Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1994, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1994, Blaðsíða 19
27 FÖSTUDAGUR'7. JAKÚAK 1994: Fréttir Stefanía, Tómas og Heiðar -starfsfóik veitingaskálans við golfvöllinn á Selfossi. Selfoss: DV-mynd Kristján Hótelið yfirtekur rekstur golfskálans - möguleiki á stækkun golfvallarins Kristján Einaisson, DV, Selfossi; Nýir rekstraraöilar, hótelstjórinn á Selfossi, Heiöar Ragnarsson, og ungt fólk í samvinnu viö hann, þau Stef- anía Jónsdóttir og Tómas Þórodds- son, hafa tekið viö rekstri golfskál- ans á Svarfhólsvelli viö Selfossbæ. Golfvöllurinn á Selfossi er níu holna völlur á bökkum Ölfusár í landi Laugardæla. Forráðamenn Golfklúbbs Selfoss hafa rætt við landeigendur um aukið landrými til að stækka völlinn í 18 holna völl og eru möguleikar á því. Golfvöllurinn er nú þegar orðinn afar vinsæll og verður eflaust mun fjölsóttari ef af stækkun verður. Það sjá einnig nýir rekstaraðilar golf- skálans og líta björtmn augum til framtíðar. Merming Bíóhöllin/Bioborgin - The Demohtion Man: ★★ Tortímandinn í öf ugu veldi Það fyrsta sem glöggir aðdáendur vísindaskáldsagna munu taka eftir í The Demolition Man er hversu margt af því sem fyrir augu ber er kunnuglegt. Myndin byrjar á því að risastórt hús snargeggjaðs fjöldamoröingja (Wesley Snipes) er sprengt upp (Ricoc- het, Lethal Weapon 3). Lögreglumaður (Stallone) er sakaður um fjöldamorð en er saklaus (The Running Man). í refsiskyni er hann er frystur í ísklumpi (The Empire Strikes Back). 30 árum seinna er Stallone þídd- ur því hann er sá eini sem getur unnið á Snipes sem var sjálfur þíddur til þess að hafa uppi á og drepa uppreisnarforingja (The Terminator). Framtíðin er of fullkomin til að vera sönn (Logan’s Run), tungumálið hefur tekið miklum stakkaskiptum (Clockwork Or- ange), kynlífiö er fjarstýrt (Sleeper), stóribróðir fylgist með öllum borgurum (1984) og annars flokks þegnar búa neðanjarðar (Metropolis). Demohtion Man er nýjasta súperframleiðsla súper- framleiðandans Joel Silver. Hann á að baki nokkrar af bestu hasarmyndum níunda og tíunda árartugarins (48 HRS, Predator, Die Hard, Lethal Weapon 2) en undanfarin ár hafa myndir hans verið að þynnast fullmikið (Ricochet, Last Boy Scout, LW3). Demolition Man er engin undantekning þar á. Þrátt fyrir afskap- lega sniðuga framtíðarsýn er sagan sem fyrr segir bara endurtekning og hasaratriðin mikilvægu eru máttlaus. Þessir gaUar fara þó ekki að hafa veruleg áhrif á myndina fyrr en í seinni helmingnum. Þar á undan er hægt að hafa mjög gaman af San Angeles Kvikmyndir Gísli Einarsson áriö 2032 þar sem allt sem er ekki hollt er bannað, allir eru kurteisir og jákvæðir og tæknivæðingin er í algleymingi. Umgjörð myndarinnar er frábærlega vel unnin og er þetta besta myndræna dæmið um útópíu- framtíð sem sést hefur í bíó (Blade Runner er enn besta dystópíuframtíðin). Stallone og Snipes valda vonbrigðum sem andstæð- ingar en Stallone fær nokkra góða brandara meðan hann er að hneykslast á framtíðinni (einn af þeim verður örugglega með þeim fyndnari á árinu). Slags- málaatriðin og skotbardagamir milli þeirra eru fyrir neðan meðallag, enda er þetta fyrsta mynd auglýsinga- John Spartan (Stallone) og Simon Phoenix (Wesley Snipes) eru fornir fjandvinir sem hittast á ný i fyrir- myndarframtíð. stjórans BrambUla (það er vitað mál að auglýsingaleik- sljórar geta ekki gert góðan hasar). Leikrænt séð þá stelur Sandra Bullock senunni sem lögregla og ákafúr aödáandi tuttugustu aldarinnar. Pizza Hut fær heijarinnar auglýsingu út á að vera eini skyndibitastaðurinn sem lifði af