Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1994, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1994
/
25
Sviðsljós
Hin nýja
LoisLane
Teri Hatcher villtist eiginlega inn á leiklistarbrautina og á enn eftir að
gera upp við sig hvort hún ætli að einbeita sér að leiknum eða Ijúka
náminu sínu.
Það hafa margar útgáfur af ævin-
týrum hetjunnar Superman borið
fyrir augu almennings í gegnum
tíðina. í upphafi birtist hann í
teiknimyndablöðum, á 6. áratugn-
um voru framleiddir sjónvarps-
þættir og á þeim níunda komu 3
kvikmyndir með Christopher Re-
eve í aðalhlutverki.
Á síðasta ári var byrjað að fram-
leiða nýja sjónvarpsþætti um ævin-
týri ofurhetjunnar. Þeir hafa notið
mikilla vinsælda og telja menn að
það sé ekki síst aðalleikurunum
tveimur að þakka. í hlutverk Su-
permans var valinn ungur og
myndarlegur maður, Dean Cain,
og til að leika blaðakonuna Lois
Lane var vahn Teri Hatcher.
í meðfórum Teri hefur Lois Lane
fengið nýjar áherslur, hún er miklu
„harðari" fréttamaður og kyn-
þokkafyllri heldur en þær sem á
undan henni hafa verið. Sagt er að
hún heiUi karlmennina upp úr
skónum og konumar vilji gefa
margt fyrir þaö að hafa útlit henn-
ar.
Teri segir að það sé alveg nýtt
fyrir henni að fá allt þetta hrós og
athygU út á útiitið því í skóla hafi
enginn tekið eftir henni enda hafi
hún verið óvinsæU „nörd“ eins og
hún orðar það sjálf.
Hún lagði aUtaf hart að sér í skóla
og þegar hún fór í framhalds-
menntun voru það karlafögin
stærðfræði og verkfræði sem hún
valdi sér. Hún er reyndar ekki enn
búin að ljúka því námi þar sem hún
eiginlega viUtist inn á leiklistar-
brautina.
Það var góð vinkona hennar sem
bað hana um að koma með sér í
prufu fyrir hlutverk í nýjum sjón-
varpsþætti. Þegar á staðinn var
komið ákvað hún að slá til og prófa
Uka enda haföi hún þá nýverið eytt
sumrinu í leikUstarnámskeið. Ekki
vitum við hvernig vinkonu Teri
gekk en Teri fékk allavega hlutverk
sem dansandi hafmeyja í The Love
Boat. Síðan hefur hún eiginlega
ekki mátt vera að því að fara aftur
í skólann.
LeikferiU hennar hefur ekki ein-
skorðast við sjónvarp, því auk þess
hefur hún leikið í kvikmyndinni
Soapdish, systur Sylvester Stallone
í Tango & Cash og vinnufélaga
þeirra DoUy Parton og James Wo-
ods í Straight Talk.
Teri er trúlofuð leikara að nafni
Jon Tenney og eru þau víst byrjuð
að velta fyrir sér heppilegum degi
fyrir brúðkaup. Hún segir að sig
langi tU að eignast 3-4 börn í fram-
tíðinni en segist ekki alveg sjá hve-
nær hún ætU að byija á þeim. Sjón-
varpsþættirnir njóta alveg gífur-
legra vinsælda og hún þarf ekki að
kvíða atvinnuleysi á næstunni. Það
passar ekki alveg inn í hugmyndir
manna um Lois að hafa hana óf-
ríska og einn framleiðandanna
sagði við kærastan hennar að hann
myndi fara í mál við hann ef Teri
yrði ófrísk!
Tilkyimingar
Minningarkort ITC
ITC minningarkort og ITC gjafabréf
minningarsjóðs Ingibjargar Ástu Blomst-
erberg eru seld hjá Guðninu LUju s. 91-
679827, einnig gefa upplýsingar Halldóra
s. 91-678499, Kolbrún Dóra s. 91-36228 og
Edda s. 91-26676. Sjóðurinn veitir ferða-
styrki ITC félögum tU að sækja eða flytja
fræðslu utan heimabyggðar.
