Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1994, Qupperneq 15
14
FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1994
T
FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1994
27
Iþróttir
Einn leikmanna Sádi-Arabíu fagnar sigri liðsins gegn Belgíu í gærkvöldi.
Símamynd Reuter
Dansað fram á morgun
Sádi-Arabar brutu blaö í knattspyrnusögunni í gærkvöldi er þeir sigr-
uðu Belga og komust í 16 liða úrslit á HM í fyrsta skipti. Gífurleg fagnað-
arlæti brutust út í landinu eftir sigurinn og fólk dansaði á götum úti fram
undir morgun. Sádi-Arabar höfnuðu í öðru sæti í sínum riðli.
Vopnin lögð til hliðar í Rúanda
Áhuginn á HM í knattspymu leynist víða og á meðal þeirra staða þar
sem allt dettur í dúnalogn á meðan sýnt er frá keppninni í sjónvarpi er
Rúanda þar sem hatrammar deilur ættbálka hafa staðið yfir frá 6. apríl
sl. og kostað um 200 þúsund mannslíf. Þar heyrist hvorki skot né stuna
þegar leikir eru í gangi. Spuming hvort ekki ætti að sýna knattspymu í
sjónvarpi þar allan sólarhringinn?
Claudia Caniggia hefur fengið uppreisn æru á HM.
Fetar Ganiggia í fótspor Rossi?
Argentínumenn vonast eftir því að Claudio Caniggia takist að feta í
fótspor ítalans Paolo Rossi á HM 1982. Þá kom Rossi úr löngu banni og
skoraði 6 mörk í keppninni og ítalir urðu heimsmeistarar. Caniggia var
laus úr 13 mánaöa banni vegna neyslu kókaíns þann 8. maí sl. og hefur
leikið mjög vel með liði Argentínu það sem af er HM.
Dimitri Radchenko fagnar sjötta marki Rússa gegn Kamerún.
Fagnaðarlæti af ýmsu tagi
Menn hafa fagnað mörkum méð ýmsu móti eins og knattspyrnuunnend-
ur hafa séð. Margir þeirra hafa dansað sambadansinn við homfánann
og sumir beita öðrum aðferðum eins og myndin sýnir.
F-RIÐILL
Marokkó
o-l Hassan Nader.
1- 1 Dennis Bergkamp.
2- 1 Bryan Roy.
Saudi-Arabía (0) 1
o-l Saeed Owairan (5.)
Lokastaðan:
Holland.....3 2 0 1 4-36
Saudi-Arabía... 3 2 0 1 4-3 6
Belgía......3 2 0 1 2-1 6
Marokkó.....3 0 0 3 2-5 0
16-liða úrslif
Fjórtán lið eru nú komin í 16-
liða úrsht, Rúmenía, Sviss,
Bandaríkin, Brasilía, Svíþjóð,
Þýskaland, Spánn, Argentína,
Mexíkó, írland, Ítalía, Holland,
Saudi-Arabía og Belgia.
Leikirídag
D-riðill:
Grikkland - Nígería...23.30
Argentína - Búlgaria...23.30
Markahæstir
Oleg Salenko, Rússlandi.6
Jurgen Klinsmann, Þýskalandi.. ..4
Gabriel Batistuta, Argentínu.3
Martin DahUn, Svíþjóö.....3
Romario, Brasilíu.........3
Golfklúbbur Akureyrar:
Opna Mitsubishi-
mótiðum helgina
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii:
Opna Mitsubishi-golfmótið hjá
Golfklúbbi Akureyrar fer fram
um næstu helgi og er það jafn-
framt stigamót til landsliða.
Glæsileg verðlaun eru í boði og
aukaverðlaun á öllum par-3 hol-
unum.
í mótinu, sem margir munu líta
á sem góða æfmgu fyrir lands-
mót, verður keppt í 7 flokkum.
Sem fyrr er mótið stigamót til
landsliös karla, keppt er í opnum
flokkum karla, kvenna og ungl-
inga, með og án forgjafar, í opn-
um flokki karla, 55 ára og eldri
með forgjöf, og í opnum flokki
kvenna, 50 ára og eldri.
Landsmótið í golfi hefst á Jað-
arsvelh á Akureyri 24. júlí. Vitað
er um marga sem ætla að taka
þátt í Mitsubishi-mótinu sem æf-
ingu fyrir þau átök. Það munu
þeir þó ekki gera meistaraflokks-
menn sem keppa um landsliðs-
stigin á Akureyri um næstu helgi
en von er á flestum bestu kylfing-
um landsins til Akureyrar.
