Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1994, Síða 4
4
MÁNUDAGUR 31. JANÚAR 1994
Fréttir
------------------,---------------------------------------
Sólveig Ólafsdóttir á Norður-Fossi í Mýrdal:
Girðingar marg-
faldar af ísingu
„Rafmagnið fór af hjá okkur um
hálffjögur aðfaranótt laugardagsins.
Viðgerðarmennimir hafa verið að
nótt sem dag og við fáum rafmagnið
fljótlega," sagði Sólveig Ólafsdóttir á
Norður-Fossi í Mýrdal. Sólveig hefur
búið að Norður-Fossi í fimmtíu ár
og býr nú félagsbúi með syni sínum.
„Á flestum kúabúum eru Utlar vél-
ar sem framleitt geta nægilegt raf-
magn. Það er rafmagnshitun víða hér
í sveitinni og því bætist kuldinn ofan
á. Við kyndum hér tvö herbergi í einu
en verðum að taka hitann af þegar
við mjólkum. Við, sem munum fyrri
tíð, æðrumst ekki yfir þessu og upp-
lifum gamla daga.“
Sólveig taldi að það tæki nokkra
daga að tengja öll sveitaheimilin viö
rafmagnið því mest kapp er lagt á
að tengja aðallínuna í byrjun. Hún
sagði að nær allir bæir í Mýrdal,
Meðallandi, Álftaveri og Skaftár-
tungu væru án rafmagns.
„Rafmagnsleysið eykur aðeins erf-
iðið hjá okkur en meðan svona kalt
er þurfum við ekki að hafa áhyggjur
af því að mjólkin sé ekki nægilega
kæld.“
Sólveig sagði að fært væri á flesta
bæi enda væri snjórinn ekki mjög
mikill.
„Veðrið var mjög vont alla nóttina
en dró frekar úr því þegar leið á
morguninn. Krapið var svo mikið að
allar girðingar eru margfaldar að
þykkt og hanga úr þeim klepramir.
Austanáttin er versta áttin og mesta
úrkomuáttin hér um slóðir.“
-JJ
drukknun
Ungum manni var naumlega
bjargað frá drukknun í Reykja-
vikurhöfh klukkan rúmlega eitt
aðfaranótt sunnudags.
Maðurinn hafði verið á gangi
eftir Miðbakka og skyndilega
kastaði hann sér í sjóinn. Vitni
var að atburöinura og var strax
kailaö í lögreglu og sjúkrabíl.
Erfiölega gekk að ná mannin-
um upp úr höfninni og var hann
bæði kaldur og hrakinn þegar
hann náðist upp á hakkann.
Hann var fluttur rænulítill á
sjúkrahús en bjamaði rpjög fljót-
lega við og varð ekki meint af.
Maðurinn var n\jög ölvaður og
telur lögregla aö hann heföi með
cngu móti geta bjargað sér sjálfur
því mjög erfitt var fyrir björgun-
armennina að ná taki á bryggj-
unni til þess aö komast upp úr
höfninni.
Unnið var
að störfum.
helgina að viögerðum á rafmagnslínunum í Vestur-Skaftafellssýslu. Hér má sjá viðgerðarmenn
DV-mynd PP, Vík
Óveður var víða til vandræða um helgina:
Tugir beiðna um aðstoð
Lögreglan á Húsavík skráði 43
beiðnir um aðstoð í óveðrinu á laug-
ardag en þess utan var fólk aðstoðað
vitt og breitt um bæinn án þess að
sérstakar beiðnir kæmu inn á lög-
reglustöð. Aðstoða þurfti fólk við að
komast á milli húsa og aka starfs-
fólki við vaktaskipti á sjúkrahúsinu.
Hjá lögreglunni á Höfn í Hornafirði
fengust þær upplýsingar að þar væri
mesti snjór sem sést hefði í áratugi.
Á laugardag var þar bandvitlaust
veður og þurfti að aðstoða fólk við
að komast leiðar sinnar innanbæjar.
Engin slys eða óhöpp urðu þrátt fyr-
ir veðurhaminn. Færð var betri í
bænum í gær en vegir út frá honum
voru ófærir.
