Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1994, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1994, Blaðsíða 21
FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1994 33 Fréttir Laxá i Aðaldal var komin með 210 laxa í gærkvöldi en veiðin hefur verið frekar róleg þar síðustu daga. Þeir Davíð Björnsson og Ólafur Ágústsson voru komnir með 8 punda lax þegar við hittum þá við Æðarfoss- ana fyrir fáum dögum. DV-mynd G. Bender í Hlaupunum í Austurá: Þetta var risaf iskur - segir Sverrir Kristinsson „Maöur hefur séð þá marga stóra í gegnum árin en þessi er einn af þeim stærri. Þetta hefur verið 25-30 punda fiskur," sagði Sverrir Krist- insson en hann var að koma úr Miðfjarðará í gærdag. Miðfjarðará hefur gefið 90 laxa og hann er 19 punda sá stærsti. „Við hófum veiðar í Hlaupunum í Austuránni og þar var þessi risa- fiskur. Ég fór upp í brekku og kíkti á fiskinn. Við hliðina á honum voru 14 og 15 punda laxar, þessi stóri var fetinu lengri. Við náum þessum 14 og 15 punda en sá stóri tók eitt andartak en sleppti. Það var hrika- legt að fiskurinn skyldi ekki taka almennilega maðkinn. Þetta var alveg risafiskur og hjartað tók kipp þegar hann renndi sér að maökin- um, blessaður, en takan var ekki nógu ákveðin. Það eru mjög vænir fiskar í Miðfjarðaránni þessa dag- ana. Það er fullt af 16-18 punda fisk- um víða um árnar. Við fengum fyrsta laxinn á þessu sumri í Vals- fossi í Austurá og sáum annan þar en hann vildi ekki taka hjá okkur. Það veiddust þrír maríulaxar í fyrradag sem er í góðu lagi,“ sagði Sverrir og ætlaði í Elliðaárnar í fyrramáhð. Veiðin gengur rólega í Elliðaánum Veiðin gengur rólega í Elhðaán- um en þegar við vorum þar í gær- kvöldi hafði enginn lax veiðst eftir hádegi. 34 laxar eru komnir á land og hann er ennþá 11 punda sá stærsti. Fluguveiðin hefur verið í lagi í Elhðaánum, 6 laxar hafa veiðst á ýmsar flugur eins og Blue Charm, Colhe dog, Þingeying, Black Seep og Rauða Franses. Landsmót hestmanna: Gæðingar Geysis standa sig vel Heimavöllurinn skiptir greinilega máh í gæðingakeppninni á landsmóti hestamanna Hehu, því tveir hestar Geysis í Rangárvahasýslu eru meðal þeirra fremstu. Þá eiga Fáksmenn fimm hesta í úrshtum. Stóðhesturinn Orri (Geysir) frá Þúfu er efstur með 8,91 í einkunn en knapi hans er Gunnar Arnarson. Annar er ÞyriU (Stígandi) með 8,75 í einkunn og þriðja er Næla (Geysir) með 8,72 í einkunn en knapi hennar er Hafliði HaUdórsson. í barnaflokki eru félagarnir Viðar Ingólfsson á Glað og Davíð Matthías- son á Vin efstir og jafnir með 8,45 í einkunn en skammt á hæla þeirra kemur Elvar Þormarsson (Geysi) á Sindra með 8,44 í einkunn. Landsmótsgestir kunnu vel við sig í bhðviðrinu í RangárvaUasýslu og dreifðu sér í þijár áhorfendabrekkur því dæmt var og keppt á þremur völlum í einu. Úrslit B-fiokkur 1. Orri (Geysir)..............8,91 Knapi: Gunnar Amarson Eig.: Orrafélagið c/o Indriði Ólafsson 2. Þyrih (Stígandi)...........8,75 Knapi: Vignir Siggeirsson Eig.: Jón Friðriksson 3. Næla (Geysir)..............8,72 Knapi: Hafliði Halldórsson Eig.: ÁrsæU Jónsson 4. Svörður (Fákur)............8,68 Kn./eig.: Sigurbjöm Bárðarson 5. Kolskeggur (Fákur).........8,67 Knapi: Sigurbjörn Bárðarson Eig.: Maríanna Gunnarsdóttir 6. Logi (Fákur)...............8,64 Knapi: Órri Snorrason Eig.: Ólafía Sveinsdóttir Stóðhesturinn Orri frá Þúfu er efstur i B-flokki gæðinga á landsmótinu á Hellu. Knapi er Gunnar Arnarson. DV-mynd E.J. 7. Saga (Léttir)..............8,62 Kn./eig.: Baldvin Ari Guðiaugsson 8. -9. Tenór (Sörh)...........8,60 Kn./eig.: Sveinn Jónsson 8.-9. Börkur (Fákur)...........8,60 Kn./eig.: Sigvaldi Ægisson 10. Oddur (Fákur)..............8,59 Kn./eig.: Sigurbjörn Bárðarson Barnaflokkur 1. -2. Davíð Matthíasson (Fákur) á Vin..........................8,45 2. Viðar Ingólfsson (Fákur) á Glað.........................8,45 3. Elvar Þormóðsson (Geysi) á Sindra.......................8,44 4. Sigfús B. Sigfússon (Smára) á Skenk.......................8,41 5. Erlendur Ingvarsson (Geysi) á Dagfara....................8,39 6. Magnea R. Axelsdóttir (Herði) á Vafa.......................8,38 7. -8. ÞórarinnÞ.Orrason(Andvara) á Gjafari....................8,37 7.-8. SigríðurÞorsteinsdóttir(Gusti) á Funa.......................8,37 9.-10. Sigurður Hahdórsson (Gusti) á Frúarjarpi.................8,29 9.