Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1994, Blaðsíða 26
34
Fólk í fréttum_______pv
Jón Kristjánsson
Jón Kristjánsson alþingismaður,
Selási 12, Egilsstöðum, er aftur sest-
ur í ritstjórastólinn hjá Tímanum
sem nú er gefmn út af nýju útgáfufé-
lagi, Tímamótum hf„ eins og fram
hefur komið í fréttum DV.
Starfsferill
Jón er fæddur 11.6.1942 aö Stóra-
gerði í Skagafirði og ólst þar upp og
að Óslandi í Skagafirði frá 1946.
Hann hefur nú búið á Egilsstöðum
frá 1963. Jón lauk landsprófi frá
Reykholtsskóla í Borgarfirði 1959 og
prófi frá Samvinnuskólanum að Bif-
röst 1963.
Jón stundaði landbúnaðarstörf og
almenna verkamannavinnu og
verslunarstörf á Siglufirði, Sauðár-
króki og í Skagafirði til 1963. Hann
var verslunarstjóri hjá Kaupfélagi
Héraðsbúa á Egilsstöðum 1963-78,
félagsmálafulltrúi 1978-85, vara-
þingmaður frá 1978 og alþingismað-
urfrál985.
Jón er ritstjóri vikublaðsins
Austra á Egilsstöðum frá 1974,
stjórnarformaður Kaupfélags Hér-
aðsbúa frá 1987, á sæti í miðstjóm
Framsóknarflokksins og gegnir
ýmsum öðrum trúnaðarstöfum fyr-
ir Framsóknarflokkinn, var for-
maðurblaðstjórnar Tímans 1988-91,
ritstjóri Tímans frá 1992 til 1. októb-
er 1993 og aftur frá síðustu áramót-
um, var forseti neðri deildar Alþing-
is 1987-88, var meðlimur í þing-
mannasamtökum Nató 1985-87 og
frá 1992, var varamaður í Norður-
landaráði 1988-90 og sat í Norður-
landaráði 1990-91, var formaður
Leikfélags Fljótsdalshéraðs í tvö ár
og gegndi stjómarstörfum í Lands-
sambandi samvinnustarfsmanna.
Fjölskylda
Kona Jóns er Margrét Einarsdótt-
ir, f. 19.11.1946, bankastarfsmaður.
Hún er dóttir Einars Ólafssonar,
rafvirkjameistara á Egilsstöðum, og
Ásgerðar Guðjónsdóttur húsmóður.
Börn Jóns og Margrétar eru Viðar
Jónsson, f. 30.11.1964, verkfræði-
nemi í Lundi í Svíþjóö; Ásgerður
Edda Jónsdóttir, f. 10.1.1968, hús-
móðir í Kanada, gift Kent Lang-
worth; Einar Kristján Jónsson, f.
23.11.1973, nemi.
Systkini Jóns: Margrét Kristjáns-
dóttir, f. 7.8.1933, gæslukona á
Sunnuhlíð í Kópavogi, var gift
Snorra Jónssyni en þau skildu og
eiga þau sjö börn; Þóra Kristjáns-
dóttir, f. 11.9.1936, húsfreyja að Ós-
landi í Skagafirði og starfsmaður
við skrifstofu Hofshrepps, gift Jóni
Guðmundssyni sveitarstjóra og eiga
þau sjö börn; Svava Kristjánsdóttir,
f. 9.6.1949, búsett að Hvanneyri í
Borgarfirði og starfsmaður við
skrifstofu Hvanneyrarskóla, gift
Pétri Jónssyni og eiga þau þrjú
börn.
Foreldrar Jóns: Kristján Jónsson,
f. 27.12.1905, b. að Óslandi, og Ingi-
björg Jónsdóttir, f. 1.4.1907, d. 20.10.
1955, húsfreyja.
Ætt
Kristján er sonur Jóns, smiðs í
Stóragerði í Óslandslilíð, Sigurðs-
sonar, b. í Grímsgerði í Fnjóskadal,
Árnasonar, b. á Draflastöðum, Jóns-
sonar, ríka á Mýri, Jónssonar, b. þar
Halldórssonar, ættföður Mýrarætt-
arinnar. Móðir Sigurðar í Gríms-
gerði var Kristín, systir Jóns, al-
þingismanns á Gautlöndum, afa
Steingríms Steinþórssonar forsæt-
isráðherra og Haralds Guðmunds-
sonar, ráðherra og langafa Jóns Sig-
urðssonar hagfræðings og fyrrv.
ráðherra. Kristin var dóttir Sigurð-
ar, b. á Gautlöndum, Jónssonar,
bróður Jóns ríka. Móðir Kristínar
var Bóthildur Þorkelsdóttir, systir
Elínar, ömmu Kritjáns Fjallaskálds.
Móðir Jóns í Stóragerði var Friðrika
Kristjánsdóttir, b. á Böðvarsnesi,
Guðlaugssonar.
Móðir Kristjáns á Óslandi var Ní-
elsína Kristjánsdóttir, b. í Krossnesi
Jón Kristjánsson.