í Neskaupstað var vonskuveður á
laugardag. Þorrablóti bæjarbúa var
ekki aflýst vegna veðursins og skutl-
uðu jeppaeigendur fólki fram og til
baka. A Seyöisfirði var líka þorrablót
á laugardagskvöld og nutu blótsgest-
ir aðstoðar jeppaeigenda í bænum
þar sem götur innanbæjar voru
ófærar venjulegum bílum. Á Eski-
firði var bullandi ófærð en fólk hélt
sig að mestu heima við um daginn.
Engin óhöpp urðu en töluverður er-
ill hjá lögreglu.
Sömu sögu er að segja af öðrum
stöðum á Norður- og Austurlandi en
engin slys eða óhöpp hafa verið til-
kynnt.
-JJ
laustsíðaná
laugardag
Rafraagnslaust varð á öllum
bæjum frá Jökulsá á Sólheimas-
andi að Álftaveri snemma á laug-
ai'dagsmorgun. í veðrinu á laug-
ardag scttist mikil ísing á staura
og línur og er talið að um 80 stam-:
ar hafi falliö.
í g;nr fengust þær upplýsingar;
að viðgerðarvinna gengi vel. í Vik
í Mýrdal eru keyrðar dísilvélar
fyrir þorpið en þar sem linur eru
meira Og minna slitnar er ekki
hægt að flytja rafmagnið x sveit-
imar.
Snjdflóðá
Vestfjörðum
Snjóflóð féllu á tveim stöðrnn á
norðanverðum Vestfjörðum á
laugardag. Annað snjóflóðið,
frekar lítið, féll úr Kirkjubólshlíð
og lokaði veginum um stund.
Greiðlega gekk aö ryðja því burt.
Axmað féll í Hestfii'ði við ísafjarð-
ardjúp og gerði þaö veginn ófær-
an. Erigaf skemmdir xirðu á
mannvirkjum i þessum ílóðum.
Sofnaðiútfrá
eldamennskunni
íbúi í kjallaraherbergi við Eyja-
bakka ætJaði að matreiða á laug-
ardagsnóttina en sofnaði út frá
eldamennskunni. Klukkan tíu
um morguninn hringdu ná-
gramxar á slökkviliöið vegna
mikillar reykjarlyktar sem lagði
um húsið.
Slökkvilið braust inn í herberg-
ið þar sem íbúinn svaf enn. Hann
var fiuttur á slysadeild vegna
gruns um reykeitrun en varð
ekkimeintaf. -JJ
Slökkvilið var kallað út í versl-
unarmiöstöðina á Eiðistorgí á
laugardag vegna gruns um eld.
Enginn eldur fannst en hins; veg-
ar hafði rafinagnstafla brunnið
yfir í húsnæði Pósts og síma og
öryggi slegið út. Á eftir vai' hús-
næöiðreykræst. -JJ
í dag mælir Dagfari___________________
Þjóf ar á þingi
Dagfara brá heldur betur í brún
þegar hann las forsíðu Tímans á
fóstudaginn. Þar stóð með feitu
letri: ÞJÓFAR Á ÞINGI. Voru þing-
menn uppvísir að því að stela? Var
nú ekki nóg af vandræðunum af
þingmönnunum okkar þótt ekki
væru þar þjófar í þeirra röðum?
Margt hafa alþingismenn verið
sakaðir um en aldrei hafa þeir ver-
ið þjófkenndir. Var það virkilega
svo að fulltrúar þjóöariimar á lög-
gjafarsamkundunm létu sig hafa
það að stela hver af öðrum?
Það var óneitanlega nokkur léttir
að lesa fréttina og sjá að þjófamir
á þinginu, sem Tíminn greindi frá,
voru einhveijir sem voru aö stela
frá þingmönnum en ekki aö þeir
væru að stela hver frá öðrum. í
fréttinni segir að þjófnaðir séu tíðir
á skrifstofum Alþingis og þing-
menn sakni margra hluta, svo sem
skilríkja og ávísanahefta.