Mjólkurbikaiinn:
Fimmmörk Blika
Sveinn Helgasan, DV, SeJfofri:
Breiðablik vann öruggan sigur
á Hamri i Hveragerði í 32 liöa
úrslitum Mjólkurbikarkeppninn-
ar í knattspymu eystra í gær-
kvöldi, 0-5. Staðan í ieikhléi var
0-3. Mörk Blíkanna geröu Rat-
islav Lazorik, Amar Grétarsson,
Grétar Steindórsson, Sigurjón
Kristjánsson og Kristófer Sigur-
geirsson.
ÖruggthjáKA
Heimann Kadsson, DV, Noröuxlandi'
KA vann öruggan sigur á Hvöt
á Blönduósi, 0-3 (0-2). Ivar Bjark-
lind geröi tvö mörk, hvort í sínum
hálfleiknum, og Þorvaldur M.
Sigbjömsson skoraöi annað
markiö í lok fyrri hálfleiks.
„Hlustið ekki á FIFA“
- segir fyrrverandi knattspymudómari á HM
Jose Roberto Wright, knattspymu-
dómari frá Brasilíu, hefur hvatt alla
dómara sem dæma á HM í Bandaríkj-
unum til að virða að vettugi allar
skipanir frá yfirstjórn FIFA varðandi
dómgæslu á HM.
„Mesta álagið á dómara í keppninni
er vegna ákvarðana sem teknar em
skömmu fyrir keppnina af FIFA. Þar
á bæ em menn alltaf að breyta regl-
unum og dómarar hafa engan tíma
til að aðlaga sig þessum nýju reglum.
Besta ráðið sem ég get gefiö dómur-
um í Bandaríkjunum er að gleyma
því jafnóðum sem FIFA segir varð-
andi reglurnar," segir Wright.
Jóhannes áfram
Jóhannes Ragnar Jóhannesson tryggði sér í gær rétt til þess að leika í 8-
manna úrshtum á Evrópumeistaramótinu í snóker sem nú stendur yfir í
Ungveijalandi.
Jóhannes sigraði í gær Norður-írann Jonaathan Nelson, 4-3, í hreinum
úrshtum um það hvor kæmist í 8-manna úrshtin. Þá náði hann hæsta stuði
mótsins til þessa er hann gerði 119. í 8-manna úrslitunum mætir Jóhannes
íranum John Fare sem unnið hefur alla leiki sína á mótinu. Ásgeir Ásgeirs-
son tapaði í gær fyrir Finna, 1^4, og sigraði Ungveija. Hafnaði Ásgeir í 13.-16.
sæti.
Hroðalegt áfall fyrir knattspymuna og HM í Bandaríkjunum:
Maradona
féllíBoston
- á lyijaprófi. Hvað verður um lið Argentínu? FIFA í miklum vanda
Diego Maradona leikur ekki meira
með liði Argentínumanna á HM í
Bandaríkjunum og án efa er ferli hans
lokiö. Á þriðja tímanum í nótt viður-
kenndi formaöur argentínska knatt-
spyrnusambandsins, Julio Grondona,
að það væri Diego Maradona, fyrirliði
Argentínu, sem hefði failið á lyfja-
prófi sem tekið var eftir leik Argent-
ínu og Nígeríu í Boston á dögunum.
Áður hafði fulltrúi FIFA greint frá því
að leikmaður á HM hefði falhð á lyfja-
prófi.
Guido Tognoni, fulltrúi FIFA, sagöi
í nótt: „Maradona hefur viðurkennt
að hafa tekið asmalyfið ehedrine og
Julio Grondona hefur sagt okkur hjá
FIFA að þaö sé rétt.“
Fréttin í nótt kom eins og blaut
tuska framan í forráðamenn knatt-
spyrnunnar í Bandaríkjunum og ekki
síst framan í knattspyrnuunnendur.
Forráðamenn argentínska liðsins
voru flemtri slegnir og argentínskur
sjónvarpsmaður, sem sendi fréttina
til Argentínu í beinni útsendingu,
sagði þetta verstu frétt sem hann hefði
nokkum tíma þurft að senda frá sér.
Leikmenn og félagar Maradona í hði
Argentínu voru niðurbrotnir og fram-
tíð liðsins í keppninni er óráöin. Arg-
entínumenn eiga að leika í kvöld gegn
Búigaríu og era komnir í 16-liða úr-
slitin.
