Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1994, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1994, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1994 Fréttir Fulltrúar ríkisins og borgarinnar á faraldsfæti: Sendir til Sviss til að f á Ijósmyndara - samninga leitað við svissneskt fyrirtæki um fiármögnun Tveir fulltrúar Reykjavíkurborgar og samgönguráðuneytisins, Katrín Gunnarsdóttir og Rúnar Guðjóns- son, eru nýkomnir úr för til Sviss þar sem þeir leituðu leiða til að fá útlenda ljósmyndara til íslands. Full- trúamir eiga sæti í stjóm íslenskrar myndsýnar sem ríkið, Reykjavíkur- borg og ýmis félagasamtök stofnuðu í janúar síðastliðnum. í Sviss áttu íslensku fulltrúamir í viðræðum viö forsvarsmenn fyrir- tækisins Informato AG um að taka að sér fjármögnun á for útlendra ljós- myndara hingað til lands. Hér á landi er ljósmyndurunum ætlað aö skipu- leggja námskeið í náttúrulífs- og landslagsmyndatöku, standa fyrir sýningum og taka þátt í ljósmynda- verkefnum. Að sögn Þórhalls Jósepssonar, að- stoðarmanns samgönguráðherra, ákvað ríkið að leggja eina milljón króna í verkefnið. Auk þess að fá hingað til lands erlenda ljósmyndara er það meðal annars hlutverk ís- lenskrar myndsýnar að senda far- andsýningar út í heim og gefa út myndamöppur. „Stjórnin hefur verið að reyna að koma þessu í gang. Hluti af þeirri vinnu fólst í því að þessir tveir full- trúar fóm til Sviss fyrir helgina. Hugmyndin er að Informato sjái um að afla þessu verkefni styrktarfjár og annast tengsl við erlenda ljós- myndara. Þetta er hins vegar aÚt á byrjunarstigi ennþá,“ segir Þórhall- ur. -kaa FjölmiölakönnunFélagsvísindastofnunar: DVístórsókn hjá 25-34 ára lesendum Lestur DV og Morgunblaðsins minnkar um þijú prósentustig sé tekið mið af meðaUestri þeirra sem sögðust eitthvað hafa lesið blöðin í nýbirtri fjölmiðlakönnun Félagsvís- indastofnunar. Miðað við könnunina í nóvember 1993 minnkaði meöallest- ur DV úr 49 í 46 prósent en Morgun- blaðsins úr 61 í 58 prósent. Þessi þró- un á einnig við um Pressuna, þar sem lesturinn minnkaöi úr 17 í 15 prósent og sjónvarpsstöðvarnar, en áhorf minnkar marktækt, hvort sem litið er til helga eða virkra daga eða svæða með og svæða án myndlykils. Fjölmiðlakönnunin, sem er dag- bókarkönnun, fór fram í vikunni 15.-21. mars 1994. Tekið var 1500 manna úrtak úr þjóðskrá með hend- ingaraðferð og nær könnunin til ald- urshópsins 12-80 ára. Heimtur voru lakari en í síðustu tveimur fjölmiðla- könnunum Félagsvísindastofnunar. Alls fengust 897 dagbækur frá þátt- takendum, sem er einungis 61 pró- sent nettósvörun af heildarúrtaki en 72 prósent af útsendum dagbókum (1.238). Lestur DV eykst verulega sé ald- urshópurinn 20-34 ára skoðaður. í aldurshópnum 20-24 ára er meðal- lesturinn 74 prósent eins og í könn- uninni í nóvember í fyrra. í aldurs- hópnum 25-34 ára rýkur lesturinn hins vegar upp, úr 68 í 78 prósent, eða um 10 prósentustig. Þess má geta aö dagblaðalestur elstu lesendanna í könnuninni, 68-80 ára, hefur aukist verulega frá því í nóvember. Meðallestur 68-80 ára á DV eykst úr 61 í 67 prósent. -hlh 70 % 60 ' 50 • 40 ' 30 • 20 ' 10 ‘ 0 ‘ Dagblaðalestur - meöallestur á eintak - 49 46 r 80% 70 “ 60 “ 50 - 40 — 30 - 20 — 10 “ 0 Nóv. '93 Mars '94 Nóv.'93 Mars'9 Lestur yngri aldurshópa á DV .- eltdtvaö leslö i vikunni - 74 68 \€ Nóv. '93 20 - 24 ára Mars '94 Nóv. '93 25 < 34 ára Mars '94 DV mánaðarins í Economist „Þetta er geysileg viðurkenning fyrir Ólaf Jóhann, ekki síst þar sem þetta er fyrsta umfjöllun sem bókin fær í Bretlandi. Þetta getur haft geysileg áhrif á þá athygli sem bókin á eftir að fá. Norrænir höfundar hafa átt erfitt með að ná athygli í Bretlandi en vonandi verður þetta til þess að leið opn- ist fy rir aðra,“ sagði Ólafur Ragn- arsson, eigandi Vöku-Helgafells, í saratali við DV. Fyrirgefning syndanna, bók Ólafs Jóhanns Ólafssonar, er val- in skáldsaga mánaðarins í nýj- asta tölublaði tímaritsins The Economist. Á ensku heitir bókin Absolution og fær hún afar lof- samlega dóma í umfjöllun tíma- ritsins. „Þetta er furðanlega áhrifamik- il skáldsaga þar sem höfundinum tekst að skapa trúverðuga mynd af manni sem stundar vafasöm viöskipti, er svikull við vini sína, vondur við konur sínai- og böm, en engu aö síður viðkunnanlegur, jafhvel bijóstumkennanlegur... í örfáum dráttum dregur Ólafur fram mynd af New