Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1994, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1994, Page 7
FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1994 7 Fréttir Brestur í samstöðu rússneskra útgerðarmanna: Ekki ætla allir að hætta að selia f isk til íslands - segir sendiherra f slands í Moskvu „Eg hef orðið var við að það eru ekki allir rússneskir útgerðarmenn sem ætla að fara eftir þessum tilmælum. Ég mim eiga fund með Alexander Rodin, varaformanni Fiskveiðiráðs- ins, á morgun um þessi mál. Hann kom til vinnu í dag frá Murmansk þar sem hann sat þennan fund og Helgina 24.-26. júní var siglingakeppni þar sem siglt var frá Reykjavík til Vestmannaeyja. Sjö skútur tóku þátt í henni og voru þaö strákarnir á Ör- inni frá Vestmannaeyjum sem báru sigur úr býtum. Aö sögn framkvæmda- stjóra keppninnar, Jóns Skaftasonar, var veðurbliðan helsta vandamálið því hennar vegna áttu skúturnar erfitt með að hreyfast úr stað. DV-mynd SIS Löggildingarstofan: Nokkrar vikur í niðurstöðu „í raun vildi ég að komin væri nið- urstaða í málinu fyrir löngu. Þetta tekur hins vegar sinn tíma, því mið- ur. Ég á allt eins von á að það Mði nokkrar vikur þar til þetta kemst á hreint," segir Sveinn Þorgrímsson, deildarstjóri í iðnaðarráðuneytinu og settur forstjóri Löggildingarstof- unnar. Eins og greint var frá í DV hefur forstjóra Löggildingarstofunnar ver- ið skipað í frí eftir að Ríkisendur- skoðun gerði ýmsar athugasemdir við bókhald stofnunarinnar fyrir nokkru. Síðan þá hefur forstjórinn verið í fríi. Hólmavíkurhreppur: Kosningarnar ógildar Guðfinnur Finnbogaaan, DV, Hölmavöc Úrskurðamefnd sem sýslumaður- inn á Hólmavík skipaði hefur kveðið upp þann úrskurð að sveitarstjórn- arkosningamar í sameiginlegu sveit- arfélagi Nauteyrarhrepps og Hólma- víkurhrepps, Hólmavíkurhreppi, séu ógildar og verður kosið aftur til sveit- arstjórnar á Hólmavík ef úrskurður- inn verður ekki kærður til félags- málaráðuneytisins. Kærufrestur rennur út um helgina. Hjálmar Halldórsson, íbúi í Naut- eyrarhreppi, kærði kosningarnar vegna þess að aðeins einn fuligildur framboðslisti hafði borist kjörstjórn áður en framboðsfrestur rann út. Þá taldi hann að ákvæði sveitarstjóm- arlaga hefðu verið brotin af starfs- fólki félagsmálaráðuneytisins er viö- kemur afskiptum þeirra af samein- ingu Nauteyrarhrepps og Hólmavík- urhrepps og vefengdi kjörgengi tveggja frambjóðenda úr Nauteyrar- hreppi á tveimur framboðslistum, auk fleiri atriða. í lokaorðum úrskurðar nefndar- manna segir: „í raun var ekki um neinn framboðsfrest að ræða í hinu sameinaða sveitarfélagi. Ætla má að brot á ofangreindum frestum hafi haft áhrif á möguleika á framboðum og þar með niðurstöðum kosning- anna. Því er óhjákvæmilegt að ógilda kosningu þá sem fram fór í Hólma- víkurhreppi þann 28. maí 1994.“ hvatti til að þessum fisksölusamn- ingum yrði slitið, Þá hef ég óskað eftir fundi í utanríkisráðuneytinu vegna málsins," sagði Gunnar Gunn- arsson, sendiherra íslands í Rúss- landi, í samtali við DV. Gunnar segir erfitt að skilja á hve hátt stig málið sé komið þar sem fundur útgerðarmanna í Murmansk hafi í raun snúist um óskyld mál og tilmæli Rodins hafi fallið í umræð- um. Samkvæmt heimildum DV hefur komið fram hjá Rússum að ekkert eitt atriði hafi spillt eins mikið í sam- skiptunum og viðmót íslendinga gagnvart rússneskum sjómönnum sem komið hafa til íslands með fisk. Þeir hagsmunir sem eru í húfi fyrir íslendinga eru miklir. Sá fiskur sem Rússar landa til vinnslu á íslandi gefur um 600 manns atvinnu. Sú tala gefur til kynna að um 1500 manns hafi lifibrauð sitt af þessu sjávarfangi eða sem nemur 3-4 litlum sjávar- plássum. Þá má reikna með að hverfi Rússafiskurinn út úr íslensku at- vinnulífi samsvari það um 20 pró- senta kvótaskerðingu á þorski. „Það er alvarlegt mál í samskiptum þjóða ef stjómvöld beita löndunar- banni. Hins vegar höfum við öfugt við Noreg og EES-löndin enga samn- inga sem kveða á um að slíkt sé óheimilt eða markaö þvi leiö hvemig við getum tekið á því máli. Við verð- um einfaldlega að útskýra okkar mál fyrir Rússum og reyna að bæta þessi samskipti," sagði Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra. L-Í-ClLlLl Lloí^I; d LllliL-úi LLLLu iCilClLLllcll: Kringlunni - 3. hæö ■ * 1 1 r íinr í táránleo lín nrii! LC(£UðB^^tur,_l(asfettiH‘,jiLvndl)ðiíd, >lir, plakðL oft, «tL Kassettustandur fyrir 52 kassettur kr. Myndbandastandur fyrir 9 myndbönd S - K - I - F 'A - N Opiö virka daga Skeifunni • Hólagarði • Grafarvogi • Seltjarnarnesi • Akur Líka á kvöldin ! ■ ^msm ri

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.