Alþýðublaðið - 25.05.1967, Qupperneq 2
Að undanförnu hafa miklar
malbikunarframkvæmdir átt
sér stað á götum Reykjavík
ur, enda hafa þær verið ó-
venju illa farnar eftir vet
urinn. Myndina hér til hlið
ar tók Bjarnleifur í fyrra-
dagr, er verið var að mal-
bika í miðbænum.
FRÉTTIR í SMU MÁLI
□ .,Skæruliðar myrtu JFK“
NEW ORLEANS Jim Garrison,
saksóknari í New Orleans,
sagði í gær, að hópur skæru-
liða hefði myrt Kennedy for-
seta í nóvember 1963. Þeir
hefðu notað byssur er búnar
hefðu verið hljóðdeyfum og
skotið frá þremur stöðum, en
Lee Harvey Oswald hefði ekki
hleypt af einu einasta skoti.
Morðingjarnir væru andstæð-
ingar Castros, og CIA vissi
hverjir þeir væru, því að þeir
væru fyrrverandi leiguþý leyni
þjónustunnar.
□ Flótti til Kúbu
HAVANA: Majór úr Banda-
ríkjaher, Richard H. Pearce,
hefur flúið til Kúbu „af sam-
vizkuástæðum", að sögn yfir-
valda í Havana. Pearce, sem
sæmdur haflði verið heiðurs-
merkjum fyrr framgöngu sína
í Vetnam, hafði aðgang að
leynilegum skjölum. Hann flúði
til Havana ásamt ungum syni
sínum í Cessna-flugvél.
□ Danir leyfa klám
K AUPM ANNAHÖFN: Bann
við sölu klámrita í Danmörku
verður bráðlega afnumið, þar
sem um það hefur náðst sam-
komulag í þeirri nefnd ríkis-
þingsins, sem fjalljlið hefur
um tillögu K. Axel Nielsens
dómsmálaráðherra um breyt-
ingu á ákvæðum hegningarlag-
anna um sölu klámrita. Þingið
mun samþykkja breytingartil-
löguna bráðlega.
□ Grikkir friðmælast
AÞENU: Forsætisráðherra
nýju stjórnarinnar í Grikk-
landi, Konstantín Kolías, hefur
fullvissað grannríkin á Balkan-
Framhald á 14. síðu.
SIGURDUR A MAGNUSSON
RIISTJÖItl
Sigurður A. Magnússon bla/Sa-
maður hefur verið ráðinn ritstjóri
Samvinnunnar í stað Páls H. Jóns-
sonar, sem hverfur frá störfum
hjá SÍS um mánaðamótin júní og
júlí að eigin ósk. Páll hefur veriö
forstöðumaður Fræðe ludeiUtlar
SÍS siðan í júní 1961 og jafn-
framt ritstjóri Samvinnunnar sið-
an í ársbyrjun 1964.
Sigurður A. Magnússon, sem nú
tekur við ritstjóm Samvinnunnar
er löngu þjóðkunnur maður fyrir
skrif sín. Hann er tæplega fer-
tugur að aldri, fæddur 1. marz
1928. Hann lauk stúdentsprófi
1948 og stundaði síðan nám um
tveggja ára skeið í guðfræðideild
Síðustu tónleikar starfsárs
Háskóla íslands, jafnframt því
sejm hann vann fyrir sér með
kennslu. Næstu ár stundaði hann
nám í Kaupmannahöfn, Aþenu,
Stokkhólmi og New York og lauk
þar BA-prófi í bókmenntum 1955,
en jafnhliða námi vanp hann fyr-
ir sér með ýmsu móti, stundaði
kennslu og bókavörzlu, var í sigl-
ingum með sænsku skipi og um
skeið næturvörður við nýbygging-
ar í Stokkhólmi. í New York var
hann m.a. pakkhúsmaður, veit-
ingaþjónn, kennari við tvo há-
skóla og útvarpsfréttamaður hjá
Sameinuðu þjóðunum. í Grikk-
Iandi vann hann að endurreisnar-
starfi eftir borgarastyrjöldina og
flóttamannahjálp.
Sigurður kom heim til íslands
haustið 1956 og hefur starfað við
Morgunblaðið að undanteknu
rúmu ári, þegar hann dvaldist í
Grikklandi og Indlandi. Fljótlega
Framhald á 15. síðu.
Sigurður A. Magnússon.
