Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1994, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 1994
7
r>v Sandkom
Ekkert til
,J>aöfeestí
kaupfélagmu"
hefurverið
slagorösam-
vimiulireyílng-
arinnar í gcgn-
umtíðina.A
mörgum stöð-
umálandlnu .
hefurverslun
kaupfélagsins
veriðeina
versluninog
fólkþvíekkiátt
annarra kosta völ. Á dögunum var
brotist inn í kaupféiagið í litlu plássi
á Norðuriandi og þaðan stolið ýmsum
nauösynjavðrum. Lögreglan kannaði
málið en varö líöð ágengt Vitanlega
hófust vanga veltur á meðal þorpsbúa
um innbroöð og komust nœr allir að
sömu niðurstöðu: Þjófaniir gætu
ekki hafa veríð innfæddir þvt allir
þorpsbúar vissu aö það fengist ekkert
í kaupfélaginu!
Þorrablótssaga
Þorrahlóön
standasem
hæst.Þareret-
iðótæpilegaog
drukkiðum
ieið.Annálar
úrsveitalifmu
enifastirliðiri
: þorrablótum og
ekkort imtian :;:
dregiðíþeim
. pistium.Áeinu
blóönusagði
frábóndakonu
einni, vel í holdum, sem gerði sér lít-
ið fyrir einn daginn oghófallsnakin
mikla leikfimi i hjónaherberginu. Á
þessu gekk um hríð. Konan hoppaðt
og skoppaði um herbergið sér öl
heilsubótar en svo kom að því að
bóndinn heyrði lætin. Hann óö inn i
herbergið, brá nokkuö við sjónina og
sagði við nakta konusína: „Blessuö
dragðufyrir gardínumar svo bónd-
inn ánæsta bæ haldi ekki að ég hafi
gifstþérölfiár."
Þurfti að pissa
Bæjarinsbesta
á Isafirði hefur
ansigóðasögu
eförvagnstjór*
anumáFiat-
eyrí, Guöbjarti
Jónssyni. Guð-
bjartursegir
þarfráneimur
bræðrumsem
rerufráFlat-
eyrifVrir
tveímurárum.
Eitt sinnbilaði
bátur þeirra bræðra og varð að taka
hann á land öl viðgerðar. Alltaf þegar
þeir þurftu að skvetta úr skinnsokkn-
um þurftu þeir að stökk va úr bátnum
tii að athafna sig. S vo fór að viðgerð
lauk og þeir bræður fóru í fyrstu sjó-
feröina eftir bOun. í miðju skató varð
yngri bróðurnum alit í einu mál og
kaliaði hann því: „Ég þarf að pissa.“
Stópö engum togum að hann þreif i
lunninguna og stökk í sjóinn! Það
þarf varla að taka það fram að eldri
bróðírinn sprakk úr hlátriog gat ekki
hjáipað litia bróður að komast aftur
um borö. En um borð komst hann
afeiginrammleik.
Skítadreifari
Áframmeö
sögurafþess-
ummakalausu
Vestfirðingum
ogyfiríVest-
firskafrétta-
blaöiö. Þar seg-
ir frti skemmti-
iegrideilu
nokkurra
. Strandamanna
fynrumþrjá-
tíuárum.Þá
keyptuMunað-
arnesbændur í Ámeshreppi mykju-
dreifara i félagi við nokkra bændur
í nágrenninu. Bændunum kom sam-
an um að iána ektó dreifarann öörum
en eigendum. Fijótlega reyndi áþetta
þvibóndi viðTrékyllisvíkóskaðieft-
ir mykjudreifaranum aö láni. Bónd-
inn fékk ektó dreifarann og mislíkaði
mjög. Síöan þurftu Munaðames-
bændur eitt sinn að halda kú en
hvergi var naut að fá nema hjá um-
ræddum bónda. Leitað var öl hans
en ektó stóðá svarinu: „Geöðþið
ekki notað helvíös skítadreifarann á
beijuna?“
Umsjón: Bjöm Jóhann Björnsson
Ríkisútvarpið - stofnun í kreppu:
Sprengjan sem
aldrei sprakk
- Hrafíi Gunnlaugsson hættir hjá Sjónvarpinu 1. apríl og Pétur Guöfínnsson kemur á ný
Fréttir
Hrafn Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri innlendrar Heimir Steinsson útvarpsstjóri. Virðist sigla tiltöfulega
dagskrárdeildar hjá Sjónvarpinu. Hann mun ekki lygnan sjó eftir mikil átök.
starfa áfram hjá Sjónvarpinu.
