Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1994, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1994, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1994 MYNDBANDALISTI VIKUNNAR _ alla fimmtudaga Útlönd Peter Suther- landvillekkií arftaka GATT Peter Suther- land, fram- kvæmdastjóri GATT, sem leiddi svokall- aöar Úrúgvæ- viöræöur til lykta, hefur skýrt frá því að hann sækist ekki eftir toppstöö- unni í WTO, samtökunum sem taka viö af GATT snemma á næsta ári. Sutherland ætlar aö eyöa meiri tíma með eiginkonu sinni og þremur bömum sem búa í Ðyílinni. Óttast eiturþör- ungapláguí Skagerrak Norskir vísindamenn telja mikla hættu á að eitraöir þörung- ar muni skjóta upp kollinum í Skagerrak í sumar og óttast þeir aö fiskar muni drepast í stórum stíl, eins og sumariö 1988. Starfsmenn hafrannsóknar- stofnunarinnar í Bergen hafa tek- iö eftir því að mikið af mjög menguöu vatni hefur streymt frá syðri hluta Noröursjávar inn í Skagerrak og KattegaL Hátt næringarsaltainnihald í vatninu hefttr lengt eðlilegan þör- ungablóma um margar vikur og gerir samsetrúng saltanna þaö aö verkum aö þörungamir eru eitr- aðri en venjulega. Fiskeldismenn em beðnir aö vera á varðbergi. Reuter, NTB Marktækur útleigulisti sem birtist í blaöauka DV um dagskrá og myndbönd í viku hverri. Auk þess er ítarleg úttekt á því helsta sem er að gerast í heimi myndbanda eins og umfjöllun um ný og væntanleg myndbönd, myndbandagagnrýni, umfjöllun um leikara o.fl. o.f Átta ár frá kjamorkuslysinu í Tsjemóbyl: Slysið frá 1986 óhugsandinú - segir framkvæmdastjóri kjamorkuversins Framkvæmdastjóm Evrópusam- bandsins ætlar aö borga fyrir smíði tveggja kjamorkuvera í Úkraínu gegn því að verinu í Tsjemóbyl verði lokað. Að sögn danska blaðsins Jyl- lands-Posten koma sautján fram- kvæmdastjórar ESB saman í dag til að samþykkja áætlunina um að rífa kjamorkuverið sem umhverfinu stafar mikil hætta af. Áætlun ESB gerir ráö fyrir aö það taki eitt til tvö ár að rífa kjamorku- verið í Tsjemóbyl og byggja tvö önn- ur. Reiknað er með að kostnaðurinn við byggingu tveggja nýrra vera verði um eitt hundrað milljarðar ís- lenskra króna. í gær voru átta ár liðin frá því að gífurlegt slys varð í Tsjernóbyl og við það tækifæri sagði Sergej Parasj- ín, framkvæmdastjóri kjamorku- versins, að það væri í ekkert verra ásigkomulagi en önnur ver í hinum iönvædda heimi. Hann sagði aö Vest- urlönd ættu að láta sig í friði svo hann gæti sinnt starfi sínu. Á fimmta þúsund starfsmenn vers- ins lögðu í gær blóm að minnisvarða um þær þúsundir vísindamanna og björgunarsveitarmanna sem létu líff- ið árið 1986 þegar þeir reyndu að slökkva eldinn í kjamaofni númer Tveir starfsmenn kjarnorkuversins í Tsjernóbyl minnast þeirra sem fórust í kjarnorkuslysinu mikla 1986. fjögur. „Þaö sem geröist 1986 er óhugsandi Símamynd Reuter núna,“ sagði Parasjín við fréttamenn ísíðustuviku. Ritzau, Reuter Berlusconi áleiðíleið- togasætið Oscar Luigi Scalfaro, forseti ítaliu, lét aö því liggja í gær að hann mundi skipa Silvio Berlusconi næsta for- sætisráðherra landsins og kóróna þannig gífurlega velgengni fjölmiöla- kóngsins á sviði stjórnmálanna. Scalfaro