Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1994, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1994, Side 16
16 MÁNUDAGUR 31. JANÚAR 1994 Leiðbeiningar við framtalsgerð Verkamannafélagið Dagsbrún gefur félagsmönnum sínum kost á leiöbeiningum viö gerð skattaframtala helgina 5.-6. febrúar 1994 meö sama hætti og undanfarin ár. Þeir sem hug hafa á þjónustu þessari eru beðnir um aö hafa sam- band við skrifstofu Dagsbrúnar, síma 25633, og láta skrá sig til viötals eigi síðar en 4. febrúar nk. Ekki er unnt aö taka við beiðnum eftir þann tíma. Verkamannafélagiö Dagsbrún Útboð F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir tilboðum í endurmálun á fasteignum íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkju- vegi 3, Reykjavík, gegn kr. 5.000,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 8. febrúar 1994, kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800 Útboð F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir tilboðum í endurmálun á stofnunum aldraðra, bókasöfnum og bílageymslum. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkju- vegi 3, Reykjavík, gegn kr. 5.000,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 15. febrúar 1994, kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800 Útboð F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir tilboðum í endurmálun í grunnskólum Reykjavík- urborgar. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkju- vegi 3, Reykjavík, gegn kr. 5.000,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudáginn 10. febrúar 1994, kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frlkirkjuvegi 3 - Simi 25800 BIRKENSTOCK ■ Heilsusamlegur skófatnaður. ■ Meira en tveggja alda reynsla og þekking. ■ Með sífelldri þróun, rannsóknum og nýj- ustu tækni er stöðugt unnið að því að gera góðan skófatnað betri. Teg. Arizona Stærðir: 35-40, kr. 3.695, 41 -46, kr. 3.995, ir: svartur, blár, hvítur eða brúnn. Laugavegi41 - sími 13570 Kirkjustræti 8 - sími 14181 Meimiiig Bruce Willis og Sarah Jessica Parker á bófaveiðum á fljótunum í Pittsburgh. Laugarásbíó og Stjömubíó -1 kjölfar morðingja: ★★ Plask í Pittsburgh Bruce Willis er engum likur. Allt frá því hann hóf leik- araferil sinn í sjónvarpsseríunni Moonhghting hér um árið hefur það verið morgunljóst að hann er 'ékki meiri leikari en ég eða þú. Hann hefur svosem heldur aldrei þurft aö láta virkilega á einhverja leikhæíileika reyna, honum hafa nægt þessi tvö eða þrjú svipbrigði sem hann kom sér upp þegar hann fór að leika ofur- lögguna í Die Hard myndunum. Bruce er ekki á nýjum slóðum í þessari mynd. Hér leikur hann einn eina ofurlögguna, Tom nokkurn Hardy, sem er lögga eins og pabbi og allir frændum- ir, allir rosa kátir. Hardy lendir hins vegar í vandræð- um þegar hann þarf að bera vitni gegn félaga sínum og frænda sem varð of harðhentur við handtöku. Þeir félagamir vora að rannsaka morð á ungum konum, morð sem Hardy var sannfærður um að framin væm af löggu. En hann var gerður útlægur úr morðdeild- inni fyrir að snúast gegn samherjanum, sendur í vatnahundana sem hann kallar svo, eða Qjótalögregl- una í Pittsburgh þar sem myndin gerist. Morðingi ungu stúlknanna íinnst og er dæmdur til dauða. Alhr era ánægöir nema Tom Hardy. Þá stekkur myndin fram um tvö ár, eða frá árinu 1991 til ársins 1993. Dag nokkurn finnst lík ungrar stúlku í ánni. Drápsaðferðin er ekki hin sama og í hinum fyrri morðum tveimur árum áður en Hardy er engu að síður viss um að sami maður er þar á ferö- inni. En hann er einn um þá skoðun. Hann lætur það ekki aftra sér frá því að rannsaka máhð, með eða án aðstoðar nýja félaga síns, hennar Jo Christman (Park- er), utan eftirhtssvæðis síns eða innan. Hann skal komast að hinu