Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1994, Side 11
FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1994
11
Merming
Leyndarmál á Grænlandi
Flókin atburðarás spennusögunnar „Lesið í snjó-
inn“ hefst með skyndilegum dauða sex ára grænlensks
drengs í Kaupmannahöfn. Esajas fellur ofan af margra
hæða háu pakkhúsi sem er í endurbyggingu. Sagan
hefst við útfór hans í Vestre kirkjugarðinum.
Eini vitnisburðurinn um hinstu för hans í jarðlífi
eru spor í snjónum á þaki pakkhússins allt fram á
brúnina þaðan sem Esajas féll til jarðar og lést sam-
stundis. Og með þeim þögla vitnisburði hefði máhnu
lokið nema vegna þess að Esajas hafði eignast tryggan
vin; 37 ára gamla konu sem átti eins og hann rætur
sínar í Grænlandi. Þetta er Smilla Qaavigaaq Jasp-
ersen. Hún er sérmenntuð í stærðfræði og jöklavísind-
um og hefur hlotið í vöggugjöf einstakt næmi fyrir
snæviþakinni veröld heimalands síns. Hún kann að
lesa í snjóinn eins og það heitir í ágætu íslensku nafni
bókarinnar.
Smilla veit að Esajas hefði aldrei farið ótilneyddur
upp á þak margra hæða byggingar; hann var nefnilega
afar lofthræddur. Hún neitar því að sætta sig við þá
opinberu skýringu að dauði hans hafi verið slys. Þrátt
fyrir áhugaleysi og andstöðu yfirvalda knýr hún á um
frekari rannsókn málsins.
Leitin að sannleikanum
Leitin að hinum réttu skýringum berst víða í tíma
og rúmi; frá Kaupmannahöfn til Grænlands og frá
nútímanum aftur til loka síðari heimsstyrjaldarinnar
og leynilegrar áætlunar nasista sem kennd er við und-
irheima hinna fomu norrænu trúarbragða. Hún finn-
ur loks lykihnn að lausn gátunnar, sem hófst með
dauða Esajas, í ísnum og sjónum við Grænland.
Þessi spennusaga Peter Hoeg hefur víða hlotið lof
og það að verðleikum. Þungamiðja sögunnar og það
afl sem knýr hana áfram er aðalpersónan, Smilla. Hún
Bókmermtir
Elías Snæland Jónsson
á danskan fóður á lífi en grænlensk móðir hennar er
látin. Tilfinningalega er Smilla tengd afar sterkum
böndum við jökullagt ættland móður sinnar. Græn-
lenski arfurinn er ríkjandi í skapgerð Smillu og hefur
mikil áhrif á gjörðir hennar.
í sögunni, sem er afar vel skrifuð og hin læsilegasta
í íslensku þýðingunni, er listilega fléttað saman spenn-
andi söguþræði og framandlegum fróðleik. Að þessu
leytinu minna efnistökin ósjálfrátt á handbragð ann-
arra frábærra spennusagnahöfunda á borð við Eco
(Nafn rósarinnar) og Tartt (A Secret History).
LESIÐ í SNJÓINN
Höfundur: Peter Hoeg.
Þýðandi: Eygló Guðmundsdóttir.
Mál og menning, 1994.
Kennarar
Kennara vantar að Grenivíkurskóla til að
kenna handavinnu og almenna kennslu
Upplýsingar gefur Björn Ingólfsson skólastjóri
í síma 96-33118 eða 96-33131
Einfaldir, tvöfaldir og
þrefaldir álstigar í
fjölda lengda
fyrirliggjandi af lager.
Einnig vinnupallar.
STARLIGHT
-einn stigi alstaðar
Fæstínæstu^
Kugntnaarvbruversjun
I. Guðmundsson & Co. m
UMBOÐS QG HEtLQVERSLUN
SfMI 91-24020 FAX 91-623145
Svidsljós
í hringiðu helgarinnar
Hjóladagur Bifhjólasamtaka lýðveldisins var haldinn
hátíðlegur sl. laugardag. Eftir að hafa ekið í samfloti
um bæinn söfnuðust Sniglamir saman á Ingólfstorgi þar
sem létt skemmtidagskrá var í gangi til kl. 18. Eins og
sést á meðfylgjandi mynd áttu Sniglamir notalegan dag
í blíðskaparveðri og nutu lífsins.
Margrét Sossa Björnsdóttir myndlistarkona opnaði sýn-
ingu í Gallerí Borg sl. laugardag. Sossa hefur frá 1989
nær eingöngu unnið með olíu á striga en fyrir þann tíma
vann hún.nær eingöngu í grafík. Á sýningunni em um
25 ný málverk, öll unnin með ohu á striga. Á myndinni
sést Sossa ásamt einu listaverka sinna.
' Laugavegi 178
Kvöldverðartilboö
vikuna 3016-8/7
Frönsk lauksúpa
*
Döðlufyllt grísasneið
með grænmeti og apríkósusósu
*
Ostakaka
með völdum berjum
*
Kr. 1.950
Borðapantanir í síma 88 99 67
HÚS 0G GARDAR
///////////////////////////////
Áskiifendur DV fá
10% aukaafslátf af
smáauglýsingum
AUGLYSINGAR
£ wwwv
Þverholti 11 -105 Reykjavík
Sími 632700 - Bréfasími 632727
Græni síminn: 99-6272
(fyrir landsbyggðina)
OPIÐ:
Virka daga kl. 9-22
Laugardaga kl. 9-16
Sunnudaga kl. 18-22
Athugið!
Smáauglýsingar í helgarblað
DV verða að berast fyrir
kl. 17 á föstudögum.
Aukablað
HÚS OG GARÐAR
Miðvikudaginn 13. júlí nk. mun aukablað um
hús og garða fylgja DV.
Meðal efnis:
★ Sumarbústaðir (framleiðsla, stofnkostnaður, rafmagn,
vatn, rotþrær o.fl.).
★ Klæðning á húsum (nýjungar og eldri aðferðir).
★ Hæðarmunur í görðum.
★ Viðhald steinsteyptra húsa (sprunguviðgerðir,
háþrýstiþvottur, málning).
★ Fuglahús í görðum.
★ Litlir garðar.
★ Viðhald á timbri, hellum og grjóti
★ og margt fleira.
Þeir auglýsendur sem hafa áhuga á að aúglýsa í þessu
aukablaði eru vinsamlega beðnir að hafa samband við
Fríðu Sjöfn Lúðvíksdóttur í síma 91 -632721 eða Jensínu
Böðvarsdóttur í síma 91 -632723 á auglýsingadeild DV.
Vinsamlegast athugið að síðasti skiladagur auglýsinga í
þetta aukaþlað er fimmtudagurinn 7. júlí.
ATH.I Bréfasími okkar er 632727.