Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1994, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1994, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 30. JÚNl 1994 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM • Aðstoðarritstjóri: ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og GUÐMUNDUR MAGNUSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00 FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk. Verð í lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblað 180 kr. m/vsk. Ríkis- og heimilisrekstur Rekstur íslenzkra heimila er ekki byggður á vinnu- brögðum, sem stjómvöld hafa tamið sér við rekstur ríkis- ins. Heimilisfólk safnar ekki saman óskalistum, er fela í sér útgjöld, sem fara 20% umfram tekjur. Það heldur sér einfaldlega innan við ramma heimihsteknanna. Á íslenzkum heimilum fara ekki fram fundahöld um, hvort rétt sé að kaupa uppþvottavél eða fara í ferðalag fyrir peninga, sem ekki eru til. Meira að segja bömin á heimilinu skilja, að ýmis lífsgæði kosta raunverulega peninga, en em ekki bara línur í bókhaldi töframanns. Því síður geta íslenzkar íjölskyldur ákveðið að meira eða minna af óskhyggju þeirra nái fram að ganga með því að skylda umhverfið til að láta þær hafa meiri tekj- ur. Heimiiisrekstur er ekki truflaður af skattlagningar- valdi eins og rekstur ríkisins hefur reynzt vera. Ef ríkisreksturinn væri með fehdu, væri fyrst áætlað, hveijar tekjumar yrðu við óbreyttar aðstæður. Síðan væri athugað, hvort rétt væri að lækka skatta th að gleðja fólkið í landinu. Hins vegar létu menn sér ekki detta í hug að hækka enn einu sinni skatta á fólkinu. Þegar þannig væri búið að finna áætlaða tekjuhlið rík- isrekstrarins á næsta ári, væri kannað, hverjar væru skuldbindingar ríkisins á ýmsum sviðum. Að vísu er matsatriði, hversu mikið þær eiga að kosta hverju sinni, en nauðsynlegt er að hafa hhðsjón af lagasmíði Alþingis. Með tilliti til skuldbindinga ríkisins væri síðan ráðstöf- unarfé ársins skipt milli ráðuneyta og helztu stofhana ríkisins og þeim skipað að halda sig innan rammans, alveg eins og hver heimihsmaður verður að halda sig innan þess ramma, sem Qárhagur heimihsins leyfir. Við slíkar aðstæður þarf að leysa frá störfum þá emb- ættismenn, sem ekki geta haldið sig innan rammans. Við fyrsta brot má senda þá á hússtjómarskóla th að læra grundvaharatriði í heimihshaldi. Við ítrekað brot er brýnt að skipta þeim út fyrir aðra, sem kunna sér hóf. Auðvitað yrði mikið ramakvein í kerfinu. Embættis- menn segðu, að ekki væri hægt að komast af með svona htla peninga. Alþingismenn heimtuðu, að staðið væri við kippur af óskhyggjulögum, sem þeir hafa afgreitt út í loftið án hhðsjónar af kostnaði við framkvæmd laganna. Smám saman áttuðu embættismenn og alþingismenn sig á, að ekki mætti byggja ríkisrekstur á óskhyggju og að fresta þyrfti mörgum ráðgerðum góðverkum. Rama- kveinum fækkaði og rekstur ríkisins færðist nær eðhlegu horfi, svo sem við þekkjum frá heimhum landsins. Fjölskyldumar í lamhnu geta ekki stundað góðverk á kostnað skattgreiðenda. Það hafa embættismenn og al- þingismenn hins vegar hingað th getað gert. Þeim hefur reynzt auðvelt að vera örlátir á kostnað annarra. Þess vegna eru flárlög ríkisins að shga þjóðfélagið. Enn einu sinni hefur óskhyggjuleiðin verið farin við undirbúning fiárlaga fyrir næsta ár. Safnað hefur verið saman óskhyggju embættismanna, sem sumpart er byggð