Alþjóðaknattspyrnusambandið,
FIFA, er í erfiðri stööu vegna máls-
ins. Lyfjamál hafa ekki verið tekin
fóstum tökum hjá sambandinu og
engar reglur eru til í lagasafni sam-
bandsins varðandi lyfjamál og það ef
leikmaður fellur á lyfjaprófi í heims-
meistarakeppni. Það veit því enginn
hvað tekur við hjá Maradona, sem
nýkominn er úr leikbanni vegna
neyslu kókaíns, og liöi Argentínu.
Maradona mun þó örugglega ekki
leika meira í Bandaríkjunum og vera
kann að Argentínumenn missi öll þau
stig sem þeir hafa hlotið í keppninni
til þessa. Fall Maradona á lyíjaprófmu
er enn meira áfall þegar það er haft
í huga, að hann hefur leikið snilldar-
lega í Bandaríkjunum og mjög margir
knattspymusérfræðingar hafa spáð
Argentínumönnum heimsmeistarat-
itlinum. Nú kann að verða breyting
þar á.
Tveir leikmenn úr hvoru liði hafa
verið teknir í lyfiapróf eftir hvem leik
á HM. Sé útkoman jákvæð úr fyrsta
sýni er annaö sýni tekið og ef útkoma
þar er einnig jákvæð er niðurstaðan
fall á lyfjaprófi. í dag veröur síðara
sýnið rannsakað en öruggt er að það
verður einnig jákvætt þar sem Mara-
dona viðurkenndi í nótt að hafa tekið
ólöglegt lyf sem áður er nefnt.
Maradona átti að leika í kvöld gegn
Búigaríu og hefði þá sett nýtt met í
sögu HM og leikið 22. leik sinn í úrsli-
takeppni HM.
„Við stóðum við loforðið"
- Holland, Sádi-Arabía og Belgía í 16-liða úrslitin á HM úr F-riðlinum
Sádi-Arabía tryggði sér í gær í fyrsta
skipti rétt til þess að leika í 16-liða úr-
slitum á HM í knattspymu með því að
sigra Belgíu, 1-0. Sigurmarkið var sér-
lega glæsilegt, skorað á 5. minútu leiks-
ins. Saeed Owarian einlék með knöttinn
frá miðju vallarins og skoraði af öryggi.
Þetta er besti árangur Sádi-Araba í
knattspymu frá upphafi og án efa
standa hátíðahöld enn yfir.
„A fyrsta blaöamannafundinum hér í
Bandaríkjunum lofuðum við því að við
myndum hafna í öðru sæti í riðlinum.
Það gerðum við og stóðum því við okk-
ar loforö. Mínir menn léku stórkostlega
vel í þessum leik og nú mætum viö
Svíum í næsta leik og eram tilbúnir í
þá viðureign," sagði Solari, þjálfari
Sádi-Arabíu.
„Lið Sádi-Arabíu er mjög gott, sér-
staklega í vörn. Mínir leikmenn voru
orönir mjög þreyttir í lokin og við eigum
erfiðan leik fyrir höndum gegn Þýska-
landi eða Argentíonu," sagði Paul van
Himst, þjálfari Belga.
Holland sigraði í F-riðlinum og hlaut 6
stig eins og lið Sádi-Arabíu. Holland sigr-
aði Marokkó, 2-1, og þjálfari liðsins, Dick
Advocaat, var ánægður í leikslok: „Við
höfum verið gagnrýndir en náðum samt
efsta sætinu í riðlinum," sagði Advocaat
og bætti við: „Við unnum tvo leiki í riðla-
keppninni og það voru ekki mörg liö sem
léku það eftir.“
„Við áttum ekki að tapa þessum leik
enda lékum við vel. Þrátt fyrir tap í öllum
leikjum okkar er ég ánægður með þetta
mót hjá okkur," sagði þjálfari Marokkó
eftir leikinn.
Mjólkurbikarinn:
Fylkir lagði Þrótt
Hávar Sigmjónsson, DV, Neskaupstað:
Það var mikið fjör á Neskaup-
staö í gærkvöld þegar Fylkis-
menn sóttu Þrótt heima á Nes-
kaupstað og leikur liðanna var
opinn og skemmtilegur. Fylkis-
menn höfðu sigur, 2-5, eftir að
staðan í leikhléi var 1-3. Ingvar
Ólason kom Fylki yfir á 6. min.
en Lúðvík Ámason jafnaði metin
á 14. min. Kristinn Tómasson
kom Fylki aftur yfir á 22. mín.
og Þórhallur Dan Jóhannsson
gerði þriðja markið rétt fyrir hlé.
I siðari hálfleik bætti Ingvar
fjórða markinu við áður en Lúð-
vík tókst að laga stöðuna fyrir
Þrótt en það gerði hann á 66. mín.