Vinnuferðirtil Kúbu
Vináttufélag Kúbu skipuleggur vinnu-
ferðir tíl Kúbu í júlí í sumar. Ferðimar
eru þáttur í norður-evrópskri hópferð.
TUgangurinn er að kynnast landi og þjóð,
stjómmálum, sögu og menningu. Um-
sóknarfrestur rennur út 10. maí. Stjóm
félagsins gefur frekari upplýsingar:
Gunnar s. 651464, Ingibjörg s. 625983, Sig-
urlaug s. 13695 eða Sylvia s. 666848.
ítalskir skór
-38 þrep
Nýlega opnuðu tveir ungir skókaup-
menn, Hólmfríður Sigvaldadóttir og
MatthUdur Leifsdóttir, skóverslun við
Laugaveginn. Fyrirtækið heitir Skór hf.
en verslunin ber heitið 38 þrep og er á
Laugavegi 89 í JVC húsinu. Á boðstólum
verða eingöngu vandaðir ítalskir skór.
Einnig verða tU sölu listrænir ítalskir
glermunir. Verslunin er opin kl. 12-18
virka daga og laugardaga kl. 11-15.
Skátafélagið Skjöldungar
í páskaútilegu
Skátafélagið Skjöldimgar í Reykjavík
fóra í páskaútUegu að ULfljótsvatni. í úti-
legunni fór fram vígsla og inntaka ný-
hða, að þessu sinni vom 22 nýir skátar
teknir í félagið. Á myndinni eru hinir
nývigðu ásamt sveitarforingjum og fé-
lagsforingjum.
Hornstrandakvöldvaka
Ferðafélagsins
verður í Sóknarsalnum, Skipholti 50a,
miðvikudaginn 27. aprU kl. 20.30. Sam-
felld dagskrá um mannlif á Hornströnd-
um tekin úr ýmsum bókmenntum tengd-
um svæðinu. Allir velkomnir, félagar og
aðrir.
Hugleikur,
áhugaleikhús í Reykjavík, sýnir Hafnsög-
ur fimmtudaginn 28. aprfl, föstudaginn
29. aprU og sunnudaginn 1. maí kl. 20.30.
Leikhús
Leikfélag Akureyrar
OPERIJ
DRAUCiURINN
eftir Ken Hill
í Samkomuhúslnu kl. 20.30.
Föstudag 29. apríl, nokkur sæti laus,
laugardag 30. april, laugardag 7. mai,
nokkur sæti laus. Ath. Sýningum lýkur i
mái!
Bar Par
eftirJim Cartwright
SÝNT í ÞORPINU, HÖFÐAHLÍÐ1
Sýningar hefjast kl. 20.30.
35. sýning, fimmtudag 28. apríl, fáein
sæti laus, sunnudag 1. mai, föstudag 6.
maí. Ath. Fáar sýningar eftir.
Ath.: Ekki er unnt að hleypa gestum i
salinn eftir að sýning er hafin.
ÆVINTÝRITRÍTILS
-barnaleikrit
Frú Emilía sýnir í samvinnu við LA
i Samkomuhúsinu.
Laugardag 30. apríl, kl. 11, aðeins þessi
eina sýning. Verö miða kr. 400.
Aðalmiðasalan i Samkomuhúsinu er
opin alla virka daga nema mánudaga
kl. 14-18 og sýningardaga fram að
sýningu. Simi 24073.
Símsvari tekur við miðapöntunum ut-
an afgreiðslutima.
Ósóttar pantanir að BarPari seldar i
miðasölunni í Þorpinu frá ki. 19 sýn-
ingardaga. Simi 21400.
Greiðslukortaþjónusta.
ÞJÓDLEIKHÚSIÐ
,Sími 11200
Stóra sviðið kl. 20.00
GAUKSHREIÐRIÐ
eftir Dale Wasserman
5. sýn. föd. 29/4, nokkur sæti laus, 6. sýn.
sud. 1 /5, örfá sæti laus, 7. sýn. föd. 6/5,
örfá sætl laus, 8. sýn. föd. 13/5.
GAURAGANGUR
eftir Ólaf Hauk Símonarson
í kvöld, uppselt, á morgun, uppselt, laud.
