga efni í bókinni. Nótnaheftið er 166
bls. að stærð. íslensk bókadreifing annast
dreifmgu.
Studia Islandica
- íslensk fræði
Út er komið 50. heftið í ritröðinni Studia
Islandica - íslensk fræði, sem stofriuð var
af Sigurði Nordal 1937 og er núverandi'
ritsfjóri Sveinn Skorri Höskuldsson. í
Studia Islandica hafa í áranna rás birst
margar stórmerkar ritgerðir um íslensk
fræði, einkum bókmenntir. Ritið er gefið
út í samvinnu Bókaútgáfu Menningar-
sjóðs og Bókmenntafræðistofnunar Há-
skóla íslands.
í faðmi Ijóssins
Fijáls fjölmiðlun hefur gefið út bókina í
faðmi þóssins eftir Betty Eadie. Þetta er
áhrifamikil, sönn saga sem vakið hefur
heimsathygli. Bókin er 160 síður, inn-
bundin.
Frumsýnlng 27. des. kl. 20.30.
2. sýnlng 28. des. kl. 20.30.
3. sýnlng 29. des. kl. 20.30.
4. sýnlng 30. des. kl. 20.30.
Viltu gefa jólagjöf
sem gleður?
Einstaklingar og fyrirtæki:
JÓLAGJAFAKORT
LA
er tilvalin jólagjöf.
Jólagjafakortið veitir aðgang aö
' spunkunýja hláturvæna gaman-
leiknum.
Höfum einnig tiisöiu
nokkur eintök af bókinni
SAGA LEIKLISTARÁ
AKUREYRI
1860-1992.
Haraldur Sigurðsson skráöi.
Falieg, fróðleg og skemmtileg bók
prýdd hundruðum mynda.
Miðasalan i Samkomuhúsinu opin
alla virka daga kl. 10-12 og 14-18.
Simi (96J-24073.
Greiðslukortaþjónusta.
NÝTTi:
Miðasala i Hagkaupi alla daga fram
að jólum frá kl. 17 og fram aö lokunar-
tima verslunarinnar.
ÍSLENSKA ÓPERAN
__inii
É VGENÍ ÖNEGÍN
eftir Pjotr I. Tsjajkovský
Texti eftir Púshkín i þýðingu
Þorsteins Gylfasonar.
Frumsýning flmmtudaglnn 30.
desember kl. 20. Uppselt.
Hátiðarsýning sunnudaglnn
2. janúar kl. 20.
3. sýning föstudaginn 7. janúar kl. 20.
Verð á frumsýningu kr. 4.000.
Verð á hátiðarsýningu kr. 3.400.
Boðið verður upp á léttar veltingar á
báðum sýnlngum.
Miðasalan er opin frá kl.
15.00-19.00 daglega.
Sýningardaga til kl. 20.
SÍM111475-
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA.
Smásagnasafnið X
Út er komið smásagnasafnið „X“ eftir
Börk Gunnarsson. I bókinni eru fimm
sögur. „X“ fæst í bókabúðum og hjá höf-
undi að Nönnugötu 16.
Faðmlög
Út er komin bókin Faðmlög eftir Kath-
leen Keating í þýðingu Sigríðar Þor-
steinsdóttur. Bókin rekur á einfaldan
hátt mikilvægi faðmlaga í tjáskiptum við
aðra. Bókin fæst í öllum helstu bóka-
verslunum.
Tapað fundið
Gullúr tapaðist
Kvenmannsgullúr tapaðist laugardaginn
18. desember, annaðhvort við eða í Perl-
unni eða Kringlunni. Finnandi vinsam-
legast hringi í Monu í síma 92-12264.
Leikhús
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Stóra sviðið
Frumsýning 7. janúar
EVALUNA
Leikrit með söngvum eftir Kjartan
Ragnarsson og Óskar Jónasson, byggt
á skáldsögu Isabel Allende, tónhst og
söngtextar eftir Egil Ólafsson.
Frumsýnlng 7. janúar, uppselt, 2. sýn. sun.
9. jan., grá kort gllda, örfá sæti laus.
Stóra svið kl. 20.00.
SPANSKFLUGAN
eftir Arnold og Bach
Flm. 30. des., laugardaglnn 8. janúar.
Stórasviðiðkl. 14.00
RONJA RÆNINGJADÓTTIR
Sunnudag 9. janúar
Litla sviðkl. 20.00.
ELÍN HELENA
eftir Árna Ibsen
Fim. 30. des., fimmtudag 6. janúar, jaugar-
dag 8. janúar.
Ath.l Ekki er hægt aö hleypa gestum inn í
salinn eftir að sýning er hafin.
ÍSLENSKT - JÁ, TAKK!
14.-23. desember er miðasala opin
frá kl. 13-18. Lokað 24., 25. og 26.
desember
Tekið á móti miðapöntunum í síma
680680 kl. 10-12 alla virka daga.
Bréfasími 680383.
Greiðslukortaþjónusta.
Gjafakort á jólatilboði i desember.
Kort fyrlr tvo aðeins kr. 2.800.
Leikfélag Reykjavikur -
Borgarleikhus.
GLEÐILEG JÓL
ÞJÓDLEIKHÚSIÐ
Sími 11200
Frumsýning
MÁVURINN
eftir Anton Tsjékhof
Frumsýnlng annan dag jóla kl. 20.00,
upþselt, 2. sýn. þri. 28. des., 3. sýn. fid.
30. des., 4. sýn. sun. 2. jan.
ALLIR SYNIR MÍNIR
eftir Arthur Miller
Fös. 7. jan. kl. 20.
SKILABOÐASKJÓÐAN
eftir Þorvald Þorstelnsson
Ævlntýrl með söngvum
Mlð. 29. des. kl. 17.00, uppselt, mið. 29.
des. kl. 20.00, sud. 2. jan. kl. 14.00.
Gjafakort á sýningu í Þjóóleikhúsinu er
handhæg og skemmtileg jólagjöf
Mlðasala Þjóðlelkhússlns verður opin
frá kl. 13.-20. fram á Þorláksmessu. Lok-
að verður á aðfangadag. Annan dag jóla
verður oþlð frá kl. 13-20. Teklð er á
mótl slmapöntunum virka daga frá kl.
10. Græna llnan 99 61 60.
LEIKFÉLAG
MOSFELLSSVEITAR
„ÞETTA
REDDAST1“
i Bæjarteikhúslnu Mosfellsbæ
8. janúar 1994.