Sinfóníuhljómsveitarinnar
SENN lýkur þessu starfsári Sin-
fóníuhljómsveitar íslands og
verða 16. og seinustu áskriftartón-
leikarnir á fimmtudaginn kemur
í Háskólabíói. Stjórnandi verður
Bohdan Wodiczko en einleikari
Fou Ts'ong. Fou Ts'ong fæddist
í Sjanghai, en faðir hans var pró-
fessor við listaakademíuna þar og
var drengurinn alinn upp í nánum
kynnum við bæði kínverska og
vestræna menningu og list. Fou
Ts'ong hóf ungur að læra píanó-
leik og tók skjótum framförum.
Arið 1955 varð nafn hains heims-
þekkt, þegar hann vann fyrstu
verðlaun í Chopin-keppninni í
Varsjá og síðan hefur ekkert lát
verið á tónleikaferðum hans um
tieiminn. Fou Ts‘ong er giftur
dóttur fiðluleikarans fræga Ye-
hudi Menuhin. Á þessum tónleik-
um leikur Fou Ts'ong píanókon-
sert í B-dúr, KV 456 eftir Mozart.
Auk konsertsins verður leikið eitt
dáðasta verk Mozarts, serenada
„Eine 'kleine Nachtmusik‘“. Kon-
sert fyrir sjö blásturshljóðfæri,
bumbur og strengjasveit eftir
Frank Martin mun nú heyrast í
fyráta skipti hér á landi, en Mar-
tin er eitt fremsta tónskáld Sviss-
lendinga og konsertinn eflirsótt
verkefni góðra blásara í hljóm-
sveitum um víða veröld. Tónleik-
unum lýkur með Paganini-tilbrigð
unum eftir Boris Blacher. Á þess-
um tónleikum mun gestunum gef
inn kostur á að tryggja sér á-
skriftarskírteini næsta vetur og
verða sérstök eyðublöð því afhent
á tónleikunum. Áskrifendur hljóm
sveitarinnar munu og fá að njóta
annarra forréttinda að þessu sinni
þar sem þeim gefst nefnilega öll
um kostur á forkaupsrétti að mið
um á báða auikatónleikana, sem
hljómsveitin heldur að þessu
sinni.
Fyrri aukatónleikar verða núna
á föstudaginn 26. maí og þá leik-
ur Fou Ts‘ong oinleik í píanókon-
sert í C-dúr, KV 415 eftir Mozart
og í píanókonsert nr. 2 eftir Chop
in. Þá mun hljómsveitin leika sin
fóníu í D-dúr eftir Johann Christ
ian Bach. Stjórnandi verður Boh-
dan Wodiczko. Síðari aukatónleik-
arnir verða haldnir 1. júní. Þetta
verða tékkneskir tónleikar, sem
Zdenek Mácel stjórnar. Á efnis-
skránni verða verk eftir Dvorak,
píanókonsertinn sem Radoslav
Kvapil leikur, og h-moll cellókon
sertinn, sem Slanislav Apolin leik
ur.
ÁLYKTUN UM BÓKASAFNSMÁL
FRÁ BANDALAGI HÁSKÓLAMANNA
Fulltrúaráð Bandalags há-
skólamanna bendir á nauðsyn
þess að endurskipuleggja ís-
lenzk bókasafnsmál. Þar sem
sökum fámennis er ógerningur
að halda uppi nema einu vís-
indalegu bókasafni hérlendis,
en gott vísindalegt bókasafn er
bein undirstaða allrar fræða-
og vísindastarfsemi, sem
menning og tækni nútímans
byggjast á. Sífelldur flutning-
ur bóka og heimilda milli bóka
safna og stofnana, eins og nú
tíðkast hér og á' eftir að auk-
ast, er og í litlu samræmi vlð
hugmyndir nútímans um vinnu
hagræðingu.
Fulltrúaráðið tekur því ein-
dregið undir það álit Félags ís-
lenzkra fræða, að verðugt' sé
að minnast ellefu alda afmælis
íslands byggðar árið 1974 með
því að reisa nýja bókhlöðu
fyrir vísindalegt þjóðbókasafn,
er veiti sem bezta aðstöðu til
fræði- og vísindaiðkana.
-Ályktunin var samþykkt á
fundi fulltrúaráös BHM hinm
10. mai 1967).
2 25. maí 1967 »• ALÞÝÐUBLAÐIÐ