Alþýðublaðið - 31.05.1967, Blaðsíða 3
llllllllllllll■lll■l■l■ll miiiiiiiiiiiiiimniiiiiiimiiiiiiiM
ll•lll■l•llllllllll■lllllllll
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
EMIL
EGGERT
JON ARMANN
RAGNAR
STEFAN
SUÐURNESJAMENN
Alþýðuflokkurinn heldur almennan kjósendafund fyrirSuSurnesjamenn fimmtudaginn 1. júní í félags-
hcimilinu Stapa í Njarðvíkum. Fundurinn hefst kl. 20.30.
Ræður flytja ráðherrarnir Emil Jónsson og Eggert G. Þorsteinsson, Jón Ármann Héðinsson, viðskiptafræð-
ingur, Ragnar Guðleifsson kennari og Stefán Júlíusson rithöfundur.
Síðan verða frjálsar umræður. Allir velkomnir, meðan húsrúm leyfir.
lll•l•lllll••l•llllllllll•ll■lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll■l■lllllll
iiiiin111111111111111111111111111111111111iii
Hampiðjan ætlar í
mál við skipstjóra
Mótmæla enn
hægriakstri
Hampiðjan hefur nú sent frá sér yfirlýsingu vegna áskorunar 19
togaraskipstjóra, sem birtist í blöðunum laust fyrir síðustu
lielgi, þar sem þeir fóru fram á að engar takmarkanir yrðu lagðar á
innflutning veiðarfæra fra Portúgal. í yfirlýsingu Hampiðjunnar
segir að ummæli togaraskipstjóranna um veiðarfæri Hampiðjunnar
séu algerlega óréttmæt, og hafi stjórn fyrirtækisins ákveðið að
leita réttar síns fyrir dómstólum út af þessum ummælum. Yfirlýs.
ingunni fylgja vottorð þriggja manna um Hampiðjunetin, tveggja
sem hafa notað þau, en hinn þriðja, sem er einn skipstjóranna 19,
lýsir því yfir að hann hafi ekki notað þau net.
Fara yfirlýsing Hampiðjunnar
og vottorðin þrjú hér á eftir:
Dagana 18. og 19. maí sl. birtist
í dagblöðunum áskorun, sem 19
togaraskipstjórar höfðu sent sjáv-
arútvegsmálaráðherra varðandi
innflutning á veiðarfærum til tog-
aranna þar sem segir m.a.:
„Reynslan hefur sýnt, að Hamp-
iðjunetin hafa ekki líkt því sama
styrkleika í notkun og portúgölsk
net, sem togararnir hafa almennt
notað undanfarið".
Framangreind staðhæfing er al-
gerlega óréttmæt eins og saman-
burðarrannsóknir Rannsóknar
stofnunar iðnaðarins á gæðum
innlendra og erlendra neta hafa
sannað, en er auk þess til þess
fallin að spilla viðskiptum og á-
liti Hampiðjunnar og hnekkja
starfsemi hennar.
Við athugun á því, hverjir hefðu
haft forgöngu um að safna und-
irskriftum togaraskipstjóranna
undir umrætt plagg, hafa böndin
borizt að skipstjórum á togurum,
sein engin net hafa notað frá
Hampiðjunni. Þess má geta, að á
4 togaranna höfðu engin Hamp-
Bridgespilarar
Fimmtudaginn 1. júní kl. 8,
hefst Tvímenningskeppni í
Iæknahúsinu við Egilsgötu.
Öllum heimil þátttaka.
Ákveðiff er að spila þar á
fimmtudögum í sumar.
Bridgesamband íslands.
iðjunet verið notuð allt árið 1966
og fram til 1. maí á þessu ári og
á 5 togurum höfðu á sama tíma
einungis einstök stykki í net frá
Hampiðjunni verið notuð. Hinir
togararnir hafa, að því er bezt er
vitað, tekið mestöll net og efni frá
Hampiðjunni sl. 12 mánuði, en
engin kvörtun hefir borizt frá
skipstjórum þeirra né óskir um
aðra gerð eða gildara garn í netin.
Liggur þegar fyrir frá útgerð
fjögurra þessara togara yfirlýsing
um, að ending og verð Hampiðju-
netanna hafi ekki gefið tilefni til,
að viðskiptum við Hampiðjuna
yrði hætt. Af framansögðu virðist
ljóst, að undirskriftir skorti alger-
lega skilyrði til samanburðar á
gæðum portúgalskra neta og neta
frá Hampiðjunni, enda hefir kom-
ið fram, að samþykkt þessi var
flausturslega afgreidd og hafa
sumir skipstjóranna sem til hefir
náðst, láti'ð það í ljós, að þeir hafi
undirritað hana í fljótræði og
þyki það miður.
Þar sem vikið er að veiðarfæra
kostnaði í umræddu plaggi má
geta þess, að samkvæmt vottorði
Bæjarútgerðar Reykjavíkur var
kostnaður bv. Ingólfs Arnarsonar,
sem eingöngu hefir notað veiðar-
færi frá Hampiðjunni, í netum,
bætingarvinnu og tógum á tíma-
bilinu frá 1. janúar til 10. maí
Framhald á 14. síðu.
Félag íslenzkra vegfarenda, ný-
stnfnuff samtök til aff vinna aff
bættri umferffarmenningTi, sem
hafa sett afnám hægriaksturslag-
anna efst á stefnuskrá sína og at-
vinmsbifreiffastjórar standa eink-
um aff, hafa sent Alþýffublaðinu
fréttatilkynningu, þar sem segir,
aff mótmæli viff hægriaksturslögin
hafi borizt frá ýmsum stöffum á
landinu.