Það leiðir hugann að því'að þjóð-
in er vond við þingmennina. Þeir
eru skammaðir blóðugiun skömm-
um, þeir eiga þaö alltaf á hættu að
falla út af þingi, þeir hafa aldrei
rétt fyrir sér ef þeir opna munninn
og svo eru þeir látnir dúsa niðri á
þingi og hafðir þar til sýnis sem
helstu blórabögglar landsins á
smánarlaunum. Því er jafnvel
haldið fram aö þingmenn séu ekki
læsir og forseti Alþingis hefur
neyðst til að gefa út yfirlýsingar
um að þingmenn séu „flestir læs-
ir“. Það er þess vegna alls ekki rétt
að allir þingmenn séu ólæsir, það
eru bara sumir þeirra ólæsir og
sennilega nokkuð fáir, því forseti
þingisins hefur það fyrir satt aö
„flestir þingmenn séu læsir“.
Svona er nú ráðist ómaklega á
þingmennina okkar og þeir hafðir
fyrir rangri sök og illa farið með
þá. Þaö væri nær að hugsa betur
um menntun þingmanna, launa-
kjör og aðbúnað allan því nógu
aumt er þeirra líf. Samt dettur ein-
hverjum í hug að stela frá þeim því
litla sem þeir eiga! Þaö þarf mis-
kunnarlausa þjófa með ríkt ímynd-
unarafl til að láta sér detta það í
hug að þingmenn eigi einhveija þá
hluti sem verðmætir geta talist sem
séu þess virði aö þeim sé stolið. Og
hafa brjóst í sér til að stela því.
Hvaða þjófar eru þetta? Hverjir
geta verið svona illa innrættir að
ráðast á þá smælingja sem sitja á
þingi og geta ekki borið hönd fyrir
höfuð sér? Svarið liggur ekki á
lausu, því ekki hefur náðst til þjóf-
anna eða eins og segir í Tímanum:
„Ekki hefur náðst til þeirra sem
stolið hafa frá alþingismönnum að
undanförnu og því liggur ekki fyrir
hvort hér er um skipulagða starf-
semi fárra manna að ræða.“
Þjófarnir haga sér eins og stór-
furstar og ráðherrar. Þeir láta ekki
ná til sín í síma þegar blaðamaður
frá Tímanum hringir í þá. Þetta er
týpisk óskammfeilni manna sem
halda að þeir geti farið sínu fram
án þess að láta fjölmiðla vita hvað
fyrir þeim vakir. Þjófamir hafa
ekki látið ná til sín vegna þess að
þeir eru uppteknir við iðju sína og
mega ekki vera að því að eiga við-
töl við blaðamenn meðan þing-
menn ganga lausir um sali Alþing-
is og skilja eigur sínar eftir á glám-
bekk. Þjófamir em önnum kafnir
og Tíminn segir réttilega að ekki
hafi náðst til þeirra til að upplýsa
hvort þeir séu einn eða fleiri.
Nú er það svo að þingmenn em
alltaf til reiðu þegar blaðamenn
hringja í þá. Þaö næst í þá kvölds
og morgna og í hvert skipti sem
eitthvað bjátar á í þjóðfélaginu
hlaupa menn til og efna til útifund-
ar og kalla fulltrúa þingsins út á
tröppur til að afhenda þeim mót-
mælaskjöl. Svo þyrpist fólk á þing-
palla og hefur frelsi til að hlusta á
hvaðeina sem blessaðir þingmenn-
imir segja úr ræðustól. Þingmenn
em sem sé óvarðir og aðgengilegir,
hvaða vitleysu sem þeir gera og
hvaða vitleysu sem þeir segja.
En þjófar. Þeir era í felum. Þeir
komast upp með það að láta ekki
ná í sig þegar blaðamenn þurfa á
því að halda og geta farið huldu
höfði þegar þeim sýnist. Þetta er
ekkert jafnrétti og ekkert réttlæti
og það liggur beinast við fyrir þing-
menn að þeir setji lög sem kveða
skýrt á um það að þjófar gefi sig
fram þegar þeir stela til aö lögregl-
an og fórnardýrin hafi vitneskju
um það hvort stuldimir séu skipu-
lagðir af einum eða fleiri.
Og það verður að setja í lög að
þjófar láti ná í sig eftir að þeir hafa
stolið. Það er það minnsta.
Dagfari