Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1994, Page 34

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1994, Page 34
42 MÁNUDAGUR 31. JANÚAR 1994 Afrnæli Helgi Indriðason Helgi Indriöason, fyrrverandi bóndi í Laugarási í Biskupstungum, síöar til heimilis að Háaleitisbraut 111 í Reykjavík en nú vistmaður á Kumbaravogi á Stokkseyri, varð áttræðurígær. Starfsferill Helgi er fæddur í Ásatúni í Hruna- mannahreppi og ólst þar upp. Eftir fermingu átti Helgi við vanheilsu að stríða um árabil en tvítugur að aldri fór hann til náms að Bænda- skólanum á Hólum og lauk þaðan búfræðingsprófi 1936. Að námi loknu starfaði hann tvö ár að Hólum sem flósamaður og síð- an ráðsmaður. Sumarið 1938 var hann við fjárgæslu á Tungna- mannaafrétti vegna mæðiveikisfar- aldurs og vann síðan við bústörf á nokkrum bæjum á Suður- og Vest- urlandi næstu tíu árin, að undan- skildu einu ári í Bretavinnunni í Reykjavík. Síðustu fjögur þessara ára var hann ráðsmaður hjá Bjarna Bjamasyni, skólameistara á Laug- arvatni. 1947 hóf Helgi búskap á jörð læknishéraðsins í Laugarási í Bisk- upstungum. Þar bjó hann í tuttugu og þrjú ár. 1970 flutti Helgi til Reykja- víkur þar sem hann vann við ýmis verslunar- ogþjónustustörf, lengst þó sem afgreiðslumaður í Málaran- um. Hann hætti störfum 1987. Helgi hefur alltaf verið mikill unn- andi hestamennsku. Á yngri árum ferðaðist hann ríðandi víða um land og hann var meðal stofnenda hesta- mannafélaganna Loga í Biskups- tungum og Smára í Hrunamanna- hreppi. Fjölskylda Helgi kvæntist 1947 Guðnýju Aðal- björgu Guðmundsdóttur, f. 2.4.1913, d. 17.4.1993. Foreldrar Guðnýjar voru Guðmundur Bjamason, f. 1870, d. 1924, b. í Önundarfirði, ogkona hans, Guðný Amgrímsdóttir, f. 1871, d. 1920. Fóstursonur Helga og Guðnýjar er Birgir Stefánsson, f. 11.7.1948, stýrimaður í Reykjavík, dóttir hans er Ásrún, f. 17.3.1989. Kjördóttir Helga og Guðnýjar er Gróa Kristín Helgadóttir, f. 2.1.1952, en sambýlis- maður hennar er Guðmundur Har- aldsson, f. 26.12.1953. Tvíburadætur Gróu era Guðný Birgitta og Helga Sigríður Harðardætur, f. 28.3.1972. Þau era búsett á Flateyri. Helgi átti tíu alsy stkini en þar af eru fimm á lífi. Foreldrar Helga voru Indriði Grímsson, f. 27.7.1873, d. 10.11.1921, b. í Ásatúni í Hrunamannahreppi, og kona hans, Gróa Magnúsdóttir, f.20.8.1877. Ætt Indriði var sonur Grims, b. í Ása- koti, Guðmundssonar, b. á Kjarans- stöðum, Þorsteinssonar, b. í Mið- dals-koti, Vigfússonar, b. á Kiða- bergi í Grímsnesi, Sigurðssonar, b. í Ásgarði, Ásmundssonar, fóður Jóns, afa Jóns forseta. Dóttir Sig- urðar var Salvör, amma Tómasar Sæmundssonar „Fjölnismanns". Móðir Indriða var Helga Guð- mundsdóttir, b. á Brekku í Bisk- upstungum, Guðmundssonar, í Austurhlíð, Eyjólfssonar. Móðir Guðmundar á Brekku var Guðrún Magnúsdóttir, alþingismanns í Bráðræði í Reykjavík, Jónssonar, og konu hans, Guðrúnar Jónsdótt- ur, systur Jóns