Síðasta orðið átti síðan Þórhaliur
Dan á tveimur mín. fyrir leikslok,
2-5. Þróttarar fengu fleiri færi til
að skora mörk, þar á meðal stang-
arskot en Fylkir nýtti sín færi
betur.
MjóJJkurbikarinn:
Stórieikur Leiknis
Leiknismenn, sem leíka í 4.
deild, velgdu íslands- og bikar-
meistumm Skagamanna heldur
betur undir uggum á gervigras-
inu í Efra-Breiöholti í gærkvöld.
Lengi yel leit út fyrir að fram-
lengja þyrfti leikinn en á síðustu
7 raín. leiksins tókst ÍA að tryggja
sér sigur með tveimur mörkum.
Skagamann náðu forystu um
miðjan fyrri háffleik með marki
Pálma Haraldssonar. Aðeins
tveimur mínútum síðar jafhaðí
Heiöar Ómarsson metin fyrir
Leikni. Leiknismenn voru betri
aöiliim í fyrri hálfleik en í þeim
síðari jókst sóknarþungi Skaga-
manna smám saman. Sjö mín.
fyrir leikslok skoraði Haraldur
Ingólfsson beint úr aukaspymu
og Mihjalo Biberdc bætti öðra
marki við skömmu síðar og
meistararnir sluppu með skrekk-
inn.
Mjólkurbikarinn:
ÍBVívanda
Hermann Karlsson, DV, Norðurlandi:
ÍBV lenti heldur betur í vandræðum á
Siglufirði í gærkvöld er liðið mætti KS úr
3. deild í Mjólkurbikarnum. Framlengingu
þurfti til að knýja fram úrslit, en staðan
eftir venjulegan leiktíma var 2-2. í fram-
lengingunni höfðu Eyjamenn betur.
ÍBV gerði fyrsta markið í leiknum og var
þar að verki Hermann Hreiðarsson. Ragn-
ar Hauksson jafnaði metin og þar við sat
í fyrri hálfleik. KS náði síðan forystu með
marki frá Agnari Þ. Sveinssyni, en 8. mín.
fyrir leikslok jafnaði Þórir Ólafsson fyrir
ÍBV. í fyrri hálfleik framlengingar áttu
KS-menn skalla í stöng, en ÍBV slapp meö
skrekkinn.
Eftir þetta atvik var allur vindur úr Sigl-
firðingum. Það vom þeir Sumarliði Áma-
son og Steingrímur Jóhannesson sem
tryggðu liðinu áframhaldandi þátttöku í
keppninni með mörkum í síðari háffleik
framlengingarinnar.
Mjólkurbikarmn:
Þrjú mörk Þróttar
Þróttur úr Reykjavík, sem leik-
ur í 2. deild, vann öruggan sigur
á Tindastölsmönnum úr 3. deild
í Mjólkurbikamum á Sauðár-
króki í gærkvöld, 0-3. Reykjavík-
ur-Þróttarar eru þar með komnir
í 16-liða úrslit keppninnar.
Gunnar Gunnarsson skoraöi
fyrsta mark Þróttara en hin
mörkin skoruðu þeir Hreiðar
Bjarnason og Páll Einarsson.
Eins og lokatölur bera meö sér
voru Þróttarar mun betri aðilinn
í leiknum.
Sex leikir í kvöld
Sex leikir fara fram í 32-liða úr-
siitunum í bikamum í kvöld: Ein-
herji mætir KR á Vopnafiröi, BÍ
og Stjarnan leika á ísafirði, Aftur-
elding og FH í Mosfellsbæ, Reynir
og Þór á Akureyri í Sandgerði,
Höttur og ÍBK á Egilsstöðum og
Neisti og Valur í Reykjavík á
Djúpavogi,
Iþróttir
Ferillinn á enda
Berti Vogts, þjáifari Þjóðverja,
hefur lýst því yfir að feriil Stefan
Effenbergs í landsliðinu sé á
enda.
Vogts hefur áhyggjur af leik
sinna manna og hefur á fundum
með liðinu hellt sér yfir leikmenn
sína. Þeir verði að leika betur
ætli þeir að verja titilinn.
Þriggja leikja bann
Rúmeninn Ion Vladoiu hefur
verið dæmdur í þriggja leikja
keppnisbann. Þetta er þyngsta
refsingin í úrslitum HM í Banda-
ríkjunum til þessa.
Sendur heim
í kjölfarið hefur fararstjóm og
þjálfarar nímenska liðsins rekið
Vladoiu heim til Búkarest fyrir
slæma framkomu og liið Ijóta
brot sem kostaöi hann rauða
spjaldið.