sanna, hversu erfiður róðurinn kann að vera, sama hve oft gömlu starfsbræður hans úr morðdeildinni reyna að bregða fyrir hann fæti. í kjölfar morðingja er ósköp venjulegur tryllir með Kvikmyndir Guðlaugur Bergmundsson öllum þeim persónutýpum sem eiga heima í mynd af þessu tagi. Og eins og vera ber era hasarinn og spenn- an byggð upp á æsilegum eltingaleikjum, hér bæði á bílum og bátum, þ.e. bílar elta bíla, bátar elta báta og bátar elta bíla. Gert af nokkrum þrótti þegar best læt- ur, áratriðin bera þó af, aldrei leiðinleg en heldur ekk- ert andans afreksverk. Prýðileg skemmtun fyrir has- armyndaaðdáendur og hin besta skemmtun fyrir okk- ur aðdáendur Brace Wihis. í kjölfar morðingja (Striking Distance). Kvikmyndataka: Mac Ahlberg. Handrit: Rowdy Herrington og Martin Kaplan. Leikstjóri: Rowdy Herrington. Leikendur: Bruce Willis, Sarah Jessica Parker, Dennis Far- ina, Tom Sizemore, Robert Pastorelli. Bíóhöllln/Bíóborgin-Mrs. Doubtfire: ★ ★ ★ Barnfóstra eigin barna Gamanmyndin Mrs. Doubtfire stendur og fellur með Robin Wihiams. Aht byggist á að honum takist að skemmta áhorfandanum og hann stendur svo sannar- lega fyrir sínu. Hlutverk Daniels Hihards/Mrs. Doubt- fire er geysilega krefjandi og aðeins á færi afburða leikara að koma því til sómasamlega til skha og túlkun Robin Wilhams er meistarastykki. Þeir sem fylgst hafa með Wilhams hafa örugglega tekið eftir hinum ótrúlegu hæfileikum hans til að herma eftir röddum og alkunna er hversu vel honum tekst að impróvisera þegar hann er kominn í ham. í fyrsta atriðinu í Mrs. Doubtfire koma strax upp í huga manns þær tvær kvikmyndir sem honum hefur tekist best upp í raddbeitingum, Good Morning Vietnam, þar Kvikmyndir Hilmar Karlsson sem hann nánast samdi mergiaðan textann fyrir fram- an myndvélina, og ótrúleg raddbeiting hans í Aladdin. Daniel Hihiard er leikari sem hefur atvinnu af því að tala inn á teiknimyndir og þegar honum líkar ekki textinn, sem hann á að flytja, breytir hann honum og missir atvinnuna. Að missa vinnuna er engin nýlunda fyrir Hihiard og er eiginkona hans búin aö fá sig fullsadda af kæruleysi eiginmannsins. Mæhrinn fylhst þegar hún kemur heim úr vinnunni á afmæh sonar þeirra og sér að Hilliard er búinn að bjóða allri göt- unni og hálfum dýragarði í afmæhsveisluna. Heimtar hún skhað og það strax. Þar sem Hhhard telst ekki fyrirmyndarfaðir samkvæmt úrskurði dómarans fær hann aðeins aö sjá bömin sín þrjú á laugardögum. Þessi úrskuröur er mikið áfall fyrir hann og getur hann ekki hugsað sér lífið án bamanna. Daniel Hilhard hefur hingað til haft ráð undir hverju rifi og þegar eiginkonan auglýsir eftir bamfóstra breytir hann sér í Euphegenia Doubtfire, breska ekkju sem sækir um stöðuna og fær hana. Eins og vænta má skapar þetta hinar kostulegustu uppákomUr. Robin Wihiams er ekki aðeins frábær gamanleikari, Mrs. Doubtfire í húsverkum. Robin Williams sýnir snilldartakta í krefjandi hlutverki. hann hefur einnig skhað dramatískum hlutverkum með miklum ágætum. Má þar nefna kennarann í Dead Poets Society, lækninn í Awakenings og flækinginn í The Fisher King. Þessir leikhæfheikar nýtast honum í Mrs. Doubtfire þegar örvænting Hilliards er algjör yfir því að þurfa sjá af börnum sínum. Chris Columbus hefur sýnt það með Home Alone myndunum tveimur að hann er kjörinn leikstjóri fjöl- skyldugamanmynda og varla er hægt að hugsa sér betri skemmtun fyrir aha fiölskylduna en að fylgjast með hinni þriflegu Mrs. Doubtfire. Mrs. Doubtfire. Leikstjóri: Chris Columbus. Handrit: Randi Mayem Singer og Leslie Dixon. Kvikmyndun: Donald McAloine. Tónlist: Howard Shore. Aðalhlutverk: Robin Williams, Sally Field, Pierce Brosnan og Harvey Fierstein.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.