Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1993, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1993, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1993 5 Fréttir Fordæmisgefandi dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur vegna frádráttarbærs hlutaflár: Líkur á að hlutafjáreig- endur f ái endurgreitt - skattstjóri má ekki draga hlutafláreign frá skuldum vegna eignarskattsstofns Miðaö við dóm sem gekk nýlega í Héraðsdómi Reykjavíkur eru líkur á að skattayfirvöld þurfi að endur- greiða hlutafj áreigendum á nokk- urra ára tímabili skatta sem lagðir voru á í fjölda tilfella þar sem ekki var heimilað að draga hlutafjáreign frá eignarskattsstofni. Hér er um að ræða fordæmisgefandi dóm þar sem kona er sýknuð af kröfum fjármála- ráðherra um að úrskurður ríkis- skattanefndar henni í hag yrði felld- ur úr gildi. Snorri Olsen, deildarstjóri í fjár- málaráðuneytinu, sagði við DV í gær að ekki hefði verið tekin ákvörðun um það ennþá hvort dómi héraðs- dóms yrði áfrýjað. „Það er spuming hvað skylt er aö gera í þessum efn- um, en ef mál af þessu tagi hafa tap- ast hefur reglan verði sú að skattyfir- völd hafa leitað uppi sambærileg mál með geysilega mikiUi vinnu og leið- rétt aftur í tímann,“ sagði Snorri. Þegar umrædd kona taldi fram fyr- ir álagningu opinberra gjalda fyrir árið 1989 eignfærði hún 8,1 milljón króna fasteignir en hlutabréfaeign upp á liðlega 4 milljónir. Samkvæmt þessu töldust eignir hennar vera 12,1 milljón króna. Til skuldar voru færö- ar 2,6 milljónir og námu nettóeignir því 9,5 milljónum. Konan taldi að vegna hlutafjár- eignar sinnar mætti hún síðan draga allt að 900 þúsund krónur frá eignar- skattsstoftiinum þannig að hann myndi lækka niður í 8,6 milljónir. Konan taldi að einstaklingar hefðu heimild til þessa frádráttar sam- kvæmt 78. grein laga um tekju- og eignarskatt. Skattstjóri taldi þetta hins vegar ekki eiga við og lagði á konuna eign- arskatt og miðaöi við 9,5 milljóna króna nettóeign konunnar. Ekkert tillit var tekið til frádráttarbærs hlutafjár. Rökin voru að skuldir kon- unnar væru hærri en 900 þúsund króna hlutafjárhámarkið. Því væri þetta ekki heimilt. Þegar þessi niðurstaða lá fyrir kærði konan úrskurð skattstjóra til ríkisskattanefndar og kraföist þess að hlutaféð yrði dregið frá eignar- skattsstofninum. Ríkisskattstjóri krafðist þess hins vegar að ríkis- skattanefnd staðfesti úrskurð skatt- stjóra. Niöurstaða ríkisskattanefnd- ar var á þá leið að 78. grein laganna um tekju- og eignarskatt hljóðaði ótvírætt á þá leið að konunni hefði verið heimill frádráttur á hlutafénu Vestmannaeyj ar: Rækjutogari keypturfrá Grænlandi Ómar Garðaisson, DV, Vestmarmaeyjuni; Andvari VE 100, rækjutogari sem hjónin Jóhann Halldórsson skip- stjóri og Aðalbjörg Bemódusdóttir keyptu frá Grænlandi, kom nýlega í fyrsta skipti til heimahafnar. Skipið reyndist vel á heimsiglingunni frá Nuuk og fer nú til yfirlits í Skipalyft- una hér. Skipið kemur í staö eldra skips sem sökk í maí sl. Nýi Andvari er skuttogari, smíðað- ur í Danmörku 1987, og er með rækjuvinnslu og frystibúnað. íbúðir eru fyrir 14 manna áhöfn og togarinn mjög glæsilegur. Að sögn Péturs Sveinssonar skipstjóra er gert ráð fyrir að skipið haldi til rækjuveiða fljótlega eftir áramótin. IHTENSai ISFISHER ldt»andsS' með 9_ - Qf\C SIÐUMULA 2 tfi lækkunar á eignarskattsstofnin- ekkiogstefndikonunnifyrirHéraðs- lag78. greinarinnarverðiekkitúlkaö „hefur tíðkað“. Samkvæmtþessuvar um. Stofninn var því reiknaður 8,6 dóm Reykjavíkur og krafðist þess að þannig að heimilt sé að reikna 900 konan sýknuð af kröfum fjármála- milljónir króna. úrskurði ríkisskattanefndar yrði þúsund króna hlutafjárhámark á ráðuneytisins. Eggert Óskarsson Þessu undi fjármálaráðuneytið hrundið. Héraðsdómur taldi aö orða- móti skuldum eins og ríkisskattstjóri kvaðuppdóminn. -Ótt I v

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.