Kanamir eftirsóttír
Framganga Bandaríkjamanna
á HM hefur vakið mikla athygli
og félög i Evrópu renna nú hýru
auga í vesturátt. Þeir leikmenn
liðsins sem ekki hafa samning í
dag eiga von á freistandi tilboðum
á næstu dögum.
Dahlin ekki blankur
Sænski framheijinn Martin
Dahlin, sem framlengt hefur
samning sinn viö Bomssia
Mönchengladbach, mun fá um 30
milljónir króna í laun. Tilboðið
frá Everton, sem hann hafnaöi,
hljóöaði upp á 50 millj. króna.
Fluttur upp á þak
Hann Paul Harris, sem býr á
Manhattan Beach í Kalifomiu, er
tvímælalaust stuðningsmaður
bandariska liðsins númer 1.
Hann hefur búið um sig á bfl-
skúrsþakinu heima hjá sér og
ætlar að dvelja þar uns liðið hans
fellur úr keppni.
Michel í pottinn
Mikil sorg ríkir nú í Kámerún
eftir slælega frammistöðu þeirra
manna á HM. í höfuðborginni,
Yaounde, hefur því verið fleygt
að suðupotturinn sé klár fyrir
Henri Michel þjálfara, þori hann
að snua aftur.
írarfábónus
Leikmenn írska landsliðsins
munu skipta á milli sín 140 millj-
ónum ísl. króna sem þeir fá fyrir
að komast í 2. umferð.
Mjólkurbikarinn:
Fram lagðiVíði
n-------------------------
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
Fram vann öruggan sigur á 3.
deildar liði Víðis í Garði í gær-
kvöld, 1-3. Hólmsteinn Jónasson
kom Fram yfir á 10. mín. er vind-
urinn feykti fyrirgjöf hans í mark
Víðis. Hólmsteinn átti síðan góða
sendingu á Ríkharð Daðason um
miðjan hálfleikinn og hann skall-
aöi í mark, 0-2. Sigurður Valur
Ámason minnkaði muninn fyrir
Víði á 60. mín. en fimm mín. síðar
bætti Helgi Sigurðsson við þriðja
marki Fram, eftir sendingu frá
Ríkharði. Framarar fengu mörg
önnur færi í leiknum, þar á með-
al tvö stangarskot.
„Ég ákvaö því byija af krafti
og láta þá ekki komast inn í leik-
inn. Ég er ánægður með mína
menn og það er gaman að vera
áfram í bikarslagnum," sagði
Marteinn Geirsson, þjálfari
Fram, eftir leikinn.
Bónorð til markvarðarins
Margir knattspyrnusnillingarnir á HM eiga dygga stuðningsmenn. Einn
þeirra er Tony Meola, markvörður bandaríska liðsins, sem fékk þetta
óvænta bónorð frá valkyrju á áhorfendapöllunum. Á skiltinu stendur:
„Gifstu mér, Tony Meola“.
Þjálfarinn reykti og braut lög í Dallas
Dimitar Panev, þjálfari landsliös Búlgaríu, braut lögin í Dallas er hann
reykti á varamannabekknum þegar Búlgaría tapaði fyrir Nígeríu í fyrsta
leiknum á HM. „Ég veit að reykingar eru ekki vinsælar í Bandaríkjunum
•en getur þú hugsað þér þjálfara sitjandi á bekknum og ekki reykjandi?"
sagði Panev daginn eftir þegar honum var gerð grein fyrir broti sínu.
Stephen Tataw Eta, fyrirliði Kamerún, útskýrir vandamálin.
Hótuðu verkfalli vegna aukagreiðslna
Leikmenn Kamerún hafa ekki átt sjö dagana sæla á HM. Þeir áttu að
fá aukagreiðslu frá knattspyrnusambandinu þar í landi fyrir að komast
í lokakeppnina í Bandaríkjunum en þær greiðslur hafa ekki enn borist
til leikmanna. Þeir hótuðu verkfalli en því var afstýrt á síðustu stundu.
Alexi Lalas, reiður mjög, lætur gamminn geisa á blaðamannafundi.
Heimamenn þekktu ekki reglurnar
Leikmenn Bandaríkjanna á HM eru æfir vegna þess að þeim var ekki
greint frá því fyrir keppnina að stæði leikmaður ekki í nægllegri fjarlægð
frá tekinni aukaspyrnu fengi hann gult spjald. John Harkes fékk gult
spjald fyrir slíkt og er kominn í leikbann.