veitingakeðju- stríð framtíðarinnar. Þegar myndin var sýnd í Banda- ríkjunum þá var það Taco Bell sem fékk auglýsinguna en núna hefur Pizza Hut verið (Ula) talsett ofan í hvert skipti sem einhver segir Taco Bell, sennilega vegna þess að Taco Bell er ekki eins vinsælt utan Bandaríkj- anna. Demolitlon Man (Band-1993) 114 min. Saga: Peter M. Lenkov, Robert Renau. Handrit: Daniel Waters (Batman 2, Hudson Hawk), Lenkov, Renau. Lelkstjórn: Marco Brambilla. Leikarar: Sylvester Stallone, Wesley Snipes, Sandra Buliock (Vanishing, Love Potion, Nigel Hawthorn (Yes Minister), Benjamin Bratt (Blood In, Blood Out), Bob Gunton, Glenn Shadix, Denls Leary. FRAMBOÐSFRESTUR Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæða- greiðslu um kjör stjórnar, trúnaðarmannaráðs og endurskoðenda í Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur fyrir árið 1994. Framboðslistum eða tillögum skal skila á skrifstofu félagsins, Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7, eigi síð- ar en kl. 12.00 á hádegi mánudaginn 10. janúar 1994. Kjörstjórnin Mosfellsbær - Trésmiður Mosfellsbær óskar eftir að ráða trésmið til starfa við áhaldahús bæjarins. Um er að ræða fjölbreytta tré- smiðavinnu vegna viðhalds og viðgerða í húseignum bæjarins. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar gefur tæknifræðingur Mos- fellsbæjar, Hlégarði, sími 666218 milli kl. 10 og 12.00 alla virka daga. Skriflegar umsóknir skulu hafa borist til undirritaðs fyrir 18. janúar 1994. Tæknifræðingur Mosfellsbæjar Uppboð Framhald uppboðs á eftirtöldum eignum verður háð á þeim sjálf- um sem hér segir: Hraunbraut 34, efri hæðt þingl. eig. Sophus Jóhannsson og Áslaug Ing- ólfsdóttir, gerðarbeiðendur Húsa- smiðjan hf. og Lífeyrissjóður sjó- manna, 11. janúar 1994 kl. 15.15. Kjarrhólmi 18,1. hæð merkt 1A, þingl. eig. Elsa Þorfinna Dýrfjörð, gerðar- beiðandi Byggingarsjóður ríkisins og Byggingarsjóður verkamanna, 11. janúar 1994 kl. 16.00. Álíhólsvegur 107, 004)2, þingl. eig. Logi Dýrfjörð, gerðarbeiðendur Al- þjóða líftryggingafélagið og Við- skiptaþjónustan hf., 11. janúar 1994 kl. 16.30. Reynigrund 29, þingl. eig. Sigurður Jóhann Tyrfingsson og Hrönn Hreið- arsdóttir, gerðarbeiðendur húsbréfa- deild Húsnæðisstofnunar ríkisins og fslandsbanki hf., 11. janúar 1994 kl. 17.00. Haiharbraut 1 D, 004)1, þingl. eig. Norðurslóð hfy gerðarbeiðendur Brunabótafélag Mands, Bæjarsjóður Kópavogs og Lífeyrissjóður Austur- lands, 11. janúar 1994 kl. 13.00. Hamraborg 26, 1. hæð A, þingl. eig. Jón Stefansson, gerðarbeiðandi Bygg- ingarsjóður verkamanna, 11. janúar 1994 kl. 13.45. Vatnsendablettur 86, þingl. eig. Stein- grímur Jóhannesson, gerðarbeiðend- ur Lífeyrissjóður Austurlands, Lífeyr- issjóður verslunarmanna og Vátrygg- ingafélag íslands, 11. janúar 1994 kL 11.00. Holtagerði 22, neðri hæð, þingl. eig. Jarl Jónsson, gerðarbeiðendur Bún- aðarbanki íslands, Bæjarsjóður Kópa- vogs, Frjáisi lífeyrissjóðurinn hf., Landsbanki íslands og sýslumaðurinn í Kópavogi, 11. janúar 1994 kl. 14.30. SÝSLUMAÐUMN í KÓPAV0GI Húsbréf Útdráttur húsbréfa Nú hefur farið fram fyrsti útdráttur húsbréfa í 4. flokki 1992. Koma þessi bréf til innlausnar 15. mars 1994. 1 Öll númerin verða birt í næsta Lögbirtingablaði og í Tímanum föstudaginn 8. janúar. Auk þess liggja upplýsingar frammi í Húsnæðis- stofnun ríkisins, á Húsnæðisskrifstofunni á Akureyri, í bönkum, sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum. c£h húsnæðisstofnun ríkisins HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 - 108 REYKJAVÍK • SlMI 69 69 00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.