Hjaltalín landlækn- is. Móðir Helgu var Helga, dóttir Jóns Bachmann, prests í Klaustur- hólum, Hallgrímssonar Bachmann, læknis í Bjamarhöfn. Móðir Jóns var Halldóra Skúladóttir landfó-geta Magnússonar. Móðir Helgu Jóns- dóttur var Ragnhildur Bj ömsdóttur, prófasts á Setbergi, Þorgrímssonar, sýslumanns í Hjarðarholti, Sigurðs- sonar, bróður Ragnhildar, móður Eggerts Ólafssonar skálds. Móðir Helgi Indriðason. Ragnhildar var Helga Brynjólfsdótt- ir, sýslumaxms í Hjálmholti, Sigurðs- sonar, sýslumanns í Saurbæ á Kjal- amesi, Sigurðssonar, lögmanns í Saurbæ, Bjömssonar. Gróa var dóttir Magnúsar, b. í Bryðjuholti, Jónssonar, b. í Efra- Langholti, Magnússonar, b. í Efra- Langholti, Eiríkssonar, í Bolholti, Jónssonar, ættfóður Bolholtsættar- innar. Móðir Gróu var Guðný Ein- arsdóttir, b. í Bryðjuholti, Einars- sonar, b. í Bryðjuholti, Bjamasonar, b. á Sóleyjarbakka, Jónssonar rauðs, b. á Fjalli, Jónssonar. Jónas Guðmundsson Jónas Guðmundsson vinnuvéla- sflóri, Bjarteyjarsandi á Hvalfjarð- arströnd, verður fimmtugxu- á morgun. Starfsferill Jónas er fæddur á Bjarteyjársandi og ólst þar upp í föðurgarði. Jónas vann að búi foreldra sinna og var ennfremur starfsmaður Olíu- stöðvarinnar í Hvalfirði og Ræktun- arsambanda Hvalfjarðar. Hann starfaði einnig hjá íslenskum aðal- verktökum um marga ára skeið. Jónas hefur rekið eigin verktaka- fyrirtæki frá árinu 1973. Fjölskylda Jónas kvæntist 12.12.1971 Guð- rúnu Bjameyju Samsonardóttur, f. 25.12.1949, húsmóður frá Hvamms- vik í Kjós. Foreldrar hennar: Sam- son Samsonarson og Guðlaug Helga Guðbjömsdóttir. Böm Jónasar og Guðrúnar Bjam- eyjar: Guðbjörg Elva, f. 3.2.1970, nemi, búsett í Mosfellsbæ, sambýlis- maður hennar er Símon Amar Sverrisson; Guðlaug Helga, f. 29.8. 1971, nemi, búsett í Kópavogi, sam- býlismaður hennar er Pálmi Jónas- son; Amfinnur, f. 5.3.1973, nemi; Guðjón, f. 26.2.1975, nemi; Samson Bjami, f. 19.10.1983; Dofri, f. 3.3. 1987. Systkini Jónasar: Guðjón, f. 29.10. 1939, d. 1973, vélstjóri; Hallgrímur, f. 27.8.1945, húsasmíðameistari í Hafnarfirði, kvæntur Rebekku Gunnarsdóttur; Óttar, f. 28.2.1947, vélstjóri í Reykjavík, kvæntur Önnu G. Jónsdóttur; Siguijón, f. 5.8.1948, bóndi á Bjarteyjarsandi, kvæntur Kolbrúnu R. Eitíksdóttur. Fóstur- systir Jónasar: Guðbjörg Dúfa Stef- ánsdóttir, f. 7.11.1934, húsmóðir, búsett á Ferstiklu, maki Vífill Búa- son. Foreldrar Jónasar: Guðmundur Jónasson, f. 16.5.1903, d. 1991, bóndi Jónas Guðmundsson. á Bjarteyjarsandi, og Guðbjörg Guð- jónsdóttir, f. 15.3.1909 í Vatnsdal í Fljótshlíð, Guðbjörg er nú búsett á Dvalarheimilinu Höfða á Akranesi. Jónas tekur á móti gestum á af- mælisdaginn í Félagsheimilinu að Hlöðumeftirkl. 