Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1994, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 1994
23
Smáauglýsingar
Menning
Sjö stelpur i meðferð
Úr leikritinu Sjö stelpur sem leikfélag Kvennaskólans, sýnir um þessar mundir.
■ Verslun
Nýjar, vandaðar og spennandi vörur
v/allra hæfi. Nýr vandaður litmlisti,
kr. 950 + sendk. Ath. nýtt og lækkað
verð. Allt er þegar þrennt er, í verslun
sem segir sex. Sjón er sögu ríkari.
Ath. allar póstkr. duln. Opið 10-18
v.d., 10-14 lau. S. 14448, Grundarstíg 2.
■ Vagnar - kermr
Dráttarbeisli. Gerið verðsamanburð.
Framleiðum allar gerðir af kerrum og
vögnum. Dráttarbeisli á allar teg. bíla.
Áratugareynsla. Allir hlutir í kerrur
og vagna. Ódýrar hestakerrur og
sturtuvagnar á lager. Veljum íslenskt.
Verið velkomin í sýningarsal okkar.
Víkurvagnar, s. 684911, Síðumúla 19.
■ Bátar
Sómi 650 til sölu, með krókaleyfi, sér-
staklega hentugur fyrir grásleppu-
veiði. Bátasmiðja Guðmundar, sími
91-651088.
■ Bilar til sölu
Til sölu Lada Sport '91, upphækkað-
ur/brettakantar, ný 31" dekk - felgur,
CÉ, kastarar o.fl. Góður staðgreiðslu-
afsláttur. Upplýsingar í síma 91-78841
á kvöldin.
Til sölu Mercedes Benz 230E, árg. '84,
ekinn 175 þús. km, litað gler, höfuð-
púðar, topplúga, gullsanseraður.
Mjög góður bíll. Verð 750 þús. Upplýs-
ingar í síma 91-641403 og eftir kl. 19
í síma 91-686815.
■ Jeppar
Bronco ’73. Nýtt í bílnum er: bremsur,
bremsuskálar, púst og greinar,
electrónísk kveikja, Holley blöndung-
ur, dragliður, öxlar og krossar, skipt-
ing, 35" dekk, 12" felgur, plastbretti.
Verð 250þúsund staðgr. Sími 91-13079.
Leikritiö Sjö stelpur var á sínum
tíma sýnt í Þjóðleikhúsinu, sennilega
íyrir hartnær tuttugu árum, og þá
alveg nýtt af nálinni. Verkiö fjallar,
eins og nafniö bendir til, um sjö stelp-
ur sem dveljast á meðferöarheimili
og lýsir fyrst og fremst „núinu“, þaö
er að segja þeim vandamálum sem
upp koma í dag frá degi í meðferð-
inni og andrúmsloftinu innan veggja
heimilisins.
Leiklist
Auður Eydal
í sýningu leikfélags Kvennaskól-
ans, Fúríu, er verkið ögn staðfært
og er látið gerast á íslandi í dag. Það
vekur áhorfandanum óneitanlega
hroll að horfa á verkið og gera sér
grein fyrir því hvað lítið hefur þok-
ast í skilningi samfélagsins á vanda-
málum unghnga og í baráttunni gegn
fíknie&ianeyslu á umUðnum tveimur
áratugum.
Áhorfendur kynnast stelpunum
UtiUega en þaö er að mestu látið
Uggja miUi hluta hvaðan þær koma
og hvaða heimiUsaðstæður ýttu þeim
svo ungum út á braut eiturlyfja og
geðrænna vandamála.
Höfuðviðfangsefniö eru stelpumar
sjálfar, Uðan þeirra, óhaminn tilfinn-
ingaofsinn og vonleysið sem skapast
af þeirri tilfinningu aö ekkert sé
framundan. Höfundurinn er heldur
ekkert með neinar grillur um ham-
ingjusamlega lausn mála og virðist
þvi miður hafa reynst sannspár hvað
það varðar.
Stelpurnar myndu sjálfsagt ailar
flokkast sem „vandræðaunglingar" í
lögregluskýrslum en þær eiga sér
engu að síður persónulegt svipmót
sem Sigrún-Valbergsdóttir leikstjóri
laðar fram í hverri og einni. Fram-
sögnin, sem oft viU verða upp og ofan
í sýningum framhaldskólanema, er
hér í góðu lagi.
Félagar í Fúríu hafa þannig greini-
lega fengið góða handleiðslu og lagt
á sig mikla vinnu við uppsetninguna.
Sýningin gengur greiðlega og leik-
endur sýna skilningsríka innlifun í
hlutverk stelpnanna sem eru fyrst
og fremst ráðviUtir ungUngar. Þar
reynir mest á þær Þórhildi Ýr Vals-
dóttur og Kristínu Eysteinsdóttur
sem sýna glettilega góö tilþrif í hlut-
verkum Barböru og Möttu. Nokkrir
nemendur leika starfsfólk hælisins
og gera það ágætlega þó að þau hlut-
verk Uggi ekki eins vel við.hvað ald-
ur varðar.
Leikmynd Guðrúnar Auðunsdótt-
ur er fagmannlega unnin, laus við
aUan óþarfa og vel hönnuð þannig
aö engar tafir verða í skiptingum
milU atriöa. Búningar eru skemmti-
lega valdir í stfl hverrar persónu.
í heild er þetta vönduð og athygUs-
verð skólasýning og gott dæmi um
það hvernig hægt er að nota leikUst-
ina til að auka þroska og skUning
nemenda um leið og aliir hafa nokk-
uð gaman af.
