Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1994, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1994, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 1994 25 Sviðsljós Gary Glitter er búinn að koma fjárhagnum og lífi sínu í gott lag á nýjan leik en er ekki enn búinn að finna þá einu réttu. í konuleit Gamli glamour-rokkarinn Gary Glitter, sem réttu nafni heitir Paul Francis Gadd, verður fimmtugur á þessu ári og segist ekki geta hugsað sér að halda upp á þann afmælisdag án þess að hafa réttu konuna sér viö hlið. Hann segist lifa í þeirri von að hann finni einhvers staðar góða konu sem treysti sér til að „temja hann“. Hann ætti ekki að verða í miklum vandræðum með að finna konu sem elskar hann því að með- altali fær hann 200 aðdáendabréf á dag frá konum sem vilja allt fyrir hann gera. Hann segir þó að það verði ekki auðvelt að finna þá einu réttu. Hún þurfi að geta haldið í við hans lífst- íl og vera tilbúin að flakka mikið því hann sé í eðli sínu eins og sí- gauni sem getur ekki stoppað lengi á sama stað. Eftir því sem hann segir er Gary Glitter í dag mjög ólíkur þeim sem var á toppnum á áttunda áratugn- um. Hann lifði hátt, drakk heil ósköp og var háður kókaíni. Hann var margsinnis tekinn fyrir ölv- unarakstur og þegar hann var dæmdur í þriðja skiptið missti hann prófið í 10 ár og fékk háa sekt. Hann er búinn að ganga í gegnum Anorexiu sjúkdóminn, fá taugaá- fall og var eitt sinn nærri farinn yfir móðuna miklu þegar hann tók inn of stóran skammt af svefnlyfi. Þetta lífemi kostaði sitt og eftir að skattayfirvöld fóru að kanna framtalið hjá honum var hann lýst- irn gjaldþrota. Hann gafst þó ekki upp heldur hætti í ólifnaðinum og tók að byggja upp frama sinn að nýju. Hann hefur ekki bara sagt skilið við áfengið og eiturlyfin heldur sleppir hann líka tóbakinu þar sem hann segist vel muna hversu slæm- ir gömlu dagamir vom. í dag segist hann vera í toppformi og skokkar oft með heimilislækni sínum langar vegalengdir. Hann grínast viö vini sína um að hann hlaupi með lækninum til aö vera til staðar ef hann (læknirinn) fengi hjartaáfall. Gary segist líta á líf sitt í dag sem annað tækifæri og er staðráðinn í að klúðra því ekki - það eina sem vantar upp á þetta er góð kona. Tilkyimingar Breiðfirðingafélagið Félagsvist verður spiluð á morgun kl. 20.30 í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14. Öll- um opið. Breytingar á Stjörnubíói Undanfama mánuöi hafa staðið yfir gagngerar breytingar á Stjömubíói. A- salurinn hefur tekið á sig nýja mynd. Þar em nú ný og breiðari sæti af fullkomn- ustu gerð, rýmra milli bekkja, nýtt og stærra sýningartjald, lýsing endurhönn- uð og THX hljóðkerfi. Anddyrið hefur einnig tekið miklum breytingum. Fyrsta mynd eftir breytingar er í kjölfar morð- ingja. Til Slóvena búsettra á íslandi Utanrikisráðherra Slóveníu hr. Peterle tekur á móti gestum á Veitingahúsinu Ítalíu, Laugavegi 11, í kvöld, 8. feb. kl. 21. Músíktilraunir Tónabæjar Félagsmiðstöðin Tónabær mun í mars standa fyrir Músíktilraunum 1994. Mús- iktilraunir em opnar öllum upprennandi hljómsveitum alls staðar að af landinu. Þær hljómsveitir sem hyggja