í Eyjafirði, Gíslasonar, b. í Péturs-
borgí Glæsibæjarhreppi, Bjama-
sonar. Móðir Níelsínu var Margrét
Hálfdánardóttir, b. á Krossanesi,
Hálfdánarsonar.
Ingibjörg var dóttir Jóns, b. á
Marbæli í Hofshreppi, Erlendsson-
ar, b. í Gröf, Jónssonar, b. að Litlu-
Brekku, Þorsteinssonar. Móðir Er-
lends var Hólmfríður Erlendsdóttir,
b. að Vatni á Höfðaströnd, Jónsson-
ar. Móðir Jóns á Marbæli var Ingi-
björg Jónsdóttir, b. í Gröf, Jónsson-
ar ríka á Lambanes-Reykjum.
Móðir Ingibjargar var Anna Rögn-
valdsdóttir, b. í Brekkukoti, Þor-
leifssonar og Guðrúnar Jónsdóttur
frá Hreppsendaá.
Aímæli_________________________
Halldóra F. Sverrisdóttir
Halldóra F. Sverrisdóttir, nemi í
Verkmenntaskólanum á Akureyri,
Löngumýri 32, Akureyri, verður
fertugámorgun.
Starfsferill
Halldóra er fædd á Akureyri og
ólstþar upp.
Eftir nám í Húsmæðraskólanum á
Hallormsstað vann hún í Valaskjálf
á Egilsstöðum og í fiskvinnslu á
Seyðisfirði og Akureyri en 1982-85
starfaði Halldóra sem dagmamma.
Árin 1985-90 var hún matsveinn á
Harðbak EA 303. Frá 1990 hefur
Halldóra verið nemi í Verkmennta-
skólanum á Akureyri, fyrst á hand-
menntabraut en er nú á náttúru-
fræðibraut.
Halldóra hefur búið á Akureyri
alla sína tíð að undanskildu tímabil-
inu 1971-75 er hún var á Egilsstöð-
um og Seyðisfirði.
Fjölskylda
Halldóra kvæntist 12.8.1989 Val-
geiri Haukssyni, f. 28.5.1955, sjó-
manni. Foreldrar hans: Haukur
Þorbjömsson, bifreiðarstjóri á Ak-
ureyri, og Sigrún Ragnarsdóttir iðn-
verkakona.
Börn Halldóru af fyrra hjónabandi
með Valdóri Jóhannssyni: Guðbjörg
Hulda Valdórsdóttir, f. 10.9.1972,
nemi í Verkmenntaskólanum á Ak-
ureyri; Jóhann Kristján Valdórsson,
f. 22.12.1973, verkamaður; Ásdís
Erla Valdórsdóttir, f. 27.11.1976,
fiskvinnslukona. StjúpsynirHall-
dóru og synir Valgeirs: Gunnar
Freyr Valgeirsson, f. 16.11.1980;
Hreiðar Bragi Valgeirsson, f. 20.4.
1982. Kjördóttir Valgeirs: Sigurbjörg
Rún Valgeirsdóttir, f. 23.8.1982.
Bræður Halldóru: Sverrir Sverris-
son, f. 29.8.1938, d. 1.4.1939; Val-
mundur Sverrisson, f. 29.11.1941,
d. 13.5.1961, sjómaður, hann eignað-
ist einn son; Hreinn Sverrisson, f.
14.12.1940, verkstjóri Landssíma ís-
lands á Akureyri, kvæntur Elísa-
betu Gunnarsdóttur skrifstofu-
manni, þau eiga tvo syni.
ForeldrarHalldóru: Sverrir
Magnússon, f. 28.10.1916, d. 5.9.1984,
blikksmiður á Akureyri, og Guð-
björg Ingimundardóttir, f. 24.6.1917,
húsmóðir á Akureyri. Á afmælis-
daginn verður Halldóra með heitt
kaffi á könnunni á heimili sínu.
Halldóra F. Sverrisdóttir.
Andlát
Sveinbjöm Beinteinsson
Sveinbjöm Beinteinsson, bóndi og
allsherjargoði, Draghálsi í Svínadal
í Borgarfirði, lést 25. desember sl.
Hann var kvaddur frá safnaðar-
heimilinu Vinaminni á Akranesi í
gær og jarðsettur í kirkjugarðinum
í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd.
Starfsferill
Sveinbjörn var fæddur 4.7.1924 í
Grafardal í Skorradalshreppi í
Borgarfirði. Hann bjó á Draghálsi í
Svínadal frá 1934 og var bóndi þar
frá 1944.
Sveinbjöm var formaður Ung-
mennafélagsins Vísis í 10 ár, sat í
stjóm Ungmennasambands Borgar-
fjarðar og Rithöfundafélags íslands
um skeið og var í stjórn Skógrækt-
arfélags Borgaríjarðar frá 1977.
Hann var forstöðumaður Ásatrúar-
félagsins og allsherjargoði frá 1972.