á óskhyggju úr lögum frá alþingismönnum. Úr þessu kemur hehdargat, sem nemur 20 mhljörðum króna. Senn mun hefjast hefðbundið rifnldi um, hvemig brúa megi bihð með niðurskurði og sköttum, svo að eftir verði helmingur af tapi ársins. Niðurstaðan verður nokkurn veginn hin sama og í ár, eins konar uppgjöf. Fjárlög næsta árs fara um eða yfir 10 mhljarða úr böndum. Stundum hefur verið minnt á, að á ríkisreksturinn þurfi að beita þekkingu og reynslu úr heimihsrekstri. Á það er aldrei hlustað, ekki heldur að þessu sinni. Jónas Kristjánsson „Það vekur einnig athygli hve hátt hlutfall svarenda kveðst hafa byrjað áfengisneyslu með foreldrum þó auðvitað sé það langalgengast að upphafsdrykkjuna megi rekja í félaga- og vinahópinn," segir Helgi Seljan. Auknar forvarnir Það færist æ meir í vöxt að gerð- ar séu hvers kyns kannanir og at- huganir og víst getur að því akkur nokkur verið, því fram í dagsljósið eru oft dregnar vissar upplýsingar um ýmislegt það sem aðeins voru til um óljósar staðhæfmgar einar byggðar á tilfinningu og hugmynd- um. Varast skyldi hins vegar að taka öllu slíku sem einhverjum al- gildum sannleika og draga um of ályktanir þar af, fremur mætti tala um ákveönar vísbendingar, sem vissulega geta auðveldað okkur að átta okkur betur á ýmsu í þjóölífinu og draga þar af nokkra lærdóma. Ekki síst á þetta við um ýmis þau vandamál samfélagsins sem erfiö- lega gengur úr að leysa, vandamál sem ægileg geta orðið í verstu myndum sínum s.s. er um áfengis- vandamáhð. Þegar Áfengisvamarráði bauðst að kosta allvíðtæka könnun á veg- um Gallups í vetur leið, sem beint sneri að fjölmörgu varðandi áfeng- isneyslu ungs fólks, þótti fólki þar kjörið að taka þar þátt, ef viö mætt- um í einhverju vísari verða um til- tekna þætti og miðla mætti síðan út í samfélagið. Niðurstöður þess- arar könnunar vora birtar fyrir skömmu á blaðamannafundi sem heilbrigðisráðherra hélt ásamt ráð- inu. Eins og ætíð sýnist sitt hverj- um um innihald og áreiðanleika og augljóst að túlka má á ýmsan veg. Öll umræða þar um er af hinu góða, vekur athygli á miklum vanda og það eitt -að varast að alhæfa ekki um of. Félagar drekki meira og verr Vissulega var þetta unga fólk, 12-24 ára, spurt margra áleitinna spuminga og víðtækra um leið og margt í svörunum er vert athygli. En ályktanir eru sundurleitar einnig. Sumir virðast t.d. hafa htið um of á heildarniðurstöðu þessa hóps ahs, s.s. þá útkomu að 35% þessa hóps drekki ekki áfengi, en því gjaman gleymt að enn er bless- unarlega htil áfengisneysla hjá 12-13 ára svarendum svo og að hlutfalhð er enn vel yfir meðaltals- mörkum hjá þeim sem eru 14-15 ára og svo em fáeinir hinna eldri komnir í þurrkví eftir ofneyslu ut- - áherslubreyting KjaUariiui an efa. En margt má sannarlega skoða og hugleiða s.s. það viðhorf sem er yfirgnæfandi hjá svarendum að vinir og félagar þeirra drekki meira og verr. Blekkingaleikurinn kring- um áfengisneysluna er oft átakan- lega mikih og þetta aðeins eitt ofur- ljóst dæmi þess. Það vekur einnig athygh hve hátt hlutfall svarenda kveöst hafa byrj- að áfengisneyslu með foreldrum, þó auðvitað sé það langalgengast að upphafsdrykkjuna megi rekja í félaga- og vinahópinn. Og ekki má heldur gleyma því sem að var vikið, hve þó stór hópur unghnga drekkur ekki ef tekið er mið af svöram. Það kemur ekki á óvart en virðist staöfestast rækhega í könnun þess- ari að þeir sem hefja áfengisneyslu árla á lífsleiðinni