-10. Agnar S. Stefánsson (Hring) á Toppi......................8,29 -E.J. Tilkyimingar Eiðfaxi International Eiðfaxi hf., sem hefur um árabil gefið út Eiðfaxa, tímarit fyrir hestamenn, hefur nú hafið útgáfu á erlendu tímariti sem gefið hefur verið nafhið Eiðfaxi Inter- national. Blaðið er gefið út á ensku og þýksu. Efni blaðsins verður m.a. úrval efnis úr íslenska Eiðfaxa og fjallar fyrst og fremst um þætti hestamennskunnar sem lúta að íslenska hestinum. Blaðið verður fyrst um sinn gefið út ársfjórð- ungslega. Ný hárgreiðslustofa á Eskifirði Á dögunum var opnuð ný hárgreiðslu- stofa, Hjá Maríu Onnu, að Bleiksárhlíð 63, Eskifirði. Eigendur eru hjónin María Anna Guðmundsdóttir hárgreiðsludama og Þór Sæbjömsson vélstjóri. jSpilaborgin hefur Istörfað nýju Hljómsveitin Spilaborgin hefur hafiö störf að nýju eftir nokkurt hlé og nýir meðlimir bæst við hópinn. Söngkona hljómsveitarinnar er enn sem fyrr Ásdís Guðmundsdóttir. Slagverk er áfram í höndum Kristínar Þorsteinsdóttur. Nýir meðlimir eru: Agnar Sveinsson, gítar, Atli Freyr Ólafsson, bassi, Ólafur K. Karlsson, trommur. Náttúruverndarfélag Suðvesturlands - NVSV í kvöld ætlar Náttúmvemdarfélag Suð- vesturlands að fara í vettvangsferð til náttúruskoðunar út í Viðey. Fariö verður frá Klettavör í Sundahöfn með Viðeyjar- feiju kl. 20. Ferðin mun taka um þrjá tíma. Allir velkomnir. Félag eldri borgara í Reykjavík og nágr. Bridgekeppni, tvímenninngur í Risinu kl. 13 í dag. Félagsstarf í Risinu lokað frá 1. júlí til 4. ágúst. Göngu-Hrólfar fara þó alltaf frá Risinu kl. 10 á laugardags- morgnum. Dansað verður í Goöheimum kl. 20 á sunnudgskvöldum til 1. ágúst. Skrifstofa félagsins er opin í sumar kl. 9-16 virka daga. Isátt viðumhverfið Kominn er út bæklingur þar sem fjallað um flesta þætti umhverfismála. Bækling- urinn er ætlaður almenningi og era í honum ótal fróðleiksmolar um stöðu mála, bæði hér á landi og í umheiminum. Bent er á stærstu vandamálin, þau út- skýrð og jafnframt bent á hvað hver og einn getur gert til að draga úr eða leysa vandamálin. íslandsbanki gefur bækling- inn út. Tapad fimdið Páfagaukur tapaðist frá Laugavegi Grænn páfagaukur, rauður í kringum augu, nef og efst á höfði, flaug út um glugga á Laugavegi og sást síðast til hans efst á Skólavörðustíg á mánudaginn sl. Ef einhver veit hvar hann er niðurkom- inn, þá vinsamlega hringið í síma 10795 eða 11945. PÓST- OG SÍMAMÁLASTOFNUNIN Utanhússmálning - Pósthússtræti Póst- og símamálastofnun óskar eftir tilboðum í utanhúss- málningu á Pósthússtræti 5 í Reykjavík. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu fasteignadeildar Pósts og síma, Pósthús- stræti 5, 3. hæð, 101 Reykjavík, gegn 5.000 kr. skilatrygg- ingu. Tilboð verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 21. júlí kl. 10.45. Vettvangsskoðun verður föstudaginn 8. júlí kl. 13.00. Utanhússmálning - Keflavík Póst- og símamálastofnun óskar eftir tilboðum í utanhúss- málningu á Hafnargötu 40 og hluta af húsinu við Hafnar- götu 89, Keflavík. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu fasteignadeildar Pósts og síma, 3. hæð, Pósthússtræti 5, 101 Reykjavík, gegn 5.000 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 21. júlí kl. 11.00. Vett- vangsskoðun verður fimmtudaginn 7. júlí kl. 10.00. Utanhússmálning - Laugarvatn Póst- og símamálastofnun óskar eftir tilboðum í utanhúss- málningu á eign sinni að Laugarvatni. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu fasteignadeildar Pósts og síma, Pósthús- stræti 5, 3. hæð, 101 Reykjavík, gegn 5.000 kr. skilatrygg- ingu. Tilboð verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 21. júlí kl. 11.15. Vettvangsskoðun verður fimmtudaginn 7. júlí kl. 16.00. Utanhússmálning - Þorlákshöfn Póst- og símamálastofnun óskar eftir tilboðum í utanhúss- málningu á Reykjabraut 2, Þorlákshöfn. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu fasteignadeildar Pósts og síma, Pósthús- stræti 5, 3. hæð, 101 Reykjavík, gegn 5.000 kr. skilatrygg- ingu. Tilboð verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 21. júlí kl. 11.30. Vettvangsskoðun verður fimmtudaginn 7. júlí kl. 14.00. Utanhússmálning - Mosfellsbæ Póst- og símamálastofnun óskar eftir tilboðum í utanhúss- málningu á Háholti 4, Mosfellsbæ. Útboðsgögn verða af- hent á skrifstofu fasteignadeildar Pósts og síma, Pósthús- stræti 5, 3. hæð, 101 Reykjavík, gegn 5.000 kr. skilatrygg- ingu. Tilboð verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 21. júlí kl. 11.45. Vettvangsskoðun verður föstudaginn 8. júlí kl. 10.00. Póst- og símamálastofnunin

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.