Frá Strandasýslu hafa borizt
mótmæli 220 kjósenda, sem óska
eftir því að þjóðaratkvæðagreiðsla
verði látin fara fram áður en lögin
verði framkvæmd. Sams konar
mótmæli hafa 97 kjósendur á ísa-
firði sent. Úr Árnessýslu liafa bor
izt mótmæli 670 kjósenda og á
aðalfundi Mjólkurbús Flóamanna
voru samþykkt mótmæli gegn lög-
unum af 600 fundarmönnum gegn
3. Á fundi á vegum Klúbbsins Ör-
uggur akstur á Selfossi mótmæltu
320-330 manns lögunum með því
að rísa úr sætum, en tillaga fékkst
ekki borin upp þar.
Þá voru nýlega send mótmæli
frá Seyðisfirði gegn lögunum, og
þúsundir Reykvíkinga hafa skrif-
að undir mótmæli gegn þeim, seg-
ir í fréttatilkynningunni. Áður en
lögin voru samþykkt á sínum tíma
höfðu Alþingi einnig borizt mót-
mæli frá Akranesi, Akureyri, Borg
arfirði, Hafnarfirði, Hreyfli í R-
vík, Seyðisfirði, Skagaströnd og
Þrótti í Rvík.
Félag íslenzkra vegfarenda vill
einnig geta þess, að það hefur
skrifað frambjóðendum allra
flokka bréf og farið fram á, að
þeir beiti sér fyrir því að fram-
kvæmd laganna um hægri akstur
verði frestað þar til þ.ióðaratkv.-
greiðsla bafi farið fram um lögin.
Tilboð í há-
spennulínu
opnuð í gær
í dag voru opnuð tilboð í efni
og uppsetningu háspennulíunnar
frá Búrfelli til Rej'kjavíkur og
Straumsvíkur, en samkvæmt úti
boðslýsingúnni á því verki að
Ijúka vorið 1969. Tilboð bárust
frá 6 firmum í 5 löndum, og var
tilboðsupphæð hvers firma þessi,
þegar miðað er við samanburðar-
grundvöll útboðslýsingarinnar:
Canadian Hoosier Engineering
Company Ltd., Kanada kr.
147.603.853,—
Starkstromanlagen-Gemeins-
chaft, V.-Þýzkalandi kr. 122.865,—
733,—
Garczynski & Traploir ásamt'
þrem örum frönskum firmum
kr. 114281.115,—
Compagnie Generale d’Entre-
prises Eletriques, Frakklandi
kr. 163.397.950,—
Transelectric AB, Svíþjóð
kr. 151.531.022,—
Societa Anonima Elettrificazi-
Framhald á 14. síðu.
Tveir nýir
gæzluvellir
Tveir smábarnagæzluvellir taka
til starfa 1. júní, eru þeir á skóla
lóðcm Vesturbæjarskólans viff
Öldugötu og Höfffaskólans viff Sig-
tún (Félagsheimili Ármanns). —
Leikvellir þessir eru ætlaðii; börn
um á aldrinum 2 — 5 ára. Þeir
verða starfræktir alla virka daga
frá kl. 9 — 12 árdegis og 2 — 5 síff-
degis nema laugardaga frá kl. 9
— 12 árdegis.
Báðir þessir smábarnagæzlu-
vellir verffa opnir mánuðina júní,
júlí cg ágúst effa þar til barnaskól-
arnir hefjast aff nýju.
Hussein og Nasser gera
með sér varnarsamning
Beirut 30/5 (NTB-Reuter) —
Hussein Jórdaníukonungur og
Nasser Egyptalandsjorseti hafa
undirritað varnarsáttmála milli
landanna. Kaíróútvarpið tiikynnti
þetta í dag.
Þessi tvö lönd eru sammála um,
að árás á annað þeirra jafngildi
árás á hitt. Hvort um sig er þess
albúið að veita hinu hverja þá að-
stoð, sem nauðsynleg væri, ef til
hernaðar kæmi. Þessi sáttmáli
gildir í 5 ár, en þá er unnt að
framlengja liann, ef þurfa þykir.
Nasser sagði í útvarpsræðu,
sem hann hélt við þetta tækifæri:
„Við stöndum andspænis miklum
vanda, — vera má, að við verðurn
ekki aðeins að berjast við ísrael
heldur einnig þá, sem styðja við
bakið á ísraelsmönnum, — Banda-
ríkin og Stóra-Bretland.
Nasser sagði, að koma Husseins
til Egyptalands og undirritun sátt-
málans sýndi, að Arabaríkin gætu
gleymt erjum sín á milli, þegar
um að ræða sameiginleg örlög.
hætta steðjaði að, — en þá væri
Egyptar, sýrlenzkar og jórdanskar
herdeildir eru á verði við landa-
mæri ísrales viðbúnar, ef til á-
taka kemur. — Nú er við hæfi að
vera með yfirlýsingar, hve góðar,
sem þær annars eru, sagði Nass-
er. Það, sem við gerum skiptir
öllu máli. Það, sem um er að
ræða er ekki Akabaflói heldur öll
Palestína, sagði hann.
Kaffifundur |
Félag ungra jafnaffarmanna efnir til kaffifundar í Súlnasfil |
Hót.il Sögu sunnudaginn 4. júní kl. 3 e. h.
Á fundinum verffa haldin stutt ávörp. Ómar Ragnarsson §
flytur nýjan gamanþátt. Éinar Jónsson leikur einleik á píanó. =
Ungir kjósendur eru hvattir til að koma og kynnast skoí- I
unum unga fólksins í Alþýðuflokknum.
i |
iiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii!mnniiiiniiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiii»mniiiimiiniun«i»in«i»niiii!iiM'»i!
31. maí 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3