19. Halla Magnusdottir Halla Magnúsdóttir húsmóðir, Syðri-Gróf í Villingaholtshreppi í Ámessýslu, varð sextug á laugar- daginn. Starfsferill Halla er fædd á Syðri-Brúnavöll- um á Skeiðum en fluttist á fyrsta ári með foreldrum sínum að Skúfs- læk í Villingaholtshreppi og ólst þar upp. Halla flutti með manni sínum til Selfoss 1957 og bjó þar í 2 ár en þar var maður hennar bílstjóri hjá M.B.F. 1959 fluttu þau að Loftsstöð- um í Gaulverjabæjarhreppi og bjuggu þar í 2 ár en þá keyptu þau jörðina að Syðri-Gróf í VÖlinga- holtshreppi og hafa búið þar síðan, nú síðustu árin með Bjama syni sín- um. Fjölskylda Halla giftist 15.4.1956 Páli Axeli HaUdórssyni, f. 24.10.1928, bónda. Foreldrar hans: Halldór Bjamason bóndi og Lilja Ólafsdóttir, Króki. Böm Höllu og Páls Axels: Mar- grét, f. 22.21943, búsett í Grindavík, maki Vilberg M. Ármannsson, þau eiga þrjú börn, Höllu, Pál Axel og Ármann; Lilja, f. 28.10.1955, búsett í Þorlákshöfn, maki Einar I. Reynis- son, þau eiga sex böm, Þórarin Gretti, Óttar Reyni, Ingunni Brynju, Axel Pál, Hjalta og óskírða stúlku; Bjami, f. 1.6.1958, búsettur að Syðri-Gróf, maki Ása Dalkarts, þau eiga eina dóttur, ídu; Guðríöur Ingi- björg, f. 12.3.1960, búsett á Reykjum, maki Rúnar Bjarnason, þau eiga þijú börn, Vöku, Höllu og Bjama; Magnús Halldór, f. 25.8.1978, bú- settur að Syðri-Gróf. Halla Magnúsdóttir. Foreldrar Höllu: Magnús Eiríks- son, f. 1894, d. 1992, bóndi, og Guðríð- ur Ingibjörg Gísladóttir, f. 1899, d. 1973, húsfreyja. Þau bjuggu á Syðri- Brúnavöllum. SPENNUM BELTIN sjálfra okkar vegna! UMFERÐAR RÁÐ Gunndóra Jóhannsdóttir, Hólavegi 10, Siglufirði. Stakkholti 3, Reykjavík. Wilma Nora Thorarensen, Höfðahlíö 5, Akureyri. Guðrún R. Guðjobnsen, Leimtanga 22, Mosfellsbæ. IngviFlosason, Skarðshlíð 13c, Akureyri. Guðiaug Lovisa Óiafsdóttir, Grenimel49, Reykjavík. Ásgeir Ágústsson, Neðastaleiti 7, Reykjavik. 60ára 50 ára Hadda Guðmundsdóttir, Garðabraut 20, Akranesi. Reynir Reimarsson, Sæbergi 14, Breiðdalsvík. Saeherg Þórðarson fasteignasali Fasteignamiðl- uninniBergi(á afmæíi I.2.), Áshamri.Mos- fellsbæ. Eiginkona hanserMagný Kristinsdóttir. Þautakaámótiges fellowhúsinu í Von afmælisdaginn frá 1 Sæmundur Ingólfsson, Gauksrima30, S Ingibergur Guð Gísli Bjömsson, Jörundarholti 37, Akranesi. Magnús Hafsteinn Elísson, Randversstöðum, Breiðdalsvík. Hafsteinn Stefánsson, Hraunbrún31, Hafnarfirði. Páll Guðmundsson, Traðarlandi 22, Bolungarvik. BenteNielsen, Grundarási3, Reykjavik. Guðjón Atli Steingrímsson, Vanabyggð 4b, Akureyri. Sif Gunnarsdóttir, Öldugötu 9, Reykjavík. Sviðsljós Ungt fólk á Flúðum. Frá vinstri Helgi Kjartansson, Einar Logi Sigurgeirs- son og Arnheiður Þorvaldsdóttir. DV-mynd Sigmundur Hreppamenn blóta þorra Sigmundur Sigurgeirsson, DV, Flúöum; Það var líf og fjör hjá Hreppa- mönnum þegar þeir blótuðu þorr- ann sl. laugardag, 22. janúar. Hjálp- arsveitin Snækollur stóð fyrir skemmtuninni sem þótti takast með besta móti. Hljómsveit Ingu Eydal spilaði og söng fram á morgun og að ballinu loknu óku hjálparsveitarmenn góðglöðum sveitungum sínum heim að dyrum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.