DV-mynd BG
DV-mynd GVA
Eftir tæpa tvo mánuði mun Hrafn
Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri
innlendrar dagskrárdeildar hjá
Sjónvarpinu, láta af störfum og
Pétur Guðfinnsson taka þar stöðu
sína á ný. Hrafn sagði í samtali við
DV í gær að þegar ráðningarsamn-
ingur hans rennur út þann 1. apríl
muni hann að einhveiju leyti snúa
sér að störfum fyrirerlendar sjón-
varpsstöðvar en einnig kvik-
myndagerð og skrifúm - hann
muni ekki starfa áfram hjá Sjón-
varpinu. Þetta mun væntanlega
hafa í för með sér ákveðið fall á
spennu sem menn telja að hafi ríkt
í stofnuninni síðastliðið tæpt ár í
kjölfar þess að útvarpsstjóri rak
Hrafn og menntamálaráðherra
endurréð hann.
Það er orðið ljóst að þrátt fyrir
að Ólafur G. Einarsson mennta-
málaráðherra hafi gefið í skyn fyr-
ir helgi að sér þætti jafnvel ekki
nóg að gert með brottrekstri Art-
húrs Björgvins Bollasonar mun
ráðherra ekki aðhafast frekar eða
reka Heimi Steinsson útvarps-
stjóra þó að undir niðri hafi kurrað
í ráðherra vegna vinnubragða út-
varpsstjóra. Heimir virðist því
sigla tiltölulega lygnan sjó eför
mikil átök en það hefur greinilega
ekki verið allt sem sýnist undan-
farið ár í Sjónvarpinu. Þó að nú
virðist allt vera að falla í ljúfa löð
á ný telja menn ljóst að stofnunin
sé í kreppu, m.a. vegna nýrra sam-
keppnisaðstæðna og síendurtek-
inna pólitískra afskipta.
Heimir kyssti vöndinn
Örfáum dögum eftir að mennta-
málaráðherra réð Hrafn í stöðu
framkvæmdastjóra sendi Davíð
Oddsson forsætisráðherra út-
varpsstjóra bréf, einkabréf. Sam-
kvæmt heimildarmanni DV, sem
var sýnt bréfið, minnti Davíð Heimi
þar m.a. á að sá síðamefndi heföi
fengið stöðuna í gegnum Sjálfstæð-
isflokkinn. Sömu heimildir herma
að bréfið hafi verið harðort og í þvi
falist hörð ádrepa vegna brott-
reksturs Hrafns - hann heföi verið
beðinn um að fresta því að reka
Hrafn en hinn ekki sinnt því.
Um þetta sagði Ólafur Ragnar
Grímsson viö DV í gær: „Eins og
sumir starfsmenn Ríkisútvarpsins
hafa sagt við mig í dag - nú förum
við að skilja hvers vegna Heimir
Steinsson hefur verið svona hnur
við Hrafn Gunnlaugsson í allri
framgöngu síðan Hrafn kom þama
inn,“ sagði Ólafur.
Þeir sem DV ræddi við í gær um
málefni Sjónvarpsins vora á sömu
skoðun og Ólafur Ragnar um að
Heimir heföi mátt skilja á bréfinu
að forsætisráðherra væri með þvi
að leggja honum línur í samskipt-
um hans við Hrafn skömmu eftir
að menntamálaráðherra réð hann.
Þess vegna hafi ríkt þokkalegur
starfsfriður á milli þeirra síðastlið-
ið ár.
Um bréfiö sagði Heimir við DV í
gær að hann mæti bréfið mikils og
þætti vænt um að menn skyldu
hafa getað sent bréf frá manni til
manns. Þó að hvorki forsætisráð-
herra né útvarpsstjóri telji að með
bréfinu hafi ráðherra, sem er ekki
mjög kunnugur Heimi, haft afskipti
af ráðningu Hrafns finnst mörgum
að með þessum orðum sé útvarps-
sfjóri að kyssa vöndinn.
Rikisútvarpið. Þó að nú virðist allt
vera að falla í Ijúfa löð á ný telja
menn Ijóst aö stofnunin sé i
kreppu.
Fréttaljós
Óttar Sveinsson
Davíð lét Heimi bera
Hrafn og Arthúr saman
Samskiptum útvarpsstjóra og
forsætisráðherra var ekki lokið
með aprílbréfinu. Davíð boöaði
Heimi á sinn fimd á fimmtudag í
síðustu viku, þá sem starfandi
menntamálaráðherra, og kraíðist
þá ýmissa svara vegna bréfs Art-
húrs Björgvins Bollasonar til for-
manns Stéttarsambands bænda.
Síðar sama dag rak Heimir Arthúr
Björgvin.