York sam- tímans, lífS námsmanna í Kaup- mannahöfn fyrir 50 árum, veiði- ferð í á á íslandi og ferðalagi um sveitir Danmerkur. Samanlagt framkallar þetta skemmtilega til- finningu fyrir fjölbreytileika heimsins um leið og lesandinn kynnist reynslu eins manns... endir sögunnar er snjall og þegar á allt er litið er þessi saga um glæp og refsingu afar áhrifamikil," segir i umsögn The Economist. -hlh í dag mælir Dagfari Friðarspillir í bankaráðið í bankaráði íslandsbanka geta menn ekki á heilum sér tekið eftir aðalfundinn. Ástæðan er sú að friö- arspillirinn Pétur Blöndal náði kjöri í bankaráðið og hefur uppi hótanir. í DV í gær hótar hann til dæmis aö útbúa skipurit um markmið bankans með hagsmuni hluthafa fyrir augum. Á aðalfund- inum fór hann hamfórum og kenndi bankastjóm og bankaráði um að bankinn tapaöi hátt í 700 milljónum í fyrra. Svo var hann á móti því að hluthöfum yrði greidd- ur arður af þessu tapi og til að kór- óna allt saman bar hann fram til- lögu um að lækka þóknun til bankaráösmanna. Fyrir fundinn hafði Pétur lýst því yfir að það ætti jafnan að reka framkvæmda- stjóra þeirra fyrirtækja sem væru rekin með tapi. Þaö væri góð regla að byija hvem stjómarfund á þvi að velta upp þeirri spumingu hvort ætti aö reka framkvæmdastjórann. Svona ofstæki kann auðvitaö ekki góðri lukku að stýra. Og þaö er raunar óskiljanlegt að maðurinn skuli hafa fengið svona mikið fylgi inn í bankaráðið. Munaði litlu að hann fengi fleiri atkvæði en sjálfur formaðurinn, Kristján Ragnars- son. Hvemig ætli Kristjáni líði að vera kominn með þennan terror- ista í bankaráðið sem vill reka menn fyrir taprekstur. Það væri þá búið að reka nokkra útgerðar- forstjórana ef þessi regla gilti al- mennt hérlendis. Kristján bankaráðsformaður lýsti því vel í ræðu sinni hvers vegna bankinn væri rekinn með tapi. Það er vegna þess að bankinn tapar svo miklu á að lána peninga. Og hvers vegna tapar bankinn á því? Það er vegna þess að menn borga ekki lánin sem þeir fá í ís- landsbanka. Og hvers vegna borga þeir ekki lánin? Það er vegna þess að þeir geta það ekki. Því er ekki um annað að ræða en afskrifa lánin því skuldararnir geta ekki borgaö, ábyrgðarmennirnir geta ekki borg- að, veðin eru verðlaus eða þá að bankinn getur ekki selt eignir sem hann eignast á nauðungamppboð- um. Þess vegna varð bankinn að afskrifa nærri tvo milljarða 1 töp- uðum útlánum í fyrra og þess vegna á bankinn hundrað íbúöir sem hann getur ekki selt. Bankinn getur heldur ekki selt hótehð sem hann á og því er ákveðiö að flytja bara höfuðstöðvar bankans í hótel- ið. Þar fer vel um menn og rúmsör- visinn góður. En það er vonlaust að reka banka með gróða í þjóðfé- lagi þar sem allir em að tapa. Þetta skilja allir sem vit hafa á en auðvit- að er engin von til þess að Pétur skilji þetta. Útlánin em ekki vanda- mál bankans heldur greiðsluvandi þeirra sem tóku lánin. Valur bankastjóri hefur reynt að minnka tapið með þvi að fækka útibúum í þeirri von að menn fari frekar annað að fá lán sem þeir geta ekki borgað. Svo hefur hann látið reka starfsfólk í hópum og raunar skilar reksturinn góðum hagnaði sem slíkur. Alla vega ef menn gætu fariö að borga lánin sem þeir taka þessa dagana. Rekst- ur bankans er þvi ekki vandamál heldur rekstur þeirra fyrirtækja sem eiga viðskipti við hann. Með þetta í huga er það morgun- ljóst að ekki er við stjórnendur bankans að sakast. Þeir hafa í störf- um sínum haft hag skuldaranna, bankans og þjóðarinnar að leiðar- ljósi. Svo koma svona gróðapungar fram á völlinn og segja að hluthafar eigi að hafa bankann aö féþúfu. Þetta er svona svipað sjónarmið og Orri Vigfússon hélt fram á aðal- fundinum í fyrra. Þá geröi hann sig gleiðan og náði súperkosningu inn í bankaráð. Sá ætlaði nú aldeilis að taka til hendi og láta bankann skila arði. En auðvitað gat Orri engu breytt um getu skuldara til að borga lánin. Ætli þaö verði ekki eitthvað svipað með Pétur og af honum mesti móðurinn á næsta ári. Þessir strákar verða að átta sig á því að í bankarekstri eru það ekki laun bankaráðsmanna, bankastjóra eða framkvæmda- stjóra sem ráða úrslitum um af- komu bankans. Það er afkoma skuldaranna sem ræður því hvort bankinn tapar eða græðir. Því verður bankinn að einbeita sér að því að styðja viö skuldarana í von um að þeir borgi skuldir sínar. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.