neyta meira magns síöar en hinir sem síðar byija og eiga því í meiri vanda varðandi neysluna. Hið sama lög- mál virðist ghda varðandi þá sem annarra vímuefna neyta. Það má vera yfirvöldum th alvar- legrar íhugunar hve margir ungl- ingar undir lögaldri neyta áfengis í mikium mæh og einnig það hve landinn er víða á ferð og það ekki síður hjá þeim sem eiga greiðari leið th áfengiskaupa - minna hjá þeim yngri undir lögaldri sem ýms- ir hafa haldið að væra aðalneyt- endur landans. Svona mætti áfram halda upp að tína ábendingar ýmsar en verður ekki frekar gert í stuttri grein. huga um eitt. Forvamir sem fjöl- breyttastar og öflugastar eru höf- uðnauðsyn og þar verðúr jafnt að leita nýrra leiöa sem fara hinar sem vel hafa gefist í gegnum tíðina. Fordæmi bindindis sem flestra fer þar fremst. Það er dagljóst að th forvama í dag er aðeins varið hreinum smámunum miðað við þær fúlgur sem fara th meðferðar- þáttarins og finnst þó sumum sem þar sé fuhnaumt skammtað. Það ætti líka að vera dagljóst að þar á hinn lögbundni aðili, Áfengis- varnarráð, að hafa á hendi forystu og umsjón fjármagns svo það megi sem best nýtast. Þar vantar ekki vhjann th verka góðra og þeim verkum þarf að koma í virka fram- kvæmd í góðri samvinnu við aha þá aöha sem af einlægni vhja þar að vinna. En þá þarf breyttar og betri fjármagnsáherslur. Helgi Seljan Helgi Seljan form. Landssambands gegn áfengisbölinu Forvarnir höfuðnauðsyn En hvað sem öhum einstökum niðurstöðum hður og hvaða álykt- anir sem menn helst vhja setja efst- ar þá ættu ahir að geta verið ein- „Það er dagljóst að til forvarna í dag er aðeins varið hreinum smámunum miðað við þær fúlgur sem fara til með- ferðarþáttarins og finnst þó sumum sem þar sé fullnaumt skammtað.“ Skoðanir annarra Staðf astur stjórnmálaf lokkur „Við þær kringumstæður sem sveipa Alþýðu- flokkinn um þessar mundir hefði veiklyndur flokkur með hvikuhi forystu án efa fahið í þá freistingu að reyna að efna th haustkosninga, ekki síst th að forð- ast þá erfiðleika sem í kjölfar afsagnar Jóhönnu Sig- urðardóttur bíða hans óhjákvæmhega á komandi kosningavetri. Alþýðuflokkurinn er hins vegar stað- fastur stjómmálaflokkur, og fráleitt hræddur við kjósendur sína. Hann hefur sýnt að hann vinnur þau verk sem til kasta koma.“ Úr forystugrein Alþýðublaðsins 30. júni. Háskólastigið skoðað „Hér er tekið undir við þá skoðun rektors (Há- skóla íslands) aö nauðsynlegt sé að endurskoða aht háskólastigið. Það er lifsspursmál fyrir íslendinga að halda uppi öflugum rannsóknarháskóla, en jafn mikilvægt er að minni kennsluháskólar taki við fólki th að mennta það th sérhæfðra starfa þar sem minni áhersla er lögð á fræðhegt nám. Sumum hentar fræðhegt nám, öðram ekki. Þar er ekki um aö ræða að eitt sé fínna eða göfugra en annað.“ Úr forystugrein Tímans 30. júní. Góðir liðsmenn „íslendingar hafa hingað th ekki lagt fram hðs- menn í friðargæslusveitir. Fjölmargir íslendingar hafa þó á undanfórnum árum starfað að friðargæslu á vegum alþjóðasamtakanna og ráðnir af þeim. Þykja þeir þar góðir hðsmenn. Að við íslendingar höfum ekki eins og aðrar þjóðir lagt sjáifir fjam fólk th frið- argæslu er skhjanlegt í ljósi þess að hér er enginn her og því föhum við ekki beint inn í það fyrirkomu- lag sem er á friðargæslu SÞ á alþjóðavettvangi. Þó var fyrir alhöngu fariö að biðja íslendinga ásjár. Úr forystugrein Mbl. 30. júní.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.