Fúria, leikfélag Kvennaskólans, sýnir i
Tjarnarbíói:
Sjö stelpur
Höfundur: Erik Thorstenson
Þyðandi: Sigmundur Örn Arngrimsson
Leikstjóri: Sigrún Valbergsdóttir
Búninga- og leikmyndarhönnuður: Guð-
rún Auðunsdóttir
Ljósameistari: Kári Gíslason
Afmæli
Pjetur Nikulás
Pjetursson
Pjetur NUculás Pjetursson, fram-
kvæmdastjóri hjá heUdversluninni
PON - Pétur O. Nikulásson sf„ tU
heimUis að HUöarhjalla 11, Kópa-
vogi, er fertugur í dag.
Starfsferill
Pjetur fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp í vestm-bænum og síðar í
Laugarásnum. Hann lauk stúdents-
prófi frá MR í Reykjavík.
Pjetur hóf ungur störf hjá heUd-
versluninni PON sf. en hann hefur
verið framkvæmdastjóri fyrirtækis-
ins frá 1978. Pjetur flutti í Kópavog-
inn 1979 og hefur búið þar síðan.
Pjetur er alþjóðlegur hestaíþrótta-
dómari. Hann hefur dæmt á mörg-
um erlendum stórmótum og heims-
meistaramótum. Hann er stjórnar-
maður í heimsbikarkeppni alþjóð-
lega hestaíþróttasambandsins og
var formaður Hestamannafélagsins
Sörla í Hafnarfiröi 1984-86.
Fjölskylda
Pjetur kvæntist 9.9.1979 Elsu
Magnúsdóttur, f. 1.1.1957, hár-
greiðslumeistara. Hún er dóttir
Magnúsar K. Jónssonar, húsa-
smiðameistara í Reykjavík, og Unn-
ar Lárusdóttur húsmóöur.
Dóttir Pjeturs og Elsu er Sigríöur
Pjetursdóttir, f. 12.12.1979, nemi.
Systur Pjeturs eru Ingibjörg Ásta
Pétursdóttir, f. 10.6.1948, ferðaráð-
gjafi, gift Þorsteini Bergssyni, fram-
kvæmdastjóra Minjavemdar, og
eiga þau fjögur börn; Gróa Þóra
Pétursdóttir, f. 20.7.1951, líffræðing-
ur, gift Heimi Sigurössyni tækni-
Pjetur Nikulás Pjetursson.
fræðingi og eiga þau fjögur böm.
Foreldrar Pjeturs eru Pétur O.
Nikulásson, f. 6.7.1921, stórkaup-
maður í Reykjavík, og Sigríður Guð-
mundsdóttir, f. 21.5.1926, húsmóðir.
Ætt
Pétur stórkaupmaður er sonur
Nikulás Kristins, skipstjóra í
Reykjavík, Jónssonar, sjómanns í
Reykjavík, frá Bakka Guðmunds-
sonar. Móðir Nikulás var Þóra
Nikulásdóttir. Móðir Péturs var
Gróa, bæjarfulltrúi í Reykjavík og
formaður kvennadeildar SVFÍ, syst-
ir Emelíu Bjargar, ömmu Kristins
Björnssonar, forstjóra Skeljungs.
Gróa var dóttir Péturs, sjómanns og
síöar fiskmatsmanns Benediktsson-
ar, sjómanns frá Hvassahrauni.
Móðir Gróu var Oddbjörg Jónsdótt-
ir. Sigríður er dóttir Guðmundar
skrifstofustjóra Þóröarsonar og
Ingibjargar Filippusdóttur.
smáskór
A29<T
1.790
Útsala
barnaskór
kuldaskór, st. 24-27, frá 990
götuskór, st. 20-34, frá 990
stígvél, st. 30-35, frá 500
sumarskór, st. 20-34, frá 500
Smáskór er fluttur
inn með Do-Re-Me við
Fákafen, s. 683919
Greiðsluáskorun
Sýslumaðurinn á Blönduósi skorar hér meö á
gjaldendur, sem ekki hafa staðið skil á gjöldum
sem voru álögð 1991, 1992, 1993 og 1994 og
féllu í gjalddaga fyrir 8. febrúar 1994 og eru til
innheimtu hjá ofangreindum innheimtumanni,
að greiða þau nú þegar og ekki síðar en innan
15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar.
Gjöldin eru þessi: Tekjuskattur, útsvar, eigna-
skattur, sérstakur eignaskattur, slysatrygging-
argjald vegna heimilisstarfa, tryggingagjald,
iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjald, lífeyris-
tryggingargjald skv. 20. gr. laga nr. 87/1971,
slysatryggingargjald atvinnurekenda skv. 36.
gr., atvinnuleysistryggingagjald, kirkjugarðs-
gjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraöra, skattur
af veslunar- og skrifstofuhúsnæði, launaskattur,
bifreiðaskattur, slysatryggingargjald öku-
manns, þungaskattur, virðisaukaskattur, skipu-
lagsgjald, aðstöðugjald, viðbótar- og auka-
álagning virðisaukaskatts vegna fyrri tímabila,
skemmtanaskattur og miðagjald, virðisauka-
skattur af skemmtunum, tryggingargjald af
skipshöfnum ásamt skráningargjöldum, vinnu-
eftirlitsgjald, vörugjald af innl. framleiðslu, að-
flutningsgjöld og útflutningsgjöld, verðbætur á
ógreiddan tekjuskatt og veröbætur á ógreitt
útsvar.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara fyrir
vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna að liönum
15 dögum frá dagsetningu áskorunar þessarar.
Sýslumaðurinn á Blönduósi
8. febrúar 1994