á þátttöku geta skráð sig í Félagsmiðstöðinni Tónabæ, símar 35935 og 36717, alla virka daga kl. 10-22. Félag eldri borgara í Reykjavík og nágr. Leikritið Margt býr í þokunni verður sýnt í Risinu kl. 16 í dag og laugardag og kl. 20.30 á sunnudag. Lögfræðingur fé- lagsins er til viðtals 10 og 17. febrúar. Panta þarf tíma í síma 28812. Gengið út í Örfirisey Hafhargönguhópurinn fer í kvöld, mið- vikudagskvöld, kl. 20 frá Hafnarhúsinu út í Örfirisey og Vesturgötuna til baka. Allir velkomnir. Sýning á verkum éftir Jón Engilberts Norræna húsið ráð- gerir að halda sýningu á verkum Jóns Engilberts 4. júní til 3. júlí í tengslum við Listahátíð í Reykjavík. Af þvi tilefni ósk- ar Norræna húsið eftir að komast í sam- band við eigendur verka eftir Jón Engil- berts sem væm fúsir til að lána verk á sýninguna. Vinsamlegast hafið samband við Norræna húsið, Ingibjörgu Bjöms- dóttur, í síma 17030 miUi 10 og 16 virka daga. Árbæjarkirkja: Mömmumorgunn í fyrramálið kl. 10-12. Opið hús fyrir eldri borgara í dag kl. 13.30. Fyrirbænaguðs- þjónusta í dag kl. 16. Starf fyrir 10-12 ára (TTT) í dag kl. 17. Áskirkja: Samvemstund fyrir foreldra ungra bama í dag kl. 10-12.10-12 ára starf í safnaðarheimilinu kl. 17. Breiðholtskirkja: Kyrrðarstund kl. 12 á hádegi í dag. Tónlist, altarisganga, fyrir- bænir. Léttur málsverður í safnaðar- heimilinu eftir stundina. Unglingastarf (Ten-Sing) í kvöld kl. 20. Dómkirkjan: Hádegisbænir kl. 12.10. Leikiö á orgelið frá kl. 12.00. Léttur há- degisverður á kirkjuloftinu á eftir. Opið hús í safnaðarheimilinu í dag kl. 13.30- 16.30. Fella- og Hólakirkja: Helgistund í Gerðubergi kl. 10.30. Umsjón sr. Hreinn Hjartarson. Hallgrimskirkja: Opið hús fýrir foreldra ungra bama á morgun, fimmtudag, kl. 10-12. Háteigskirkja: Kvöldbænirogfyrirbæn- ir í dag kl. 18. Hjallakirkja: Starf fyrir 10-12 ára böm í dag kl. 17-19. Kársnessókn: Mömmumorgunn í safn- aðarheimilinu Borgum í dag kl. 9.30-12. Starf 10-12 ára bama í dag kl. 17.15-19. Langholtskirkja: Aftansöngur kl. 18.00. Neskirkja: Bænamessa kl. 18.20. Sr. Frank M. Halldórsson. Seltjarnarneskirkja: Kyrrðarstund kl. 12.00. Söngur, altarisganga, fyrirbænir. Léttur hádegisverður í safnaðarheimil- inu. Leikhús Leikfélag Akureyrar eftir Armann Guðmundsson, Sævar Sig- urgeirsson og Þorgeir Tryggvason Skólasýning fimmtudag 10. febrúar ki. 17.00. Föstud. 11. febr. kl. 20.30. Laugard. 12. febr. kl. 20.30. SÝNINGUM LÝKUR í FEBRÚAR! Bar Petr eftir Jim Cartwright SÝNT í ÞORPINU, HÖFÐAHLÍÐ1 Föstud. 11. febr.ki. 20.30. Laugard. 12. febr. kl. 20.30. Sunnudag 13. febrúar kl. 20.30. Ath. Ekki er unnt að hleypa gestum i salinn eftir að sýning er hafin. Aðalmiðasalan í Samkomuhúsinu er opin alla virka nema mánudaga kl. 14-18 og sýningardaga fram að sýn- ingu. Simi 24073. Símsvari tekur við miðapöntunum ut- an afgreiðslutima. Ósóttar pantanir að BarPari seldar i miðasölunni i Þorpinu frá kl. 19 sýn- ingardaga. Simi 21400. Greiðslukortaþjónusta. ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Sími 11200 Stóra sviðið kl. 20.00 GAURAGANGUR eftir Ólaf Hauk Símonarson Frumsýning föd., 1112, uppselt, 2. sýn. mvd. 16/2, örfá sæti laus, 3. sýn. fid. 17/2, uppselt, 4. sýn. föd. 18/2, uppselt, 5. sýn. mvd. 23/2,6. sýn. sud. 27/2, nokkur sæti laus. MÁVURINN eftir Anton Tsjékhof Sud. 13. febr., sud. 20. febr., lau. 26. febr. ALLIR SYNIR MÍNIR eftir Arthur Miller Lau. 12. febr., lau. 19. febr., fös. 25. febr. SKILABOÐASKJÓÐAN eftir Þorvald Þorsteinsson Ævintýri meö söngvum Sun. 13. febr. kl. 14.00, nokkur sæti laus, þrl. 15. febr. kl. 17.00, uppselt, sud. 20. febr. kl. 14.00, ötfá sæti laus, sud. 27. febr. kl. 14.00, nokkur sæti laus. Smíðaverkstæðið kl. 20.30. BLÓÐBRULLAUP eftir Federico Garcia Lorca Lau. 12. febr., nokkur sæti laus, lau. 19. febr., fid. 24. febr., uppselt, föd. 25. febr., uppselL Sýnlngin er ekki við hæfi barna. Ekki er unnt að hleypa gestum i salinn eftir aö sýning er hafin. Litla sviðið kl. 20.00. SEIÐUR SKUGGANNA eftir Lars Norén Fim. 10. febr., lau. 12. febr., fösd. 18. febr., laud. 19.febr. Ekki er unnt að hleypa gestum í salinn eftir að sýning er hafin. Miðasala Þjóðleikhússins er opln alla daga nema mánudaga frá 13.00-18.00 og fram að sýningu sýningardaga. Tekið á móti simapöntunum virka daga frákl.10. Græna linan 99 61 60. ÍSLENSKA ÓPERAN __iiiii É VGENÍ ÓNEGÍN eftir Pjotr I. Tsjajkovski Texti eflir Púshkín í þýðingu Þorsteins Gylfasonar. Laugardaginn 12. febr., kl. 20, allra siðasta sinn. Miöasalan er opin frá kl. * 15.00-19.00 daglega. Sýningardaga til kl. 20. SÍM111475- GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA. Munið gjafakortin okkar. FÚRÍA Leikfélag Kvennaskólans sýnir í Tjarnabíói Sjö stelpur Leikstjóri Sigrún Valbergsdóttir Sýningar: Miö. 9.febr., fös. 11. febr.kl. 20.00 Pantanasimi 610280 e. kl. 17.00. Starfaldraðra Bústaðasókn: Félagsstarf aldraðra í dag kl. 13.00. Nessókn: Kvenfélag Neskirkju hefur op- ið hús í dag kl. 13-17 í safnaðarheimili kirkjunnar. Kínversk leikfimi, kaffi og spjall. Fótsnyrting og hárgreiðsla er á sama tíma. Litli kórinn æfir í dag kl. 16.15. Nýir söngfélagar velkomnir. Um- sjón hafa Inga Backman og Reynir Jónas- son. LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR Stóra sviðið kl. 20. EVALUNA , Leikrit eftir Kjartan Ragnarsson og Óskar Jónasson. Unnið upp úr bók Isa- belAUende Fim. 10. febr., uppselt, lau. 12. febr., upp- selt, sun. 13. febr., örfá sæti laus, fim. 17. febr., fös. 18. febr., uppselt, lau. 19. febr., uppselt, sund. 20. febr., fim. 24. febr., lau. 26. febr., uppselt. Geisladiskur með lögunum úr Evu Lunu til sölu i miðasölu. Ath.: 2 miðar og geisla- diskur aðeins kr. 5.000. Stóra sviðið kl. 20. SPANSKFLUGAN eftir Arnold og Bach 11. febr., síðasta sýning, uppselt. Aukasýning miðvikud. 16. febr. Allra siðasta sýning. Litla sviðið kl. 20. ELÍN HELENA eftir Árna Ibsen Fös. 11.febr., laug. 12. febr. Næstsíðasta sýningarhelgi. Ath.l Ekki er hægt að hleypa gestum inn i salinn eftir að sýning er hafln. Miöasala er opln kl. 13.00-20.00 alla daga nema mánudaga. Tekið á móti miðapöntunum i sima 680680 kl. 10-12 alla virka daga. Bréfasimi 680383. Greiöslukortaþjónusta. Muniö gjafakortin okkar. Tilvalin tækifærisgjöf. Leikfélag Reykjavikur- Borgarleikhús.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.