30/4, uppselt, þrd. 3/5, uppselt, fid. 5/5,
uppselt, laud. 7/5, uppselt, sud. 8/5, örfá
sætl laus, mvd. 1115, uppselt, fimd. 12/5,
lad. 14/5, laud 28/5. Ósóttar pantanir seld-
ardaglega.
SKILABOÐASKJÓÐAN
eftir Þorvald Þorsteinsson
Ævintýri með söngvum
Ld. 30/4 kl. 14.00, örfá sæti laus, mvd.
4/5 kl. 17.00, örfá sæti laus, Id. 7/5 kl.
14.00, nokkur sæti laus, sud. 8/5, kl. 14.00,
laud. 14/5 kl. 14.00, sud. 15/5 kl. 14.00.
Ath. Sýningum lýkur sud. 15. mai.
Smíðaverkstæðið kl. 20.30.
BLÓÐBRULLAUP
eftir Federico Garcia Lorca
Aukasýning i kvöld, uppselt. Allra sið-
asta sýning. Sýningin er ekki viö hæfi
barna.
Ekki er unnt að hleypa gestum i salinn
eftir að sýning er hafin.
Mlðasala Þjóðleikhússins er opin alla
daga nema mánudaga frá 13.00-18.00
og fram að sýningu sýningardaga. Tekið
á móti símapöntunum virka daga
frákl.10.
Græna linan 99 61 60.
Greiðslukortaþjónusta
leikLi'starskóli ÍSLANDS
Nemenda
leikhúsið
SUMARGESTIR
eftir Maxim Gorki
í leikstjórn Kjartans Ragnarssonar.
Laugard. 30. april kl. 20.
Þrlðjud. 3. maikl. 20.
Miðapantanir í síma 21971.
Miðnætursýning verður laugardaginn
30. apríl kl. 23. Sýnt er í Hafnarhúsinu
við Tryggvagötu. Miöasala í s. 12525, sím-
svari allan sólarhringinn.
Náttúruverndarfélag
Suðvesturlands
Náttúraverndarfélagið stendur fyrir
skoðunarferð út í Engey í kvöld, 27. apríl,
kl. 20. Farið verður úr Suöurbugt bryggju
neðan við Hafnarbúðir með f/b Skúla-
skeiði. Gengið verður um vestureyna
undir leiðsögn Friðþórs Eydals.
Tapað fundið
Leðurjakki fannst
Leðurjakki fannst fyrir ca viku á bíla-
stæði viö Skúlatún 2. Upplýsingar í s.
75098 eftir kl. 20.
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
GLEÐIGJAFARNIR
eftir Neil Simon
meö Árna Tryggva og Bessa Bjarna.
Þýöing og staðfærsla Gisli Rúnar
Jónssor,.
Fim. 28. april, táein sæti laus, Id. 30. april,
örfá sæti laus, fim. 5. maí, lau. 7. mai, fá-
ein sæti laus, fös. 13/5.
Stóra sviðið kl. 20.
EVALUNA
. Leikrit eftir Kjartan Ragnarsson og
Oskar Jónasson. Unnið upp úr bók Isa-
bel Allende. Lög og textar eftir Egil
Ólafsson.
Fös. 29. aprit, fáein sæti laus, föstud. 6.
maí, sunnud. 8. mai, fimmtud. 12. maí,
iaugard. 14. maí, fáein sæti laus, næstsið-
asta sýning, föstud. 20. mai siðasta sýning.
Geisladiskur með lögunum úr Evu Lunu til
sölu í miðasölu. Ath.: 2 miðar og geisla-
dlskur aðeins kr. 5.000.
Miöasala er opin kl. 13.00-20.00 alla
daga nema mánudaga. Tekiö á móti
miðapöntunum í sima 680680 kl.
10-12 alla virka daga.
Bréfasimi 680383.
Greiöslukortaþjónusta.
Munið gjafakortin okkar.
Tilvalin tækifærisgjöf.
Leikfélag Reykjavíkur-
Borgarleikhús.
---------------------------N
Þökkum vináttu og hlýhug
á sjötugsafmæli okkar.
Rannveig Árnadóttir
Borgþór H. Jónsson
V J