Heimir útvarpsstjóri fullyrti í ít-
arlegu viötali við DV í gær að það
heföi ekki á neinn hátt mátt skilja
það á Davíð á fimmtudagsfundin-
um að ráðherra teldi að útvarps-
stjóri heföi átt að reka Arthúr
Björgvin eins og Heimir geröi eftir
fundinn. Engu að síður viður-
kenndi Davíð á Alþingi á mánudag
að hann heföi spurt Heimi að því
hvort einhver ummæli sem Hrafn
Gunnlaugsson viðhaföi og var síð-
an rekinn út af á síðasta ári heföu
nálgast þau ummæli sem Arthúr
Björgvin ritaöi í bréfinu til bænda-
formannsins. Margir túlka þetta á
þann veg að meö þessu hafi Heimi
átt að vera ljóst að ráðherra teldi
að reka ætti Arthúr Björgvin ekki
síður en Hrafn á sínum tíma. Með
þessu viðurkenndi Davíð þó að
hann heföi tekið upp mál Hrafns á
fundinum en Heimir neitaði engu
að síður í viðtali við DV að hafa
skilið á Davíð að hann heföi „ýjað
að“ brottrekstri Arthúrs við sig.
Er þetta bara
óperettuþjóðfélag?
Um bréf forsætisráðherra til
Heimis Steinssonar útvarpsstjóra
þann 6. apríl 1993 sagði Ólafur
Ragnar Grímsson við blaðamann
DV í gær.
„Ég tel að menntamálaráðherra,
útvarpsstjóri og forsætisráðherra
verði að hreinsa þetta mál eða fara
allir. Er ísland bara óperettuþjóðfé-
lag? Erum við eitthvert bananalýð-
veldi í Suður-Ameríkustíl þar sem
menn geta leyft sér vinnubrögð af
því tagi sem við lesum um í frétta-
skeytum frá fjarlægum heimshom-
um? Hafi þetta bréf verið skrifað á
bréfhaus forsætisráðherra er auö-
vitáð alveg ljóst hvað Davíð Odds-
syni ber að gera. Heimir Steinsson
getur auðvitað ekki starfað sem
útvarpsstjóri í þeirri stöðu að hann
missi alltaf minnið þegar kemur
að lykfiatriðum. Þetta bréf var sent
upp í Útvarp og ekki heim til hans.
Þess vegna hefur Heimir sýnt ýms-
um embættismönnum Útvarpsins
bréfiö. Það er alveg ljóst að hann
leit ekki á það sem einkabréf.
Þegar kemur að nákvæmnisatr-
iðum varðandi bréf tfi Heimis
Steinssonar þá missir Heimir alltaf
minnið. Hann er spurður að því í
Tímanum hvort hann hafi sýnt ein-
hveijum öðrum bréfið en sjálfum
sér. Þá segist hann ekki muna það.
Arthúr Björgvin segir í sama blaöi
hvemig útvarpsstjóri haföi frum-
kvæði að því að sýna honum bréf-
ið, hann hafi látið ritarann ná í það
í skjalasafn og látið Arthúr Björg-
vin lesa það. Þegar útvarpsstjóri
er spurður hvort bréfið sé á bréfs-
efni forsætisráðherra þá allt í einu
man hann það ekki heldur og segir
ég man það ekki enda langt síðan
ég hef skoðað bréfið þó hann hafi
sjálfur skoðað það tfi að gá að dag-
setningunni," sagði Ólafur Ragnar.
Stofnun í kreppu
Einn heimfidarmanna DV innan
Sjónvarpsins sagði við DV í gær að
starfsanda síðasta árs vegna hinna
pólitísku afskipta mætti líkja við
sprengju sem þó aldrei sprakk.
Annar sagði eftirfarandi: „Öll póli-
tísk umræða um innri mál Ríkisút-
varpsins em af hinu illa. Það er
mikfis virði að jákvæður starfsandi
ríki á stofnun sem þessari."
Bjöm Bjamason, þingmaður
Sjálfstæðisfíokksins, sagði við DV
í gær að Ríkisútvarpið væri í
kreppuástandi:
„Þetta er stofnun í kreppu og hún
er komin í vanda eins og ríkisstofn-
anir geta komist í. Vonandi verður
hægt að leysa úr þessu með nýjum
lögum um útvarpsmál. Ég tel að
stofnunin sé í ákveðnu kreppu-
ástandi og hún hafi ekki lagast
nægfiega vel að þessum breyttu
samkeppnisaðstæðum. Ég vona að
ný útvarpslög verði tfi þess fallin
að laga þessa stöðu sem myndast,"
sagði Bjöm.
Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri
Sjónvarpsins fyrir árið 1993 sýnir
rekstrarreikningur að fjárhagslega
var rekstur stofnunarinnar í jám-
um. Áætlanir stóðust nokkuð vel
þrátt fyrir niðurskurð. Um þetta
atriði telja forsvarmenn Sjónvarps-
ins að vel hafi tekist tfi og starfs-
andi vegna pólitískra afskipta, úlf-
úðar vegna brottrekstra og endur-
ráðninga hafi ekki náð að hafa
áhrif á. Engu að síður em greini-
lega blikur á lofti. Ný útvarpslög
eiga eftir að líta dagsins Ijós, taka
þarf tfllit tfi breyttra samkeppnis-
aðstæðna, skylduáskriftar og ekki
síst pólitískra afskipta.