Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1994, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1994, Qupperneq 20
20 MÁNUDAGUR 31. JANÚAR 1994 Fréttir Biðlistar lengjast á hjartadeild Landspítalans eftir bruna: Oþægindi vegna bilaðrar hjartaþræðingarvélar -10 sjúklingar með bráða kransæðastíflu utan 12 til 14 sjúklingar hafa bæst á biðlista eftir hjartaþræðingu á Landspítalanum eftir að straum- gjafi brann yfir í hjartaþræðingar- tæki þar 13. janúar síðastliðinn. „Þaö er svo sem ekki óskaplega alvarlegt því það er upp á tæki að hlaupa á Borgarspítalanum. Hins vegar er þetta eini staðurinn á landinu þar sem gerðar eru útvíkk- anir á kransæðum og af því höfum við miklu meiri áhyggjur því fólk þarf yfhieitt á þess háttar aðgerð að halda með skömmum fyrirvara. Það er ekki hagstætt að láta bið- lista myndast á því sviði þannig að við brugðum á það ráð að senda 10 sjúkhnga, sem mest lá á og ekki var auðvelt að meðhöndla, til Bret- lands,“ segir Þórður Harðarson, prófessor á hjartadeild Landspítal- ans. Þórður segir að af þessari bilun hafi vissulega skapast óþægindi því bráðatilfelli geti komið upp þannig að ekki gefist tími til að senda sjúklinga. Sá kostur sé hins vegar fyrir hendi aö gera opna skurðað- gerð. Þess vegna sé nauðsynlegt að koma upp nýjum tækjakosti og starfrækja hcurn samhliða eldri tækjum. Kostnaður við skurðaðgerð til að útvikka kransæðar hér á landi er um 600 til 800 þúsund krónur. Hins vegar kostar skurðaðgerðin er- lendis vel á aðra milljón og er þá ekki tekinn með í dæmið ferða- kostnaður, uppihald og kostnaður fylgdarmanna. Farið hefur verið fram á að ný tæki og stofa verði fengin á Land- spítalann en ekki hefur fengist fjár- veiting fyrir shku. -PP Eskifjörður: Milljónatjón er tvísiglt var ábryggju Emil Thorarensen, DV, Eskifirði: Albniklar skemmdir urðu á nýrri harðviðarbryggju, sem Trévangur er að ljúka smíði á hér á Eskifirði, á miðvikudagsmorgun. Japanskt flutningaskip, átta þúsund tonn, sigldi þá tvisvar á bryggjuna og stór- skemmdi. Skipið kom hingað til að taka frysta síld frá Austfjarðahöfn- um á Japansmarkað. Sævar Harðarson, framkvæmda- stjóri Trévangs, sagði að verið væri að kanna skemmdirnar og taka skýrslur en ljóst væri að um mhljóna tjón væri að ræða. Þá mun lokafram- kvæmdum við smíðina seinka enn meir en orðið er. Síðasta nýsmíðin Grenjaskytta ók á ref Páll Guðmundsson, grenjaskytta til margra ára og margra refa og minka bani, veiddi ref á ahsérkenni- legan hátt um helgina. Páh var á leið í sumarbústað sinn þegar hann ók yfir hausinn á ref í Þrengslunum. Hann segist hafa séð refinn skyndi- lega í bhljósuniun og ekki vitað af fyrr en hann heföi ekið yfir hann. Páh tók skottiö af refnum og lagði það inn á hreppsskrifstofu Ölfus- hrepps og fékk greitt fyrir það hkt og fyrif þá refi sem hann hefur skot- ið. -pp Búðahreppur: Iþróttahús og bjúkrunarheimili efstáblaði Ægir Kristinsson, DV, Fáskrúðsfirði: Á fundi hreppsnefndar Búða- hrepps var ákveðið að innheimta 9,2% útsvar á þessu ári. Fasteigna- gjöld verða 0,36% og tíu prósent af- sláttur veittur af fasteignagjöldum þeim er greiða á réttum gjalddögum. Helstu framkvæmdir á vegum Búðahrepps á þessu ári verða vænt- anlega við byggingu íþróttahúss og hjúkrunarheimilis. Búðahreppur er búinn að greiða um 8 mihjónir króna í teikningar að nýju hjúkrunarheim- ih, þar af fengið 3,5 mhljónir frá rík- inu. Fjárveitinganefnd Alþingis hef- ur gert samning við hreppsnefnd Búðahrepps vegna byggingar hjúkr- unarheimilis 1995. Hreppsnefndin hefur á síðustu 18 mánuðum ábyrgst 55 mhljónir króna í lánum th atvinnufyrirtækja á Fá- skrúðsfirði. 