Ritstörf: Gömlu lögin, rímur, 1945.
Bragfræðiogháttatal, 1953. Stuðla-
galdur, kvæði, 1954. Vandkvæði,
ljóð, 1957. Reiðljóð, 1957. Heiðin,
kvæðabók, 1984. Gátur I-in, 1985-91.
Bragskógar, ljóð, 1989. Útgáfur:
Rímnavaka, 1959. Rímnasafn, sýnis-
bók, 1966. Fúsakver, 1976. Rímna-
safn Sigurðar Breiðfjörð 1-6,
1961-73. Borgfirðingaljóð (ásamt
fleirum), 1991. Kvæðalög: Snælda
tengd Bragfræði og háttatali, 1981.
Eddukvæði, hljómplata, 1982. Svein-
bjöm Beinteinsson: Edda, hljóm-
plata og geisladiskur, London 1990.
Bókin Allsherjargoðinn, skráð af
Berghndi Gunnarsdóttur.
Sveinbjörn flutti oft kveðskap og
las í útvarpi og flutti einnig erindi
og kveðskap i skólum og á manna-
mótum. Hann ritaði ýmislegt í blöð,
tímaritogsafnrit.
Fjölskylda
Kona Sveinbjöms var Svanfríður
Hagvaag, f. 22.2.1949, þau skildu.
Synir Sveinbjörns og Svanfríðar:
Georg Pétur Sveinbjömsson, f. 25.4.
1965; Einar Sveinbjörnsson, f. 22.4.
1966.
Systkini Sveinbjörns: Georg Pét-
ur, f. 12.4.1906, d. 2.8.1942, vinnu-
maöur; Halldóra, f. 19.4.1907, d. 28.9.
1968, húsmóðir; Einar, f. 5.2.1910,
d. 18.7.1978, sjómaður; Sigríður, f.
30.4.1912, húsmóðir; Björg, f. 5.5.
1914, matreiðslukona; Guðný, f. 28.4.
1914, d. 29.5.1958, verkakona; Ingi-
björg, f. 1.1.1920, d. 29.3.1988, hús-
móðir.
Foreldrar Sveinbjöms: Beinteinn
Sveinbjörn Beinteinsson.
Einarsson, f. 17.7.1873 í Litlabotni á
Hvalfjarðarströnd, f. 10.12.1956,
bóndi, og Helga Pétursdóttir, f. 15.9.
1884 á Draghálsi í Svínadal í Borgar-
firði, d. 11.8.1971, húsmóðir.
FÖSTUDAGUR 7.: JANÚAR 1994
afmælið
7. janúar
95 ára
GuðrúnS. Einarsdóttir,
Hringbraut 50, Reykjavík.
80 ára
Rikarður Sigmundsson,
Sundlaugavegi 20, Reykjavik.
Ásbjörn Pálsson,
Kambsvegi24, Reykjavík.
Kristín E. Jóhannesdóttir,
Torfnesi Hlíf 1, ísafirði.
Gunnþórunn Sigurbjarnar-
dóttir,
Laugarbrekku 15, Húsavík.
Kristín Ágústsdóttir,
Grandavegi 47, Reykjavík.
Ágústa Jónsdóttir,
Hlíðarhvammi 3, Kópavogi.
Svava Bogatynska,
Grettisgötu98, Reykjavík.
70 ára
Kristján Larsen,
Lönguhlíð 11, Akureyri.
60 ára
Viggó Þorsteinsson,
Ásgarði 75, Reykjavík.
Brynja R. Henrysdóttir,
Skaftahlíð 10, Reykjavík.
Ingibjörg Ágústsdóttir,
Borgarholti, Miklaholtshreppi.
Þórir Þorsteinsson,
Ásgarði 77, Reykjavík.
50 ára
Berta Rafnsdóttir,
Fagradal 11, Vogum.
Rósa Sveinsdóttir,
Mánabraut 16, Kópavogi.
Þórður Jakobsson,
Austurvegi 48, Seyðisfirði.
Katrín Ævarsdóttir,
Langagerði 110, Reykjavík.
Kjartan Friðriksson,
Laugarnesvegi 92, Reykjavfk.
Sigurbjörg Heigadóttir,
Birkifelli, Nesjahreppi.
Jóei E. Gunnarsson,
Kirkjubæjarbraut8,
Vestmannaeyjum.
BaldurGylfason,
Sogavegi 40, Reykjavík.
Anton Carlos Reis Torcato,
Völustemsstræti 13,
Bolungarvik.
Auðbjörg Kristvinsdóttir,
Rjúpufelli 46, Reykjavík.
Birna Hróarsdóttir Laufdal,
Helgamagrastræti 51, Akureyri.
Guðbjörg Ásta Indriðadóttir,
Smyrilshólum 2, Reykjavík.
Arnar Hannes Gestsson,
Birkihlið 48, Reykjavík.
Ingólfur B. Aðalbjörnsson,
Borgarholti2, Ólafsvík.
Bergljót Baldursdóttir,
Ránargötu33, Reykjavík.