sagöi fréttamönnum að hann mundi virða i hvívetna niður- stöður þingkosninganna í síðasta mánuði þegar kæmi að því að til- nefna mann í forsætisráðherrastöð- una. Scalfaro hefur átt viðræöur við háttsetta stjómmálamenn undan- farna þrjá daga og þeir vom lang- flestir á því að skipa ætti fjölmiðla- kónginn í embættið. Heimildarmenn sögðu líklegt að forsetinn mundi kalla Berlusconi á sinn fund í dag og fela honum að mynda 53. ríkis- stjórn ítahu frá lokum heimsstyrj- aldarinnar síðari. Berlusconi leiddi hið nýja Frelsis- bandalag, sem samanstóð af flokki hans, Áfram Ítalía, nýfasistum og sambandssinnum í norðri, til yfir- burðasigurs í kosningunum þegar kjósendur sneru baki við gömlu valdaklíkunum. Reuter Silvio Berlusconi fær kannski stjórn- armyndunarumboó í dag. Simamynd Reuter Tekursérfrífil aðbjargahjóna- bandinu Leikarinn Kevin Costner hefur ákveöið að taka sér eins árs frí frá kvik- myndaleik og leikstjóm til aö bjarga hjóna- bandinu sínu sem sagt er að standi á brauðfót- um þessa dagana. Costner, sem hefur veriö kvæntur eiginkonu shmi, Cindy, í 19 ár, segist ætla aö nota tímann til að vera meö henni og þremur börnum þeirra, 6,7 og 9 ára. „Ég er varla nokkurn timann heima hjá mér og ég ætla að gera breytingu á þvi. Við Cindy erum langt frá þvf að vera fuÚkomin en viö vinnum að því,“ sagöi Costner. Smyglaðifólki til Danmerkur ogSvíþjóðar Fertugur Kúrdi frá írak, sem er með sænskan ríkisborgararétt, hefur verið dæmdur í eins og hálfs árs fangelsi i Svíþjóð fyrir að sraygla íröskum Kúrdum til Svíþjóðar. Maðurinn er sakaöur um að hafa smyglað hvorki meira né minna en fjögur hundruð manns til Sviþjóðar. Auk þess er hann talinn hafa smyglað um 130 írösk- um Kúrdum til Borgundarhólms i október 1992 en það er mesta smygl á fólki sem vitað er um til Danmerkur. Lögreglan í Danmörku er ekki sátt viö meöferð Svía á málinu en danska lögreglan lét lögregl- una í Sviþjóð fá öll gögn sín um mál mannsins. Þrátt fyrir það var maðurinn aöeins dæmdur fyrir þau brot sem hann hafði framið í Svíþjóð. Réttarhöldum yfirandófs- mönnumfrestað Yfirvöld í Kina hafa ffestað réttarhöldum yfir 14 kínverskum andófsmönnum sem fara áttu fram í þessari viku en andófs- mennirnir, sem eru sakaðir um að hafa reynt að koma á byltingu, hafa verið í haldi f tvö ár. Ekki hefur verið ákveðið hve- nær réttarhöldin yfir mönnunum fara fram. Frestun réttarhald- airna kemur upp á mjög viö- kvæmum tíma fýrir yfirvöld í Kína sem eiga nú í miklum deil- um við Bandaríkjamenn en Bill Clinton segist ekki ætla að end- umýja viðskiptasamning við Kínveija fyrr en mannréttindi í landinu verði bætt. Villaðfólk láti sigífriði Gamanleik- konan Rose- anne Amold, sem nýlega sótti um skiln- að frá eigin- manni sínum, Tom Arnold, hefur beðið um að fá að vera í friði en hún hefur fengið lítinn frið síðan hún sakaði eiginmann sinn rnn að hafa barið sig.. „Ég hef ekki þurft að sæta of- beldi af hálfu eiginmanns míns þrátt fyrir að fiölmiðlar haldi áffarn að segja að svo sé. Ég hef dregið ákærurnar á hendur Tom til baka og nú viljum við bara fá aö vera í friði," sagði Roseanne. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.