1993 var unnið fyrir 5 mhljónir króna í atvinnuskapandi vinnu, þar af um 1,5 mhljónir frá Atvinnuleysistryggingasjóöi. Þá var gert stórátak í fegrun bæjarins. Hreppsnefndin hefur sent teikn- ingar að væntanlegu íþróttahúsi th vinabæjar Búðahrepps, Gravehnes í Frakklandi, þar sem er stór límtrés- verksmiðja. Þar verður athugað hvort smíði hmtrés th byggingarinn- ar geti hugsanlega farið fram. Sigurður Sverrisson, DV, Akranesi: Nýtt fiskveiði- og rannsóknarskip, Islándia, sem byggt var í samvinnu við Þróunarsamvinnustofnun ís- lands og fer á næstunni til Græn- höfðaeyja, var sjósett í Skipasmíða- stöð Þorgeirs & Eherts á Akranesi 24. janúar. Þetta skip var eina nýsmíðaverk- efni skipasmíðaiðnaöarins á íslandi og eru ekki neinar horfur á að ný skip verði smíðuð hér á landi á næstu misserum. Islándia er 22,5 metra langt og mesta breidd 5,8 metrar. Skipiö er búið 460 kW Caterphlar aðalvél og í því eru tvær ljósavélar. Það er út- búið bæði th tog- og línuveiða og íbúðir eru fyrir 17 manns um borð. Islandia sjósett i skipalyftunni hjá Þ&E. DV-mynd Siguröur Niðurskurði mætt á Keflavíkurflugvelli: Löggæsla aukin í f lugstöð - og vopnaleit bætt, segir lögreglustjóri „Það hefur verið ákveðið að auka löggæslu í flugstöðinni en það varð að vera á kostnað annarrar varð- stöðu. Þannig fækkuðum við mönn- um í aðalhhði úr tveimur í einn,“ segir Þorgeir Þorsteinsson, lögreglu- stjóri á Keflavíkurflugvelh. Þessari fækkun fylgir aukið vinnuálag á þann sem er í aðalhhði en honum th hjálpar er annar maður á álagstímum og bandarískur her- maður. Hins vegar er bætt úr þeim þætti að aðeins einn lögreglumaður var á vakt í flugstöð, sem margir lög- reglumenn og fleiri hafa orðið til að gagnrýna. Annar lögreglumannanna í flugstöðinni mun annast síþjálfun starfsmanna embættisins í flugstöð- inni. „Það er verið að reyna aö auðvelda ýmsa afgreiðsluhætti þannig að ein- um manni vinnist starfið í aðalhhð- inu léttar. Það gefur auga leið að nið- urskurður hefur einhver áhrif en ég hef bent ráðuneytinu á nýja tekju- pósta sem munu minnka skerðingu á þjónustu," segir Þorgeir. I DV1 sumar var sagt frá slælegri vopnaleit hjá farþegum í Leifsstöð. Þá tókst sprengjusérfræðingum Landhelgisgæslunnar að smygla gervisprengjum og byssum, sem voru vel faldar í handfarangri, í gegnum vopnaleit. í kjölfar þessa voru starfsmenn í vopnaleit sendir á námskeið th að vera betur í stakk búnir th að sinna störfum sínum. Einnig var fjölgað um einn mann við öryggisgæslu í flugstöðinni eins og fyrrsagði. -pp/ÆMK Nýttnafn - nýir eigendur JúJía Imsland, DV, Höfii: Nýir eigendur, Hhmar Guðmunds- son, Ólafur Vilhjálmsson og Kári Sölmundarson hér á Höfn, hafa nú tekið við Vísi SF 64 og hafa breytt um nafn á skipinu. Það heitir nú Sig- urður Lárusson SF 110. Skipið verður gert út á snurvoð og fylgdi þvi 300 tonna þorskíghdakvóti. Skipstjóri verður Ólafur Vilhjálms- son. Páll Guðmundsson grenjaskytta. DV-mynd ÞÖK Sigurður Lárusson SF110 Hornafirði. Höfn: DV-mynd Ragnar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.